AI assistant
Syn — Interim / Quarterly Report 2020
Aug 26, 2020
2210_rns_2020-08-26_4f4bcca2-6be3-4685-8279-45eeae87d436.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Sýn hf. Suðurlandsbraut 8 108 Reykjavík kt. 470905-1740
Sýn hf.
Samandreginn árshlutareikningur
samstæðu
- janúar til 30. júní 2020

Efnisyfirlit
| BIs. | |
|---|---|
| Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra | 3 |
| Fjárhagslegar lykiltölur | 4 |
| Könnunaráritun óháðra endurskoðenda | 5 |
| Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu | 6 |
| Efnahagsreikningur | 7 |
| Eiginfjáryfirlit | 8 |
| Sjóðstreymisyflit | 9 |
| Skýringar | 10 |
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Sýn hf. er alhliða félag á sviði fjarskipta- og fjölmiðlastarfsemi. Félagið rekur marga af öflugustu fjölmiðlum landsins eins og Stöð 2, Bylgjuna, Vísi, FM957, Xið og fleiri landsþekkta miðla. Félagið veitir einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og opinberum aðilum alhliða fjarskipta- og upplýsingatæknipjónustu undir vörumerkjum Vodafone á Íslandi og dótturfélagsins Endor ehf. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims.
Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samandreginn árshlutareikning félagsins, dótturfélagsins Endor ehf. og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf. Árshlutareikningur Sýnar hf. fyrir 1. janúar til 30. júní 2020 hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins.
Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur félagsins af seldum vörum og þjónustu 10.347 millj. kr. Tap af rekstri félagsins á tímabilinu nam 410 millj. kr. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir félagsins 31.308 millj. kr. Eigið fé félagsins þann 30. júní 2020 nam 8.385 millj. kr. Þar af nam hlutafé 2.964 millj. kr. Eiginfjárhlutfallið 30. júní 2020 var 26,78%
Áherslur stjórnenda félagsins í COVID-19 faraldrinum hafa verið að tryggja öryggi starfsmanna og viðskiptavina, ásamt því að tryggja að ekki verði rökun á rekstri og viðhaldi mikilvægra innviða. Áhrif COVID-19 faraldursins á rekstur og sjóðstrey mi samstæðunnar á fyrri helmingi ársins gætir helst í lækkandi tekjum af auglýsingum og reiki auk hærri kostnaðar vegna veikingar krónunnar. Sjá frekar í skýringu 11
Yfirlýsing
Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu samstæðunnar 30. júní 2020 ásamt rekstrarafkomu og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2020.
Stjórn og forstjóri Sýnar hf. hafa í dag fjallað um samandreginn árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2020 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Reykjavík, 26. ágúst 2020
Í Stjórn
Hjörleifur Pálsson, stjórnarformaður
Hilmar Þór Kristinsson
Petrea Ingileif Guðmundsdóttir
Sigríður Vala Halldórsdóttir
Tanya Zharov
Forstjóri
Heiðar Guðjónsson
Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2020
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Fjárhagslegar lykiltölur
| | 2020
2F | 2019
2F | 2020
6M | 2019
6M |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Fjárhagsupplysingar | | | | |
| Heildartekjur | 5.352 | 5.023 | 10.347 | 9.998 |
| Rekstrarhagnaður (tap) | 64 | (36) | 43 | 49 |
| (Tap) / Hagnaður fyrir tekjuskatt | (90) | (285) | (532) | 362 |
| (Tap) / Hagnaður tímabilsins | (60) | (215) | (410) | 455 |
| (Tap) / Hagnaður á hlut | (0,21) | (0,73) | (1,38) | 1,53 |
| Fjárfestingar í rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum | 257 | 390 | 520 | 1.006 |
| Fjárfestingar í sýningarrétti | 600 | 409 | 1.075 | 827 |
| Handbært fé frá rekstri | 1.753 | 1.219 | 2.805 | 2.038 |
| | | | | |
| Frammistöðumat | | | | |
| EBITDA tímabilsins | 1.364 | 1.216 | 2.719 | 2.476 |
| EBITDA hlutfall tímabilsins | 25,5% | 24,2% | 26,3% | 24,8% |
| Frjálst fjárflæði (FCF)* | 1.082 | 645 | 1.603 | 720 |
| | | | | |
| | 2020
2F | 31.12.
