Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Interim / Quarterly Report 2019

Aug 28, 2019

2210_rns_2019-08-28_87d9d09b-e8de-4bcb-a491-cce993d2c50a.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

img-0.jpeg

Sýn hf.

Samandreginn árshlutareikningur

  1. janúar til 30. júní 2019

Sýn hf. Suðurlandsbraut 8 108 Reykjavík kt. 470905-1740


Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2019

Efnisyfirlit

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra 3
Fjárhagslegar lykiltölur 4
Könnunaráritun óháðra endurskoðenda 5
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 6
Efnahagsreikningur 7
Eiginfjáryfirlit 8
Sjóðstreymisyflit 9
Skýringar 10

Bls.


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Sýn hf. er alhliða félag á sviði fjarskipta- og fjölmiðlastarfsemi. Félagið rekur marga af öflugustu fjölmiðlum landsins eins og Stöð 2, Bylgjuna, Vísi, FM957, Xið og fleiri landsbekkta miðla. Félagið veitir einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og opinberum aðilum alhliða fjarskiptabjónustu undir vörumerkjum Vodafone á Íslandi. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims.

Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfum sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samandreginn árshlutareikning félagsins og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf. Árshlutareikningur Sýnar hf. fyrir 1. janúar til 30. júní 2019 er kannaður af endurskoðendum félagsins.

Í upphafi árs var tilkynnt um að allir fyrirvarar varðandi sölu á meirihluta hlutafjár í P/F Hey hafi verið uppfylltir og kaupin því gengin í gegin og miðast við 1. janúar 2019. Hlutur Sýnar hf. (49,9%) í nýju sameinuðu félagi verður færður samkvæmt hlutdeildaraðferð frá 1. janúar 2019. Söluhagnaður 817 m.kr. er færður á 1F 2019.

Rekstur og fjárhagsleg staða 1. janúar til 30. júní 2019

Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur félagsins af seldum vörum og þjónustu 9.998 millj. kr. Hagnaður af áframhaldandi rekstri félagsins á tímabilinu nam 455 millj. kr. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir félagsins 30.496 millj. kr. Eigið fé félagsins þann 30. júní 2019 nam 10.867 millj. kr. Þar af nam hlutafé 2.964 millj. kr. Eiginfjárhlutfallið 30. júní 2019 var 35,6%.

Yfirlýsing

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfum sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glógga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu 30. júní 2019 ásamt rekstrarafkomu hennar og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2019.

Stjórn og forstjóri Sýnar hf. hafa í dag fjallað um samandreginn árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2019 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavík, 28. ágúst 2019

Í Stjórn

Hjörleifur Pálsson, stjórnarformaður

Anna Guðný Aradóttir

Sigríður Vala Halldórsdóttir

Tanya Zharov

Yngvi Halldórsson

Forstjóri

Heiðar Guðjónsson

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Fjárhagslegar lykiltölur

| | 2019
2F | 2018
2F
| 2019
6M | 2018
6M |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Fjárhagsupplýsingar | | | | |
| Heildartekur | 5.023 | 5.157 | 9.998 | 10.187 |
| Rekstrarhagnaður (tap) | (36) | 189 | 49 | 393 |
| Hagnaður (tap) fyrir tekjuskatt | (285) | (10) | 362 | 56 |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | (215) | (9) | 455 | 42 |
| Hagnaður (tap) á hlut af áframhaldandi starfsemi | (0,73) | (0,03) | 1,53 | 0,14 |
| Fjárfestingar | 390 | 804 | 1.006 | 1.271 |
| Fjárfestingar í sýningarrétti | 409 | 598 | 827 | 1.399 |
| Handbært fé frá rekstri | 1.219 | 907 | 2.080 | 2.144 |
| Frammistöðumat | | | | |
| EBITDA tímabilsins | 1.216 | 1.270 | 2.476 | 2.468 |
| EBITDA hlutfall tímabilsins | 24,2% | 24,6% | 24,8% | 24,2% |
| Frjálst fjárflæði (FCF)
* | 645 | (327) | 720 | (143) |
| Hreinar vaxtaberandi skuldir | 14.871 | 11.098 | 14.871 | 11.098 |

Ársfjörðungslegar upplýsingar hafa ekki verið kannaðar af endurskoðendum
Fjárhæðir vegna 2018 hafa verið endurgerðar, sjá nánar í skýringu 5.
**Frjálst fjárflæði samanstendur af handbæru fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt að frádregnum fjárfestingahreyfingum. Kaup á eignarhlutum er undanskilin þar sem þeir tengjast ekki endurfjárfestingabörf félagsins

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Könnunaráritun óháðra endurskoðenda

Til stjórnar og hluthafa Sýnar hf.

