Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Interim / Quarterly Report 2018

May 16, 2018

2210_rns_2018-05-16_6b77ecdd-f1f9-4f49-a3dc-b21453da2b5c.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sýn hf. Suðurlandsbraut 8 108 Reykjavík Kt. 470905-1740

Sýn hf.

Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar

  1. janúar til 31. mars 2018

Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2018

Efnisyfirlit

Bls.
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra 3
Fjárhagslegar lykiltölur 4
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 5
Efnahagsreikningur 6
Eiginfjáryfirlit 7
Sjóðstreymisyflit 8
Skýringar við samandreginn árshlutareikning 9

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Sýn hf. er alhliða félag á sviði fjarskipta- og fjölmiðlastarfsemi. Félagið rekur marga af öflugustu fjölmiðlum landsins eins og Stöð 2, Bylgjuna, Vísi, FM957, Xið og fleiri landsþekkta miðla. Félagið veitir einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og opinberum aðilum alhliða fjarskiptaþjónustu undir vörumerkjum Vodafone á Íslandi. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims.

Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samandreginn samstæðureikning Sýnar hf. og dótturfélaga þess, P/F Hey í Færeyjum (áður P/F Kall), Ljóslæðarafélagsins ehf., hlutdeild í HT Mobile ehf. og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf. Árshlutareikningur samstæðunnar 1. janúar til 31. mars 2018 hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Félagið keypti rekstrarhluta og tilgreindar eignir 365 miðla hf. og tók við rekstri 1. desember 2017 og gætir áhrifa þess á samanburð fjárhæða á milli ára. Á aðalfundi félagsins í mars var samþykkt að breyta nafni félagsins úr Fjarskipti hf. í Sýn hf. Félagið hlaut viðurkenningu sem „Fyrimyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum“ fjörða árið í röð en það er Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti við Háskóla Íslands sem veitir viðurkenninguna. Undirritaður var samningur um gagnaver en um er að ræða umhverfisvænt hátæknigagnaver í eigu Opinna kerfa hf., Sýnar hf., Reiknistofu bankanna hf. og Korputorgs ehf. Ný og endurbætt útgáfa af Vodafone PLAY appinu var gefin út en nú er hægt að tengja appið við Chromecast og AirPlay. Vodafone og UN Women tóku höndum saman í baráttunni gegn ofbeldi, en Vodafone er stoltur styrktaraðili UN Women á Íslandi og studdi við bakið á FOKK OFBELDI herferð þeirra í annað sinn. Vodafone skrifáði einnig undir samstarfssamning við Knattspyrnusamband Íslands og er þar með orðið einn af bakhjörlum sambandsins.

Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur samstæðunnar af seldum vörum og þjónustu 5.304 millj. kr. (3.141 millj. kr. 1.1 til 31.3.2017). Hagnaður af rekstri samstæðunnar á tímabilinu nam 56 millj. kr. (201 millj. kr. 1.1 til 31.3.2017). Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 25.720 millj. kr. (25.376 millj. kr. 31.12.2017). Eigið fé samstæðunnar þann 31. mars 2018 nam 10.202 millj. kr. (10.131 millj. kr. 31.12.2017). Þar af nam hlutafé 2.964 millj. kr. (2.964 millj. kr. 31.12.2017). Eiginfjárhlutfallið 31. mars 2018 var 39,7% (39,9% 31.12.2017).

Á aðalfundi félagsins þann 22. mars 2018 var samþykkt arðgreiðslustefna fyrir félagið. Stefnt er að því að greiða hluthöfum að og/eða framkvæma endurkaup eigin hluta sem nemur 30-60% af hagnaði eftir skatta í samræmi við gildandi lög og reglur hverju sinni. Við mótun tillagna um arðgreiðslu og/eða kaup á eigin hlutum skal stjórn taka tillit til; markmiða fjárstýringastefnu félagsins, markaðsaðstæðna og fjárfestingarþarfar félagsins.

Yfirlýsing

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu samstæðunnar 31. mars 2018 ásamt rekstrarafkomu hennar og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2018.