2019 | 2020
6M | 31.12.
2019 |
| Hreinar vaxtaberandi skuldir | 16.604 | 17.281 | 16.604 | 17.281 |
*Frjálst fjárflæði samanstendur af handbæru fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt að frádregnum fjárfestingahreyfingum.
Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2020
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Könnunaráritun óháðra endurskoðenda
Til stjórnar og hluthafa Sýnar hf.
Við höfum kannað meðfylgjandi samandreginn samstæðuárshlutareikning Sýnar hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2020. Samstæðuárshlutareikningurinn hefur að geyma, rekstrarreikning, yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.
Ábyrgð stjórnar og forstjóra á samstæðuárshlutareikningnum
Stjórn og forstjóri eru ábyrgir fyrir gerð og framsetningu samstæðuárshlutareikningsins í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfum sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga.
Ábyrgð endurskoðenda
Ábyrgð okkar felst í ályktun okkar um árshlutareikninginn sem byggir á könnuninni.
Umfang könnunar
Könnun okkar var unnin í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRE 2410, sem fjallar um könnun óháðs endurskoðanda á árshlutareikningum. Slik könnun felur í sér fyrirspurnir, einkum til starfsmanna sem eru ábyrgir fyrir fjármálum og reikningsskilum félagsins ásamt greiningum á hinum ýmsu liðum reikningsskilanna og öðrum könnunaraðgerðum. Könnun felur ekki í sér jafn viðtækar aðgerðir og endurskoðun sem unnin er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og er því ekki víst að við fáum vitneskju um öll mikilvæg atriði sem gætu komið í ljós við endurskoðun. Þar af leiðandi látum við álit um endurskoðun ekki í ljós.
Ályktun
Við könnun okkar kom ekkert fram sem bendir til annars en að samstæðuárshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á tímabilinu, efnahag þess 30. júní 2020 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið sambykktir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga.
Reykjavík, 26. ágúst 2020
Deloitte ehf.
Páll Grétar Steingrímsson
endurskoðandi
Jóhann Óskar Haraldsson
endurskoðandi
Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2020
Rekstrarreikningur
- janúar til 30. júní 2020
| | Skýr | 2020
2F | 2019
2F | 2020
6M | 2019
6M |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Seldar vörur og bjónusta | 5 | 5.352 | 5.023 | 10.347 | 9.998 |
| Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu | 6 | (3.717) | (3.290) | (7.067) | (6.358) |
| Framlegð | | 1.635 | 1.733 | 3.280 | 3.640 |
| Rekstrarkostnaður | 7 | (1.571) | (1.769) | (3.237) | (3.591) |
| Rekstrarhagnaður / (tap) | | 64 | (36) | 43 | 49 |
| Fjármunatekjur | | 6 | 14 | 14 | 27 |
| Fjármagnsgjöld | | (176) | (250) | (395) | (474) |
| Gengismunur | | (12) | (21) | (242) | (68) |
| Hrein fjármagnsgjöld | | (182) | (257) | (623) | (515) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | | 28 | 8 | 48 | 828 |
| (Tap) / Hagnaður fyrir tekjuskatt | | (90) | (285) | (532) | 362 |
| Tekjuskattur | | 30 | 70 | 122 | 93 |
| (Tap) / Hagnaður tímabilsins | | (60) | (215) | (410) | 455 |
| (Tap) / Hagnaður á hlut | | (0,21) | (0,73) | (1,38) | 1,53 |
Yfirlit um heildarafkomu
- janúar til 30. júní 2020
| | 2020
2F | 2019
2F | 2020
6M | 2019
6M |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| (Tap) / Hagnaður tímabilsins | (60) | (215) | (410) | 455 |
| Líðir sem gætu síðar verið færðir um rekstrarreikning | | | | |
| Þýðingarmunur | (1) | (22) | (3) | (77) |
| Áhættuvarnir | - | (36) | - | (25) |
| Heildarafkoma tímabilsins | (61) | (273) | (413) | 353 |
- Ársfjörðungslegar upplýsingar hafa ekki verið kannaðar af endurskoðendum.
Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.
Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2020
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Efnahagsreikningur
- júní 2020
| Skýr. | 30.6.2020 | 31.12.2019 | |
|---|---|---|---|
| Fastafjármunir | |||
| Afnotaréttir | 5.676 | 5.828 | |
| Rekstrarfjármunir | 4.445 | 4.793 | |
| Viðskiptavild | 8.832 | 8.787 | |
| Aðrar óefnislegar eignir | 4.523 | 4.648 | |
| Eignahlutir í félögum | 1.432 | 1.383 | |
| Tekjuskattsinneign | 243 | 97 | |
| Fastafjármunir samtals | 25.151 | 25.536 | |
| Veltufjármunir | |||
| Sýningarréttir | 1.793 | 1.814 | |
| Birgðir | 347 | 427 | |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 9 | 3.607 | 3.567 |
| Handbært fé | 410 | 634 | |
| Veltufjármunir samtals | 6.157 | 6.442 | |
| Eignir samtals | 31.308 | 31.978 | |
| Eigið fé | |||
| Hlutafé | 2.964 | 2.964 | |
| Yfirverðsreikningur hlutafjár | 2.465 | 2.465 | |
| Annað eigið fé | 160 | 112 | |
| Óráðstafað eigið fé | 2.796 | 3.257 | |
| Eigið fé | 8.385 | 8.798 | |
| Langtímaskuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 9.811 | 10.898 | |
| Leiguskuldbindingar | 4.932 | 5.390 | |
| Aðrar langtímaskuldir | 152 | 252 | |
| Tekjuskattskuldbinding | 16 | 9 | |
| Langtímaskuldir samtals | 14.911 | 16.549 | |
| Skammtímaskuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 991 | 689 | |
| Leiguskuldbindingar | 1.280 | 938 | |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 10 | 5.741 | 5.004 |
| Skammtímaskuldir samtals | 8.012 | 6.631 | |
| Skuldir samtals | 22.923 | 23.180 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 31.308 | 31.978 |
Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.
Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2020
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Eiginfjáryfirlit
- janúar til 30. júní 2020
| Hlutafé | Yfirverðs-reikningur hlutafjár | Þýðingar-munur | Annað eigið fé | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Bundinn reikningur | Áhættu-varnir | Óráðstafað eigið fé | Eigið fé samtals | ||||
| 1.1. til 30.6.2019 | |||||||
| Eigið fé 1.1.2019 | 2.964 | 2.465 | 110 | - | (111) | 5.279 | 10.707 |
| IFRS 16, áhrif innleiðingar | - | - | - | - | - | (169) | (169) |
| Leiðrétt eigið fé 1.1.19 | 2.964 | 2.465 | 110 | 0 | (111) | 5.110 | 10.538 |
| Hagnaður tímabilsins | - | - | - | - | - | 455 | 455 |
| Þýðingarmunur | - | - | (77) | - | - | - | (77) |
| Áhrif áhættuvarna | - | - | - | - | (25) | - | (25) |
| Heildarafkoma tímabilsins | 0 | 0 | (77) | 0 | (25) | 455 | 353 |
| Hagnaður hlutdeildarf. umfram arðgr. | - | - | - | 21 | - | (21) | 0 |
| Eigið fé 30.6.2019 | 2.964 | 2.465 | 33 | 21 | (136) | 5.544 | 10.891 |
| 1.1. til 30.6.2020 | |||||||
| Eigið fé 1.1.2020 | 2.964 | 2.465 | 7 | 105 | - | 3.257 | 8.798 |
| Tap tímabilsins | - | - | - | - | - | (410) | (410) |
| Þýðingarmunur | - | - | (3) | - | - | - | (3) |
| Heildarafkoma tímabilsins | 0 | 0 | (3) | 0 | 0 | (410) | (413) |
| Hagnaður hlutdeildarf. umfram arðgr. | - | - | - | 51 | - | (51) | 0 |
| Eigið fé 30.6.2020 | 2.964 | 2.465 | 4 | 156 | 0 | 2.796 | 8.385 |
*Breýting á stöðu eigin fjár 30.6.2019 frá birtum árshlutareikningi 2F 2020 skýrast af leiðréttingu á áhrifum innleiðingar IFRS 16 á stöðu eigin fjár 1.1.2019 sem gerð var í árslok 2019.
Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.
Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2020
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Sjóðstreymisyfirlit
- janúar til 30. júní 2020
| | Skýr. | 2020
2F | 2019
2F | 2020
6M | 2019
6M |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| (Tap) / Hagnaður tímabilsins samkvæmt rekstrarreikningi | | ( 60) | ( 215) | ( 410) | 455 |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | | | | | |
| Afskriftir | 8 | 1.300 | 1.252 | 2.676 | 2.427 |
| Hrein fjármagnsgjöld | | 182 | 257 | 623 | 515 |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | | ( 28) | ( 8) | ( 48) | ( 828) |
| Tekjuskattur | | ( 21) | ( 70) | ( 116) | ( 93) |
| Veltufé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | | 1.373 | 1.216 | 2.725 | 2.476 |
| Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum: | | | | | |
| Birgðir, breyting | | 58 | 4 | 83 | ( 104) |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, breyting | | ( 163) | 263 | ( 169) | 42 |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, breyting | | 671 | ( 39) | 559 | 139 |
| Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | | 1.939 | 1.444 | 3.198 | 2.553 |
| Innborgaðar vaxtatekjur | | 6 | 14 | 14 | 27 |
| Greidd vaxtagjöld | | ( 192) | ( 239) | ( 407) | ( 542) |
| Handbært fé frá rekstri | | 1.753 | 1.219 | 2.805 | 2.038 |
| Fjárfestingahreyfingar | | | | | |
| Kaup og sala eignarhluta | | - | - | - | 7 |
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | | ( 157) | ( 269) | ( 264) | ( 752) |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | | ( 100) | ( 121) | ( 256) | ( 254) |
| Fjárfesting í sýningarrétti | | ( 600) | ( 409) | ( 1.075) | ( 827) |
| Fjárfestingahreyfingar | | ( 857) | ( 799) | ( 1.595) | ( 1.826) |
| Fjármögnunarhreyfingar | | | | | |
| Afborganir langtímalána | | ( 171) | ( 171) | ( 341) | ( 299) |
| Rekstrarlán | | ( 296) | 102 | ( 443) | 321 |
| Afborgun leiguskuldbindinga | | ( 288) | ( 115) | ( 561) | ( 212) |
| Afborganir annarra langtímaskulda | | ( 100) | - | ( 100) | - |
| Fjármögnunarhreyfingar | | ( 855) | ( 184) | ( 1.445) | ( 190) |
| Breyting á handbæru fé | | 41 | 236 | ( 235) | 22 |
| Handbært fé í byrjun tímabils | | 385 | 142 | 634 | 356 |
| Áhrif gengisumreiknings dótturfélaga | | ( 16) | - | 11 | - |
| Handbært fé í lok tímabilsins | | 410 | 378 | 410 | 378 |
Skýringar á bls. 10-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.
Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2020
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar
- Félagið
Sýn hf. ("félagið") er íslensk hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar. Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2020 hefur að geyma árshlutareikning félagsins, dótturfélags þess, Endor ehf. og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf., sem visað er til í heild sem „samstæðunnar“.
- Reikningsskilin
a. Grundvöllur reikningsskilanna
Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfum sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Árshlutareikningur félagsins 1. janúar til 30. júní 2020 er kannaður af endurskoðendum félagsins.
Árshlutareikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilareglum og lágu til grundvallar við gerð ársreikningsins 2019. Hann inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2019. Hægt er að nálgast ársreikning Sýnar hf. á heimasíðu félagsins www.syn.is. og á vef Kauphallar Íslands; www.nasdaqomxnordic.com.
b. Mat stjórnenda á reikningsskilum
Gerð árshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og dragi ályktanir sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna og skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrugðnar þessu mati.
- Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill
Árshlutareikningur félagsins er birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.
- Starfsþáttayfirlit
Samstæðan skilgreinir starfsþætti eftir innri upplýsingagjöf til stjórnenda og telst samstæðan í heild vera einn starfsþáttur.
Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2020
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar, frh.:
- Seldar vörur og bjónusta
| Seldar vörur og bjónusta greinast bannig: | 2020 | 2019 | 2020 | 2019 |
|---|---|---|---|---|
| 2F* | 2F* | 6M | 6M | |
| Vörusala | 240 | 278 | 476 | 524 |
| Seld bjónusta | 5.111 | 4.745 | 9.871 | 9.474 |
| Seldar vörur og bjónusta samtals | 5.352 | 5.023 | 10.347 | 9.998 |
Tekjustraumar
Tekjustraumar eru birtir eftir eðli rekstrar og byggja á skipulagi og innri upplýsingagjöf félagsins.
Samstæðan skiptist í sjö tekjustrauma sem eru mismunandi í eðli sínu. Tekjustraumarnir eru:
Fjölmiðlun samanstendur af tekjum af starfsemi ljósvakamiðla, áskriftartekjum og tekjum af auglýsingasölu, tekjum af dreifingu á báðum sjónvarpsdreifikerfum Sýnar hf., leigutekjum af myndlyklum og tekjum af leigu einstakra kvikmynda og þátta (TVOD), tekjum af áskriftaveitu Sýnar hf. (SVOD), tekjum af áskriftum að línulegum stöðvum og tekjum af sölu einstaka sjónvarpsviðburða. Frammistöðuskuldbindingar vegna áskriftatekna og leigu á efni eru uppfylltar yfir tímabil þar sem viðskiptavinurinn nýtur þjónustunnar samhliða bví að hún er veitt, tekjur eru færðar samkvæmt bví. Tekjur af auglýsingasölu eru færðar þegar félagið hefur uppfyllt skuldbindingu sína gagnvart viðskiptavinum um birtingu. Tekjur af leigu á einstaka kvikmyndum, þáttum og sýningu viðburða eru færðar eftir að sýningartíma viðkomandi efnis lýkur sem er almennt 48 klukkustundum eftir kaup.
Internet samanstendur af tekjum af netbjónustu í fastlínukerfum, þ.m.t. á ljósleiðara, xDSL bjónustu og aðrar gagnatengingar, internetbjónustu, aðgangsgjöldum og leigu á netbeinum. Frammistöðuskuldbinding vegna internetbjónustu er uppfyllt yfir tímabil þar sem viðskiptavinurinn nýtur þjónustunnar samhliða bví að samstæðan veitir hana. Tekjur eru færðar mánaðarlega samkvæmt uppgjöri á föstu gjaldi að viðbættu breytilegu gjaldi vegna notkunar þegar það á við. Tekjur af leigu á búnæði, s.s. myndlyklum og netbeinum, eru færðar mánaðarlega samkvæmt samningum.
Farsími samanstendur af öllum tekjum vegna notkunar á farsímum, þ.m.t. gagnaflutningum í farsímakerfinu, áskriftartekjum frá einstaklingum og fyrirtækjum, seldum frelsisinneignum, reikitekjum frá ferðamönnum og samtengitekjum í farsíma. Viðskiptavinir geta keypt farsímabjónustu í gegnum áskrift þar sem fast gjald að viðbættum notkunartengdum gjöldum er gert upp mánaðarlega miðað við notkun, eða fyrirframgreitt frelsi. Frammistöðuskuldbindingar félagsins vegna farsímabjónustu eru uppfylltar yfir tímabil þar sem viðskiptavinur nýtur þjónustunnar samhliða bví að hún er veitt.
Fastlína samanstendur af tekjum vegna notkunar á heimasíma, fyrirtækjasíma í fastlínu og samtengitekjum í fastlínu. Samningar eru til mánaðar í senn og fast gjald að viðbættu breytilegu gjaldi fyrir notkun er gert upp mánaðarlega. Frammistöðuskuldbinding vegna heimasíma er uppfyllt yfir tímabil þar sem viðskiptavinur nýtur þjónustunnar samhliða bví að hún er veitt.