Við höfum kannað meðfylgjandi árshlutareikning Sýnar hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2019
Árshlutareikningurinn hefur að geyma, rekstrarreikning, yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.

Ábyrgð stjórnar og forstjóra á árshlutareikningnum

Stjórn og forstjóri eru ábyrg fyrir gerð og framsetningu árshlutareikningsins í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfum sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga.

Ábyrgð endurskoðenda

Ábyrgð okkar felst í ályktun okkar um árshlutareikninginn sem byggir á könnuninni.

Umfang könnunar

Könnun okkar var unnin í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRE 2410, sem fjallar um könnun óháðs endurskoðanda á árshlutareikningum. Slik könnun felur í sér fyrirspurnir, einkum til starfsmanna sem eru ábyrgir fyrir fjármálum og reikningsskilum félagsins ásamt greiningum á hinum ýmsu liðum reikningsskilanna og öðrum könnunaraðgerðum. Könnun felur ekki í sér jafn viðtækar aðgerðir og endurskoðun sem unnin er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og er því ekki víst að við fáum vitneskju um öll mikilvæg atriði sem gætu komið í ljós við endurskoðun. Þar af leiðandi látum við álit um endurskoðun ekki í ljós.

Ályktun

Við könnun okkar kom ekkert fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á tímabilinu, efnahag þess 30. júní 2019 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfum sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga.

Reykjavík, 28. ágúst 2019

Deloitte ehf.

Páll Grétar Steingrímsson
endurskoðandi

Jóhann Óskar Haraldsson
endurskoðandi

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2019


Rekstrarreikningur

  1. janúar til 30. júní 2019

| | Skýr | 2019
2F | 2018
2F
| 2019
6M | 2018
6M |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Seldar vörur og bjónusta | 8 | 5.023 | 5.157 | 9.998 | 10.187 |
| Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu | 9 | (3.290) | (3.158) | (6.358) | (6.163) |
| Framlegð | | 1.733 | 1.999 | 3.640 | 4.024 |
| Rekstrarkostnaður | 10 | (1.769) | (1.810) | (3.591) | (3.631) |
| Rekstrarhagnaður (tap) | | (36) | 189 | 49 | 393 |
| Fjármunatekjur | | 14 | 18 | 27 | 28 |
| Fjármagnsgjöld | | (271) | (209) | (542) | (353) |
| Hrein fjármagnsgjöld | | (257) | (191) | (515) | (325) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | | 8 | (8) | 828 | (12) |
| Hagnaður (tap) fyrir tekjuskatt | | (285) | (10) | 362 | 56 |
| Tekjuskattur | | 70 | 1 | 93 | (14) |
| Hagnaður (tap) tímabilsins af áframhaldandi starfsemi | | (215) | (9) | 455 | 42 |
| Hagnaður tímabilsins af aflagðri starfsemi | | - | 5 | - | 10 |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | | (215) | (4) | 455 | 52 |
| Hagnaður (tap) á hlut af áframhaldandi starfsemi | | (0,73) | (0,03) | 1,53 | 0,14 |
| Þynntur hagnaður (tap) á hlut af áframhaldandi starfsemi | | (0,73) | (0,03) | 1,53 | 0,14 |

Yfirlit um heildarafkomu

  1. janúar til 30. júní 2019

| | 2019
2F | 2018
2F
| 2019
6M | 2018
6M |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | (215) | (4) | 455 | 52 |
| Liðir sem gætu síðar verið færðir um rekstrarreikning | | | | |
| Þýðingarmunur | (22) | 13 | (77) | (8) |
| Áhættuvarnir | (36) | (8) | (25) | 29 |
| Heildarafkoma tímabilsins | (273) | 1 | 353 | 73 |

  • Ársfjörðungslegar upplýsingar hafa ekki verið kannaðar af endurskoðendum.
    Skýringar á bls. 10-15 eru óaðskiljanlegur hluti árslutareiknings félagsins.