Stjórn og forstjóri Sýnar hf. hafa í dag fjallað um samandreginn samstæðuárshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2018 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavik, 16. maí 2018

Í stjórn:

Heiðar Guðjónsson, stjórnarformaður
Anna Guðný Aradóttir
Hjörleifur Pálsson
Tanya Zharov
Yngvi Halldórsson

Forstjóri:

Stefán Sigurðsson

Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2018


Fjárhagslegar lykiltölur

2018 2017 2017 2016
1F 1F 12M 12M
Fjárhagsupplýsingar
Heildartekur 5.304 3.141 14.268 13.655
Rekstrarhagnaður 211 342 1.550 1.632
Hagnaður fyrir tekjuskatt 72 251 1.176 1.280
Hagnaður tímabilsins 56 201 1.086 1.007
Hagnaður á hlut 0,20 0,80 4,10 3,50
Fjárfestingar 506 324 1.664 1.539
Kaup á rekstri og eignum - - 6.193 -
Handbært fé frá rekstri 419 172 2.253 3.028
Frammistöðumat
EBITDA tímabilsins 718 719 3.137 3.040
EBITDA hlutfall 13,5% 22,9% 22,0% 22,3%
Frjálst fjárflæði (FCF)* 87 ( 52 ) 908 1.936
Nettó vaxtaberandi skuldir 11.098 5.480 11.033 5.347
Nettó vaxtaberandi skuldir/EBITDA ** 3,5 1,8 3,5 1,8
  • Frjálst fjárflæði samanstendur af handbæru fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt að frádregnum fjárfestingahreyfingum.
    ** EBITDA síðastliðinna 12 mánaða

Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2018
Allar fjárhæðir eru í milljónum kr.


Rekstrarreikningur

  1. janúar til 31. mars 2018
Skýr. 2018 2017
1F 1F
Seldar vörur og þjónusta 7 5.304 3.141
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu 8 ( 3.197) ( 1.707)
Framlegð 2.107 1.434
Rekstrarkostnaður 9 ( 1.896) ( 1.092)
Rekstrarhagnaður 211 342
Fjármunatekjur 12 11
Fjármagnsgjöld ( 151) ( 102)
Hrein fjármagnsgjöld ( 139) ( 91)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 72 251
Tekjuskattur ( 16) ( 50)
Hagnaður tímabilsins 56 201
Hagnaður á hlut 0,20 0,80
Þynntur hagnaður á hlut 0,20 0,80

Yfirlit um heildarafkomu

  1. janúar til 31. mars 2018
2018 2017
1F 1F
Hagnaður tímabilsins 56 201
Líðir sem gætu síðar verið færðir um rekstrarreikning
Þýðingarmunur vegna starfsemi erlends dötturfélags ( 21) 7
Áhættuvarnir 37 8
Heildarafkoma tímabilsins 72 216

Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2018
Allar fjárhæðir eru í milljónum kr.


Efnahagsreikningur

  1. mars 2018
Skýr. 31.3.2018 31.12.2017
Fastafjármunir
Rekstrarfjármunir 4.922 4.902
Õefnislegar eignir 15.446 15.485
Eignahlutur í hlutdeildar- og öðrum félögum 27 16
Fastafjármunir samtals 20.395 20.403
Veltufjármunir
Birgðir 10 1.911 1.510
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 3.173 3.146
Handbært fé 241 317
Veltufjármunir samtals 5.325 4.973
Eignir samtals 25.720 25.376
Eigið fé
Hlutafé 2.964 2.964
Yfirverðsreikningur hlutafjár 2.465 2.465
Annað eigið fé ( 2) ( 17)
Öráðstafað eigið fé 4.775 4.719
Eigið fé 10.202 10.131
Langtimaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 10.645 10.732
Tekjuskattsskuldbinding 206 193
Langtimaskuldir samtals 10.851 10.925
Skammtímaskuldir
Vaxtaberandi skuldir 694 618
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 3.973 3.702
Skammtímaskuldir samtals 4.667 4.320
Skuldir samtals 15.518 15.245
Eigið fé og skuldir samtals 25.720 25.376

Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2018

Allar fjárhæðir eru í milljónum kr.