Hýsingar- og rekstrarlausnir samanstanda af tekjum af rekstri og bjónustu við skýjalausnir og sérhæfðri sölu miðlægra lausna við gagnaverstengda starfsemi ásamt aðfangastjörnun og ráðgjöf við gagnaverstengda bjónustu. Frammistöðuskuldbindingar vegna rekstar og bjónustu eru uppfylltar yfir tímabil þar sem viðskiptavinur nýtur þjónustunnar samhliða bví sem hún er veitt. Tekjur af sölu búnæðar eru færðar á þeim tímapunkti þegar yfirráð yfir vörunni flytjast til viðskiptavinar, sem er við afhendingu vörunnar.
Vörusala samanstendur af sölu á búnæði og fylgihlutum. Tekjur af vörusölu eru færðar á þeim tímapunkti þegar yfirráð yfir vörunni flytjast til viðskiptavinar, sem er við afhendingu vörunnar.
Aðrar tekjur samanstanda af þjónustutekjum, tekjum af hugbúnæði, útseldri vinnu og öðrum tilfallandi tekjum.
| Tekjustraumar | Fjöl-miðlun | Internet | Farsími | Fastlína | Hýsingar-og rekstrar | Aðrar tekjur | Samtals | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| lausnir | Vörusala | |||||||
| 1.1. til 30.06.2020 | ||||||||
| Tekjur félagsins | 3.791 | 2.308 | 1.745 | 322 | 1.315 | 476 | 390 | 10.347 |
| Tekjur samtals | 3.791 | 2.308 | 1.745 | 322 | 1.315 | 476 | 390 | 10.347 |
| Tekjustraumar | Fjöl-miðlun | Internet | Farsími | Fastlína | Hýsingar-og rekstrar | Aðrar tekjur | Samtals | |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| lausnir | Vörusala | |||||||
| 1.1. til 30.06.2019 | ||||||||
| Tekjur félagsins | 4.342 | 2.414 | 1.883 | 424 | - | 523 | 412 | 9.998 |
| Tekjur samtals | 4.342 | 2.414 | 1.883 | 424 | 0 | 523 | 412 | 9.998 |
Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2020
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar, frh.:
6 Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu
| Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu greinist þannig: | 2020 | 2019 | 2020 | 2019 |
|---|---|---|---|---|
| 2F | 2F | 6M | 6M | |
| Kostnaðarverð seldrar vöru og þjónustu | 2.204 | 1.820 | 3.970 | 3.469 |
| Laun og launatengd gjöld | 566 | 631 | 1.141 | 1.254 |
| Eignfærð laun | (36) | (59) | (80) | (127) |
| Afskriftir | 983 | 898 | 2.036 | 1.762 |
| Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu samtals | 3.717 | 3.290 | 7.067 | 6.358 |
- Rekstrarkostnaður
| Rekstrarkostnaður greinist þannig: | 2020 | 2019 | 2020 | 2019 |
|---|---|---|---|---|
| 2F | 2F | 6M | 6M | |
| Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður | 331 | 338 | 637 | 741 |
| Sölu- og markaðskostnaður | 107 | 117 | 211 | 244 |
| Laun og launatengd gjöld | 848 | 1.004 | 1.814 | 2.076 |
| Eignfærð laun | (32) | (44) | (65) | (135) |
| Afskriftir | 317 | 354 | 640 | 665 |
| Rekstrarkostnaður samtals | 1.571 | 1.769 | 3.237 | 3.591 |
- Afskriftir
| 2020 | 2019 | 2020 | 2019 | |
|---|---|---|---|---|
| Afskriftir í rekstrarreikningi greinast þannig: | 2F | 2F | 6M | 6M |
| Afskriftir rekstrarfjármuna | 301 | 314 | 607 | 622 |
| Afskriftir óefnislegra eigna | 194 | 210 | 393 | 414 |
| Afskriftir afnotaréttar | 290 | 138 | 580 | 242 |
| Afskriftir sýningaréttar | 515 | 590 | 1.096 | 1.150 |
| Afskriftir samtals | 1.300 | 1.252 | 2.676 | 2.427 |
- Víðskiptakröfur
| Víðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur greinast þannig: | 30.6.2020 | 31.12.2019 |
|---|---|---|
| Víðskiptakröfur | 3.089 | 3.167 |
| Aðrar skammtímakröfur | 510 | 355 |
| Leigukröfur | 116 | 147 |