Samandreginn árslutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Efnahagsreikningur

  1. júní 2019
Skýr. 30.6.2019 31.12.2018*
Fastafjármunir
Rekstrarfjármunir 5.036 4.785
Afnotaréttir 4 3.400 -
Viðskiptavild 10.646 10.646
Aðrar óefnislegar eignir 4.808 4.808
Eignahlutir í félögum 1.250 48
Fastafjármunir samtals 25.140 20.287
Veltufjármunir
Sýningarréttir 5 1.223 1.545
Birgðir 5, 12 384 364
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 3.371 3.403
Handbært fé 378 356
Veltufjármunir í áframhaldandi starfsemi 5.356 5.668
Eignir flokkaðar til sölu - 1.056
Veltufjármunir samtals 5.356 6.724
Eignir samtals 30.496 27.011
Eigið fé
Hlutafé 2.964 2.964
Yfirverðsreikningur hlutafjár 2.465 2.465
Annað eigið fé (82) (1)
Óráðstafað eigið fé 5.520 5.279
Eigið fé 10.867 10.707
Langtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 10.856 10.874
Leiguskuldbindingar 4 3.280 -
Tekjuskattsskuldbinding 47 138
Langtímaskuldir samtals 14.183 11.012
Skammtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 689 687
Leiguskuldbindingar 4 423 -
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 4.334 4.167
Skammtímaskuldir í áframhaldandi starfsemi 5.446 4.854
Skuldir sem tengjast eignum sem flokkaðar eru til sölu - 438
Skammtímaskuldir samtals 5.446 5.292
Skuldir samtals 19.629 16.304
Eigið fé og skuldir samtals 30.496 27.011
  • Endurgert, sjá nánar í skýringu 5.
    Skýringar á bls. 10-15 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Eiginfjáryfirlit

  1. janúar til 30. júní 2019
Hlutafé Yfirverðs-reikningur hlutafjár Þýðingar-munur Annað eigið fé
Bundinn reikningur Áhættu-varnir Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
1.1. til 30.06.2018
Eigið fé 1.1.2018 2.964 2.465 64 87 (169) 4.719 10.131
Hagnaður tímabilsins - - - - - 52 52
Þýðingarmunur - - (8) - - - (8)
Áhrif áhættuvarna - - - - 29 - 29
Heildarafkoma tímabilsins 0 0 (8) 0 29 52 73
Eigið fé 30.6.2018 2.964 2.465 56 87 (140) 4.770 10.204
1.1. til 30.6.2019
Eigið fé 1.1.2019 2.964 2.465 110 - (111) 5.279 10.707
IFRS 16, áhrif innleiðingar - - - - - (193) (193)
Leiðrétt eigið fé 1.1. 2019 2.964 2.465 110 0 (111) 5.086 10.514
Hagnaður tímabilsins - - - - - 455 455
Þýðingarmunur - - (77) - - - (77)
Áhrif áhættuvarna - - - - (25) - (25)
Heildarafkoma tímabilsins 0 0 (77) 0 (25) 455 353
Hagnaður hlutdeildarf. umfram arðgr. - - - 21 - (21) 0
Eigið fé 30.06.2019 2.964 2.465 33 21 (136) 5.520 10.867

Skýringar á bls. 10-15 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Sjóðstreymisyfirlit

