Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Interim / Quarterly Report 2019

May 15, 2019

2210_rns_2019-05-15_8951e8f0-4bd7-41ad-805b-6ea6ff86160d.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

img-0.jpeg

Sýn hf.

Samandreginn árshlutareikningur

  1. janúar til 31. mars 2019

Sýn hf. Suðurlandsbraut 8 108 Reykjavík kt. 470905-1740


Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2019

Efnisyfirlit

Skyrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra 3
Fjárhagslegar lykiltölur 4
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 5
Efnahagsreikningur 6
Eiginfjáryfirlit 7
Sjóðstreymisyflit 8
Skýringar við samandreginn árshlutareikning 9

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Sýn hf. er alhliða félag á sviði fjarskipta- og fjölmiðlastarfsemi. Félagið rekur marga af öflugustu fjölmiðlum landsins eins og Stöð 2, Bylgjuna, Visi, FM957, Xið og fleiri landsþekkta miðla. Félagið veitir einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og opinberum aðilum alhliða fjarskiptabjónustu undir vörumerkjum Vodafone á Íslandi. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims.

Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samandreginn árshlutareikning félagsins og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf. Árshlutareikningur Sýnar hf. fyrir 1. janúar til 31. mars 2019 hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Í upphafi árs var tilkynnt um að allir fyrirvarar varðandi sölu á meirihluta hlutafjár í P/F Hey hafi verið uppfylltir og kaupin því gengin í gegin og miðast við 1. janúar 2019. 49,9% hlutur Sýnar hf. í nýju sameinuðu félagi verður færður samkvæmt hlutdeildaraðferð og er því ekki hluti af samstæðureikningsskilum Sýnar hf. frá 1. janúar 2019. Söluhagnaður 817 m.kr. er færður á 1F 2019.

Rekstur og fjárhagsleg staða 1. janúar til 31. mars 2019

Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur félagsins af seldum vörum og þjónustu 4.975 millj. kr. (5.030 millj. kr. 1.1 til 31.3.2018). Hagnaður af áframhaldandi rekstri félagsins á tímabilinu nam 670 millj. kr. (51 millj. kr. 1.1 til 31.3.2018). Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir félagsins 30.320 millj. kr. (27.011 millj. kr. 31.12.2018). Eigið fé félagsins þann 31. mars 2019 nam 11.127 millj. kr. (10.707 millj. kr. 31.12.2018). Þar af nam hlutafé 2.964 millj. kr. (2.964 millj. kr. 31.12.2018). Eiginfjárhlutfallið 31. mars 2019 var 36,7% (39,6% 31.12.2018).

Á aðalfundi félagsins þann 22. mars 2019 var sambykkt arðgreiðslustefna fyrir félagið. Stefnt er að því að greiða hluthöfum arð og/eða framkvæma endurkaup eigin hluta sem nemur 30-60% af hagnaði eftir skatta í samræmi við gildandi lög og reglur hverju sinni. Við mótun tillagna um arðgreiðslu og/eða kaup á eigin hlutum skal stjórn taka tillit til; markmiða fjárstýringastefnu félagsins, markaðsaðstæðna og fjárfestingarþarfar félagsins.

Yfirlýsing

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu 31. mars 2019 ásamt rekstrarafkomu hennar og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2019.

Stjórn og forstjóri Sýnar hf. hafa í dag fjallað um samandreginn árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2019 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavík, 15. maí 2019

