Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Interim / Quarterly Report 2018

May 16, 2018

2210_rns_2018-05-16_da852dc2-8ea2-42dd-b46d-f53d57ea7730.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

  1. mai 2018

Fréttatilkynning vegna afkomu Sýnar hf. á fyrsta ársfjórðungi 2018:

69% hækkun tekna en samlegðar ekki tekið að gæta

Árshlutareikningur Sýnar hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2018 var sambykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 16. mai 2018.

Á aðalfundi félagsins í mars var sambykkt að nafnabreyta félaginu úr Fjarskipti hf. í Sýn hf. Í desember 2017 keypti félagið tilteknar eignir og rekstur 365 miðla hf. og gætir áhrifa af því á samanburð fjárhæða á milli ára. Einskiptisliðir í tengslum við kaupin höfðu áhrif á afkomu fjórðungsins og er leiðrétt afkoma sýnd hér fyrir neðan. Einskiptisliðirnir eru samsettir úr fjölmörgum mismunandi liðum í tengslum við kaupin.

  • Tekjur á fyrsta ársfjórðungi 2018 námu 5.304 m.kr. sem er hækkun um 69% á milli ára.
  • EBITDA hagnaður nam 718 m.kr. á ársfjórðungnum og stendur í stað á milli ára. Leiðréttur EBITDA hagnaður sbr. ofangreint nam 833 m.kr. sem er 11% hækkun milli ára.
  • Hagnaður tímabilsins nam 56 m.kr. sem er 72% lækkun á milli ára. Leiðréttur hagnaður tímabilsins nam 150 m.kr. sem er 33% lækkun frá sama tímabili á fyrra ári.
  • Hagnaður á hlut var 0,20.
  • Fjárfestingahreyfingar samstæðunnar námu 522 m.kr. sem er 61% hækkun á milli ára.
  • EBITDA horfur fyrir árið 2018 eru áætlaðar á bilinu 4.000-4.400 m.kr. af reglulegri starfsemi. Áætlað fjárfestingarhlutfall stendur óbreytt í 8-10% af tekjum.

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


A

Tafla 1: Lykiltoluyfirlit 1F leiðrétt fyrir einskiptisliðum 2018 og 2017:

Leiðrétt fyrir einskiptisliðum
1F 2018 1F 2017 Breyt. % breyt. 1F '18 lr. 1F '17 lr. Breyt. % breyt.
Seldar vörur og þjónusta 5.304 3.141 2.163 69% 5.336 3.141 2.195 70%
Kostnaðarverð 3.197 1.707 1.490 87% 3.183 1.707 1.476 86%
Framlegð 2.107 1.434 673 47% 2.153 1.434 719 50%
Rekstrarkostnaður 1.896 1.092 804 74% 1.827 1.064 763 72%
EBITDA 718 719 -1 0% 833 747 85 11%
EBIT 211 342 -131 -38% 326 370 -45 -12%
Hrein fjármagnsgjöld 139 91 48 53% 139 91 48 53%
Hagnaður tímabilsins 56 201 -145 -72% 150 223 -74 -33%
Framlegð (%) 39,7% 45,7% 40,4% 45,7%
EBITDA % 13,5% 22,9% 15,6% 23,8%
EBIT % 4,0% 10,9% 6,1% 11,8%

Stefán Sigurðsson, forstjóri:

„Það er ánægjulegt að sjá fyrsta fjörðung sameinaðs fyrirtækis skila tekjuaukningu upp á 69% sem er umfram væntingar. Fyrsta skref samrunans hefur verið að tryggja yfirfærslu viðskiptavina og tekna félagsins sem hefur tekist vel hingað til, þrátt fyrir mikið álag í tengslum við samþættingu. Kostnaður fjörðungsins er hár enda samlegðar ekki tekið að gæta í neinum mæli, auk þess sem samrunakostnaður er talsverður í fjörðungnum, sem og afskriftir og skuldsetning hækka með stærri efnahag. Verkefni ársins er að lækka kostnað sameinaðs félags en samlegð mun skila sér af sífellt meiri krafti eftir því sem líður á árið. Stendur félagið við þær áætanir að 1.000-1.100 milljónir í samlegð verði náð fram innan 18 mánuða, það er um 60% af heildaraukningu EBITDA við kaupin. Áfram er einnig gert ráð fyrir að sameinað félag skili meira en 5 ma.kr. EBITDA árið 2020.

