Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Interim / Quarterly Report 2019

Nov 6, 2019

2210_rns_2019-11-06_b4b20ea6-0b15-47a4-ac8b-1ddd7acde51e.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sýn hf. Suðurlandsbraut 8 108 Reykjavík kt. 470905-1740

Sýn hf.

Samandreginn árshlutareikningur

  1. janúar til 30. september 2019

img-0.jpeg


Samandreginn árslutareikningur Sýnar hf. 30. september 2019

Efnisyfirlit

Skyrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra 3
Fjárhagslegar lykiltölur 4
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 5
Efnahagsreikningur 6
Eiginfjáryfirlit 7
Sjóðstreymisyfirlit 8
Skýringar 9

Bls.


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Sýn hf. er alhliða félag á sviði fjarskipta- og fjölmiðlastarfsemi. Félagið rekur marga af öflugustu fjölmiðlum landsins eins og Stöð 2, Bylgjuna, Vísi, FM957, Xið og fleiri landsbekkta miðla. Félagið veitir einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og opinberum aðilum alhliða fjarskiptabjónustu undir vörumerkjum Vodafone á Íslandi. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims.

Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfum sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samandreginn árshlutareikning félagsins og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf. Árshlutareikningur Sýnar hf. fyrir 1. janúar til 30. september 2019 hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Meirihluti hlutafjár í P/F Hey var seldur í upphafi árs 2019. Hlutur Sýnar hf. (49,9%) í nýju sameinuðu félagi er færður samkvæmt hlutdeildaraðferð frá 1. janúar 2019. Hagnaður vegna sölunnar að fjárhæð 817 millj. kr. var færður á 1F 2019.

Sýn hf. hefur undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í upplýsingatæknifyrirtækinu Endor. Kaupsamningur er gerður með fyrirvara um sambykki Samkeppniseftirlitsins. Endor starfar aðallega á alþjóðlegum markaði í rekstri gagnavera. Félagið mun reka Endor í öbreyttri mynd sem dótturfélag og nýta stuðning og innviði Sýnar hf. og alþjóðlegar tengingar Endor í að stýðja enn frekar við tekjustrauma félagsins.

Rekstur og fjárhagsleg staða 1. janúar til 30. september 2019

Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur félagsins af seldum vörum og þjónustu 14.876 millj. kr. Hagnaður af áframhaldandi rekstri félagsins á tímabilinu nam 384 millj. kr. Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir félagsins 30.062 millj. kr. Eigið fé félagsins þann 30. september 2019 nam 10.911 millj. kr. Þar af nam hlutafé 2.964 millj. kr. Eiginfjárhlutfallið 30. september 2019 var 36,3%.

Yfirlýsing

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfum sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu 30. september 2019 ásamt rekstrarafkomu og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. september 2019.

Stjórn og forstjóri Sýnar hf. hafa í dag fjallað um samandreginn árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2019 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavík, 6. nóvember 2019

Í stjórn

Hjörleifur Pálsson, stjórnarformaður

Anna Guðný Aradóttir

Sigriður Vala Halldórsdóttir

Tanya Zharov

Yngvi Halldórsson

Forstjóri

Heiðar Guðjónsson

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Fjárhagslegar lykiltölur

| | 2019
3F | 2018
3F | 2019
9M | 2018
9M |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Fjárhagsupplysingar | | | | |
| Heildartekjur | 4.878 | 5.143 | 14.876 | 15.330 |
| Rekstrarhagnaður | 186 | 474 | 235 | 867 |
| Hagnaður (tap) fyrir tekjuskatt | (93) | 262 | 269 | 318 |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | (71) | 207 | 384 | 249 |
| Hagnaður (tap) á hlut af áframhaldandi starfsemi | (0,25) | 0,70 | 1,30 | 0,84 |
| Fjárfestingar | 303 | 474 | 1.416 | 1.745 |
| Fjárfestingar í sýningarrétti | 806 | 702 | 1.634 | 2.101 |
| Handbært fé frá rekstri | 1.235 | 1.185 | 3.424 | 3.331 |
| Frammistöðumat | | | | |
| EBITDA tímabilsins | 1.623 | 1.785 | 4.100 | 4.253 |
| EBITDA hlutfall tímabilsins | 33,3% | 34,7% | 27,6% | 27,7% |
| Frjálst fjárflæði (FCF)
| 435 | 159 | 1.113 | (23) |
| Hreinar vaxtaberandi skuldir
** | 14.760 | 11.358 | 14.760 | 11.358 |

