AI assistant
Syn — Interim / Quarterly Report 2018
Aug 29, 2018
2210_rns_2018-08-29_5794f27b-9e7f-4a38-8865-a79ae8e48a6e.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer
Sýn hf.
Samandreginn árshlutareikningur
samstæðunnar
- janúar til 30. júní 2018
Efnisyfirlit
BIs.
| Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra | 3 |
|---|---|
| Fjárhagslegar lykiltölur | 4 |
| Könnunaráritun óháðra endurskoðenda | 5 |
| Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu | 6 |
| Efnahagsreikningur | 7 |
| Eiginfjáryfirlit | 8 |
| Sjóðstreymisyflit | 9 |
| Skýringar við samandreginn árshlutareikning | 10 |
| Ársfjörðungsyflit | 16 |
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2018
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Sýn hf. er alhliða félag á sviði fjarskipta- og fjölmiðlastarfsemi. Félagið rekur marga af öflugustu fjölmiðlum landsins eins og Stöð 2, Bylgjuna, Vísi, FM957, Xið og fleiri landsþekkta miðla. Félagið veitir einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og opinberum aðilum alhliða fjarskiptabjónustu undir vörumerkjum Vodafone á Íslandi. Félagið á í fjölþættu alþjóðlegu samstarfi við Vodafone Group sem er eitt stærsta og útbreiddasta fjarskiptafyrirtæki heims.
Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastáðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samandreginn samstæðureikning Sýnar hf. og dótturfélaga þess, P/F Hey í Færeyjum (áður P/F Kall), Ljósleiðarafélagsins ehf. og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf. Árshlutareikningur samstæðunnar 1. janúar til 30. júní 2018 er kannaður af endurskoðendum félagsins.
Félagið keypti rekstrarhluta og tilgreindar eignir 365 miðla hf. og tók við rekstri 1. desember 2017 og gætir áhrifa þess á samanburð fjárhæða á milli ára. Annar fjörðungur var stór samþættingafjörðungur þar sem mikilvægum áföngum var náð til dæmis tilfærsla allra farsimaviðskiptavina 365 á kerfi Sýnar, sameining þjónustukerfa og flutning útvarps og dagskrárgerðar úr Skaftahlíð. Rekstrarkostnaður á öðrum fjörðungi er hár ekki einungis vegna einskiptisliða heldur einnig vegna meiri kostnaðar í tengslum við samrunaverkefni en gert var ráð fyrir í áætlunum sem tengist meðal annars, tvöföldum kerfum í rekstri, tvöfaldri húsalegum, mikillar yfirvinnu, auk takmarkaðs möguleika fyrirtækisins að bregðast við háum almennum launahækkunum í miðju samrunaferli.
Rekstur og fjárhagsleg staða 1. janúar til 30. júní 2018
Samkvæmt rekstrarreikningi námu tekjur samstæðunnar af seldum vörum og þjónustu 10.748 millj. kr. (6.527 millj. kr. 1.1 til 30.6.2017). Hagnaður af rekstri samstæðunnar á tímabilinu nam 52 millj. kr. (440 millj. kr. 1.1 til 30.6.2017). Samkvæmt efnahagsreikningi námu eignir samstæðunnar 26.565 millj. kr. (25.376 millj. kr. 31.12.2017). Eigið fé samstæðunnar þann 30. júní 2018 nam 10.204 millj. kr. (10.131 millj. kr. 31.12.2017). Þar af nam hlutafé 2.964 millj. kr. (2.964 millj. kr. 31.12.2017). Eiginfjárhlutfallið 30. júní 2018 var 38,4% (39,9% 31.12.2017).
Á aðalfundi félagsins þann 22. mars 2018 var samþykkt arðgreiðslustefna fyrir félagið. Stefnt er að því að greiða hluthöfum arð og/eða framkvæma endurkaup eigin hluta sem nemur 30-60% af hagnaði eftir skatta í samræmi við gildandi lög og reglur hverju sinni. Við mótun tillagna um arðgreiðslu og/eða kaup á eigin hlutum skal stjórn taka tillit til; markmiða fjárstýringastefnu félagsins, markaðsastæðna og fjárfestingarþarfar félagsins.