Eiginfjáryfirlit

  1. janúar til 31. mars 2018
Hlutafé Yfirverðs-reikningur hlutafjár Annað eigið fé Áhættu-varnir Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
Þýðingar-munur Bundinn reikningur
1.1. til 31.3.2017
Eigið fé 1.1.2017 2.640 678 33 53 ( 84) 3.667 6.987
Hagnaður tímabilsins - - - - - 201 201
Þýðingarmunur dötturfélags - - 7 - - - 7
Áhættuvarnir - - - - 8 - 8
Heildarafkoma tímabilsins - - 7 - 8 201 216
Eigið fé 31.3.2017 2.640 678 40 53 ( 76) 3.868 7.203
1.1. til 31.3.2018
Eigið fé 1.1.2018 2.964 2.465 64 87 ( 169) 4.719 10.131
Hagnaður tímabilsins - - - - - 56 56
Þýðingarmunur dötturfélags - - ( 21) - - - (
Áhættuvarnir - - - - 37 - 37
Heildarafkoma tímabilsins - - ( 21) - 37 56 72
Eigið fé 31.3.2018 2.964 2.465 43 87 ( 132) 4.775 10.202

Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2018

Allar fjárhæðir eru í milljónum kr.


Sjóðstreymisyfirlit

  1. janúar til 31. mars 2018
2018 2017
1F 1F
Hagnaður tímabilsins samkvæmt rekstrarreikningi 56 201
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir 507 377
Hrein fjármagnsgjöld 139 91
Tekjuskattur 16 50
Veltufé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt 718 719
Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Birgðir, breyting ( 401) ( 4)
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, breyting ( 1) ( 432)
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, breyting 274 ( 27)
Fyrirframinnheimtar tekjur, breyting 3 16
Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt 593 272
Innborgaðar vaxtatekjur 12 11
Greidd vaxtagjöld ( 186) ( 111)
Handbært fé frá rekstri 419 172
Fjárfestingarhreyfingar
Eignarhlutur í félögum ( 16) -
Fjárfesting í rekstrarfjármunum ( 351) ( 223)
Fjárfesting í öefnislegum eignum ( 155) ( 101)
Fjárfestingarhreyfingar ( 522) ( 324)
Fjármögnunarhreyfingar
Áhættuvarnir 40 18
Afborganir langtímalána ( 93) ( 104)
Rekstrarlán 79 145
Fjármögnunarhreyfingar 26 59
Breyting á handbæru fé ( 77) ( 93)
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé 1 ( 1)
Handbært fé í byrjun tímabils 317 368
Handbært fé í lok tímabilsins 241 274

Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2018
Allar fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar

1. Félagið

Sýn hf. ("félagið") er íslensk hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta - og fjölmiðlunar. Samandreginn samstæðúárshlutareikningur félagsins fyrir tímabilið 1. janúar - 31. mars 2018 hefur að geyma árslutareikning félagsins og dótturfélaga þess, P/F Hey í Færeyjum (áður P/F Kall), Ljósléiðarafélagsins ehf., hlutdeild í HT Mobile ehf. og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf., sem vísað er til í heild sem „samstæðunnar“.

2. Grundvöllur reikningsskilanna

Árslutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árslutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu. Árslutareikningurinn hefur að geyma samandreginn samstæðureikning Sýnar hf. og dótturfélaga þess, P/F Hey í Færeyjum (áður P/F Kall), Ljósléiðarafélagsins ehf., hlutdeild í HT Mobile ehf. og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf. Árslutareikningur samstæðunnar 1. janúar til 31. mars 2018 hefur hvorki verið endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Árslutareikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilareglum og lágu til grundvallar við gerð ársreikningsins 2017. Hann inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2017. Hægt er að nálgast ársreikning Sýnar hf. á heimasíðu félagsins www.vodafone.is. og á vef Kauphallar Íslands; www.nasdaqomxnordic.com.

Stjórn félagsins staðfesti og heimilaði birtingu árslutareikningsins þann 16. mái 2018.

3. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill

Árslutareikningur samstæðunnar er birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill samstæðunnar. Allar fjárhæðir eru birtur í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

4. Mat stjórnenda í reikningsskilum

Gerð samstæðúárshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og dragi ályktanir sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtur fjárhæðir eigna og skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera frábrugðnar þessu mati.

Tveir nýir reikningsskilastaðlar, IFRS 15 og IFRS 9 tóku gildi í ársbyrjun 2018. IFRS 15 inniheldur nýjar reglur um skráningu tekna og auknar kröfur um upplýsingagjóf varandi tekjuskráninu. Áhrif af upptóku IFRS 15 hafa verið metin og eru áhrif överuleg fyrir samstæðuna. IFRS 9 inniheldur ný viðmið um flokkun og mat fjármálagerninga. Áhrif af upptóku IFRS 9 eru ekki talin hafa veruleg áhrif á samstæðuna.

Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtíðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.

a. Ákvörðun gangvirðis

Hluti af reikningsskilaðferðum og skýringum samstæðunnar krefjast ákvörðunar á gangvirði, bæði vegna fjármálagerninga og annarra eigna og skulda.

Að svo miklu leyti sem hægt er, notar samstæðan markaðsupplýsingar við ákvörðun gangvirðis en liggi slíkar upplýsingar ekki fyrir er byggt á mati stjórnenda. Ef upplýsingar frá þriðja aðila, líkt og verð frá miðlurum eða verðmatsþjónustu, eru notaðar við ákvörðun gangvirðis þá nýta stjórnendur upplýsingarnar til að stýðja þá niðurstöðu að matið uppfylli kröfur um alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS), þar á meðal það stig sem slíkt mat myndi falla undir. Það er mat stjórnenda að bökfærð virði fjármálagerninga endurspegli gangvirði þeir.

Gangvirðið er flokkað í þrjú stig eftir forsendum sem notaðar eru við matið:

  • Stig eitt byggir á skráðu verði á virkum markaði fyrir samskonar eignir og skuldir.
  • Stig tvö byggir á beinum eða óbeinum markaðsforsendum sem eru aðrar en skráð verð á virkum markaði sem flokkast undir stig eitt.
  • Stig þrjú byggir á forsendum og gögnum sem ekki er unnt að afla á markaði.

Samandregin árslutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2018
Allar fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

5. Meðferð vaxtaskiptasamnings

Afleiðusamningar eru gerðir til að stýra áhættu félagsins gagnvart vaxtahættu, þ.e. vaxtaskiptasamningur. Afleiður eru færðar á gangvirði. Almenna reglan er að óinnleystur hagnaður eða tap er fært í rekstrarreikning. Hins vegar þegar afleiða er skilgreind og virk sem áhættuvörn er afkoman færð eftir áhættuvarnarsambandinu sem afleiðan tilheyrir. Félagið hefur skilgreint vaxtaskiptasamningin sem áhættuvörn vegna undirliggjandi skulda. Afleiðusamningar eru flokkaðir á meðal langtímaeigna eða langtímaskulda ef meira en 12 mánuðir eru til lokagjaldaga samningsins og ekki er gert ráð fyrir að hann verði gerður upp innan 12 mánaða. Aðrir afleiðusamningar eru flokkaðir á meðal veltufjármuna eða skammtímaskulda eftir því sem við á.

a. Áhættuvarnareikningsskil

Félagið skilgreindi í fyrsta skipti á þriðja ársfjörðungi 2016 afleiðusamning sem áhættuvarnargerning vegna sjóðstreymisvarnar. Á upphafsdegi áhættuvarnarsambandsins, skjalaði félagið sambandið á milli áhættuvarnargerningsins og áhættuvarða liðarins ásamt markmiðum áhættuvarnarstýringar og stefnu félagsins varðandi áhættuvarnir. Til viðbótar við þetta skjalaði félagið skilvirkni áhættuvarnarsambandsins.

b. Sjóðstreymisvarnir

Skilvirki hluti gangvirðisbreytinga á afleiðum sem standast kröfur um sjóðstreymisvarnir og eru skilgreindar sem slíkar er færður í yfirlit um aðra heildarafkomu með mótfærslu á áættuvarnir á meðal eigin fjár. Hagnaður eða tap vegna óskilvirkni í áhættuvarnarsambandi er færður í rekstrarreikning undir liðnum fjármagnsgjöld. Uppsöfnuð staða á eigin fé sem áður hefur verið færð um aðra heildarafkomu er endurflokkuð um rekstrarreikning þegar hagnaður eða tap vegna áhættuvarða liðarins er færður, uppsafnaða staða á eigin fé er færð í sömu línu rekstrarreiknings.

Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2018
10
Allar fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

6. Starfsþáttayfirlit

Rekstrarstarfsþættir

Starfsþáttaupplysingar eru birtar eftir eðli rekstrar og byggja á skipulagi og innri upplýsingagjöf samstæðunnar.