| Niðurfærsla víðskiptakrafna | (108) | (102) |
| Víðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur samtals | 3.607 | 3.567 |
| Nafnverð kröfu | ||
| --- | --- | --- |
| Aldur viðskiptakrafna greinist þannig: | 30.6.2020 | 31.12.2019 |
| Ögjaldfallið | 3.445 | 3.268 |
| Gjaldfallið innan 90 daga | 83 | 177 |
| Gjaldfallið fyrir meira en 90 dögum | 187 | 224 |
| Heildarstaða viðskiptakrafna | 3.715 | 3.669 |
Samandreginn samstæðúárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2020
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Skýringar, frh.:
10. Viðskiptaskuldir
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir greinast þannig: | 30.6.2020 | 31.12.2019 |
|---|---|---|
| Viðskiptaskuldir | 3.581 | 3.431 |
| Ögreiddur virðisaukaskattur | 470 | 305 |
| Fyrirframinnheimtar tekjur | 154 | 196 |
| Ögreiddur áfallinn kostnaður og aðrar skammtímaskuldir | 1.536 | 1.072 |
| Viðskiptaskuldir samtals | 5.741 | 5.004 |
11. Önnur mál
Sýn hf. („félagið“) á í málarekstri við einstaklinga, önnur félög og eftirlitsstofnanir á íslenskum fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði. Félagið færir skuldbindingar og/eða kröfur vegna málarekstur þegar hægt er að meta framtíðargreiðslur og ávinning með áreiðanlegum hætti. Vegna óvissu um framtíðarþrón málarekstrar, niðurstöður dómsmála, úrskurði, áfrýjanir og sættir í málum geta niðurstöður mála leitt til viðbótar skuldbindinga og kostnaðar fyrir félagið.
Sýn hf. gegn 365 hf., Ingibjörgu Stefaníu Pálmadóttur og Jóni Ásgeiri Jóhannessyni
Sýn hf. stefndi 365 hf., Ingibjörgu Stefaníu Pálmadóttur og Jóni Ásgeiri Jóhannessyni til greiðslu skáðabóta vegna brota á ákvæðum kaupsamnings um starfsemi 365 hf., og yfirlýsingu sem gefin var í tengslum við kaupsamningsgerðina, um samkeppnisbann. Í kaupsamningi er kveðið á um févíti eða dagsektir að fjárhæð 5 millj.kr. vegna brota á samkeppnisbanninu auk þess sem aðaleigendur seljanda skuldbundu sig persónulega til greiðslu sömu fjárhæða skv. sérstakri yfirlýsingu þar um. Dómkrafa Sýnar hf. byggir á þessum dagsektarákvæðum og nemur um 1.700 millj. kr., auk vaxta. Stefnan hefur verið þingfest og stefndu munu skila greinargerð að loknu réttarhléi.
365 hf., Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir og Jón Ásgeir Jóhannesson hafa stefnt Sýn hf., framkvæmdastjóra og öllum stjórnarmönnum til greiðslu miskabóta. Stefnendur krefjast 1.000 millj.kr. hver fyrir sig. Stefndu hafa skilað greinargerð og krefjast frávísunar.
Á þessum tímapunkti getur félagið ekki metið framtíðar skuldbindingar eða kröfur sem leiða af niðurstöðum ofangreinds málareksturs meðal annars vegna þess að það getur tekið langan tíma að fá niðurstöðu í mál, ásamt því að mál geta þróast í ólikar áttir. Vegna þess hefur engin skuldbinding eða krafa verið færð í árshlutareikning félagsins.
COVID-19 heimsfaraldur
Áherslur stjórnenda félagsins í COVID-19 faraldrinum hefur verið að tryggja öryggi starfsmanna og viðskipta ásamt því að tryggja að ekki verði röskun á rekstri og viðhaldi mikilvægra innviða. Áhrif COVID-19 faraldursins á rekstur og sjóðstreymi samstæðunnar á fyrsta helmingi ársins ber helst að gæta í lækkandi tekjum af auglýsingum og reiki. Tekjur af auglýsingum náðu aftur jafnvægi í lok tímabilsins en miðað við núverandi stöðu faraldursins og óvissu í efnahagslífinu er erfitt að meta þrón þeirra á seinni hluta árs.