Sameinað fyrirtæki undir merkjum Sýnar er mjög alhliða og sterkt í fjarskiptum og fjölmiðlun. Fyrirtækið er til dæmis annað stærst samkvæmt nýrri skýrslu PFS þegar kemur að markaðshlutdeild á farsímamarkaði (32,8%), gagnatengingum (37,1%) og gagnvirku sjónvarpi IPTV (47,4%) við lok ársins 2017.

Fyrstu mánuðir samrunans fara vel af stað og hann á að geta verið mjög jákvæður gagnvart öllum haghöfum. Auk þess að geta skilað meira en 5 ma.kr. í EBITDA árið 2020, munu starfsmenn á árinu vera sameinaðir á einn stað í nýjum og glæsilegum höfuðstöðvum að Suðurlandsbraut 8-10 og gagnvart neytendum lækkaði verð á völdum sjónvarpspökum og aðrir stækkuðu. Þessar breytingar hafa verið hluti af áætlunum í tengslum við kaupin frá upphafi og þar af leiðandi inn í horfum sameinaðs félags. Með þessari aðgerð er ætlunin að sækja fram og gefa enn fleirum kost á að gerast áskrifendur að hágæða íslensku og erlendu sjónvarpsefni og íþróttum.“ segir Stefán Sigurðsson forstjóri Sýnar.

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


Mynd 1: EBITDA hagnaður eftir fjórðungum frá árinu 2014 :

img-0.jpeg

Mynd 2: EBITDA hagnaður eftir fjórðungum frá árinu 2014 – leiðrétt fyrir einskiptisliðum 2016 – 2018:

img-1.jpeg

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


A

Rekstrarafkoma á 1. ársfjórðungi 2018:

Tekjur samstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi 2018 námu 5.304 m.kr. sem er hækkun um 69% frá sama tímabili í fyrra. Tekjur fjórðungsins samanstanda af nýrri sameinaðri starfsemi eftir kaupin á tilteknum eignum og rekstri 365 Miðla hf. og hefur því áhrif á samanburð á milli tímabila. Tekjur af fjölmiðlun námu 2.199 m.kr. á fyrsta fjórðungi og eykst um 325% á milli ára, hækkunin stafar að mestu leyti af keyptri starfsemi og er fjölmiðlun nú orðinn tekjuhæsti starfsbáttur félagsins. Tekjur af interneti námu 1.164 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi, sem er hækkun um 290 m.kr. milli ára eða 33%. Þar af eru um 160 m.kr. hækkun vegna rukkunar á aðgangsgjöldum Gagnaveitu Reykjavíkur. Tekjur af farsíma námu 1.066 m.kr. og jukust um 9% á milli ára. Enn gætir áhrifa af „roam like at home“ reglugerðinni á farsímatekjur af Íslendingum erlendis, en reglugerðin tók gildi 15. júní 2018. Tekjur af vörusölu námu 305 m.kr. á tímabilinu sem er 8% hækkun miðað við sama ársfjórðung 2017, tekjur af fastlínu námu 327 m.kr. á fjórðungnum og jukust um 7% á milli tímabila, aðrar tekjur námu 243 m.kr. á ársfjórðungnum og jukust um 31% milli ára.

Kostnaðarverð nam 3.197 m.kr. og jókst um 87% á milli ára, einkum vegna áhrifa af efnis- og fjarskiptakostnaði nýrrar starfsemi, en rekstrarkostnaður nam 1.896 m.kr. Samlegðar er ekki tekið að gæta á fjórðungnum og er samlegðarkostnaður nokkur. Gert er ráð fyrir að áhrifum af samlegð fari að gæta á öðrum fjórðungi en svo af krafti á þriðja og fjórða fjórðungi. Full samlegð sameinaðs fyrirtækis ætti að koma fram fyrri hluta árs 2019. EBITDA hagnaður tímabilsins nam 718 m.kr. og stendur þannig í stað miðað við sama fjórðung árið 2017. EBITDA hlutfall var 13,5% og EBIT hlutfall 4,0%. Ef tekið er tillit til einskiptiskostnaðar hefði EBITDA numið 833 m.kr., EBITDA hlutfall tímabilsins 15,6% og EBIT hlutfall 6,1%.