Í Stjórn

Hjörleifur Pálsson, stjórnarformaður

Anna Guðný Aradóttir

Sigriður Vala Halldórsdóttir

Tanya Zharov

Yngvi Halldórsson

Forstjóri

Heiðar Guðjónsson

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Fjárhagslegar lykiltölur

2019 2018
1F 1F
Fjárhagsupplýsingar
Heildartekjur 4.975 5.030
Rekstrarhagnaður 85 204
Hagnaður fyrir tekjuskatt 647 66
Hagnaður tímabilsins 670 51
Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi 2,26 0,17
Fjárfestingar 616 467
Fjárfestingar í sýningarrétti 418 804
Kaup og sala á rekstri og eignum (7) 15
Handbært fé frá rekstri 819 1.198
Frammistöðumat
EBITDA tímabilsins* 1.260 1.201
EBITDA hlutfall tímabilsins 25,3% 23,9%
Frjálst fjárflæði (FCF)** (11) 102
Nettó vaxtaberandi skuldir 14.828 11.098
  • Fjárhæð vegna 1F 2018 hefur verið endurgerð, sjá nánar í skýringu 5.
    ** Frjálst fjárflæði samanstendur af handbæru fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt að frádregnum fjárfestingahreyfingum. Kaup á rekstri og eignum er undanskilin þar sem hún tengist ekki endurfjárfestingaðörf samstæðunnar

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Rekstrarreikningur

  1. janúar til 31. mars 2019

| | Skýr. | 2019
1F | 2018
1F |
| --- | --- | --- | --- |
| Seldar vörur og bjónusta | 8 | 4.975 | 5.030 |
| Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu | 9 | (3.068) | (3.005) |
| Framlegð | | 1.907 | 2.025 |
| Rekstrarkostnaður | 10 | (1.822) | (1.821) |
| Rekstrarhagnaður | | 85 | 204 |
| Fjármunatekjur | | 13 | 10 |
| Fjármagnsgjöld | | (271) | (145) |
| Hrein fjármagnsgjöld | | (258) | (134) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | | 820 | (4) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | | 647 | 66 |
| Tekjuskattur | | 23 | (15) |
| Hagnaður tímabilsins af áframhaldandi starfsemi | | 670 | 51 |
| Hagnaður tímabilsins af aflagðri starfsemi | | - | 5 |
| Hagnaður tímabilsins | | 670 | 56 |
| Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi | | 2,26 | 0,17 |
| Þynntur hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi | | 2,26 | 0,17 |

Yfirlit um heildarafkomu

  1. janúar til 31. mars 2019

| | Skýr. | 2019
1F | 2018
1F |
| --- | --- | --- | --- |
| Hagnaður tímabilsins | | 670 | 56 |
| Líðir sem gætu síðar verið færðir um rekstrarreikning | | | |
| Þýðingarmunur vegna starfsemi erlands dótturfélags | | (55) | (21) |
| Áhættuvarnir | | 11 | 37 |
| Heildarafkoma tímabilsins | | 626 | 72 |

Skýringar á bls. 9-14 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Efnahagsreikningur

  1. mars 2019
Skýr. 31.3.2019 31.12.2018*
Fastafjármunir
Rekstrarfjármunir 4.960 4.785
Afnotaréttur 4 3.054 -
Óefnislegar eignir 5, 13 16.786 16.999
Eignahlutur í hlutdeildar- og öðrum félögum 1.265 48
Fastafjármunir samtals 26.066 21.832
Veltufjármunir
Birgðir 5, 12 472 364
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 3.640 3.403
Handbært fé 142 356
Veltufjármunir í áframhaldandi starfsemi 4.254 4.123
Eignir flokkaðar til sölu - 1.056
Veltufjármunir samtals 4.254 5.179
Eignir samtals 30.320 27.011
Eigið fé
Hlutafé 2.964 2.964
Yfirverðsreikningur hlutafjár 2.465 2.465
Annað eigið fé (45) (1)
Óráðstafað eigið fé 5.743 5.279
Eigið fé 11.127 10.707
Langtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 10.922 10.874
Leiguskuldbindingar 4 2.933 -
Tekjuskattsskuldbinding 116 138
Langtímaskuldir samtals 13.971 11.012
Skammtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 692 687
Leiguskuldbindingar 4 423 -
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 4.107 4.167
Skammtímaskuldir í áframhaldandi starfsemi 5.222 4.854
Skuldir sem tengjast eignum sem flokkaðar eru til sölu - 438
Skammtímaskuldir samtals 5.222 5.292
Skuldir samtals 19.193 16.304
Eigið fé og skuldir samtals 30.320 27.011
  • Endurgert, sjá nánar í skýringu 5.
    Skýringar á bls. 9-14 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Eiginfjáryfirlit

