AI assistant
Syn — Interim / Quarterly Report 2020
Nov 4, 2020
2210_rns_2020-11-04_16867f82-d621-440d-8583-68011592975e.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
vodafone
- nóvember 2020
Fréttatilkynning: Afkoma Sýnar hf. á fyrstu níu mánuðum 2020.
Rekstrarbati og mikilvægar breytingar til framtíðar
Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2020 var sambykktur á stjórnarfundi þann 4. nóvember 2020.
Helstu niðurstöður:
-
Tekjur á þriðja ársfjórðungi (3F) 2020 námu 5.026 milljónum króna sem er aukning um 148 milljónir frá sama tímabili árið 2019. Tekjur Endor ehf. á 3F 2020 námu 443 milljónum króna. Tekjur á fyrstu níu mánuðum ársins hækkuðu um 497 milljónir króna milli ára, eða um 3%.
-
EBITDA nam 1.593 milljónum króna á 3F í samanburði við 1.623 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 31,7% á 3F 2020 samanborið við 33,3% á 3F 2019. EBITDA á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 nam 4.312 milljónir króna og hækkaði um 212 milljónir króna miðað við sama tímabil 2019. EBITDA hlutfallið er 28% á fyrstu níu mánuðunum 2020 samanborið við 27,6% á sama tímabili 2019.
-
Hagnaður á 3F 2020 nam 8 milljónum króna samanborið við 71 milljóna króna tap á sama tímabili í fyrra. Tap á fyrstu níu mánuðum ársins nam 402 milljónum króna samanborið við 384 milljóna króna hagnað á sama tímabili árið 2019. Inni í hagnaði fyrstu níu mánuði ársins 2019 var söluhagnaður að fjárhæð 817 milljónir króna vegna sölu á færeyska dótturfélaginu Hey.
-
Handbært fé frá rekstri á fjórðungnum nam 1.055 milljónum króna samanborið við 1.235 milljónir króna á sama tímabili árið áður, sem er lækkun um 15%. Handbært fé frá rekstri á fyrstu níu mánuðum ársins nam 3.855 milljónum króna samanborið við 3.424 milljónir króna á sama tímabili árið áður, sem er aukning um 13%.
-
Heildarfjárfestingar félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins námu 2.345 milljónum króna þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 764 milljónir króna og fjárfesting í sýningarréttum 1.581 milljónir króna.
-
Fjármögnunarhreyfingar á fyrstu níu mánuðum ársins voru neikvæðar um 1.932 milljónir króna á móti 600 milljónum króna á sama tímabili árið 2019 sem er aukning um 1.332 milljónir króna.
-
Eiginfjárhlutfall félagsins var 27,7% í lok þriðja fjórðungs 2020.
-
Það er óbreytt markmið stjórnenda að ná aukinni EBITDA framlegð og betra sjóðstreymi úr rekstri félagsins á árinu 2020. Skipulega er unnið að slíkri breytingu en ekki er að fullu fyrirséð að hve miklu leyti COVID-19 faraldurinn muni hafa áhrif á þetta markmið. Fjárfestingar ársins í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) verða í kringum 1 milljarður.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
2020
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
^{}[]
Helstu niðurstöður úr rekstri á fyrstu níu mánuðum ársins 2020
| 3F 2020 | 3F 2019 | % breyt. | 9M 2020 | 9M 2019 | % breyt. | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og þjónusta | 5.026 | 4.878 | 3% | 15.373 | 14.876 | 3% |
| Kostnaðarverð | -3.399 | -3.133 | 8% | -10.466 | -9.491 | 10% |
| Framlegð | 1.627 | 1.745 | -7% | 4.907 | 5.385 | -9% |
| Rekstrarkostnaður | -1.485 | -1.559 | -5% | -4.722 | -5.150 | -8% |
| EBITDA | 1.593 | 1.623 | -2% | 4.312 | 4.100 | 5% |
| EBIT | 142 | 186 | - | 185 | 235 | - |
| Hrein fjármagnsgjöld | -169 | -295 | - | -792 | -810 | - |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 23 | 16 | - | 71 | 844 | - |
| Tekjuskattur | 12 | 22 | - | 134 | 115 | - |
| Hagnaður/(Tap) tímabilsins | 8 | -71 | - | -402 | 384 | - |
| Framlegð % | 32,4% | 35,8% | 31,9% | 36,2% | ||
| EBITDA % | 31,7% | 33,3% | 28,0% | 27,6% | ||
| EBIT % | 2,8% | 3,8% | 1,2% | 1,6% |
Heiðar Guðjónsson, forstjóri:
„Mikilvægar breytingar til framtíðar
Reksturinn heldur áfram að batna. Það eru áfram áskoranir á auglýsingamarkaði og reikitekjur féllu nær alfarið út í uppgjörinu. Á móti kemur að aðrir liðir eru á uppleið. Ánægja viðskiptavina er að batna hratt, sem skiptir mestu máli til lengri tíma litið, og við sjáum fram á fjölgun viðskiptavina.