*Fjárhæðir vegna 2018 hafa verið endurgerðar, sjá nánar í skýringu 5.

**Frjálst fjárflæði samanstendur af handbæru fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt að frádregnum fjárfestingahreyfingum. Kaup á eignarhlutum er undanskilin þar sem þeir tengjast ekki endurfjárfestingabörf félagsins

***Hreinar vaxtaberandi skuldir á árinu 2019 innhalda leiguskuldbindingar sem eru meðhöndlaðar í samræmi við IF

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Rekstrarreikningur

  1. janúar til 30. september 2019
Skýr 2019 3F 2018 3F 2019 9M 2018 9M
Seldar vörur og bjónusta 9 4.878 5.143 14.876 15.330
Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu 10 (3.133) (3.112) (9.491) (9.275)
Framlegð 1.745 2.031 5.385 6.055
Rekstrarkostnaður 11 (1.559) (1.557) (5.150) (5.188)
Rekstrarhagnaður 186 474 235 867
Fjármunatekjur 42 10 38 38
Fjármagnsgjöld 8 (337) (220) (848) (573)
Hrein fjármagnsgjöld (295) (210) (810) (535)
Áhrif hlutdeildarfélaga 16 (2) 844 (14)
Hagnaður (tap) fyrir tekjuskatt (93) 262 269 318
Tekjuskattur 22 (55) 115 (69)
Hagnaður (tap) tímabilsins af áframhaldandi starfsemi (71) 207 384 249
Hagnaður tímabilsins af aflagðri starfsemi - 19 - 29
Hagnaður (tap) tímabilsins (71) 226 384 278
Hagnaður (tap) á hlut af áframhaldandi starfsemi (0,25) 0,70 1,30 0,84
Þynntur hagnaður (tap) á hlut af áframhaldandi starfsemi (0,25) 0,70 1,30 0,84

Yfirlit um heildarafkomu

  1. janúar til 30. september 2019
2019 3F 2018 3F 2019 9M 2018 9M
Hagnaður (tap) tímabilsins (71) 226 384 278
Liðir sem gætu síðar verið færðir í rekstrarreikning
Þýðingarmunur (21) 28 (98) 20
Liðir sem ekki verða síðar færðir í rekstrarreikning
Áhættuvarnir 8 136 (1) 111
Heildarafkoma tímabilsins 44 253 397 326

Skýringar á bls. 9-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Efnahagsreikningur

  1. september 2019
Skýr. 30.9.2019 31.12.2018*
Fastafjármunir
Rekstrarfjármunir 4.928 4.785
Afnotaréttir 4 3.296 -
Viðskiptavild 10.646 10.646
Aðrar óefnislegar eignir 4.698 4.808
Eignahlutir í félögum 1.269 48
Fastafjármunir samtals 24.837 20.287
Veltufjármunir
Sýningarréttir 5 1.432 1.545
Birgðir 5, 13 415 364
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 3.251 3.403
Handbært fé 127 356
Veltufjármunir í áframhaldandi starfsemi 5.225 5.668
Eignir flokkaðar til sölu - 1.056
Veltufjármunir samtals 5.225 6.724
Eignir samtals 30.062 27.011
Eigið fé
Hlutafé 2.964 2.964
Yfirverðsreikningur hlutafjár 2.465 2.465
Annað eigið fé 50 (1)
Óráðstafað eigið fé 5.432 5.279
Eigið fé 10.911 10.707
Langtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 10.600 10.874
Leiguskuldbindingar 4 3.168 -
Tekjuskattsskuldbinding 25 138
Langtímaskuldir samtals 13.793 11.012
Skammtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 689 687
Leiguskuldbindingar 4 430 -
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 4.239 4.167
Skammtímaskuldir í áframhaldandi starfsemi 5.358 4.854
Skuldir sem tengjast eignum sem flokkaðar eru til sölu - 438
Skammtímaskuldir samtals 5.358 5.292
Skuldir samtals 19.151 16.304
Eigið fé og skuldir samtals 30.062 27.011
  • Endurgert, sjá nánar í skýringu 5.
    Skýringar á bls. 9-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Eiginfjáryfirlit