Yfirlýsing
Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastáðal um árshlutareikninga IAS 34 eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu samstæðunnar 30. júní 2018 ásamt rekstrarafkomu hennar og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2018.
Stjórn og forstjóri Sýnar hf. hafa í dag fjallað um samandreginn samstæðuárshlutareikning félagsins fyrir tímabilín 1. janúar til 30. júní 2018 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Reykjavik, 29. ágúst 2018
Í Stjórn
Heiðar Guðjónsson
Anna Guðný Aradóttir
Hildur Dungal
Hjörleifur Pálsson
Yngvi Halldórsson
Forstjóri
Stefán Sigurðsson
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2018
Fjárhagslegar lykiltölur
| | 2018
2F | 2017
2F | 2018
6M | 2017
6M |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Fjárhagsupplýsingar | | | | |
| Heildartekur | 5.444 | 3.386 | 10.748 | 6.527 |
| Rekstrarhagnaður | 194 | 376 | 405 | 718 |
| Hagnaður (tap) fyrir tekjuskatt | ( 4) | 298 | 68 | 549 |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | ( 4) | 239 | 52 | 440 |
| Hagnaður (tap) á hlut | ( 0,01) | 0,90 | 0,19 | 1,70 |
| Fjárfestingar | 839 | 536 | 1.345 | 861 |
| Handbært fé frá rekstri | 365 | 513 | 779 | 705 |
| Frammistöðumat | | | | |
| EBITDA tímabilsins | 718 | 761 | 1.436 | 1.480 |
| EBITDA hlutfall | 13,2% | 22,5% | 13,4% | 22,7% |
| Frjálst fjárflæði (FCF)** | ( 320) | 56 | ( 248) | 22 |
| Nettó vaxtaberandi skuldir | 11.585 | 5.505 | 11.585 | 5.505 |
| Nettó vaxtaberandi skuldir/EBITDA *** | 3,7 | 1,8 | 3,7 | 1,8 |
- Ársfjörðungslegar upplýsingar hafa ekki verið kannaðar af endurskoðendum
** Frjálst fjárflæði samanstendur af handbæru fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt að frádregnum fjárfestingahreyfingum
*** EBITDA síðastliðinna 12 mánaða
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2018
Könnunaráritun óháðra endurskoðenda
Til stjórnar og hluthafa Sýnar hf.
Við höfum kannað meðfylgjandi árshlutareikning Sýnar hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2018. Árshlutareikningurinn hefur að geyma, rekstrarreikning, yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaðferðir og aðrar skýringar.
Ábyrgð stjórnar og forstjóra á árshlutareikningnum
Stjórn og forstjóri eru ábyrgir fyrir gerð og framsetningu árshlutareikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðbótar kröfur í lögum um ársreikninga.
Ábyrgð endurskoðenda
Ábyrgð okkar felst í ályktun okkar um árshlutareikninginn sem byggir á könnuninni.
Umfang könnunar
Könnun okkar var unnin í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRE 2410, sem fjallar um könnun óháðs endurskoðanda á árshlutareikningum. Slik könnun felur í sér fyrirspurnir, einkum til starfsmanna sem eru ábyrgir fyrir fjármálum og reikningsskilum félagsins ásamt greiningum á hinum ýmsu liðum reikningsskilanna og öðrum könnunaraðgerðum. Könnun felur ekki í sér jafn viðtækar aðgerðir og endurskoðun sem unnin er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og er því ekki víst að við fáum vitneskju um öll mikilvæg atriði sem gætu komið í ljós við endurskoðun. Þar af leiðandi látum við álit um endurskoðun ekki í ljós.
Ályktun
Við könnun okkar kom ekkert fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á tímabilinu, efnahag þess 30. júní 2018 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðbótar kröfur í lögum um ársreikninga.
Kópavogur 29. ágúst 2018
Deloitte ehf.