  1. janúar til 31. mars 2019
Hlutafé Yfirverðs-reikningur hlutafjár Þýðingar-munur Annað eigið fé
Bundinn reikningur Áhættu-varnir Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
1.1. til 31.03.2018
Eigið fé 1.1.2018 2.964 2.465 64 87 (169) 4.719 10.131
Hagnaður tímabilsins - - - - - 56 56
Þýðingarmunur - - (21) - - - (21)
Áhrif áhættuvarna - - - - 37 - 37
Heildarafkoma tímabilsins 0 0 (21) 0 37 56 72
Eigið fé 31.3.2018 2.964 2.465 43 87 (132) 4.775 10.202
1.1. til 31.3.2019
Eigið fé 1.1.2019 2.964 2.465 110 - (111) 5.279 10.707
IFRS 16, áhrif innleiðingar - - - - - (206) (206)
Endurgert eigið fé 1.1. 2019 2.964 2.465 110 0 (111) 5.073 10.501
Hagnaður tímabilsins - - - - - 670 670
Þýðingarmunur - - (55) - - - (55)
Áhrif áhættuvarna - - - - 11 - 11
Heildarafkoma tímabilsins 0 0 (55) 0 11 670 626
Eigið fé 31.03.2019 2.964 2.465 55 0 (100) 5.743 11.127

Skýringar á bls. 9-14 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Sjóðstreymisyfirlit

  1. janúar til 31. mars 2019
Skýr. 2019 2018
1F 1F
Hagnaður tímabilisins samkvæmt rekstrarreikningi 670 56
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir 5, 11 1.175 997
Hrein fjármagnsgjöld 258 134
Áhrif hlutdeildarfélaga (820) 4
Tekjuskattur (23) 15
Veltufé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt 1.260 1.206
Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Birgðir, breyting 5, 12 (107) (123)
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, breyting (219) (6)
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, breyting 76 291
Fyrirframinnheimtar tekjur, breyting 13 3
Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt 1.023 1.372
Innborgaðar vaxtatekjur 13 10
Greidd vaxtagjöld (217) (185)
Handbært fé frá rekstri 819 1.198
Fjárfestingahreyfingar
Kaup og sala á rekstri og eignum 7 (15)
Fjárfesting í rekstrarfjármunum (483) (326)
Fjárfesting í óefnislegum eignum (133) (141)
Fjárfesting í óefnislegum eignum vegna sýningarréttar (418) (804)
Fjárfestingahreyfingar (1.027) (1.285)
Fjármögnunarhreyfingar
Áhættuvarnir 44 40
Afborganir langtímalána (171) (83)
Rekstrarlán 219 79
Afborgun af leigusamningum (97) -
Fjármögnunarhreyfingar (5) 36
Breyting á handbæru fé (214) (51)
Handbært fé flokkað til sölu - (38)
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé - 1
Handbært fé í byrjun tímabils 356 329
Handbært fé í lok tímabilsins 142 241

Skýringar á bls. 9-14 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar

1. Félagið

Sýn hf. ("félagið") er íslensk hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta - og fjölmiðlunar. Samandreginn árshlutareikningur félagsins fyrir timabilið 1. janúar - 31. mars 2019 hefur að geyma árshlutareikning félagsins og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf., sem visað er til í heild sem „félagið“.

2. Reikningsskilin

a. Grundvöllur reikningsskilanna

Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu. Árshlutareikningur félagsins 1. janúar til 31. mars 2019 hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Árshlutareikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilareglum og lágu til grundvallar við gerð ársreikningsins 2018, að því undanskildu að einn nýr reikningsskilastaðall tók gildi 1. janúar 2019 IFRS 16, sjá nánar umfjöllun í skýringu 4. Hann inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2018. Hægt er að nálgast ársreikning Sýnar hf. á heimasiðu félagsins www.syn.is. og á vef Kauphallar Íslands; www.nasdaqomxnordic.com.

