Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Interim / Quarterly Report 2020

Aug 26, 2020

2210_rns_2020-08-26_81fbf80c-1070-49ed-9cd0-1a9b932dfe63.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

vodafone

  1. ágúst 2020

Fréttatilkynning: Afkoma Sýnar hf. á fyrri helmingi ársins 2020.

Fyrri árshelmingur sýnir batnandi rekstur

Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2020 var sambykktur á stjórnarfundi þann 26. ágúst 2020.

Helstu niðurstöður:

  • Tekjur á öðrum ársfjörðungi (2F) 2020 námu 5.352 milljónum króna sem er aukning um 329 milljónir frá sama tímabili árið 2019. Tekjur Endor ehf. á 2F 2020 námu 943 milljónum króna. Tekjur á fyrri árshelmingi hækkuðu um 349 milljónir króna milli ára, eða um 3%.

  • EBITDA nam 1.364 milljónum króna á 2F í samanburði við 1.216 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 25,5% á 2F 2020 samanborið við 24,2% á 2F 2019. EBITDA á fyrri árshelmingi 2020 nam 2.719 milljónir króna og hækkaði um 243 milljónir króna miðað við fyrri árshelming 2019.

  • Tap á 2F 2020 nam 60 milljónum króna samanborið við 215 milljón króna tap á sama tímabili í fyrra. Tap á fyrri árshelmingi ársins nam 410 milljónum króna samanborið við 455 milljónar króna hagnað á sama tímabili árið 2019. Inni í hagnaði fyrri árshelmings ársins 2019 var söluhagnaður að fjárhæð 817 milljónir króna vegna sölu á færeyska dótturfélaginu Hey.

  • Handbært fé frá rekstri á fjörðungnum nam 1.753 milljónum króna samanborið við 1.219 milljónir króna á sama tímabili árið áður, sem er aukning um 44%. Handbært fé frá rekstri á fyrri árshelmingi nam 2.805 milljónum króna samanborið við 2.038 milljónir króna á sama tímabili árið áður, sem er aukning um 38%.

  • Heildarfjárfestingar félagsins á fyrri árshelmingi námu 1.595 milljónum króna þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 520 milljónir króna og fjárfesting í sýningarréttum 1.075 milljónir króna.

  • Fjármögnunarhreyfingar á fyrri árshelmingi voru neikvæðar á tímabilinu um 1.445 milljónir króna á móti 190 milljónum króna á sama tímabili árið 2019 sem er breyting um 1.255 milljónir króna.

  • Eiginfjárhlutfall félagsins var 26,8% í lok fyrri árshelming 2020.

  • Það er óbreytt markmið stjórnenda að ná aukinni EBITDA framlegð og betra sjóðstregmi úr rekstri félagsins á árinu 2020. Skipulega er unnið að slíkri breytingu en ekki er að fullu fyrirséð að hve miklu leyti COVID-19 faraldurinn muni hafa áhrif á þetta markmið. Fjárfestingar ársins í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) verða í kringum 1 milljarður.

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

2020

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

Helstu niðurstöður úr rekstri á fyrri árshelmingi 2020

2F 2020 2F 2019 % breyt. 6M 2020 6M 2019 % breyt.
Seldar vörur og þjónusta 5.352 5.023 7% 10.347 9.998 3%
Kostnaðarverð -3.717 -3.290 13% -7.067 -6.358 11%
Framlegð 1.635 1.733 -6% 3.280 3.640 -10%
Rekstrarkostnaður -1.571 -1.769 -11% -3.237 -3.591 -10%
EBITDA 1.364 1.216 12% 2.719 2.476 10%
EBIT 64 -36 - 43 49 -
Hrein fjármagnsgjöld -182 -257 - -623 -515 -
Áhrif hlutdeildarfélaga 28 8 - 48 828 -
Tekjuskattur 30 70 - 122 93 -
(Tap) / hagnaður tímabilsins -60 -215 - -410 455 -
Framlegð % 30,5% 34,5% 31,7% 36,4%
EBITDA % 25,5% 24,2% 26,3% 24,8%
EBIT % 1,2% -0,7% 0,4% 0,5%

Heiðar Guðjónsson, forstjóri:

„Fyrri árshelmingur sýnir batnandi rekstur. Handbært fé frá rekstri eykst umtalsvert og frjálst sjóðstreymi batnar stórlega. Reksturinn hefði verið arðsamur ef COVID-19 hefði ekki komið til en bæði auglýsinga- og reikitekjur minnkuðu umtalsvert á tímanum auk þess sem tekjur komu ekki inn að fullu af tveimur stærstu efnisréttunum, EM í fótbolta og Meistaradeildinni, líkt og ráð hafði verið fyrir gert.