Björn Ingi Victorsson
endurskoðandi
Jóhann Óskar Haraldsson
endurskoðandi
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2018
Rekstrarreikningur
- januar til 30. juni 2018
| | Skýr. | 2018
2F | 2017
2F | 2018
6M | 2017
6M |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Seldar vörur og þjónusta | 7 | 5.444 | 3.386 | 10.748 | 6.527 |
| Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu | 8 | (3.364) | (1.865) | (6.561) | (3.572) |
| Framlegð | | 2.080 | 1.521 | 4.187 | 2.955 |
| Rekstrarkostnaður | 9 | (1.886) | (1.145) | (3.782) | (2.237) |
| Rekstrarhagnaður | | 194 | 376 | 405 | 718 |
| Fjármunatekjur | | 18 | 18 | 30 | 29 |
| Fjármagnsgjöld | | (216) | (96) | (367) | (198) |
| Hrein fjármagnsgjöld | | (198) | (78) | (337) | (169) |
| Hagnaður (tap) fyrir tekjuskatt | | (4) | 298 | 68 | 549 |
| Tekjuskattur | | (0) | (59) | (16) | (109) |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | | (4) | 239 | 52 | 440 |
| Hagnaður (tap) á hlut | | (0,01) | 0,90 | 0,19 | 1,70 |
| Þynntur hagnaður (tap) á hlut | | (0,01) | 0,90 | 0,19 | 1,70 |
Yfirlit um heildarafkomu
- januar til 30. júní 2018
| | Skýr. | 2018
2F | 2017
2F | 2018
6M | 2017
6M |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | | (4) | 239 | 52 | 440 |
| Líðir sem gætu síðar verið færðir um rekstrarreikning | | | | | |
| Þýðingarmunur vegna starfsemi erlands dótturfélags | | 13 | (15) | (8) | (7) |
| Áhættuvarnir | | (8) | (32) | 29 | (25) |
| Heildarafkoma tímabilsins | | 1 | 192 | 73 | 408 |
- Ársfjörðungslegar upplýsingar hafa ekki verið kannaðar af endurskoðendum
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2018
Efnahagsreikningur
- júní 2018
| Skýr. | 30.6.2018 | 31.12.2017 | |
|---|---|---|---|
| Fastafjármunir | |||
| Rekstrarfjármunir | 5.098 | 4.902 | |
| Óefnislegar eignir | 15.631 | 15.485 | |
| Eignahlutur í hlutdeildar- og öðrum félögum | 30 | 16 | |
| Fastafjármunir samtals | 20.759 | 20.403 | |
| Veltufjármunir | |||
| Birgðir | 10 | 1.928 | 1.510 |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur | 3.560 | 3.146 | |
| Handbært fé | 317 | 317 | |
| Veltufjármunir samtals | 5.805 | 4.973 | |
| Eignir samtals | 26.565 | 25.376 | |
| Eigið fé | |||
| Hlutafé | 2.964 | 2.964 | |
| Yfirverðsreikningur hlutafjár | 2.465 | 2.465 | |
| Annað eigið fé | 4 | (17) | |
| Óráðstafað eigið fé | 4.770 | 4.719 | |
| Eigið fé | 10.204 | 10.131 | |
| Langtímaskuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 11.155 | 10.732 | |
| Tekjuskattsskuldbinding | 207 | 193 | |
| Langtímaskuldir samtals | 11.362 | 10.925 | |
| Skammtima skuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 747 | 618 | |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir | 4.252 | 3.702 | |
| Skammtímaskuldir samtals | 4.999 | 4.320 | |
| Skuldir samtals | 16.361 | 15.245 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 26.565 | 25.376 |
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2018
Eiginfjáryfirlit
- janúar til 30. júní 2018
| Hlutafé | Yfirverös-reikningur hlutafjár | Þýðingar-munur | Annað eigið fé | ||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Bundinn reikningur | Áhættu-varnir | Óráðstafað eigið fé | Eigið fé samtals | ||||
| 1.1. til 30.06.2017 | |||||||
| Eigið fé 1.1.2017 | 2.640 | 678 | 33 | 53 | (84) | 3.667 | 6.987 |
| Hagnaður tímabilsins | - | - | - | - | - | 440 | 440 |
| Þýðingarmunur dótturf. | - | - | (7) | - | - | - | (7) |