  1. janúar til 30. september 2019
Hlutafé Yfirverðs-reikningur hlutafjár Þýðingar-munur Annað eigið fé
Bundinn reikningur Áhættu-varnir Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
1.1. til 30.09.2018
Eigið fé 1.1.2018 2.964 2.465 64 87 (169) 4.719 10.131
Hagnaður tímabilsins - - - - - 278 278
Þýðingarmunur - - 20 - - - 20
Áhrif áhættuvarna - - - - 28 - 28
Heildarafkoma tímabilsins 0 0 20 0 28 278 326
Eigið fé 30.9.2018 2.964 2.465 84 87 (141) 4.996 10.457
1.1. til 30.9.2019
Eigið fé 1.1.2019 2.964 2.465 110 - (111) 5.279 10.707
IFRS 16, áhrif innleiðingar - - - - - (193) (193)
Leiðrétt eigið fé 1.1. 2019 2.964 2.465 110 0 (111) 5.086 10.514
Hagnaður tímabilsins - - - - - 384 384
Þýðingarmunur - - (98) - - - (98)
Áhrif áhættuvarna - - - - 111 - 111
Heildarafkoma tímabilsins 0 0 (98) 0 111 384 397
Hagnaður hlutdeildarf. umfram arðgr. - - - 38 - (38) 0
Eigið fé 30.09.2019 2.964 2.465 12 38 0 5.432 10.911

Skýringar á bls. 9-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Sjóðstreymisyfirlit

  1. janúar til 30. september 2019
Skýr. 2019 3F 2018 3F* 2019 9M 2018 9M*
Hagnaður (tap) tímabilisins (71) 226 384 278
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir 5, 12 1.437 1.311 3.865 3.386
Hrein fjármagnsgjöld 295 210 810 535
Áhrif hlutdeildarfélaga 6 (16) (17) (844) (15)
Tekjuskattur (22) 55 (114) 69
Veltufé frá rekstri 1.623 1.785 4.101 4.253
Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Birgðir, breyting 5, 13 (31) (61) (135) (190)
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, breyting 96 (17) 139 (459)
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, breyting (145) (372) 58 219
Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt 1.544 1.335 4.163 3.823
Innborgaðar vaxtatekjur 11 10 38 37
Greidd vaxtagjöld (320) (160) (777) (529)
Handbært fé frá rekstri 1.235 1.185 3.424 3.331
Fjárfestingahreyfingar
Kaup og sala eignarhluta í félögum (10) (8) (3) (33)
Fjárfesting í rekstrarfjármunum (216) (390) (1.011) (1.165)
Fjárfesting í óefnislegum eignum (87) (84) (405) (580)
Fjárfesting í sýningarrétti (806) (702) (1.634) (2.101)
Fjárfestingahreyfingar (1.119) (1.184) (3.053) (3.879)
Fjármögnunarhreyfingar
Afborganir langtímalána (171) (140) (512) (368)
Rekstrarlán (85) 95 236 894
Afborgun leiguskuldbindinga (111) - (324) -
Fjármögnunarhreyfingar (367) (45) (600) 526
Breyting á handbæru fé (251) (44) (229) (22)
Handbært fé flokkað til sölu - (35) - (35)
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé - (1) - (1)
Handbært fé í byrjun tímabils 378 351 356 329
Handbært fé í lok tímabilsins 127 271 127 271