Stjórn félagsins staðfesti og heimilaði birtingu árshlutareikningsins þann 15. mai 2019.

b. Mat stjórnenda á reikningsskilum

Gerð árshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og dragi ályktanir sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna og skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrugðnar þessu mati.

c. Akvörðun gangvirðis

Hluti af reikningsskilaaðferðum og skýringum félagsins krefjast ákvörðunar á gangvirði, bæði vegna fjármálagerninga og annarra eigna og skulda.

Að svo miklu leyti sem hægt er, notar félagið markaðsupplýsingar við ákvörðun gangvirðis en liggi slíkar upplýsingar ekki fyrir er byggt á mati stjórnenda. Ef upplýsingar frá þriðja aðila, líkt og verð frá miðlurum eða verðmatabjónustu, eru notaðar við ákvörðun gangvirðis þá nýta stjórnendur upplýsingarnar til að styðja þá niðurstöðu að matið uppfylli kröfur um alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS), þar á meðal það stig sem slíkt. Gangvirðið er flokkað í þrjú stig eftir forsendum sem notaðar eru við matið:

  • Stig eitt byggir á skráðu verði á virkum markaði fyrir samskonar eignir og skuldir.
  • Stig tvö byggir á beinum eða óbeinum markaðsforsendum sem eru aðrar en skráð verð á virkum markaði.
  • Stig þrjú byggir á forsendum og gögnum sem ekki er unnt að afla á markaði.

3. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill

Árshlutareikningur félagsins er birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

4. Innleiðing nýrra og endurbættra staðla

Félagið innleiddi í upphafi árs IFRS 16 Leigusamningar í reikningsskil sín. Staðallinn setur fram nýjar kröfur um reikningsskil vegna leigusamninga. Miklar breytingar eru á reikningsskilaaðferðum leigutaka þar sem ekki er lengur greint á milli fjármögnunarleigu og rekstrarleigu, heldur er þess krafist að færð verði leiguskuldbinding og afnotaréttur til eignar vegna allra leigusamninga. Aðeins eru gerðar undantekningar fyrir skammtímáleigu (til skemmri tíma en 12 mánaða) og fyrir leigueignir með lágt virði. Áhrifum af innleiðingu IFRS 16 á árshlutareikninginn er lýst hér að neðan.

Félagið beitir afturvirkri innleiðingu að hluta, þannig að samanburðartölur eru ekki endurgerðar og uppsöfnuð áhrif vegna innleiðingarinnar eru færð á eigið fé við innleiðingu 1. janúar 2019. Félagið nýtir sér undanpágu staðalsins frá endurflokkun samninga sem hafa verið skilgreindir sem leigusamningar samkvæmt IAS 17 og IFRC 4 fyrir innleiðingardag. Kröfum IFRS 16 er þannig við innleiðingu beitt á leigusamninga sem voru flokkaðir sem slíkir á innleiðingardegi.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

4. Innleiðing nýrra og endurbættra staðla frh.:

Með innleiðingu IFRS 16 þá breytist eðli gjalda sem tengjast rekstrarleigusamningum þar sem félagið færir nú afskriftir af afnotarétti og vaxtagjöld af leiguskuld, en hafði áður gjaldfært leigugreiðslur á meðal rekstrargjalda linulega á liftíma samninganna. Áhrif á reikningsskilín eru hærri hagnaður fyrsta ársfjörðungs 2019 sem nemur 6 millj. kr. Áhrif á einstaka liði rekstrarreiknings eru eftirfarandi: Hæk kun afskrifta um 104 millj. kr., hæk kun fjármagnsliða um 33 millj. kr. og læk kun rekstrargjalda um 143 millj. kr.

Hagnaður á hlut á fyrsta ársfjörðungi var 2,26 og þynntur hagnaður á hlut 2,26. Hagnaður á hlut hefði verið 2,24 og þynntur hagnaður á hlut 2,24 hefði reglum fyrri staðals verið beitt.

Á innleiðingardegi 1. janúar 2019 færði félagið leiguskuldbindingu að fjárhæð 3.436 milljónir, afnotarétt að fjárhæð 3.133 millj. kr., leigukröfu að fjárhæð 97 millj. kr. í efnhagsreikning og færsla á eigið fé því 206 millj. kr..

