Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Interim / Quarterly Report 2019

Aug 28, 2019

2210_rns_2019-08-28_ea4001a6-5e7a-403b-b555-3bcf911fb5a2.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

A

  1. ágúst 2019

Fréttatilkynning vegna afkomu Sýnar hf. á fyrri árshelmingi 2019:

Afkoma undir væntingum en bjartari tímar framundan

Árshlutareikningur Sýnar hf. fyrir fyrri árshelming ársins 2019 var sambykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 28. ágúst 2019.

Í ársbyrjun var meðferð á sýningarrétti sjónvarpsefnis breytt, samanburðartölur 2018 hafa verið uppfærðar í samræmi við breytta meðhöndlun.

Helstu niðurstöður úr rekstri:

  • Tekjur á öðrum ársfjörðungi námu 5.023 m.kr. sem er 3% lækkun á milli tímabila. Tekjur á fyrri árshelmingi lækkuðu um 189 m.kr. milli ára, eða um 2%.
  • EBITDA nam 1.216 m.kr. á ársfjörðungnum í samanburði við 1.279 m.kr. á sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 24,2% á 2F 2019 samanborið við 24,6% á 2F 2018. EBITDA á fyrri árshelmingi 2019 nam 2.476 m.kr. og lækkæði um 8 m.kr. miðað við fyrri árshelming 2018. EBITDA 1H 2019 leiðrétt fyrir áhrifum IFRS 16 var 2.165 m.kr. samanborið við 2.468 m.kr. á 1H 2018 sem er lækkun um 303 m.kr.
  • Tap á ársfjörðungnum nam 215 m.kr. sem er 206 m.kr. aukning frá sama tímabili 2018. Hagnaður á fyrri árshelmingi ársins nam 455 m.kr. sem er 413 m.kr. hækkun á milli tímabila.
  • Heildarfjárfestingar félagsins á tímabilinu námu 1.833 m.kr. þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarétta) 1.006 m.kr. og fjárfesting í sýningarréttum 827 m.kr.
  • Uppfærðar EBITDA horfur fyrir 2019 eru um 5,6 ma.kr. Horfur fyrir frjálst sjóðsflæði haldast óbreyttar en ljóst að félagið er að enda í neðri enda þess bils, 1,6 – 2,0 ma.kr. Útgefnar horfur vegna heildarfjárfestingar ársins haldast óbreyttar á bilinu 3,8–4,2 ma.kr.

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


Lykiltöluyfirlit 2F 2019

2F 2019 2F 2018 Breyt. % breyt. 6M 2019 6M 2018 Breyt. % breyt.
Seldar vörur og bjönusta 5.023 5.157 -134 -3% 9.998 10.187 -189 -2%
Kostnadarverð -3.290 -3.158 -132 4% -6.358 -6.163 -195 3%
Framlegð 1.733 1.999 -266 -13% 3.640 4.024 -384 -10%
Rekstrarkostnadar -1.769 -1.810 41 -2% -3.591 -3.631 42 -1%
EBITDA 1.216 1.270 -54 2.476 2.468 8
EBIT -36 189 -225 49 393 -344
Hrein fjármagnsgjöld -257 -191 -66 34% -515 -325 -190 59%
Áhrif hlutdeildarfélaga 8 -8 16 - 828 -12 840 -
Tekjuskattur 70 1 69 - 93 -14 107 -
Hagnaður tímabilsins -215 -9 -206 455 42 413
Framlegð (%) 34,5% 38,8% 36,4% 39,5%
EBITDA % 24,2% 24,6% 24,8% 24,2%
EBIT % -0,7% 3,7% 0,5% 3,9%

Heiðar Guðjónsson, forstjóri:

„Afkoma síðasta ársfjörðungs eru vonbrigði. Fyrri spár stóðust engan veginn. Helstu ástaeður eru verðlækkanir og frítilboð á fjarskiptamarkaði auk þess sem kostnaður á fjölmiðlamarkaði var umfram áætlanir.