  1. janúar til 30. júní 2019

| | Skýr. | 2019
2F | 2018
2F | 2019
6M | 2018
6M |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Hagnaður (tap) tímabilisins | | ( 215) | ( 4) | 455 | 52 |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | | | | | |
| Afskriftir | 5, 11 | 1.252 | 1.081 | 2.427 | 2.075 |
| Hrein fjármagnsgjöld | | 257 | 190 | 515 | 325 |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 6 | ( 8) | 3 | ( 828) | 2 |
| Tekjuskattur | | ( 70) | - | ( 93) | 14 |
| Veltufé frá rekstri | | 1.216 | 1.270 | 2.476 | 2.468 |
| Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum: | | | | | |
| Birgðir, breyting | 5, 12 | 4 | ( 6) | ( 104) | ( 129) |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, breyting | | 263 | ( 437) | 42 | ( 443) |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, breyting | | ( 39) | 249 | 139 | 631 |
| Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | | 1.444 | 1.075 | 2.553 | 2.527 |
| Innborgaðar vaxtatekjur | | 14 | 16 | 27 | 27 |
| Greidd vaxtagjöld | | ( 239) | ( 185) | ( 500) | ( 410) |
| Handbært fé frá rekstri | | 1.219 | 907 | 2.080 | 2.144 |
| Fjárfestingahreyfingar | | | | | |
| Kaup og sala eignarhluta í félögum | | - | ( 10) | 7 | ( 24) |
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | | ( 269) | ( 449) | ( 752) | ( 775) |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | | ( 121) | ( 355) | ( 254) | ( 496) |
| Fjárfesting í sýningarrétti | | ( 409) | ( 598) | ( 827) | ( 1.399) |
| Fjárfestingahreyfingar | | ( 799) | ( 1.412) | ( 1.826) | ( 2.694) |
| Fjármögnunarhreyfingar | | | | | |
| Afborganir langtímalána | | ( 171) | ( 144) | ( 341) | ( 227) |
| Rekstrarlán | | 102 | 720 | 321 | 799 |
| Afborgun leiguskuldbindinga | | ( 115) | - | ( 212) | - |
| Fjármögnunarhreyfingar | | ( 184) | 576 | ( 232) | 572 |
| Breyting á handbæru fé | | 236 | 71 | 22 | 22 |
| Handbært fé flokkað til sölu | | - | ( 33) | - | ( 33) |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | | - | ( 1) | - | ( 1) |
| Handbært fé í byrjun tímabils | | 142 | 280 | 356 | 329 |
| Handbært fé í lok tímabilsins | | 378 | 317 | 378 | 317 |

Skýringar á bls. 10-15 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar

  1. Félagið

Sýn hf. ("félagið") er íslensk hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta - og fjölmiðlunar. Samandreginn árshlutareikningur félagsins fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2019 hefur að geyma árshlutareikning félagsins og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf., sem vísað er til í heild sem „félagið“.

  1. Reikningsskilin

a. Grundvöllur reikningsskilanna

Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfum sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Árshlutareikningur félagsins 1. janúar til 30. júní 2019 er kannaður af endurskoðendum félagsins.

Árshlutareikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilareglum og lágu til grundvallar við gerð ársreikningsins 2018, að því undanskildu að nýr reikningsskilastaðall um leigusamninga tók gildi 1. janúar 2019 IFRS 16, sjá nánar umfjöllun í skýringu 4. Árshlutareikningurinn inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2018. Hægt er að nálgast ársreikning Sýnar hf. á heimasíðu félagsins www.syn.is. og á vef Kauphallar Íslands; www.nasdaqomxnordic.com.

Stjórn félagsins staðfesti og heimilaði birtingu árshlutareikningsins þann 28. ágúst 2019.

b. Mat stjórnenda á reikningsskilum

Gerð árshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og dragi ályktanir sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna og skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrugðnar þessu mati.

  1. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill

Árshlutareikningur félagsins er birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

  1. Innleiðing nýrra og endurbættra staðla

Félagið innleiddi í upphafi árs nýjan staðal um leigusamninga (IFRS 16) í reikningsskil sín. Staðallinn setur fram nýjar kröfur um meðferð leigusamninga. Miklar breytingar eru á reikningsskilaaðferðum leigutaka þar sem ekki er lengur greint á milli fjármögnunarleigu og rekstrarleigu, heldur er þess krafist að færð verði upp leiguskuldbinding og afnotarétur til eignar vegna allra leigusamninga. Aðeins eru gerðar undantekningar fyrir skammtímaleigu (til skemmri tíma en 12 mánaða) og fyrir leigueignir með lágt virði. Áhrifum af innleiðingu IFRS 16 á árshlutareikninginn er lýst hér að neðan.

Félagið beitir afturvirkri innleiðingu að hluta, þannig að samanburðartölur eru ekki endurgerðar heldur eru uppsöfnuð áhrif innleiðingarinnar færð á eigið fé við innleiðingu 1. janúar 2019. Félagið nýtir sér undanpágu staðalsins frá endurflokkun samninga sem hafa áður verið skilgreindir sem leigusamningar samkvæmt IAS 17 og IFRC 4 fyrir innleiðingardag. Kröfum IFRS 16 er þannig við innleiðingu beitt á leigusamninga sem voru flokkaðir sem slíkir á innleiðingardegi.