Tekjur af reiki hafa lækkað umtalsvert frá upphafi faraldursins eða um 84%. Þá lækkun má rekja til fækkunar á erlendum ferðamönnum og minni ferðalögum Íslendinga erlendis. Veruleg óvissa er til staðar í þessum tekjulið. Ef sambærileg staða verður á aðgerðum stjórnvalda vegna faraldursins við landamæri eins og þær eru núna þá má ætla að reikitekjur hverfi nærri að fullu seinni hluta ársins. Áhrif þess á EBITDA félagsins fyrir seinni helming ársins 2020 gæti numið allt að 3-4%. Eftirspurn eftir fjarskipta, tækni- og sjónvarpsbjónustu félagsins hefur að mestu leyti haldist sterk hingað til. Ef samdráttar mun gæta til lengri tíma í efnahagslífinu er óljóst hver áhrifin verða á aðra tekjustofna en nefndir eru hér að ofan sem og þrón á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði. Líkur eru á að faraldurinn muni leiða til greiðsluerfiðleika hjá einhverjum af viðskiptavinum félagsins, félagið hefur unnið að því að leita lausna með sínum viðskiptavinum í þeim efnum. Félagið er með hluta af sínum kostnaði í erlendri mynt og vegur þar þyngst kostnaður sýningarrétta og leyfisgjöld tengd fjarskiptakerfinu. Veiking krónunnar hefur því haft talsverð áhrif til hækkunar á rekstrarkostnaði félagsins og má ætla að öbreyttu að þau áhrif muni vega þyngra á seinni helmingi ársins. Stjórnendur félagsins hafa gripið til ýmissa hagræðingaarðgeð til að lágmarka þessi áhrif á rekstur og sjóðstreymi félagsins en miðað við þá óvissu sem til staðar er vegna faraldursins er ekki hægt að meta að fullu hver áhrifin verða til skemmri og lengri tíma.
Samandreginn samstæðúárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2020
Fjárhæðir eru í milljónum kr.
Ársfjörðungsyfirlit
- janúar til 30. júní 2020
| 2019 | 2019 | 2019 | 2019 | 2020 | 2020 | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1F | 2F | 3F | 4F | 1F | 2F | |
| Seldar vörur og bjónusta | 4.975 | 5.023 | 4.878 | 4.935 | 4.995 | 5.352 |
| Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu | (3.068) | (3.290) | (3.133) | (3.098) | (3.350) | (3.717) |
| Framlegð | 1.907 | 1.733 | 1.745 | 1.837 | 1.645 | 1.635 |
| Rekstrarkostnaður | (1.822) | (1.769) | (1.559) | (1.570) | (1.666) | (1.571) |
| Virðisrýrnun | - | - | - | (2.452) | - | - |
| Rekstrarhagnaður (tap) | 85 | (36) | 186 | (2.185) | (21) | 64 |
| Fjármunatekjur | 13 | 14 | 11 | 17 | 8 | 6 |
| Fjármagnsgjöld | (271) | (271) | (337) | (171) | (449) | (189) |
| Hrein fjármagnsgjöld | (258) | (257) | (326) | (154) | (441) | (182) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 820 | 8 | 16 | 119 | 20 | 28 |
| Tekjuskattur | 23 | 70 | 22 | 119 | 92 | 30 |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | 670 | (215) | (102) | (2.101) | (350) | (60) |
| Þýðingarmunur vegna erlands dötturf. | (55) | (22) | (21) | (5) | (2) | (1) |
| Áhættuvarnir | 11 | (36) | 136 | - | - | - |
| Heildarafkoma tímabilsins | 626 | (273) | 13 | (2.106) | (352) | (61) |
| EBITDA | 1.260 | 1.216 | 1.623 | 1.409 | 1.355 | 1.364 |
| EBITDA % | 25,3% | 24,2% | 33,3% | 28,6% | 27,1% | 25,5% |
*Ársfjörðungslegar upplýsingar hafa ekki verið kannaðar af endurskoðendum
Samandreginn samstæðuárshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2020
Fjárhæðir eru í milljónum kr.