Í hverju árshlutauppgjóri þessa árs höfum við fjallað um þá stefnu okkar að minnka fastan kostnað fyrirtækisins. Að útvista meiru, breyta föstum kostnaði í breytilegan, og einfalda reksturinn. Nú hillir undir mikilvægar breytingar þar að lutandi. Með undirritun samnings um einkaviðræður um sölu á óvirkum hluta farsímakerfisins erum við bjartsýn á að ná að losa um mikil verðmæti sem ekki nýtast sem skyldi í rekstri. Við sjáum fram á um 6 milljarða söluhagnað án þess að framlegð (EBITDA) breytist að nokkru ráði. Í þessum viðskiptum seljum við óvirka innviði farsímakerfisins á um 200 af þeim ríflega 600 fjarskiptastöðum sem við eigum farsímabúnað á.
Innviðir fyrirtækisins verða áfram sterkir. Til viðbótar við öflugt farsímakerfi sem þjónustar yfir 99,8% landsmanna með háhráða tengingu eigum við landsdekkandi fastlínukerfi, landsdekkandi sjónvarps- og útvarpsdreifikerfi og annað af tveimur IPTV kerfum landsins. Félagið er þannig með virkan búnað á yfir 800 stöðum um land allt.
vodafone
^{}[]
vísir
^{}[]
SPORT
BYLGJAN
600
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
Það er mikilvægt að laga efnahagsreikning fyrirtækisins til að búa það í haginn fyrir framtíðina. Langtímaskuldir, utan leiguskuldbindinga, lækka á milli uppgöra og nema 10,4 milljörðum. Við söl u á innviðum er ljóst að fyrirtækið getur orðið mjög skuldlétt.
Það ríkir óvissa um 5G-væðingu vegna afskipta stjórnvalda af framleiðendum fjarskiptabúnaðar og uppyggjning er í raun þegar farin að tefjast vegna þeirrar óvissu, sem aftur bitnar á hagvexti framtíðar. Búnaður allra framleiðenda á vitaskuld að lúta sömu ströngu öryggiskröfunum, annað væri falskt öryggi og hrein mismunum á samkeppnisstöðu fyrirtækja á markaði.
Rekstrarafkoma á 3. ársfjörðungi 2020:
Tekjur félagsins á 3F 2020 námu 5.026 milljónum króna sem er 148 milljón króna hækkun frá sama tímabili árið áður.
Tekjur af fjölmiðlun námu 1.932 milljónum króna á 3F og lækkuðu um 1% á milli ára. Tekjur af interneti námu 1.134 milljónum króna á 3F, sem er lækkun um 81 milljónir króna á milli ára eða 7%. Tekjur af farsíma námu 929 milljónum króna og lækkuðu um 137 milljónir miðað við sama tímabil árið 2019. Tekjur af fastlínu námu 145 milljónum króna á 3F og lækkuðu um 24% á milli ára. Tekjur vegna hýsingar- og rekstrarlausna sem er kjarnastarfsemi Endor ehf. námu 443 milljónum króna. Tekjur af vörusölu námu 253 milljónum króna á tímabilinu sem er 2% lækkun miðað við sama ársfjörðung 2019. Aðrar tekjur námu 190 milljónum króna á 3F og lækkuðu um 6% á milli ára.
Kostnaðarverð nam 3.399 milljónum króna og hækkaði um 8% á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 1.485 milljónum króna og er 5% lægri en á sama tímabili árið 2019. EBITDA tímabilsins nam 1.593 milljónum króna og lækkar um 30 milljónir króna miðað við sama tímabil árið 2019. EBITDA hlutfall var 31,7% samanborið við 33,3% árið áður.
Hrein fjármagnsgjöld námu 169 milljónum króna á 3F 2020 sem er lækkun um 126 milljónir króna á milli ára. Gengismunur eykst um 48 milljónir frá 3F 2019 og er gengistap i 3F 2020 17 milljónir króna. Vextir af langtímaskuldum lækka um 214 milljónir milli fjörðunga en vextir vegna leigusamninga aukast um 35 milljónir sem skýrist að mestu af viðbót vegna leigusamninga Endors. Hagnaður á 3F 2020 nam 8 milljónum króna samanborið við 71 milljóna króna tap á sama tímabili í fyrra.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
2020
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
^{}[]
Sjóðstreymi 3. ársfjórðungs 2020:
Handbært fé frá rekstri á 3F ársins 2020 var 1.055 milljónir króna sem er 15% lækkun frá fyrra ári.