Samstæðan skiptist í sex starfsþætti sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsþættirnir eru:

Fjölmiðlun samanstendur af tekjum af starfsemi ljósvakamiðla, áskriftartekjum og tekjum af auglýsingasölu, tekjum af dreifingu á báðum sjónvarpsdreifikerfum Vodafone, leigutekjum af myndlyklum og tekjum af leigu einstakra kvikmynda og þátta (TVOD), tekjum af áskriftaveitu Vodafone (SVOD), tekjum af áskriftum að línulegum stöðvum og tekjum af sölu eintaka sjónvarpsviðburða.

Internet samanstendur af tekjum af netþjónustu í fastlínukerfum, þ.m.t. á ljósleiðara, xDSL þjónustu og öðrum gagnatengingum.

Farsimi samanstendur af öllum tekjum vegna notkunar á farsímum, þ.m.t. gagnaflutningum í farsímakerfinu, áskriftartekjum frá einstaklingum og fyrirtækjum, seldum frelsisinneignum, reikitekjum frá ferðamönnum og samtengitekjum í farsíma.

Fastlína samanstendur af tekjum vegna notkunar á heimasíma, fyrirtækjasíma í fastlínu og samtengitekjum í fastlínu.

Vörusala samanstendur af sölu á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum.

Aðrar tekjur samanstanda af þjónustutekjum og leigu á endabúnaði.

Rekstrarstarfsþættir Fjöl-miðlun Internet Farsimi Fastlína Vörusala Aðrar tekjur Jöfnunar-færslur Samtals
1.1. til 31.3.2018
Tekjur frá þriðja aðila 2.199 1.164 1.066 327 305 243 - 5.304
Innri tekjur - - - 4 - 20 ( 24) 0
Tekjur samtals 2.199 1.164 1.066 331 305 263 ( 24) 5.304
Óskipt rekstrargjöld ( 4.586)
--- ---
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 718
Afskriftir ( 507)
Hrein fjármagnsgjöld ( 139)
Tekjuskattur ( 16)
Hagnaður tímabilsins 56
Þýðingarmunur vegna starfsemi erlands dötturfélags ( 21)
Áhættuvarnir 37
Heildarafkoma tímabilsins 72
Óskiptar eignir 31.3.2018 25.720
Óskiptar skuldir 31.3.2018 15.518
Fjárfestingar tímabilsins 1.1.2018 til 31.3.2018 506

Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2018
11
Allar fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

6. Starfsbáttayfirlit, frh.:

Rekstrarstarfsbættir Fjöl-miðlun Internet Farsimi Fastlina Vörusala Aðrar tekjur Jöfnunar-færslur Samtals
1.1. til 31.3.2017
Tekjur frá þriðja aðila 517 876 976 305 282 185 - 3.141
Innri tekjur - 5 - 13 ( 18 ) 0
Tekjur samtals 517 876 976 310 282 198 ( 18 ) 3.141
Óskipt rekstrargjöld ( 2.422)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 719
Afskriftir ( 377)
Hrein fjármagnsgjöld ( 91)
Tekjuskattur ( 50)
Hagnaður tímabilsins 201
Þýðingarmunur vegna starfsemi erlands dötturfélags 7
Áhættuvarnir 8
Heildarafkoma tímabilsins 216
Óskiptar eignir 31.12.2017 25.376
Óskiptar skuldir 31.12.2017 15.245
Fjárfestingar tímabilsins 1.1.2017 til 31.3.2017 324

Tekjur samstæðunnar greinast þannig eftir landsvæðum:

1.1. til 31.3.2018 Ísland Færeyjar Samtals
Tekjur frá þriðja aðila á tímabilinu 5.006 298 5.304
EBITDA á tímabilinu 677 41 718
Eignir starfsbátta í lok tímabilsins 24.857 863 25.720
Fjárfestingar tímabilsins 467 39 506

1.1. til 31.3.2017

Tekjur frá þriðja aðila á tímabilinu 2.841 300 3.141
EBITDA á tímabilinu 693 26 719
Eignir starfsbátta 31.12.2017 24.460 916 25.376
Fjárfestingar tímabilsins 310 14 324

Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2018
Allar fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

