Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Interim / Quarterly Report 2019

May 15, 2019

2210_rns_2019-05-15_898eecab-58ea-4df3-a423-644cf2653ea8.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

  1. mai 2019

Fréttatilkynning vegna afkomu Sýnar hf. á fyrsta ársfjórðungi 2019:

Hagnaður fyrsta ársfjórðungs 670 milljónir króna

Árshlutareikningur Sýnar hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2019 var sambykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 15. mai 2019.

Samruni P/F Hey, dótturfélags Sýnar hf. í Færeyjum og Nema, dótturfélag Tjaldurs, gekk í gegn á fjórðungnum og er 49,9% hlutur Sýnar hf. í nýju sameinuðu félagi færður samkvæmt hlutdeildaraðferð og því ekki hluti af samstæðureikningsskilum Sýnar hf. frá 1. janúar 2019. Sóluhagnaður nam 817 m.kr.

Í ársbyrjun var breytt framsetningu á sýningarrétti sjónvarpsefnis og er hann nú færður meðal óefnislegra eigna í stað birgða. Samanburðartölur á 1F 2018 hafa verið uppfærðar til samræmis við ofangreint. Nýr reikningsskilastaðall IFRS 16 var innleiddur 1. janúar 2019, samanburðartölur 1F 2018 eru ekki uppfærðar.

  • Tekjur á fyrsta ársfjórðungi námu 4.975 m.kr. sem er 1% lækkun á milli ára.
  • EBITDA hagnaður nam 1.260 m.kr. á ársfjórðungnum og jókst um 5% til samanburðar við EBITDA hagnað 1F 2018 sem nam 1.201 m.kr., aðlagaður fyrir breytingu á framsetningu sýningarréttar. EBITDA hagnaður 1F 2018 aðlagaður fyrir IFRS 16 nam 1.326 m.kr.
  • Einskiptiskostnaður vegna starfsloka stjórnenda námu 137 m.kr. á 1F 2019 til samanburðar nam einskiptiskostnaður á 1F 2018 115 m.kr.
  • Hagnaður á ársfjórðungnum nam 670 m.kr. sem er 619 m.kr. hækkun á milli ára.
  • Hagnaður á hlut á 1F 2019 var 2,26.
  • Heildarfjárfestingar félagsins námu 1.034 m.kr. þar af námu rekstrarfjárfestingar 616 m.kr.
  • Fyrirliggjandi EBITDA horfur eru óbreyttar á bilinu 6,0-6,5 ma.kr. og heildarfjárfestingar á bilinu 3,8-4,2 ma.kr.

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


Lykiltöluyfirlit 1F 2019

1F 2019 1F 2018 Breyt. % breyt.
Seldar vörur og þjónusta 4.975 5.030 -55 -1%
Kostnaðarverð -3.068 -3.005 -63 2%
Framlegð 1.907 2.025 -118 -6%
Rekstrarkostnaður -1.822 -1.821 -1 0%
EBITDA 1.260 1.201 59 5%
EBIT 85 204 -119 -58%
Hrein fjármagnsgjöld -258 -134 -124 -
Áhrif hlutdeildarfélaga 820 -4 824 -
Tekjuskattur 23 -15 38 -
Hagnaður (tap) tímabilsins 670 51 619 -
Framlegð (%) 38,3% 40,3%
--- --- ---
EBITDA % 25,3% 23,9%
EBIT % 1,7% 4,1%

Heiðar Guðjónsson, forstjóri:

„Framkvæmdastjórn félagsins hefur gjörbreyst á þessu ári. Ný framkvæmdastjórn verður fullmönnuð við lok þessa mánaðar þar sem fjórir framkvæmdastjórar af fimm eru nýir. Þeir sem koma núna inn í framkvæmdastjórn hafa unnið áður sem ráðgjafar fyrir félagið og þekkja það vel sem gerir það að verkum að þeir þurfa ekki tíma til aðlögunar. Ég tel félagið einstaklega heppið með samsetningu hinnar nýju framkvæmdastjórnar og hlakka til að taka slaginn á markaði með þessum úrvalshópi. Félagið mun klára stefnumótun og skerpa á rekstrinum strax í júní. Við ætlum að veita viðskiptavinum okkur úrvals þjónustu og vera í fararbroddi með nýjungar,

Vegna árstíðarsveiflu í rekstri verða næstu fjórðungar ársins betri. Við erum enn vissari um að horfur ársins náist og horfum björtum augum fram á við“ segir Heiðar Guðjónsson forstjóri Sýnar.