Fjárfestingahreyfingar námu 750 milljónum króna á 3F 2020.
Fjármögnunarhreyfingar félagsins námu 487 milljónum króna á 3F 2020.
Handbært fé í lok 3F nam 213 milljónum króna sem er hækkun um 86 milljónir króna miðað við sama tímabil árið 2019.

Sjóðstreymi 3F 2020
Rekstrarafkoma á fyrstu níu mánuði ársins 2020:
Tekjur félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 námu 15.373 milljónum króna sem er 497 milljóna króna hækkun miðað við sama tímabil í fyrra.
Tekjur af fjölmiðlun námu 5.723 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 og lækkuðu um 9% á milli ára. Tekjur af interneti námu 3.442 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins, sem er lækkun um 187 milljónir króna á milli ára eða 5%. Tekjur af farsíma námu 2.674 milljónum króna og eru 275 milljónum króna lægri en á sama tímabili árið 2019. Tekjur af fastlínu námu 467 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins og lækkuðu um 24% á milli ára. Tekjur vegna hýsingar- og rekstrarlausna sem er kjarnastarfsemi Endor ehf. námu 1.758 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2020. Tekjur af vörusölu námu 729 milljónum króna á tímabilinu sem er 7% lækkun miðað við sama tímabil árið 2019. Aðrar tekjur námu 580 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins og lækkuðu um 6% á milli ára.
Kostnaðarverð nam 10.466 milljónum króna og hækkaði um 10% á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 4.722 milljónum króna og er 8% lægri en á sama tímabili árið 2019. EBITDA tímabilsins nam 4.312 milljónum króna og hækkar um 212 milljónir króna miðað við sama tímabil árið 2019. EBITDA hlutfall var 28% samanborið við 27,6% árið áður.
Hrein fjármagnsgjöld námu 792 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 sem er lækkun um 18 milljónir króna á milli ára. Gengistap eykst um 222 milljónir frá fyrstu níu mánuðum ársins 2019, vextir af langtímaskuldum lækka um 368 milljónir milli tímabila en vextir vegna leigusamninga aukast um 110 milljónir sem skýrist að mestu af viðbót vegna
vodafone
^{}[]
visir
SPORT
BYLGJAN
2020
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
fjármögnunarleigusamninga Endors. Tap á fyrstu níu mánuðum ársins 2020 nam 402 milljónum króna samanborið við 384 milljónar króna hagnað á sama tímabili í fyrra. Inni í hagnaði fyrstu níu mánuðum ársins 2019 var söluhagnaður að fjárhæð 817 milljónir króna vegna sölu á færeyska dótturfélaginu Hey.
Sjóðstreymi 9 mánaða 2020:
Handbært fé frá rekstri á fyrstu 9 mánuðum ársins 2020 var 3.855 milljónir króna sem er 13% hækkun frá fyrra ári.
Fjárfestingahreyfingar námu 2.345 milljónum króna.
Fjármögnunarhreyfingar félagsins námu 1.932 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2020.
Handbært fé í lok þriðja ársfjörðungs nam 213 milljónum króna sem er hækkun um 86 milljónir króna miðað við sama tímabil árið 2019.

Sjóðstreymi 9M 2020
Efnahagur 30. september 2020:
Eigið fé í lok tímabilsins nam 8.392 milljónum króna og eiginfjárhlutfall var 27,7%. Útgefið hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 milljónum króna.
Heildarskuldir félagsins voru 21.959 milljón króna í lok fyrstu níu mánuði ársins 2020. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 16.489 milljón króna í lok fjörðungsins. Veltufjárhlutfall var 1,1.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN 869
SPORT
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
^{}[]
Kynningarfundur 5. nóvember 2020:
- Kynningarfundur vegna uppgjørsins verður haldinn fimmtudaginn 5. nóvember 2020. Sökum þeirra stöðu sem til staðar er í þjóðfélaginu vegna COVID-19 verður fundurinn aðeins rafrænn og streymt á eftirfarandi vefslóð: https://syn.is/fjarfestatengsl.
- Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Fjárhagsdagatal 2020:
✓ Afkoma 4F 2020
24. febrúar 2021
✓ Aðalfundur 2020
19. mars 2021
Frekari upplýsingar:
✓ Tekið er á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjá[email protected].
vodafone
^{}[]
visir
^{}[]
SPORT
BYLGJAN
2020
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is