Við erum enn að hagræða og sjáum tækifæri til að nýta betur fjármagnið með samnýtingu fjárfestinga. Í því augnamiði er verið að færa meiri rekstur og fjárfestingar inn í Sendafélagið, sem er rekið með Nova. Sambykki eftirlitsaðila liggur þegar fyrir hvað þetta varðar. Aðgerðirnar munu bæta arðsemi rekstrar farsímakerfisins. Það er svo til athugunar að bjóða hluta farsímakerfisins til sölu, sem myndi skila umtalsverðu fjármagni til hluthafa. Alþjóðlegir aðilar hafa mikinn áhuga á fjárfestingum í innviðum símfyrirtækja og margfaldarar í viðskiptum eru mun hærri en gerist á almennum hlutabréfamarkaði.

Enn er beðið eftir athugasemdum frá eftirlitsaðilum vegna hugsanlegs samstarfs allra þriggja símfyrirtækjanna varðandi sameiginlega uppbyggingu 5G. Þar teljum við að hagsmunir almennings og þjóðaröryggi fari algerlega saman því verið væri að útvíkka birgjasambönd og tryggja sem besta samningsstöðu við erlenda framleiðendur. Það væri fráleitt að takmarka aðgengi íslenskra einkafyrirtækja að besta og ódýrasta búnáðinum til þess eins að þóknast utanríkispólitík Donalds Trump.

Hluthafar fara loks að fá þolinmæði sína verðlaunaða, enda er viðsnúningur að koma fram. Það er ætlun mín að skila fjármagni til hluthafa á næstu misserum.“

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

2020

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

Rekstrarafkoma á 2. ársfjórðungi 2020:

Tekjur félagsins á 2F 2020 námu 5.352 milljónum króna sem er 329 milljón króna hækkun frá sama tímabili árið áður.

Tekjur af fjölmiðlun námu 1.848 milljónum króna á 2F og lækkuðu um 15% á milli ára. Tekjur af interneti námu 1.148 milljónum króna á 2F, sem er lækkun um 60 milljónir króna á milli ára eða 5%. Tekjur af farsíma námu 834 milljónum króna og lækkuðu um 136 milljónir miðað við sama tímabil árið 2019. Tekjur af fastlínu námu 155 milljónum króna á 2F og lækkuðu um 24% á milli ára. Tekjur vegna hýsingar- og rekstrarlausna sem er kjarnastarfsemi Endor ehf. námu 943 milljónum króna. Tekjur af vörusölu námu 242 milljónum króna á tímabilinu sem er 13% lækkun miðað við sama ársfjórðung 2019. Aðrar tekjur námu 182 milljónum króna á 2F og lækkuðu um 7% á milli ára.

Kostnaðarverð nam 3.717 milljónum króna og hækkaði um 13% á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 1.571 milljónum króna og er 11% lægri en á sama tímabili árið 2019. EBITDA tímabilsins nam 1.364 milljónum króna og hækkar um 148 milljónir króna miðað við sama tímabil árið 2019. EBITDA hlutfall var 25,5% samanborið við 24,2% árið áður.

Hrein fjármagnsgjöld námu 182 milljónum króna á 2F 2020 sem er lækkun um 75 milljónir króna á milli ára. Gengistap lækkar um 9 milljónir frá 2F 2019,vextir af langtímaskuldum lækka um 95 milljónir milli fjörðunga en vextir vegna leigusamninga aukast um 41 milljónir sem skýrist að mestu af viðbót vegna fjármögnunarleigusamninga Endors. Tap á 2F 2020 nam 60 milljónum króna samanborið við 215 milljón króna tap á sama tímabili í fyrra.

Sjóðstreymi 2. ársfjórðungs 2020:

Handbært fé frá rekstri á 2F ársins 2020 var 1.753 milljónir króna sem er 44% hækkun frá fyrra ári.

Fjárfestingahreyfingar námu 857 milljónum króna á 2F 2020.

Fjármögnunarhreyfingar félagsins námu 855 milljónum króna á 2F 2020.