Samkvæmt IAS 17 voru allar greiðslur vegna rekstrarleigu sýndar meðal rekstrarhreyfinga í sjóðstreymi. Áhrif innleiðingar IFRS 16 á sjóðstreymi eru hæk kun handbærs fjár frá rekstri um 97 millj. kr. og læk kun á handbæru fé vegna fjármögnunarhreyfinga um sömu upphæð.

5. Breytt framsetning sýningarréttar

Í ársbyrjun var breytt framsetning á sýningarrétti sjónvarps. Sýningarréttur var færður meðal birgða en er frá 1. janúar 2019 færður sem óefnislegar eignir og afskrifað linulega. Gjaldfærsla sýningarréttar er því færð frá 1.1.2019 meðal afskrifta. Fjárhæðum vegna 2018 hefur því verið breytt til samræmis við breytta framsetningu. Sjá nánar í skýringum 11-13 og hér að neðan:

Breyting á birgðum greinast þannig: 31.12.2018 Breyting Uppfært 31.12.2018
Birgðir 1.909 (1.545) 364
Breyting á óefnislegum eignum greinast þannig: 31.12.2018 Breyting Uppfært 31.12.2018
Óefnislegar eignir 15.454 1.545 16.999
Breyting á afskriftum greinast þannig: 31.3.2018 Breyting Uppfært 31.3.2018
Afskriftir 473 524 997

6. Meðferð vaxtaskiptasamnings

Afleiðusamningar eru gerðir til að stýra áhættu félagsins gagnvart vaxtáhættu, þ.e. vaxtaskiptasamningur. Afleiður eru færðar á gangvírði. Almenna reglan er að óinnleystur hagnaður eða tap er fært í rekstrarreikning. Hins vegar þegar afleiða er skilgreind og virk sem áhættuvörn er afkoman færð eftir áhættuvarnarsambandinu sem afleiðan tilheyrir. Félagið hefur skilgreint vaxtaskiptasamninginn sem áhættuvörn vegna undirliggjandi skulda. Afleiðusamningar eru flokkaðir á meðal langtimaeigna eða langtímaskulda ef meira en 12 mánuðir eru til lokagjaldaga samningsins og ekki er gert ráð fyrir að hann verði gerður upp innan 12 mánaða. Aðrir afleiðusamningar eru flokkaðir á meðal veltufjármuna eða skammtímaskulda eftir því sem við á.

a. Áhættuvarnareikningsskil

Félagið skilgreinir vaxtaskiptasamninga sem sjóðstreymisvarnir vegna vaxtáhættu. Í upphafi áhættuvarnarsambands skjalar félagið áhættuvarnarsambandið milli áhættuvarnar og áhættuvarða liðarins, ásamt markmiðum með áhættustýringu. Félagið metur og skjalar auk þess skilvirkni áhættuvarnarsambandsins með tilliti til krafna IAS 39, bæði í upphafi áhættuvarnarsambands og á síðari reikningsskiladögum. Félagið beitir kröfum IAS 39 áfram fyrir áhættuvarnarreikningsskil í samræmi við heimild IFRS 9.

Ef áhættuvarnarsamband uppfyllir ekki lengur kröfur um skilvirkni hættir félagið beitingu áhættuvarnarreikningsskila frá þeim tíma. Uppsöfnuð staða vegna áhættuvarna á eigin fé er þá umflokkuð í rekstrarreikning.