| Áhættuvarnir | - | - | - | - | (25) | - | (25) |
| Heildarafkoma tímabilsins | 0 | 0 | (7) | 0 | (25) | 440 | 408 |
| Eigið fé 30.6.2017 | 2.640 | 678 | 26 | 53 | (109) | 4.107 | 7.395 |
| 1.1. til 30.6.2018 | |||||||
| Eigið fé 1.1.2018 | 2.964 | 2.465 | 64 | 87 | (169) | 4.719 | 10.131 |
| Hagnaður tímabilsins | - | - | - | - | - | 52 | 52 |
| Þýðingarmunur dótturf. | - | - | (8) | - | - | - | (8) |
| Áhættuvarnir | - | - | - | - | 29 | - | 29 |
| Heildarafkoma tímabilsins | 0 | 0 | (8) | 0 | 29 | 52 | 73 |
| Eigið fé 30.06.2018 | 2.964 | 2.465 | 56 | 87 | (140) | 4.770 | 10.204 |
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2018
Sjóõstreymisyfirlit
- janúar til 30. júní 2018
| | 2018
2F | 2017
2F | 2018
6M | 2017
6M |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Hagnaður (tap) tímabilisins samkvæmt rekstrarreikningi | ( 4) | 239 | 52 | 440 |
| Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: | | | | |
| Afskriftir | 524 | 385 | 1.031 | 762 |
| Hrein fjármagnsgjöld | 198 | 78 | 337 | 169 |
| Tekjuskattur | 0 | 59 | 16 | 109 |
| Veltufé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | 719 | 761 | 1.437 | 1.480 |
| Breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum: | | | | |
| Birgðir, breyting | ( 17) | ( 63) | ( 418) | ( 66) |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, breyting | ( 450) | ( 78) | ( 451) | ( 490) |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, breyting | 163 | ( 55) | 433 | ( 84) |
| Fyrirframinnheimtar tekjur, breyting | 119 | 27 | 122 | 43 |
| Handbært fé frá rekstri fyrir vexti og tekjuskatt | 534 | 592 | 1.123 | 883 |
| Innborgaðar vaxtatekjur | 18 | 11 | 30 | 22 |
| Greidd vaxtagjöld | ( 187) | ( 90) | ( 373) | ( 200) |
| Handbært fé frá rekstri | 365 | 513 | 779 | 705 |
| Fjárfestingahreyfingar | | | | |
| Kaup á rekstri og eignum | ( 15) | - | ( 27) | - |
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | ( 488) | ( 366) | ( 839) | ( 589) |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | ( 351) | ( 170) | ( 506) | ( 272) |
| Fjárfestingahreyfingar | ( 854) | ( 536) | ( 1.371) | ( 861) |
| Fjármögnunarhreyfingar | | | | |
| Áhættuvarnir | 0 | - | 40 | - |
| Afborganir langtimalána | ( 155) | ( 115) | ( 248) | ( 219) |
| Rekstrarlán | 720 | 190 | 799 | 335 |
| Fjármögnunarhreyfingar | 564 | 75 | 592 | 116 |
| Breyting á handbæru fé | 76 | 52 | ( 1) | ( 40) |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | 0 | 0 | 1 | ( 2) |
| Handbært fé í byrjun tímabils | 241 | 274 | 317 | 368 |
| Handbært fé í lok tímabilsins | 317 | 326 | 317 | 326 |
- Ársfjörðungslegar upplýsingar hafa ekki verið kannaðar af endurskoðendum
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2018
Skýringar
1. Félagið
Sýn hf. ("félagið") er íslensk hlutafélag. Höfuðstöðvar félagsins eru að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta - og fjölmiðlunar. Samandreginn samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir timabilið 1. janúar - 30. júní 2018 hefur að geyma árshlutareikning félagsins og dótturfélaga þess, P/F Hey í Færeyjum (áður P/F Kall), Ljósleiðarafélagsins ehf. og hlutdeild í sameiginlegum rekstri í Sendafélaginu ehf., sem visað er til í heild sem „samstæðunnar“.
2. Grundvöllur reikningsskilanna
Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu. Árshlutareikningur samstæðunnar 1. janúar til 30. júní 2018 er kannaður af endurskoðendum félagsins.
Árshlutareikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilareglum og lágu til grundvallar við gerð ársreikningsins 2017, að því undanskildu að tveir nýir reikningsskilastaðlar tóku gildi 1. janúar 2018 IFRS 9 og IFRS 15, sjá nánar umfjöllun í skýringu 4. Hann inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2017. Hægt er að nálgast ársreikning Sýnar hf. á heimasiðu félagsins www.vodafone.is. og á vef Kauphallar Íslands; www.nasdaqomxnordic.com.
Stjórn félagsins staðfesti og heimilaði birtingu árshlutareikningsins þann 29. ágúst 2018.
3. Starfrækslu- og framsetningargjaldmiðill
Árshlutareikningur samstæðunnar er birtur í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill samstæðunnar. Allar fjárhæðir eru birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.
4. Mat stjórnenda í reikningsskilum
Gerð samstæðuárshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og dragi ályktanir sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaðferða og birtar fjárhæðir eigna og skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að vera fráþrungðar þessu mati.
Tveir nýir reikningsskilastaðlar, IFRS 9 Fjármálagerningar og IFRS 15 Tekjur af samningum við viðskiptavini tóku gildi í ársbyrjun 2018.
a. IFRS 9
IFRS 9 leysir af hólmi IAS 39 og fjallar um reikningshaldslega meðferð fjármálagerninga og tilgreinir kröfur um skráningu og mat, virðisrýrnun, afskráningu og almenn áhættuvarnarreikningsskil. Áhrifa staðalsins í reikningsskilum samstæðunnar gætur aðeins á niðurfærslu fjáreigna vegna nýrra reglna um mat á virðisrýrnun. Þau áhrif eru hinsvegar överuleg.
b. IFRS 15
IFRS 15 leysir af hólmi IAS 18, IAS 11 og tengdar túlkanir og inniheldur nýjar reglur um skráningu tekna og auknar kröfur um upplýsingagjóf varandi tekjuskráningu. Samkæmt staðlinum skal skrá tekjur þegar yfirráð yfir hinu selda hafa verið flutt til kaupandans, í stað áhættu og ávinnings sem fyrri reglur horfðu til. Í staðlinum er sett fram fimm þrepa likan til leiðbeiningar.
Tekjur af fjarskiptaþjónustu og sjónvarpsáskriftum eru skráðar í samræmi við mánaðarleg uppgjör vegna notkunar eða miðað við fast gjald. Auglýsingatekjur eru færðar við birtingu auglýsinga. Tekjur af vörusölu eru færðar við afhendingu vöru er yfirráð flytjast til viðskiptavinar. Áhrif staðalsins á tekjuskráningu í reikningsskilum samstæðunnar eru överuleg.
c. Ákvörðun gangvirðis
Hluti af reikningsskilaðferðum og skýringum samstæðunnar krefjast ákvörðunar á gangvirði, bæði vegna fjármálagerninga og annarra eigna og skulda.
Að svo miklu leyti sem hægt er, notar samstæðan markaðupplýsingar við ákvörðun gangvirðis en liggi slikar upplýsingar ekki fyrir er byggt á mati stjórnenda. Ef upplýsingar frá þriðja aðila, líkt og verð frá miðlurum eða verðmatsbjónustu, eru notaðar við ákvörðun gangvirðis þá nýta stjórnendur upplýsingarnar til að styðja þá niðurstöðu að matið uppfylli kröfur um alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS), þar á meðal það stig sem slíkt mat myndi falla undir. Það er mat stjórnenda að bókfærð virði fjármálagerninga endurspegli gangvirði þeirra.
Gangvirðið er flokkað í þrjú stig eftir forsendum sem notaðar eru við matið:
- Stig eitt byggir á skráðu verði á virkum markaðí fyrir samskonar eignir og skuldir.
- Stig tvö byggir á beinum eða óbeinum markaðsforsendum sem eru aðrar en skráð verð á virkum markaðí sem flokkast undir stig eitt.
- Stig þrjú byggir á forsendum og gögnum sem ekki er unnt að afla á markaðí.