  1. Seldar vörur og þjónusta
Seldar vörur og þjónusta greinast þannig: 2018 2017
1F 1F
Vörusala 305 282
Seld þjónusta 4.999 2.859
Seldar vörur og þjónusta samtals 5.304 3.141
  1. Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu greinist þannig: 2018 2017
1F 1F
Kostnaðarverð seldrar vöru og þjónustu 2.431 1.276
Laun og launatengd gjöld 506 180
Afskriftir 260 251
Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu samtals 3.197 1.707
  1. Rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður greinist þannig: 2018 2017
1F 1F
Skrifstofu- og stjörnunarkostnaður 442 255
Sölu- og markaðskostnaður 141 84
Laun og launatengd gjöld 1.066 627
Afskriftir 247 126
Rekstrarkostnaður samtals 1.896 1.092
  1. Birgðir
Birgðir greinast þannig: 31.3.2018 31.12.2017
Fjarskiptabúnaður til endursölu 239 197
Õuppsettur sendabúnaður (rekstrarvörubirgðir) 93 14
Dagskrárbirgðir 1.579 1.299
Birgðir samtals 1.911 1.510

Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2018
Allar fjárhæðir eru í milljónum kr.


Skýringar, frh.:

11. Önnur mál

Sýn hf. („félagið“) á í málarekstri við einstaklinga, önnur félög og eftirlitsstofnanir á íslenskum fjarskiptamarkaði. Félagið færir skuldbindingar og/eða kröfur vegna málareksturs þegar hægt er að meta framtíðar greiðslur og ávinning með áreiðanlegum hætti. Vegna óvissu um framtíðarþrún málarekstrar, niðurstöður dómsmála, úrskurði, áfrýjanir og sættir í málum geta niðurstöður mála leitt til viðbótar skuldbindinga og kostnaðar fyrir félagið.

Sýn hf. gegn Símanum hf.

Félagið hefur stefnt Símanum hf. vegna ólögmæts verðþrýstings og nemur stefnufjárhæð í málinu ríflega 900 milljónum króna. Síminn hf. gagnstefndi félaginu og nemur stefnufjárhæð Símans hf. tæplega 2.500. millj. kr. Dómkvaddir matsmenn hafa skilað matsgerðum. Málið er nú til meðferðar hjá EFTA dómstólnum þar sem óskað var ráðgefandi álits á tilteknum þáttum þess.

Síminn gegn Póst- og fjarskiptastofnun, Sýn hf. og NOVA ehf.

Síminn hf. stefndi Póst- og fjarskiptastofnun, Sýn hf. og Nova ehf. til ógildingar á ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 14/2014. Fól ákvörðunin í sér að Sýn hf. og Nova ehf. er heimilt að samnýta tíðniheimildar sínar í nýju rekstarfélagi. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur 11. desember 2014. Síminn óskað eftir matsgerð sem lögð var fram 30. janúar 2018. Liggur ekki fyrir hvenær aðalmeðferð málsins fer fram.

Önnur mál

Að síðustu má geta þess að félagið á í margháttar ágreiningi við Símann hf. fyrir stjórnvöldum og dómstólum vegna sjónvarpsmála. Í annan stað fékk Síminn lagt á lögbann við því að félagið taki upp og miðli sjónvarpsefni Skjás eins (nú Sjónvarp Símans) með línulegum og ólínulegum hætti. Hefur Hérðasdómur Reykjavíkur staðfest lögbannið og Sýn hf. áfrýjað þeim dómi til Hæstaréttar. Aðalmeðferð hefur ekki verið ákveðin.

Þá hefur Póst- og fjarskiptastofnun tekið stjórnvaldsákvörðun þess efnis að bann fjölmiðlalaga við því að fjölmiðlaveitur beini viðskiptum að eigin fjarskiptanetum taki jafn til línulegs og ólínulegs efnis. Hefur sú formákvörðun verið staðfest af úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála. Síminn hf. höfðaði mál til ógildingar á þeim úrskurði en héraðsdómur hefur nú vísað því máli frá. Póst- og fjarskiptastofnun hefur boðað að ákvörðunar sé að vænta innan skamms í efnisþætti stjórnsýslumálsins.

Á þessum tímapunkti getur félagið ekki metið framtíðar skuldbindingar eða kröfur sem leiða af niðurstöðum ofangreinds málareksturs meðal annars vegna þess að það getur tekið langan tíma að fá niðurstöður í mál ásamt því að mál geta tekið breytingum og þróast í ólíkar áttir. Vegna þessa hefur engin skuldbinding né krafa verið færð í árshlutareikning félagsins umfram það sem að ofan greinir.

Samandregin árshlutareikningur Sýnar hf. 31. mars 2018
14
Allar fjárhæðir eru í milljónum kr.