Ný framkvæmdastjörn hefur komið miklu í verk frá því hún tók við eftir síðasta uppgjör í maí. Við höfum hagrætt mikið í rekstri, en kostnaðarlækkun mun nema yfir 50 milljónum á mánuði þegar hún kemur fram í vetur. Deildir hafa verið sameinaðar, millistjórnendum og almennu starfsfólki hefur fækkað auk þess sem endursamið hefur verið við birgja. Rekstraráætlanir hafa verið endurgerðar, sem mun skila sér í áreiðanlegri spám.

Allt fyrirtækið fór í gegnum stefnumótun í júní, með mikilli þátttöku starfsfólks, og niðurstaðan var einróma og skýr. Við höfum því samstilltan hóp sem vinnur nú að sameiginlegum markmiðum. Í framhaldi af stefnumótun og áherslubreytingum voru deildir færðar til í skipuriti og þannig styttast boðleiðir og samstarf verður enn betra. Tekjusvið eru núna skýrt afmörkuð og heyra beint undir forstjóra. Nýtt svið, samskiptasvið, sem markaðssvið rennur m.a. inn í hefur verið stofnað. Búið er að vinna nýja samskiptagreiningu og endurskoða vörumerki félagsins.

Áhersla vetrarins er að einfalda og bæta þjónustu við viðskiptavini. Við höfum frábærar vörur sem við erum stolt af og munum kynna frekar í vetur.“

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


A

Rekstrarafkoma á 2. ársfjórðungi 2019:

Tekjur félagsins á öðrum ársfjórðungi 2019 námu 5.023 m.kr. sem er lækkun um 3% frá sama tímabili í fyrra.

Tekjur af fjölmiðlun námu 2.170 m.kr. á öðrum ársfjórðungi og lækkuðu um 3% á milli ára. Tekjur af interneti námu 1.208 m.kr. á öðrum ársfjórðungi, sem er lækkun um 93 m.kr. milli ára eða -7%. Tekjur af farsíma námu 944 m.kr. og lækkuðu um 2% á milli ára. Tekjur af fastlínu námu 228 m.kr. á fjórðungnum og lækkuðu um 15% á milli ára, tekjur af vörusölu námu 278 m.kr. á tímabilinu sem er á pari við sama ársfjórðung 2018, aðrar tekjur námu 195 m.kr. á ársfjórðungnum og hækkuðu um 67% á milli ára.

Kostnaðarverð nam 3.290 m.kr. og jókst um 4% á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 1.769 m.kr. og lækkáði um 2% milli ára. EBITDA tímabilsins nam 1.216 m.kr. og lækkar um 54 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2018. EBITDA hlutfall var 24,2%.

Hrein fjármagnsgjöld námu 257 m.kr. á öðrum ársfjórðungi 2019 sem er hækkun um 66 m.kr. á milli ára. Aukningin stafar fyrst og fremst af áhrifum af innleiðingu á IFRS 16 og gengistapi. Tap á öðrum ársfjórðungi 2019 nam 215 m.kr. sem er 206 m.kr. aukning frá sama tímabili 2018.

Sjóðstreymi 2. ársfjórðungs 2019:

Handbært fé frá rekstri á öðrum ársfjórðungi ársins 2019 nam 1.219 m.kr. sem er 34,4% hækkun frá fyrra ári.

Fjárfestingarhreyfingar námu 799 m.kr., bar af eru fjárfestingar í rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (að undanskildum sýningarrétti) 390 m.kr. og fjárfesting í sýningarréttum 409 m.kr.

Fjármögnunarhreyfingar félagsins námu 184 m.kr. á öðrum ársfjórðungi 2019. Handbært fé í lok annars ársfjórðungs nam 378 m.kr.

img-0.jpeg
Sjóðstreymi 2F 2019

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is

Efnahagur 30. júní 2019:

Eigið fé í lok tímabilsins var 10.867 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 35,6%. Útgefið hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 m.kr.

Heildarskuldir félagsins voru 19.629 m.kr. Hreinar vaxtaberandi skuldir námu 14.871 m.kr. Veltufjárhlutfall var 1,0.

Horfur fyrir afkomu 2019:

Uppfærðar EBITDA horfur fyrir 2019 eru um 5,6 ma.kr. Fyrri áætlun um frjálst sjóðsflæði er óbreytt en ljóst að félagið er að enda í neðri enda þess bils, 1,6 – 2,0 ma.kr. Útgefnar horfur vegna heildarfjárfestingar haldast óbreyttar á bilinu 3,8–4,2 ma.kr.