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2018
Skýringar, frh.:
- Meðferð vaxtaskiptasamnings
Afleiðusamningar eru gerðir til að stýra áhættu félagsins gagnvart vaxtaáhættu, þ.e. vaxtaskiptasamningur. Afleiður eru færðar á gangvirði. Almenna reglan er að óinnleystur hagnaður eða tap er fært í rekstrarreikning. Hins vegar þegar afleiða er skilgreind og virk sem áhættuvörn er afkoman færð eftir áhættuvarnarsambandinu sem afleiðan tilheyrir. Félagið hefur skilgreint vaxtaskiptasamninginn sem áhættuvörn vegna undirliggjandi skulda. Afleiðusamningar eru flokkaðir á meðal langtimaeigna eða langtimaskulda ef meira en 12 mánuðir eru til lokagjalddaga samningsins og ekki er gert ráð fyrir að hann verði gerður upp innan 12 mánaða. Aðrir afleiðusamningar eru flokkaðir á meðal veltufjármuna eða skammtimaskulda eftir því sem við á.
a. Áhættuvarnareikningsskil
Félagið skilgreindi í fyrsta skipti á þriðja ársfjörðungi 2016 afleiðusamning sem áhættuvarnargerning vegna sjóðstreymisvarnar. Á upphafsdegi áhættuvarnarsambandsins, skjalaði félagið sambandið á milli áhættuvarnargerningsins og áhættuvarða liðarins ásamt markmiðum áhættuvarnarstýringar og stefnu félagsins varðandi áhættuvarnir. Á hverjum reikningsskiladegi metur félagið skilvirkni áhættuvarnarsambandsins í samræmi við leiðbeiningar IFRS 9.
b. Sjóðstreymisvarnir
Skilvirki hluti gangvirðisbreytinga á afleiðum sem standast kröfur um sjóðstreymisvarnir og eru skilgreindar sem slíkar er færður í yfirlit um aðra heildarafkomu með mótfærslu á áættuvarnir á meðal eigin fjár. Hagnaður eða tap vegna óskilvirkni í áhættuvarnarsambandi er færður í rekstrarreikning undir liðnum fjármagnsgjöld. Uppsöfnuð staða á eigin fé sem áður hefur verið færð um aðra heildarafkomu er endurflokkuð um rekstrarreikning þegar hagnaður eða tap vegna áhættuvarða liðarins er færður, uppsafnaða staða á eigin fé er færð í sömu líni rekstrarreiknings.
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2018
Skýringar, frh.:
6. Starfspáttaryfirlit
Rekstrarstarfspættir
Starfspáttaupplysingar eru birtar eftir eðli rekstrar og byggja á skipulagi og innri upplýsingagjöf samstæðunnar.
Samstæðan skiptist í sex starfspætti sem selja võrur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfspættirnir eru:
Fjölmiðlun samanstendur af tekjum af starfsemi ljósvakamiðla, áskriftartekjum og tekjum af auglýsingasölu, tekjum af dreifingu á báðum sjónvarpsdreifikerfum Vodafone, leigutekjum af myndlyklum og tekjum af leigu einstakra kvikmynda og þátta (TVOD), tekjum af áskriftaveitu Vodafone (SVOD), tekjum af áskriftum að linulegum stöðvum og tekjum af sölu einstaka sjónvarpsviðburða.
Internet samanstendur af tekjum af netþjónustu í fastlinukerfum, þ.m.t. á ljósleiðara, xDSL þjónustu og öðrum gagnatengingum.
Farsimi samanstendur af öllum tekjum vegna notkunar á farsimum, þ.m.t. gagnaflutningum í farsimakerfinu, áskriftartekjum frá einstaklingum og fyrirtækjum, seldum frelsisinneignum, reikitekjum frá ferðamönnum og samtengitekjum í farsima.
Fastlína samanstendur af tekjum vegna notkunar á heimasima, fyrirtækjasima í fastlinu og samtengitekjum í fastlinu.
Vörusala samanstendur af sölu á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum.