*Endurgert, sjá skýringu 5
Skýringar á bls. 9-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareiknings félagsins.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar

1. Félagið

Sýn hf. ("félagið") er íslensk hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta - og fjölmiðlunar. Samandreginn árshlutareikningur félagsins fyrir tímabilið 1. janúar - 30. september 2019 hefur að geyma árshlutareikning félagsins og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf., sem vísað er til í heild sem „félagið“.

2. Reikningsskilin

a. Grundvöllur reikningsskilanna

Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfum sem koma fram í íslenskum lögum og reglum um árshlutareikninga skráðra félaga. Árshlutareikningur félagsins 1. janúar til 30. september 2019 hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Árshlutareikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilareglum og lágu til grundvallar við gerð ársreiknings 2018, að því undanskildu að nýr reikningsskilastaðall um leigusamninga tók gildi 1. janúar 2019 IFRS 16, sjá nánar umfjöllun í skýringu 4 og breytta framsetningu sýningarrétta, sjá nánar umfjöllun í skýringu 5. Árshlutareikningurinn inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2018. Hægt er að nálgast ársreikning Sýnar hf. á heimasíðu félagsins www.syn.is. og á vef Kauphallar Íslands; www.nasdaqomxnordic.com.

Stjórn félagsins staðfesti og heimilaði birtingu árshlutareikningsins þann 6. nóvember 2019.

b. Mat stjórnenda á reikningsskilum

Gerð árshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og dragi ályktanir sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna og skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrögðnar þessu mati.

3. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill

Árshlutareikningur félagsins er birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins. Allar fjárhæðir eru birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

4. Innleiðing nýrra og endurbættra staðla

Félagið innleiddi í upphafi árs nýjan staðal um leigusamninga (IFRS 16) í reikningsskil sín. Staðallinn setur fram nýjar kröfur um meðferð leigusamninga. Miklar breytingar eru á reikningsskilaaðferðum leigutaka þar sem ekki er lengur greint á milli fjármögnunarleigu og rekstrarleigu, heldur er þess krafist að færð verði upp leiguskuldbinding og afnotaréttur til eignar vegna allra leigusamninga. Aðeins eru gerðar undantekningar fyrir skammtímaleigu (til skemmri tíma en 12 mánaða) og fyrir leigueignir með lágt virði. Áhrifum af innleiðingu IFRS 16 á árshlutareikninginn er lýst hér að neðan.

Félagið beitir afturvirkri innleiðingu að hluta við innleiðingu staðalsins, þannig að samanburðartölur eru ekki endurgerðar heldur eru uppsöfnuð áhrif innleiðingarinnar færð á eigið fé á innleiðingardegi. Félagið nýtir sér undanpágu staðalsins frá endurflokkun samninga sem hafa áður verið skilgreindir sem leigusamningar samkvæmt IAS 17 og IFRC 4 fyrir innleiðingardag. Kröfum IFRS 16 er þannig við innleiðingu beitt á leigusamninga sem voru flokkaðir sem slíkir á innleiðingardegi.

Með innleiðingu IFRS 16 þá breytist meðferð þeirra gjalda sem tengjast rekstrarleigusamningum þar sem félagið færir nú afskriftir af afnotarétti og vaxtagjöld af leiguskuld, en hafði áður gjaldfært leigugreiðslur á meðal rekstrargjalda línulega yfir líftíma samninganna. Áhrif þessara breytinga leiða til þess að afkoma fyrstu 9 mánaða ársins 2019 er 30 millj. kr. lægri en afkoman hefði verið undir fyrri staðli (IAS 17). Áhrif á einstaka liði rekstrarreiknings eru eftirfarandi: Hækkun afskrifta um 360 millj. kr., hækkun fjármagnsliða um 141 millj. kr. og lækkun rekstrargjalda um 471 millj. kr.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

4. Innleiðing nýrra og endurbættra staðla frh.:

Hagnaður á hlut á fyrstu 9 mánuðum ársins var 1,3 kr. og þyntur hagnaður á hlut 1,3. Hagnaður á hlut hefði verið 1,2 og þyntur hagnaður á hlut 1,2 undir eldri staðli.