Helstu tíðindi og mikilvæ gir áfangar á tímabilinu:

  • Vodafone á Íslandi, eitt vörumerkja Sýnar hf., samtengdist vefþjónustu Amazon en Vodafone er fyrsta íslenska fjarskiptafyritraekið til að koma á beinni samtengingu við AWS (e. Amazon Web Services). Þessi nýjung þýðir að þau fyrirtæki sem eru með netþjónustu hjá Vodafone og keyra AWS upplifa lægri svartíma en áður, þ.e. hoppum á netinu fækkar og nettengingin verður enn hraðari en áður.
  • Vísir, einn fjölmiðla í eigu Sýnar hf., og Alfreð, stærsti atvinnuleitarmiðill landsins gerðu með sér formlegt samstarf um opnun nýs atvinnuvefs á Vísi. Allir sem eru í atvinnuleit geta farið inn á vefinn og fundið þar ríkulegt úrval atvinnuauglýsinga sem hafa verið flokkaðar eftir starfsgreinum til að auðvelda fólki leitina.
  • Á landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem fram fór í maí hlaut Vodafone Áttavitann svokallaða. Áttavitinn er viðurkenning fyrir náið samstarf og mikilvægan stuðning við starf Slysavarnafélagsins Landsbjargar í áranna rás en slíkur stuðningur er Landsbjörg ómetanlegur og eflir allt þeirra starf.
  • Sýn var með tilraunaútsendingar á úrslitaleikjum Evrópudeildar UEFA og Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í Ofur-Háskerpu (Ultra HD / 4K). Stöð 2 Sport UHD sýndi báða leikina í opinni dagskrá á IPTV en viðskiptavinir þurftu að hafa bæði myndlykil og sjónvarp sem styðja UHD/4K myndupplausn til að njóta útsendingarinnar í fullum gæðum.
  • Sýn endurnýjaði samning við barnaefnisveituna Hopster til næstu ára og mun efnisframboð í Hopster fyrir aldurshópinn 2–6 ára, allt með íslensku tali, halda áfram að styrkjast til muna. Boðið verður upp á fleiri þætti, fræðandi efni, leiki og bækur í Hopster appinu sem fylgir öllum áskriftum.
  • Mikill kraftur var í íslenska sportinu á Stöð 2 Sport. Úrslitakeppnirnar í Dominos og Olís deildunum fóru fram og hlupu beinar útsendingar í vor á hundruðum. Íslenska boltanum voru einnig gerð góð skil í sumar líkt og áður. Með öllu hafa beinar útsendingar frá leikjum í Pepsi-Max og Inkasso deildunum verið um 200 en mikill metnaður er lagður í að sinna íslensku deildunum eins og kostur er. Styrkur stöðvarinnar liggur í breidd þeirra íþrótta sem finna má á stöðinni en fjölda útsendinga er að finna á hverjum degi eða um 2000 á ári.
  • Sýn hlaut á dögunum formlega jafnlaunavottun en úttektin var framkvæmd í maí síðastliðnum af BSI á Íslandi. Með vottuninni staðfestist að hjá Sýn er starfrækt jafnlaunakerfi sem stenst kröfur jafnlauna staðalsins ÍST 85:2012. Markmið jafnlaunavottunar er að vinna gegin kyribundnum launamun innan fyrirtækja og styðja við jafnrétti kynjanna á vinnustaðnum.

Kynningarfundur 29. ágúst 2019:

  • Opinn kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn fimmtudaginn 29. ágúst 2019. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Sýnar, 6. hæð, Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík og hefst klukkan 8:30.
  • Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
  • Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni https://syn.is/fjarfestatengsl.

Fjárhagsdagatal 2019:

✓ Uppgjör 3F 2019
✓ Ársuppgjör 2019
✓ Aðalfundur 2020

  1. nóvember 2019
  2. febrúar 2020
  3. mars 2020

Frekari upplýsingar:

✓ Bára Mjöll Þórðardóttir forstöðumaður samskiptasviðs Sýnar tekur á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjá[email protected] eða í síma 669-9299.

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is