Hrein fjármagnsgjöld námu 139 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi sem er hækkun um 53% á milli ára. Aukningin liggur fyrst og fremst í hærri vaxtagjöldum vegna fjármögnunar á kaupum á tilteknum eignum og rekstri 365 miðla hf.

Hagnaður fyrir tekjuskatt á fyrsta ársfjórðungi 2018 nam 72 m.kr. sem er 179 m.kr. lækkun frá sama tímabili 2017. Hagnaður ársfjórðungsins eftir skatta nam 56 m.kr., leiðrétt fyrir einskiptisliðum er hagnaður fjórðungsins eftir skatta 150 m.kr.

Sjóðstreymi 1. ársfjórðungs 2018:

Handbært fé frá rekstri á fyrsta fjórðungi ársins 2018 nam 419 m.kr. Fjárfestingarhreyfingar námu 522 m.kr. sem er hækkun um 61% á milli tímabila.

Fjármögnunarhreyfingar félagsins námu 26 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2018. Afborganir af langtímalánum námu 93 m.kr. Handbært fé í lok fyrsta ársfjórðungs nam 241 m.kr.

img-2.jpeg
Sjóðstreymi á 1F – Breytingar á tímabilinu

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is

Efnahagur 31. mars 2018:

Eigið fé í lok tímabilsins var 10.202 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 39,7%. Útistandandi hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 m.kr.

Heildarskuldir samstæðunnar voru 15.518 m.kr. Hreinar vaxtaberandi skuldir námu 11.098 m.kr. og var hlutfall þeirra á móti EBITDA hagnaði sl. 12 mánaða 3,5. Veltufjárhlutfall var jafnframt 1,1.

Horfur fyrir afkomu á næstu misserum:

Gert er ráð fyrir að EBITDA ársins af reglulegri starfsemi verði 4.000 – 4.400 m.kr. Samlegð mun taka að gæta í meira mæli á síðari hluta árs 2018 og komi sterkar fram árið 2019 þar sem búist er við EBITDA á bilinu 4.600 – 5.000 m.kr. og komi að fullu fram 2020 þar sem búist er við að EBITDA nemi yfir 5.000 m.kr.

Fjárfestingarhlutfall er áætlað 8-10% á árinu og er ástæðan fyrir bilinu fjárfestingar vegna samþættingar, samanber flutninga á starfsemi á einn stað, samþættingu tölvukerfa o.s.frv. Gert er ráð fyrir að fjárfestingarhlutfall geti lækkað í um 8% fyrir núverandi rekstur þegar samþætting hefur átt sér að fullu stað.

Helstu tíðindi og mikilvæ gir áfangar á tímabilinu:

  • Í byrjun maí stækkuðu valdir sjónvarpspakkar Stöðvar 2 og verð á öðrum lækkaði. Stök áskrift að Stöð 2 Sport er nú í boði á 9.990 kr. og Sportpakkinn á 11.990 kr. Áður var einungis hægt að fá aðgengi að íþróttaefni Stöðvar 2 í gegnum Sportpakkann á 14.990 kr. Streymisveitan Stöð 2 Marabon stækkaði og verð lækkaði í 1.990 kr. úr 2.990 kr. sem er orðið samkeppnishæft við erlendar streymisveitur. Skemmtipakkinn stækkaði með miklu magni af ólínulegu efni fyrir alla fjölskylduna án þess að verð breyttist. Einnig lækkaði stök áskrift að Stöð 2 í 6.990 kr. í stað 8.990 kr. áður. Fimm mánuðum eftir sameiningu Vodafone og miðla 365 njóta því neytendur og viðskiptavinir fyrirtækjanna ávaxta samrunans með skýrum hætti. Með þessu hyggst fyrirtækið gefa enn fleirum kost á að gerast áskrifendur að hágæða íslensku og erlendu sjónvarpsefni og íþróttum.