Með innleiðingu IFRS 16 þá breytist eðli gjalda sem tengjast rekstrarleigusamningum þar sem félagið færir nú afskriftir af afnotarétti og vaxtagjöld af leiguskuld, en hafði áður gjaldfært leigugreiðslur á meðal rekstrargjalda línulega yfir líftíma samninganna. Áhrif þessara breytinga leiða til þess að afkoma fyrstu 6 mánaða ársins 2019 er 25 millj. kr. lægri en afkoman hefði verið undir fyrri staðli (IAS 17). Áhrif á einstaka liði rekstrarreiknings eru eftirfarandi: Hækkun afskrifta um 242 millj. kr., hækkun fjármagnsliða um 94 millj. kr. og lækkun rekstrargjalda um 311 millj. kr.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

4. Innleiðing nýrra og endurbættra staðla frh.:

Hagnaður á hlut á fyrstu 6 mánuðum ársins var 1,53 kr. og þyntur hagnaður á hlut 1,53. Hagnaður á hlut hefði verið 1,45 og þyntur hagnaður á hlut 1,45 undir fyrri staðali.

Á innleiðingardegi 1. janúar 2019 færði félagið leiguskuldbindingu að fjárhæð 3.801 milljónir, afnotarétt að fjárhæð 3.511 millj. kr., leigukrófu að fjárhæð 97 millj. kr. í efnhagsreikning og færsla á eigið fé því 193 millj. kr.

Samkvæmt IAS 17 voru allar greiðslur vegna rekstrarleigu sýndar meðal rekstrarhreyfinga í sjóðstreymi. Áhrif innleiðingar IFRS 16 á sjóðstreymi eru hækkun handbærs fjár frá rekstri um 212 millj. kr. og lækkun á handbæru fé vegna fjármögnunarhreyfinga um sömu upphæð.

5. Breytt framsetning sýningarréttar

Í ársbyrjun var breytt reikningshaldslegri meðhöndlun á sýningarrétti sjónvarpsefnis. Sýningarréttar var áður flokkaður meðal birgða en er frá og með 1. janúar 2019 flokkaður sem óefnislegar eignir. Gjaldfærsla sýningarréttar er því færð frá og með 1.1.2019 meðal afskrifta. Fjárhæðum vegna 2018 hefur því verið breytt til samræmis. Sjá nánar í skýringum hér að neðan:

Breyting á birgðum greinast þannig: 31.12.2018 Breyting Uppfært 31.12.2018
Birgðir 1.909 (1.545) 364
Breyting á afskriftum greinast þannig: 30.6.2018 Breyting Uppfært 30.6.2018
--- --- --- ---
Afskriftir 963 1.112 2.075
Breyting á afskriftum greinast þannig: 2018 2F Breyting Uppfært 2018 2F
--- --- --- ---
Afskriftir 490 591 1.081

6. Sala á meirihluta hlutafjár í P/F Hey

Í upphafi árs var tilkynnt um að allir fyrirvarar varðandi sölu á meirihluta hlutafjár í P/F Hey hafi verið uppfylltir og kaupin því gengin í gegn og miðast við 1. janúar 2019. Hlutur Sýnar hf. (49,9%) í nýju sameinuðu félagi verður færður samkvæmt hlutdeildaraðferð. frá 1. janúar 2019. Söluhagnaður 817 m.kr. var færður á 1F 2019.

7. Starfsþáttayfirlit

Félagið skilgreinir starfsþætti eftir innri upplýsingagjöf til stjórnenda og samkvæmt því telst félagið í heild vera einn starfsþáttur.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Seldar vörur og bjónusta
Seldar vörur og bjónusta greinast bannig: 2019 2018 2019 2018
2F* 2F* 6M 6M
Vörusala 278 278 524 539
Seld bjónusta 4.745 4.879 9.474 9.648
Seldar vörur og bjónusta samtals 5.023 5.157 9.998 10.187

Tekjustraumar

Félagið skiptist í sex tekjustrauma sem eru mismunandi í eðli sínu. Tekjustraumarnir eru:

Fjölmiðlun samanstendur af tekjum af starfsemi ljósvakamiðla, áskriftartekjum og tekjum af auglýsingasölu, tekjum af dreifingu á báðum sjónvarpsdreifikerfum félagsins, leigutekjum af myndlyklum og tekjum af leigu einstakra kvikmynda og þátta (TVOD), tekjum af áskriftaveitu félagsins. (SVOD), tekjum af áskriftum af línulegum stöðvum og tekjum af sölu einstaka sjónvarpsviðburða.

Internet samanstendur af tekjum af netbjónustu í fastlínukerfum, þ.m.t. á ljósleiðara, xDSL bjónustu og aðrar gagnatengingar, internetbjónustu, aðgangsgjöldum og leigu á netbeinum.