Á innleiðingardegi 1. janúar 2019 færði félagið leiguskuldbindingu að fjárhæð 3.801 milljónir, afnotarétt að fjárhæð 3.511 millj. kr., leigukröfu að fjárhæð 97 millj. kr. í efnhagsreikning og færsla á eigið fé því 193 millj. kr.

Samkvæmt IAS 17 voru allar greiðslur vegna rekstrarleigu sýndar meðal rekstrarhreýfinga í sjóðstreymi. Áhrif innleiðingar IFRS 16 á sjóðstreymi eru hækkun handbærs fjár frá rekstri um 324 millj. kr. og lækkun á handbæru fé vegna fjármögnunarhreýfinga um sömu upphæð.

5. Breytt framsetning sýningarrétta

Í ársbyrjun var reikningshaldslegri meðhöndlun á sýningarrétti sjónvarpsefnis breytt. Sýningarréttir voru áður meðhöndlaðir sem birgðir en er frá og með 1. janúar 2019 meðhöndlaðir sem óefnislegar eignir. Gjaldfærsla sýningarréttar er því færð frá og með 1.1.2019 meðal afskrifta. Fjárhæðum vegna 2018 hefur því verið breytt til samræmis. Sjá nánar í skýringum hér að neðan:

Breyting á birgðum greinast þannig: 31.12.2018 Breyting Endurgert 31.12.2018
Birgðir 1.909 (1.545) 364
Breyting á afskriftum greinast þannig: 30.9.2018 Breyting Endurgert 30.9.2018
--- --- --- ---
Afskriftir 1.460 1.926 3.386
Breyting á afskriftum greinast þannig: 2018 3F Breyting Endurgert 2018 3F
--- --- --- ---
Afskriftir 497 814 1.311

6. Sala á meirihluta hlutafjár í P/F Hey

Meirihluti hlutafjár í P/F Hey var seldur í upphafi árs 2019. Hlutur Sýnar hf. (49,9%) í nýju sameinuðu félagi er færður samkvæmt hlutdeildaraðferð frá 1. janúar 2019. Hagnaður vegna sölunnar að fjárhæð 817 millj. kr. var færður á 1F 2019.

7. Starfsbáttayfirlit

Félagið skilgreinir starfsbætti eftir innri upplýsingagjóf til stjórnenda og samkvæmt því telst félagið í heild vera einn starfsbáttur.

8. Meðferð vaxtaskiptasamnings

Vaxtaskiptasamningur sem félagið gerði á árinu 2016 til varnar sjóðstreymisáhættu á langtímalánum sínum var gerður upp á ársfjörðungnum. Vegna þessa uppgjörs voru gjaldfærðar 120 millj. kr. í rekstrarreikning meðal vaxtagjalda. Sjóðstreymisáhrif uppgjörsins voru 98 millj. kr.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Seldar vörur og bjónusta
Seldar vörur og bjónusta greinast bannig: 2019 2018 2019 2018
3F 3F 9M 9M
Vörusala 255 257 780 796
Seld bjónusta 4.623 4.886 14.096 14.533
Seldar vörur og bjónusta samtals 4.878 5.143 14.876 15.330

Tekjustraumar

Félagið skiptist í sex tekjustrauma sem eru mismunandi í eðli sínu. Tekjustraumarnir eru:

Fjölmiðlun samanstendur af tekjum af starfsemi ljósvakamiðla, áskriftartekjum og tekjum af auglýsingasölu, tekjum af dreifingu á báðum sjónvarpsdreifikerfum félagsins, leigutekjum af myndlyklum og tekjum af leigu einstakra kvikmynda og þátta (TVOD), tekjum af áskriftaveitu félagsins. (SVOD), tekjum af áskriftum af línulegum stöðvum og tekjum af sölu einstakra sjónvarpsviðburða.