Sá hluti gangvírðisbreytingar áhættuvarna sem er skilvirkur í áhættuvarnarsambandinu er færður um aðra heildarafkomu. Öll óskilvirkni í áhættuvarnarsambandinu er færð strax í rekstrarreikning undir liðnum fjármagnsgjöld. Uppsöfnuð staða á eigin fé vegna gangvírðisvarna er við uppgjör gangvírðisvarnarinnar umflokkuð í sömu líni rekstrarreiknings og áhættuvarði liðurinn hefur áhrif á.

b. Sjóðstreymisvarnir

Skilvirki hluti sjóðstreymisvarnarinnar sem stenst kröfur um sjóðstreymisvarnir og er skilgreindur sem slíkur er færður í yfirlit um aðra heildarafkomu. Hagnaður eða tap vegna óskilvirkni í áhættuvarnarsambandi er færður í rekstrarreikning undir liðnum fjármagnsgjöld. Uppsöfnuð staða á eigin fé sem áður hefur verið færð um aðra heildarafkomu er endurflokkuð um rekstrarreikning þegar hagnaður eða tap vegna áhættuvarða liðarins er færður, uppsafnaða staðan á eigin fé er færð í sömu líni rekstrarreiknings.

7. Starfsbáttayfirlit

Félagið skilgreinir starfsbætti eftir innri upplýsingagjóf til stjörnenda og telst samstæðan í heild vera einn starfsbáttur.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Seldar vörur og þjónusta
2019 2018
Seldar vörur og þjónusta greinast þannig: 1F 1F
Vörusala 246 261
Seld þjónusta 4.729 4770
Seldar vörur og þjónusta samtals 4.975 5.030

Tekjustraumar

Tekjustraumar eru birtir eftir eðli rekstrar og byggja á skipulagi og innri upplýsingagjóf félagsins.

Félagið skiptist í sex tekjustrauma sem eru mismunandi í eðli sinu. Tekjustraumarnir eru:

Fjölmiðlun samanstendur af tekjum af starfsemi ljósvakamiðla, áskriftartekjum og tekjum af auglýsingasölu, tekjum af dreifingu á báðum sjónvarpsdreifikerfum Sýnar hf, leigutekjum af myndlyklum og tekjum af leigu einstakra kvikmynda og þátta (TVOD), tekjum af áskriftaveitu Sýnar hf. (SVOD), tekjum af áskriftum af linulegum stöðvum og tekjum af sölu einstaka sjónvarpsviðburða.

Internet samanstendur af tekjum af netþjónustu í fastlínukerfum, þ.m.t. á ljósleiðara, xDSL þjónustu og aðrar gagnatengingar, internetþjónustu, aðgangsgjöldum og leigu á netbeinum..

Farsími samanstendur af öllum tekjum vegna notkunar á farsímum, þ.m.t. gagnaflutningum í farsímakerfinu, áskriftartekjum frá einstaklingum og fyrirtækjum, seldum frelsisinneignum, reikitekjum frá ferðamönnum og samtengitekjum í farsíma.

Fastlína samanstendur af tekjum vegna notkunar á heimasíma, fyrirtækjasíma í fastlínu og samtengitekjum í fastlínu.

Vörusala samanstendur af sölu á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum.

Aðrar tekjur samanstanda af þjónustutekjum, tekjum af hugbúnaði, útseldri vinnu og þjónustu og öðrum tilfallandi tekjum.

Tekjustraumar Fjöl-miðlun Internet Farsími Fastlína Vörusala Aðrar tekjur Samtals
1.1. til 31.03.2019
Tekjur félagsins 2.172 1.206 892 242 246 217 4.975
Tekjur samtals 2.172 1.206 892 242 246 217 4.975
Tekjustraumar Fjöl-miðlun Internet Farsími Fastlína Vörusala Aðrar tekjur Samtals
--- --- --- --- --- --- --- ---
1.1. til 31.03.2018
Tekjur félagsins 2.199 1.079 915 319 261 257 5.030
Tekjur samtals 2.199 1.079 915 319 261 257 5.030

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2019

Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

9. Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu

Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu greinist þannig: 2019 2018
1F 1F
Kostnaðarverð seldrar vöru og þjónustu 1.650 1.761
Laun og launatengd gjöld 554 492
Afskriftir 864 753
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu samtals 3.068 3.005

10. Rekstrarkostnaður

Rekstrarkostnaður greinist þannig: 2019 2018
1F 1F
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 312 416
Sölu- og markaðskostnaður 127 137
Laun og launatengd gjöld 1.073 1.023
Afskriftir 311 245
Rekstrarkostnaður samtals 1.822 1.821

11. Afskriftir

2019 2018*
Afskriftir í rekstrarreikningi greinast þannig: 1F 1F
Afskriftir rekstrarfjármuna 307 276
Afskriftir óefnislegra eigna 204 198
Afskriftir afnotaréttar 104 -
Afskriftir sýningarréttar 560 524
Afskriftir samtals 1.175 997

*Fjárhæð vegna 2018 hefur verið uppfærð, sjá nánar í skýringu 5.