Handbært fé í lok 2F nam 410 milljónum króna sem er hækkun um 32 milljónir króna miðað við sama tímabil árið 2019.

img-0.jpeg
Sjóðstreymi 2F 2020

vodafo

vísir

SPORT

BYLGJAN

669

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

Rekstrarafkoma á fyrri árshelmingi 2020:

Tekjur félagsins á fyrri árshelmingi 2020 námu 10.347 milljónum króna sem er 349 milljón króna hækkun miðað við sama tímabil í fyrra.

Tekjur af fjölmiðlun námu 3.791 milljónum króna á fyrri árshelmingi og lækkuðu um 13% á milli ára. Tekjur af interneti námu 2.308 milljónum króna á fyrri árshelmingi, sem er lækkuðum um 106 milljónir króna á milli ára eða 4%. Tekjur af farsíma námu 1.745 milljónum króna og eru 138 milljónum króna lægri en á sama tímabili árið 2019. Tekjur af fastlínu námu 322 milljónum króna á fyrri árshelmingi og lækkuðu um 24% á milli ára. Tekjur vegna hýsingar- og rekstrarlausna sem er kjarnastarfsemi Endor ehf. námu 1.315 milljónum króna á fyrri árshelmingi 2020. Tekjur af vörusölu námu 476 milljónum króna á tímabilinu sem er 9% lækkuð miðað við sama tímabil árið 2019. Aðrar tekjur námu 390 milljónum króna á fyrri árshelming og lækkuðu um 5% á milli ára.

Kostnaðarverð nam 7.067 milljónum króna og hækkaði um 11% á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 3.237 milljónum króna og er 10% lægri en á sama tímabili árið 2019. EBITDA tímabilsins nam 2.719 milljónum króna og hækkar um 243 milljónir króna miðað við sama tímabil árið 2019. EBITDA hlutfall var 26,3% samanborið við 24,8% árið áður.

Hrein fjármagnsgjöld námu 623 milljónum króna á fyrri árshelming 2020 sem er hækkun um 108 milljónir króna á milli ára. Gengistap eykst um 174 milljónir frá fyrri árshelming 2019, vextir af langtímaskuldum lækka um 145 milljónir milli tímabila en vextir vegna leigusamninga aukast um 74,6 milljónir sem skýrist að mestu af viðbót vegna fjármögnunarleigusamninga Endors. Tap á fyrri árshelmingi ársins 2020 nam 410 milljónum króna samanborið við 455 milljóna króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Inni í hagnaði fyrri árshelmings ársins 2019 var söluhagnaður að fjárhæð 817 milljónir króna vegna sölu á færeyska dötturfélaginu Hey.

Sjóðstreymi 6 mánaða 2020:

Handbært fé frá rekstri á fyrstu 6
mánuðum ársins 2020 var 2.805
milljónir króna sem er 38%
hækkuð frá fyrra ári.

Fjárfestingahreyfingar námu 1.595 milljónum króna.

Fjármögnunarhreyfingar
félagsins námu 1.445 milljónum
króna á fyrri árshelmingi ársins
2020.

Handbært fé í lok fyrri
árshelmings nam 410 milljónum
króna sem er hækkun um 32
milljónir króna miðað við sama
tímabil árið 2019.

img-1.jpeg
Sjóðstreymi 6M 2020

vodafo

vísir

SPORT

BYLGJAN

2019

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

Efnahagur 30. júní 2020:

Eigið fé í lok tímabilsins nam 8.385 milljónum króna og eiginfjárhlutfall var 26,8%. Útgefið hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 milljónum króna.

Heildarskuldir félagsins voru 22.923 milljón króna í lok fyrri árshelming 2020. Hreinar iaxtaberandi skuldir voru 16.604 milljón króna í lok fjörðungsins. Veltufjárhlutfall var 1,1.

Kynningarfundur 27. ágúst 2020:

  • Opinn kynningarfundur vegna uppgjørsins verður haldinn fimmtudaginn 27. ágúst 2020. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Sýnar, 6. hæð, Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík og hefst klukkan 8:30.
  • Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
  • Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni https://syn.is/fjarfestatengsl.

Fjárhagsdagatal 2020:

✓ Afkoma 3F 2020
4. nóvember 2020
✓ Afkoma 4F 2020
24. febrúar 2021
✓ Aðalfundur 2020
19. mars 2021

Frekari upplýsingar:

✓ Tekið er á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjá[email protected].

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

KÝB

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is