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


A

Rekstrarafkoma á 1. ársfjórðungi 2019:

Tekjur félagsins á fyrsta ársfjórðungi 2019 námu 4.975 m.kr. sem er lækkun um 1% frá sama tímabili í fyrra.

Tekjur af fjölmiðlun námu 2.172 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi og lækkuðu um 1% á milli ára. Tekjur af interneti námu 1.206 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi, sem er hækkun um 127 m.kr. milli ára eða 12%. Tekjur af farsima námu 892 m.kr. og lækkuðu um 3% á milli ára. Tekjur af fastlínu námu 242 m.kr. á fjórðungnum og lækkuðu um 24% á milli ára, tekjur af vörusölu námu 246 m.kr. á tímabilinu sem er 6% lækkun miðað við sama ársfjórðung 2018, aðrar tekjur námu 217 m.kr. á ársfjórðungnum og lækkuðu um 16% á milli ára.

Kostnaðarverð nam 3.068 m.kr. og jókst um 2% á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 1.822 m.kr. EBITDA hagnaður tímabilsins nam 1.260 m.kr. og hækkar um 59 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2018. EBITDA hlutfall var 25,3% og EBIT hlutfall 1,7%.

Söluhagnaður vegna sölu á P/F Hey nam 817 m.kr. og er færður meðal áhrifa hlutdeildarfélaga. Hrein fjármagnsgjöld námu 258 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2019 sem er hækkun um 124 m.kr. á milli ára. Aukningin stafar fyrst og fremst af áhrifum af IFRS 16 og gengistapi. Hagnaður á fyrsta ársfjórðungi 2019 nam 670 m.kr. sem er 619 m.kr. hækkun frá sama tímabili 2018.

Sjóðstreymi 1. ársfjórðungs 2019:

Handbært fé frá rekstri á fyrsta ársfjórðungi ársins 2019 nam 819 m.kr. sem er 32% lækkun frá fyrra ári.

Fjárfestingarhreyfingar námu 1.027 m.kr., þar af eru rekstrarfjárfestingar 616 m.kr. og fjárfesting í sýningarrétti 418 m.kr.

Fjármögnunarhreyfingar félagsins námu 5 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2019. Handbært fé í lok fyrsta ársfjórðungs nam 142 m.kr.

img-0.jpeg
Sjóðstreymi 1F 2019

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is

Efnahagur 31. mars 2019:

Eigið fé í lok tímabilsins var 11.127 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 36,7%. Útistandandi hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 m.kr.

Heildarskuldir félagsins voru 19.193 m.kr. Hreinar vaxtaberandi skuldir námu 14.828 m.kr. Veltufjárhlutfall var 1,03.

Horfur fyrir afkomu 2019:

Fyrirliggjandi EBITDA horfur eru óbreyttar á bilinu 6,0-6,5 ma.kr. og fjárfestingar á bilinu 3,8-4,2 ma.kr.