Breyting á afskriftum greinast þannig: 31.3.2018 Breyting Uppfært 31.3.2018
Afskriftir 473 524 997

12. Birgðir

Birgðir greinast þannig: 31.3.2019 31.12.2018*
Fjarskiptabúnaður til endursölu 317 231
Õuppsettur sendabúnaður (rekstrarvörubirgðir) 155 133
Birgðir samtals 472 364

*Fjárhæð vegna 2018 hefur verið uppfærð, sjá nánar í skýringu 5.

Breyting á birgðum greinast þannig: 31.12.2018 Breyting Uppfært 31.12.2018
Birgðir 1.909 (1.545) 364

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Óefnislegar eignir
Óefnislegar eignir greinast þannig 31.3.2019 31.12.2018*
Viðskiptavild 10.646 10.646
Sýningarréttur 1.403 1.545
Aðrar óefnislegar eignir 4.737 4.808
Óefnislegar eignir samtals 16.786 16.999

*Fjárhæð vegna 2018 hefur verið uppfærð, sjá nánar í skýringu 5.

Breyting á óefnislegum eignum greinast þannig: 31.12.2018 Breyting Uppfært 31.12.2018
Óefnislegar eignir 15.454 1.545 16.999
  1. Onnur mál

Sýn hf. („félagíð“) á í málarekstri við einstaklinga, önnur félög og eftirlitsstofnanir í íslenskum fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði. Félagíð færir skuldbindingar og/eða kröfur vegna málarekstur þegar hægt er að meta framtiðar greiðslur og ávinning með ápreifanlegum hætti. Vegna óvissu um framtiðarþrón málarekstrar, niðurstöður dómsmála, úrskurði, áfrýjanir og sættir í málum geta niðurstöður mála leitt til viðbótar skuldbindinga og kostnaðar fyrir félagíð.

Sýn hf. gegn Símanum hf.

Félagíð stefndi Símanum hf. til greiðslu skáðabóta vegna ólögmæts verðprýstings og nam stefnufjárhæð í málinu ríflega 900 millj. kr. Síminn hf. gagnstefndi félaginu og nam stefnufjárhæð Símans hf. tæplega 2.500 millj. kr. Héraðsdómur gekk á síðasta ári þar sem stefndi og gagnstefndi voru sýknaðir af kröfum hvors annars. Héraðsdómur taldi að ekki hafi tekist að færa sönnur á tjón. Í því skyni að færa sönnur á tjón félagsins hefur félagíð áfrýjað málinu til Landsréttar, með áfrýjunarstefnu útgefinni þann 21. desember 2018. Er þess krafist að allar kröfur félagsins verði teknar til greina. Til vara er þess krafist að dæmdar verði bætur að álitum. Síminn hefur gagnáfrýjað og krefst að nýju tæplega 2.500 millj. kr. úr hendi félagsins.

Síminn hf. gegn Póst- og fjarskiptastofnun, Samkeppniseftirlitinu, Sýn hf. og Nova ehf.

Síminn hf. stefndi Samkeppniseftirlitinu, félaginu, Nova ehf. og Sendafélaginu og krafðist ógildingar á úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála í máli nr. 7/2015 ásamt því sem Síminn stefndi Póst- og fjarskiptastofnun, félaginu og Nova ehf. og krafðist ógildingar á ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 14/2014. Jafnframt átti Sendafélagín ehf. aðild að málunum. Með þessum stjórnvaldsákvörðunum heimiluðu Póst- og fjarskiptastofnun og Samkeppniseftirlitið félaginu og Nova ehf. að samnýta tíðniheimildar félaganna í sérstöku rekstrarfélagi. Hefur sá samrekstur farið fram á vegum Sendafélagsins ehf.