Farsimi samanstendur af öllum tekjum vegna notkunar á farsímum, þ.m.t. gagnaflutningum í farsímakerfinu, áskriftartekjum frá einstaklingum og fyrirtækjum, seldum frelsisinneignum, reikitekjum frá ferðamönnum og samtengitekjum í farsíma.

Fastlína samanstendur af tekjum vegna notkunar á heimasíma, fyrirtækjasíma í fastlínu og samtengitekjum í fastlínu.

Vörusala samanstendur af sölu á búnaði og fylgihlutum.

Aðrar tekjur samanstanda af bjónustutekjum, tekjum af hugbúnaði, útseldri vinnu og bjónustu og öðrum tilfallandi tekjum.

Tekjustraumar Fjöl-míðlun Internet Farsími Fastlína Vörusala Aðrar tekjur Samtals
1.1. til 30.06.2019
Tekjur félagsins 4.342 2.414 1.837 470 524 412 9.998
Tekjur samtals 4.342 2.414 1.837 470 524 412 9.998
Tekjustraumar Fjöl-míðlun Internet Farsími Fastlína Vörusala Aðrar tekjur Samtals
--- --- --- --- --- --- --- ---
1.1. til 30.06.2018
Tekjur félagsins 4.428 2.380 1.879 587 539 374 10.187
Tekjur samtals 4.428 2.380 1.879 587 539 374 10.187

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu
Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu greinist bannig: 2019 2018 2019 2018
2F 2F* 6M 6M*
Kostnaðarverð seldrar vöru og bjónustu 1.820 1.787 3.469 3.551
Laun og launatengd gjöld 572 546 1.127 1.037
Afskriftir 898 825 1.762 1.575
Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu samtals 3.290 3.158 6.358 6.163

*Fjárhæð vegna 2018 hefur verið uppfærð, sjá nánar í skýringu 5.

  1. Rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður greinist bannig: 2019 2018 2019 2018
2F 2F 6M 6M
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 294 420 606 836
Sölu- og markaðskostnaður 117 144 244 281
Laun og launatengd gjöld 1.004 989 2.076 2.014
Afskriftir 354 256 665 500
Rekstrarkostnaður samtals 1.769 1.810 3.591 3.631
  1. Afskriftir
2019 2018 2019 2018
Afskriftir í rekstrarreikningi greinast bannig: 2F 2F* 6M 6M*
Afskriftir rekstrarfjármuna 314 286 622 562
Afskriftir óefnislegra eigna 210 204 414 401
Afskriftir afnotaréttar 138 - 242 -
Afskriftir sýningarréttar 590 591 1.150 1.112
Afskriftir samtals 1.252 1.081 2.427 2.075

*Fjárhæð vegna 2018 hefur verið uppfærð, sjá nánar í skýringu 5.

  1. Birgðir
Birgðir greinast bannig: 30.6.2019 31.12.2018*
Fjarskiptabúnaður til endursölu 301 231
Õuppsettur sendabúnaður (rekstrarvörubirgðir) 83 133
Birgðir samtals 384 364

*Fjárhæð vegna 2018 hefur verið uppfærð, sjá nánar í skýringu 5.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

13. Önnur mál

Félagið á í málarekstri við einstaklinga, önnur félög og eftirlitsstofnanir á íslenskum fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði. Félagið færir skuldbindingar vegna málarekstur þegar hægt er að meta þær með áreiðanlegum hætti. Vegna óvissu um framtíðarþrún málarekstrar, niðurstöður dómsmála, úrskurði, áfrýjanir og sættir í málum geta niðurstöður mála leitt til viðbótar skuldbindinga og kostnaðar fyrir félagið. Hér á eftir má sjá helstu breytingar í málarekstri frá áramótum 2018.

Síminn hf. gegn Póst- og fjarskiptastofnun, Samkeppniseftirlitinu, Sýn hf. og Nova ehf.

Síminn hf. stefndi Samkeppniseftirlitinu, félaginu, Nova ehf. og Sendafélaginu og krafðist ógildingar á úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála í máli nr. 7/2015 ásamt því sem Síminn hf. stefndi Póst- og fjarskiptastofnun, félaginu og Nova ehf. og krafðist ógildingar á ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 14/2014. Jafnframt átti Sendafélagið ehf. aðild að málunum. Með þessum stjórnvaldsákvörðunum heimiluðu Póst- og fjarskiptastofnun og Samkeppniseftirlitið félaginu og Nova ehf. að samnýta tíðniheimildar félaganna í sérstöku rekstrarfélagi. Hefur sá samrekstur farið fram á vegum Sendafélagsins ehf.