Internet samanstendur af tekjum af netbjónustu í fastlínukerfum, þ.m.t. á ljósleiðara, xDSL bjónustu og öðrum gagnatengingum, internetbjónustu, aðgangsgjöldum og leigu á netbeinum.

Farsími samanstendur af öllum tekjum vegna notkunar á farsímum, þ.m.t. gagnaflutningum í farsímakerfinu, áskriftartekjum frá einstaklingum og fyrirtækjum, seldum frelsisinneignum, reikitekjum frá ferðamönnum og samtengitekjum farsíma.

Fastlína samanstendur af tekjum vegna notkunar á heimasíma, fyrirtækjasíma í fastlínu og samtengitekjum af fastlínu.

Vörusala samanstendur af sölu á búnaði og fylgihlutum.

Aðrar tekjur samanstanda af bjónustutekjum, tekjum af hugbúnaði, útseldri vinnu og bjónustu og öðrum tilfallandi tekjum.

Tekjustraumar Fjöl-míðlun Internet Farsími Fastlína Vörusala Aðrar tekjur Samtals
1.1. til 30.09.2019
Tekjur félagsins 6.288 3.629 2.877 687 780 615 14.876
Tekjur samtals 6.288 3.629 2.877 687 780 615 14.876
Tekjustraumar Fjöl-míðlun Internet Farsími Fastlína Vörusala Aðrar tekjur Samtals
--- --- --- --- --- --- --- ---
1.1. til 30.09.2018
Tekjur félagsins 6.518 3.666 2.935 850 796 565 15.330
Tekjur samtals 6.518 3.666 2.935 850 796 565 15.330

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2019

Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu
Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu greinist þannig: 2019 2018 2019 2018
3F 3F* 9M 9M*
Kostnaðarverð seldrar vöru og bjónustu 1.731 1.584 5.195 5.129
Laun og launatengd gjöld 495 480 1.628 1.523
Afskriftir 907 1.049 2.668 2.624
Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu samtals 3.133 3.112 9.491 9.275

*Fjárhæðir vegna 2018 hafa verið endurgerðar vegna breytinga á meðhöndlun sýningarétta, sjá nánar í skýringu 5.

  1. Rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður greinist þannig: 2019 2018 2019 2018
3F 3F 9M 9M
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 299 330 911 1.218
Sölu- og markaðskostnaður 136 142 379 423
Laun og launatengd gjöld 794 822 2.865 2.786
Afskriftir 330 262 995 762
Rekstrarkostnaður samtals 1.559 1.557 5.150 5.188
  1. Afskriftir
2019 2018 2019 2018
Afskriftir í rekstrarreikningi greinast þannig: 3F 3F* 9M 9M*
Afskriftir rekstrarfjármuna 315 291 937 853
Afskriftir óefnislegra eigna 207 205 621 607
Afskriftir afnotarétta 118 - 360 -
Afskriftir sýningarétta 797 814 1.947 1.926
Afskriftir samtals 1.437 1.311 3.865 3.386

*Fjárhæðir vegna 2018 hafa verið endurgerðar vegna breytinga á meðhöndlun sýningarétta, sjá nánar í skýringu 5.