Helstu tíðindi og mikilvæ gir áfangar á tímabilinu:

  • Sannkallað Game of Thrones-æði hefur ríkt á Íslandi á tímabilinu. Mikill vöxtur var í leigu á þáttum úr eldri þáttaröðum af GOT á Stöð 2 Marabon en í janúar leigðu landsmenn 37.807 þætti en í apríl voru 80.918 þættir leigðir. Í hópi áskrifenda Stöðvar 2 var meðaláhorf á fyrstu þrjá þættina í nýrri þáttaröð 25,3% í aldurshópnum 12-80 ára. Þriðji þátturinn höfðaði greinilega vel til yngri áskrifenda okkar en 40,9% áskrifenda á aldrinum 18 til 49 ára horfðu á hann. Til viðbótar hefur þriðja þáttaröðin af Atvinnumönnum okkar fengið afar góðar viðtökur en tæp 24% áskrifenda á aldrinum 12-80 ára horfðu að meðaltali á fyrstu fimm þættina.

  • Um miðjan febrúar var gamla 365 appinu lokað og sóttu notendur Stöð 2 appið í staðinn. Mikill metnaður var lagður í að stórbæta myndgæði og tryggja að notendaupplifun og stóðugleiki sé með allra besta móti. Notendur Stöð 2 appsins hafa verið mjög ánægðir með appið, segja viðmótið til fyrirmyndar og upplifunina jákvæða.

  • Stöð 2 hampaði fimm tilnefningum til Edduverðlaunanna í ár. Tilnefningar Stöðvar 2 voru eftirfarandi: Fósturbörn sem frétta- eða viðtalsbáttr ársins og Steypustöðin sem leikið sjónvarpsefni ársins. Björgvin Harðarson var tilnefndur í flokknum upptöku- eða útsendingastjörn fyrir Allir geta dansað og einnig Pál Óskar í Höllinni. Að síðustu var Sigrún Ósk Kristjánsdóttir tilnefnd sem sjónvarpsmaður ársins fyrir Allir geta dansað. Björgvin Harðarson hreppti að lokum Edduverðlaunin fyrir útsendingastjörn á tónleikum Pál Óskars í Höllinni.

  • Fulltrúar Mjólkursamsölunnar og Sýnar hf. sem á m.a. Stöð 2 Sport og Vísi skrifuðu í mars undir nýjan eins árs samning um að bikarkeppnir karla og kvenna í knattspyrnu heiti áfram Mjólkurbikarinn. Bikarkeppnin hét þessu nafni frá 1986 til 1996 en Mjólkurbikarinn sneri svo aftur síðastliðið sumar við góðar undirtektir.

  • Sýn hf. og Rauði krossinn á Íslandi gerðu með sér samstarfssamning í janúar sem í felst stuðningur Sýnar við alþjóðlegt hjálparstarf Rauða krossins, nánar tiltekið verkefnið Brúun hins stafræna bils. Það aðstoðar landsfélög Rauða krossins og Rauða hálfmánans í fimmtán Afrikuríkjum að bæta þekkingu og búnað í upplýsinga- og samskiptatækni svo þau megi efla getu sína í hjálparstarfi. Samstarfssamningurinn er til tveggja ára og felur í sér að Sýn lánar starfsmann með sérþekkingu í upplýsinga- og samskiptatækni til að sinna verkefnum sendifulltrúa í verkefninu.

  • Vodafone, eitt vörumerkja Sýnar hf., hefur um árabil verið stoltur samstarfsaðili UN Women á Íslandi og fastur liður í samstarfinu er salan á Fokk ofbeldi húfunni og var engin undantekning á þessu í ár.


Kynningarfundur 16. mai 2019:

  • Opinn kynningarfundur vegna uppgörsins verður haldinn fimmtudaginn 16.mai 2019. Fundurinn fer fram i höfuðstöðvum Sýnar, 6. hæð, Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík og hefst klukkan 8:30.
  • Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
  • Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni https://syn.is/fjarfestatengsl

Fjárhagsdagatal 2019:

✓ Uppgjör 2F 2019 28.ágúst 2019
✓ Uppgjör 3F 2019 6.nóvember 2019
✓ Ársuppgjör 2019 26.februar 2020
✓ Aðalfundur 2020 20.mars 2020

Frekari upplýsingar:

✓ Guðfinnur Sigurvinsson samskiptastjóri Sýnar tekur á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjá[email protected] eða í síma 669-9330.

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is