Með dómi Héraðsdóms sem kveðinn var upp 1. apríl 2019 var félagið sýknað af öllum kröfum Símans hf. í báðum dómsmálunum. Síminn hf. hefur áfrýjað báðum málum til Landsréttar með áfrýjunarstefnum útgefnum 24. apríl 2019.

Síminn hf. gegn Póst- og fjarskiptastofnun, Sýn hf., Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. og Mílu ehf., og gagnsök.

Síminn hf. hefur stefnt Póst- og fjarskiptastofnun, félaginu, Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. og Mílu ehf., til ógildingar ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 10/2018. Í þeirri ákvörðun var því slegið föstu að Síminn hf. hefði gerst brotlegur við 5. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga og honum gert að greiða 9. millj. kr. í stjórnvaldssekt. Var málið þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 9. október 2018.

Félagið gaf út gagnstefnu, sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur 4. desember 2018, og gerir í gagnsök þá dómkröfu að Símanum hf. verði gert að greiða félaginu kr. 2.092 millj. kr., auk dráttarvaxta, í skaðabætur vegna brota Símans hf. gegn framangreindum bannákvæðum laga um fjölmiðla, sem slegið var föstum með fyrnnefndri ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 10/2018.

Síminn hf. skilaði greinagerð í gagnsök og krafðist frávísunar. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur þann 15. maí 2019 var gagnkröfu Sýnar hf. vísað frá af réttarfarsástæðum. Krafa Sýnar hf. verður borin undir dómstóla á ný en með öðrum hætti.

A þessum tímapunkti getur félagið ekki metið framtíðar skuldbindingar sem leiða af niðurstöðum ofangreindra dómsmála meðal annars vegna þess að það getur tekið langan tíma að fá niðurstöðu í mál, ásamt því að mál geta þróast í ólikar áttir. Vegna þess hefur engin skuldbinding vegna ofangreindra verið færð í árshlutareikning félagsins. Að öðru leyti ætti að lesa önnur mál í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2018.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Ársfjörðungsyfirlit

  1. janúar til 30. júní 2018

| | 2018
1F | 2018
2F | 2018
3F | 2018
4F | 2019
1F | 2019
2F |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Seldar vörur og bjónusta | 5.030 | 5.157 | 5.143 | 5.424 | 4.975 | 5.023 |
| Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu | (3.005) | (3.158) | (3.112) | (3.441) | (3.068) | (3.290) |
| Framlegð | 2.025 | 1.999 | 2.031 | 1.983 | 1.907 | 1.733 |
| Rekstrarkostnaður | (1.821) | (1.810) | (1.557) | (1.682) | (1.822) | (1.769) |
| Rekstrarhagnaður (tap) | 204 | 189 | 474 | 301 | 85 | (36) |
| Fjármunatekjur | 10 | 18 | 10 | 13 | 13 | 14 |
| Fjármagnsgjöld | (144) | (209) | (220) | (181) | (271) | (271) |
| Hrein fjármagnsgjöld | (134) | (191) | (210) | (168) | (258) | (257) |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | (4) | (8) | (2) | (13) | 820 | 8 |
| Tekjuskattur | (15) | 1 | (55) | 73 | 23 | 70 |
| Hagnaður (tap) af áframhaldandi starfsemi | 51 | (9) | 207 | 193 | 670 | (215) |
| Hagnaður tímabilsins af aflagðri starfsemi | 5 | 5 | 19 | 1 | - | - |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | 56 | (4) | 226 | 194 | 670 | (215) |
| Þýðingarmunur | (21) | 13 | 28 | 26 | (55) | (22) |
| Áhættuvarnir | 37 | (8) | (1) | 30 | 11 | (36) |
| Heildarafkoma tímabilsins | 72 | 1 | 253 | 250 | 626 | (273) |
| EBITDA** | 1.204 | 1.270 | 1.548 | 1.355 | 1.260 | 1.216 |
| EBITDA % | 23,9% | 24,6% | 30,1% | 25,0% | 25,3% | 24,2% |

Ársfjörðungslegar upplýsingar hafa ekki verið kannaðar af endurskoðendum
*Endurgert, sjá nánar í skýringu 5.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.