  1. Birgðir
Birgðir greinast þannig: 30.9.2019 31.12.2018*
Vörur til endursölu 346 231
Rekstrarvörubirgðir 69 133
Birgðir samtals 415 364

*Fjárhæðir vegna 2018 hafa verið endurgerðar vegna breytinga á meðhöndlun sýningarétta, sjá nánar í skýringu 5.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

14. Önnur mál

Félagið á í málarekstri við félög og eftirlitsstofnanir á íslenskum fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði. Félagið færir skuldbindingar vegna málarekstur þegar hægt er að meta þær með áreiðanlegum hætti. Vegna óvissu um framtiðarþrón málarekstrar, niðurstöður dómsmála, úrskurði, áfrýjanir og sættir í málum geta niðurstöður mála leitt til viðbótar skuldbindinga og kostnaðar fyrir félagið. Hér á eftir má sjá helstu breytingar í málarekstri frá áramótum 2018.

Sýn hf. gegn Símanum hf. og gagnsök

Félagið stefndi Símanum hf. til greiðslu skaðabóta vegna ólogmæts verðþrýstings og nam stefnufjárhæð í málinu ríflega 900 millj. kr. Síminn hf. gagnstefndi félaginu og nam stefnufjárhæð Símans hf. tæplega 2.500 millj. kr. Héraðsdómur gekk á síðasta ári þar sem stefndi og gagnstefndi voru sýknaðir af kröfum hvors annars. Héraðsdómur taldi að ekki hafi tekist að færa sönnur á tjón. Í því skyni að færa sönnur á tjón félagsins hefur félagið áfrýjað málinu til Landsréttar, með áfrýjunarstefnu útgefinni þann 21. desember 2018. Er þess krafist að allar kröfur félagsins verði teknar til greina. Til vara er þess krafist að dæmdar verði bætur að álitum. Síminn hefur gagnáfrýjað og krefst að nýju tæplega 2.500 millj. kr. úr hendi félagsins.

Aðalmeðferð fór fram í Landsrétti þann 1. nóvember sl. og má vænta dómsniðurstöðu á síðasta ársfjórðungi 2019.

Síminn hf. gegn Póst- og fjarskiptastofnun, Sýn hf., Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. og Mílu ehf., og gagnsök.

Síminn hf. hefur stefnt Póst- og fjarskiptastofnun, félaginu, Gagnaveitu Reykjavíkur ehf. og Mílu ehf., til ógildingar ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 10/2018. Í þeirri ákvörðun var því slegið föstu að Síminn hf. hefði gerst brotlegur við 5. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga og honum gert að greiða 9. millj. kr. í stjórnvaldssekt. Var málið þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 9. október 2018. Félagið gaf út gagnstefnu, sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur 4. desember 2018 og krafðist skaðabóta. Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur þann 15. maí 2019 var gagnkröfu Sýnar hf. vísað frá af réttarfarsástæðum.

Sýn hefur stefnt Símanum á nýjan leik og nemur stefnufjárhæð kr. 1.141. millj. kr., auk dráttarvaxta. Búið er að dómkveðja matsmenn og er beðið niðurstöðu þeirra.

Síminn hf. gegn Sýn hf.

Síminn hf. hefur stefnt félaginu til greiðslu skaðabóta vegna tjóns sem Síminn hf. telur sig hafa orðið vegna meintrar ólogmætrar hagnýtingar félagsins á sjónvarpsefni Símans hf. frá 1. október 2015 til 16. desember 2015. Síminn hf. krafðst skaðabóta að fjárhæð kr. 555. millj. kr. og miskabætur að fjárhæð kr. 10. millj. kr. auk vaxta og dráttarvaxta. Þá var gerð krafa um greiðslu málskostnaðar.

Á þessum tímapunkti getur félagið ekki metið framtiðar skuldbindingar sem leiða af niðurstöðum ofangreindra dómsmála meðal annars vegna þess að það getur tekið langan tíma að fá niðurstöðu í mál, ásamt því að mál geta þróast í ólikar áttir. Vegna þess hefur engin skuldbinding vegna ofangreindra verið færð í árshlutareikning félagsins. Að öðru leyti ætti að lesa önnur mál í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2018.

Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. september 2019
Fjárhæðir eru í milljónum kr.