Með dómi Héraðsdóms sem kveðinn var upp 1. apríl 2019 var sýknað af öllum kröfum Símans í báðum dómsmálunum. Síminn hefur áfrýjað báðum málum til Landsréttar með áfrýjunarstefnum útgefinum 24. apríl 2019.

Ágreiningur vegna sjónvarpsmála

Að síðustu á félagíð í ágreiningi við Símann hf. fyrir stjórnvöldum og dómstólum vegna sjónvarpsmála. Í fyrsta lagi fékk Síminn hf. lagt á lögbann við því að félagíð taki upp og miðli sjónvarpsefni Skjás Eins (nú Sjónvarp Símans) með ólinulegum hætti. Hæstiréttur hefur staðfest lögbannið með dómi sínum 18. október 2018 í máli nr. 329/2017.

Í öðru lagi hefur Póst- og fjarskiptastofnun tekið stjórnvaldsákvörðun nr. 10/2018, þess efnis að Síminn hf. hafi brotið gegn þannákvæði laga um fjölmiðla nr. 38/2011 með því að beina viðskiptum viðskiptamanna fjölmiðlaveitu sinnar (Sjónvarps Símans) að tengdu fjarskiptafyrirtæki (Símanum hf./Milu hf.). Var Símanum gerð 9 millj. kr. stjórnvaldssekt vegna þessa.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

14. Önnur mál frh.:

Síminn gegn Póst- og fjarskiptastofnun, Sýn hf., Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. Og Mílu ehf., og gagnsök.

Síminn hefur stefnt Póst- og fjarskiptastofnun, félaginu, Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. og Mílu ehf., til ógildingar fyrnnefndrar stjórnvaldsákvörðunar nr. 10/2018. Var málið þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 9. október sl.

Félagið gaf út gagnstefnu, sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur 4. desember 2018, og gerir í gagnsök þá dómkröfu að Símanum hf. verði gert að greiða félaginu kr. 2.092.182.056, auk dráttarvaxta, í skaðabætur vegna brota Símans hf. gegn framangreindum bannákvæðum laga um fjölmiðla, sem slegið var fóstum með fyrnnefndri ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 10/2018.

Síminn skilaði greinagerð í gagnsök og krafðist frávisunar. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur þann 15. mai 2019 var gagnkröfu Sýnar hf. visað frá af réttarfarðastæðum. Kærufrestur til Landsréttar er 2 víkur. Verði þetta niðurstaðan stendur krafa Sýnar óhögguð og verður borinn undir dómstóla með öðrum hætti.

Síminn hf. gegn Sýn hf.

Síminn hf. hefur stefnt félaginu til greiðslu skaðabóta vegna tjóns sem Síminn hf. telur sig hafa orðið vegna meintrar ólögmætrar hagnýtingar félagsins á sjónvarpsefni Símans hf. frá 1. október 2015 til 16. desember 2015. Krafan er sett fram í tilefni af dómi Hæstaréttar máli nr. 329/2017, sbr. hér að framan.

Í dómsmálinu gerir Síminn hf. nú kröfu um að félagið verði dæmt til að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 555 millj. kr. og miskabætur að fjárhæð kr. 10 millj. kr. auk vaxta og dráttarvaxta. Þá er gerð krafa um greiðslu málskostnaðar.

Félagið telur engan grundvöll vera fyrir þeim fjárkröfum sem Síminn hf. hefur sett fram á hendur félaginu. Mun félagið því gripa til varna í dómsmálinu og krefjast aðallega frávisunar, en til vara sýknu.

Á þessum timapunkti getur félagið ekki metið framtiðar skuldbindingar eða kröfur sem leiða af niðurstöðum ofangreindra dómsmála meðal annars vegna þess að það getur tekið langan tíma að fá niðurstöðu í mál, ásamt því að mál geta þróast í ólíkar áttir. Vegna þess hefur engin skuldbinding né krafa verið færð í árshlutareikning félagsins.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.