  • Vodafone (Sýn) er hástökkvari íslenskra fjarskiptafyrirtækja hvort sem kemur að fjölda á farsímamarkaði, vexti í gagnamagni, gagnatengingum og gagnvirku sjónvarpi (IPTV) á árinu 2017, samkvæmt riti Póst- og fjarskiptastofnunar, Tólfræði um íslenskra fjarskiptamarkaðinn 2017. Á árinu 2017 var vöxturinn allt frá 16% til 128%. Þetta er fyrsta skýrsla PFS sem kemur út eftir sameiningu Vodafone og 365 þann 1. desember síðastliðinn. Sérstaka athygli vakti að fjöldi farsímaáskrifta jókst úr 129.028 í 151.359 eða um rúmlega 17%. Markaðshlutdeild Vodafone (Sýnar) er nú 32,8%.

  • Vodafone og Startup Iceland héldu Stökkpallurinn viðskiptapróunarkeppni í þriðja skiptið en keppnin hefur það markmið að leggja áherslu á að styðja frumkvöðla í að þróa vörur og koma þeim á markað. Samstarfið er liður í stuðningi Vodafone sem bakhjarls Startup Iceland og endurspeglar áherslu félagsins á nýsköpun og


h

samfélagsábyrgð. Þetta árið miðast viðskiptapróunarkeppni Vodafone, Stökkpallurinn, að snjöllum lausnum „IoT smart city“ en markmiðið er að styðja við bæjarfélög og fyrirtæki sem vilja verða snjallari.

  • Félagið náði samningum við fasteignafélögin EIK og Reiti um framtíðarhúsnæði sameinaðrar starfsemi. Í dag er Sýn með allt húsnæðið að Suðurlandsbraut 8 til afnota og bætti með samningnum við sig rými í hluta hússins að Suðurlandsbraut 10. Um er að ræða hluta annarrar hæðar og þriðju hæð að Suðurlandsbraut 10 og samliggjandi bakhús við Suðurlandsbraut 10 sem tilheyrir Ármúla, nánar tiltekíð bakhús á lóð Hótels Íslands. Þar með verður hægt að sameina alla starfsemi á sama stað á árinu, þar með talin mynd- og hljóðver.
  • Sambykkt var á aðalfundi Fjarskipta hf. sem fram fór í höfuðstöðvum félagsins að Suðurlandsbraut 8 þann 22. mars sl. að nafnabreyta félaginu og er Sýn nýtt heiti á sameinuðu félagi Vodafone og sameinaðrar fjölmiðlastarfsemi sem innifelur meðal annars Stöð 2, Stöð2 Sport, Vísi, Bylgjuna, FM957 og Xíð 977. Aðalástæðan fyrir nafnabreytingunni var sú að starfsemi félagsins hefur breikkað og því þótti gamla nafnið ekki nógu lýsandi fyrir sameinað félag. Sýn verður þannig regnhlífavörumerki yfir 20 núverandi vörumerkja og framtíðar vörumerkja. Nafni félagsins hefur verið breytt í Kauphöll og kerfum Verðbréfamiðstöðvar Íslands úr VOICE í SYN.

Kynningarfundur 17. maí 2018:

  • Opinn kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn fimmtudaginn 17. maí 2018. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Sýnar hf., að Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík. Fundurinn hefst kl. 8:30 en boðið verður upp á morgunhressingu frá kl. 8:00.
  • Kynningarfni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á síðu fjárfestatengsla Vodafone á www.vodafone.is/vodafone/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
  • Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni https://vodafone.is/vodafone/fjarfestatengsl/uppgjorskynning/

Fjárhagsdagatal 2018:

✓ Uppgjör 2F 2018 29. ágúst 2018
✓ Uppgjör 3F 2018 7. nóvember 2018
✓ Uppgjör 4F og ársuppgjör 2018 27. febrúar 2019
✓ Aðalfundur 2019 21. mars 2019

Frekari upplýsingar:

✓ Guðfinnur Sigurvinsson, samskiptastjóri Sýnar, tekur á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjá[email protected] eða í síma 669-9330.

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is