Aðrar tekjur samanstanda af þjónustutekjum og leigu á endabúnaði.
| Rekstrarstarfspættir | Fjöl-miðlun | Internet | Farsimi | Fastlína | Vörusala | Aðrar tekjur | Jöfnunar-færslur | Samtals |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1.1. til 30.06.2018 | ||||||||
| Tekjur frá þriðja aðila | 4.428 | 2.390 | 2.187 | 601 | 627 | 515 | - | 10.748 |
| Innri tekjur | - | - | - | 9 | - | 30 | (39) | 0 |
| Tekjur samtals | 4.428 | 2.390 | 2.187 | 610 | 627 | 545 | -39 | 10.748 |
| Óskipt rekstrargjöld | (9.312) | |||||||
| --- | --- | |||||||
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatt (EBITDA) | 1.436 | |||||||
| Afskriftir | (1.031) | |||||||
| Hrein fjármagnsgjöld | (337) | |||||||
| Tekjuskattur | (16) | |||||||
| Hagnaður tímabilsins | 52 | |||||||
| Þýðingarmunur vegna starfsemi erlands dótturfélags | (8) | |||||||
| Áhættuvarnir | 29 | |||||||
| Heildarafkoma tímabilsins | 73 | |||||||
| Óskiptar eignir 30.6.2018 | 26.565 | |||||||
| Óskiptar skuldir 30.6.2018 | 16.361 | |||||||
| Fjárfestingar tímabilsins 1.1.2018 til 30.6.2018 | 1.345 |
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2018
Skýringar, frh.:
6. Starfspättaryfirlit
| Rekstrarstarfspættir | Fjöl-miölun | Internet | Farsimi | Fastlina | Vörusala | Aðrar tekjur | Jöfnunar-færslur | Samtals |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1.1. til 30.06.2017 | ||||||||
| Tekjur frá þriðja aðila | 1.053 | 1.854 | 2.020 | 598 | 611 | 391 | 0 | 6.527 |
| Innri tekjur | - | (1) | - | 11 | - | 9 | (19) | 0 |
| Tekjur samtals | 1.053 | 1.853 | 2.020 | 609 | 611 | 400 | (19) | 6.527 |
| Óskipt rekstrargjöld | ( 5.047) | |||||||
| --- | --- | |||||||
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatt (EBITDA) | 1.480 | |||||||
| Afskriftir | ( 762) | |||||||
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 169) | |||||||
| Tekjuskattur | ( 109) | |||||||
| Hagnaður tímabilsins | 440 | |||||||
| Þýðingarmunur vegna starfsemi erlands dótturfélags | ( 7) | |||||||
| Áhættuvarnir | ( 25) | |||||||
| Heildarafkoma tímabilsins | 408 | |||||||
| Óskiptar eignir 31.12.2017 | 25.376 | |||||||
| Óskiptar skuldir 31.12.2017 | 15.245 | |||||||
| Fjárfestingar tímabilsins 1.1.2017 til 30.6.2017 | 861 |
Landsvæðaskipting
Tekjur samstæðunnar greinast þannig eftir landsvæðum:
| 1.1. til 30.6.2018 | Ísland | Færeyjar | Samtals |
|---|---|---|---|
| Tekjur frá þriðja aðila á tímabilinu | 10.148 | 600 | 10.748 |
| EBITDA á tímabilinu | 1.357 | 79 | 1.436 |
| Eignir starfspátta í lok tímabilsins | 25.652 | 913 | 26.565 |
| Fjárfestingar tímabilsins | 1.235 | 110 | 1.345 |
1.1. til 30.6.2017
| Tekjur frá þriðja aðila á tímabilinu | 5.927 | 600 | 6.527 |
|---|---|---|---|
| EBITDA á tímabilinu | 1.424 | 56 | 1.480 |
| Eignir starfspátta 31.12.2017 | 24.460 | 916 | 25.376 |
| Fjárfestingar tímabilsins | 834 | 27 | 861 |
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2018
Skýringar, frh.:
- Seldar vörur og bjónusta
| Seldar vörur og bjónusta greinist pannig: | 2018 | 2017 | 2018 | 2017 |
|---|---|---|---|---|
| 2F* | 2F* | 6M | 6M | |
| Vörusala | 322 | 329 | 627 | 611 |
| Seld bjónusta | 5.122 | 3.057 | 10.121 | 5.916 |
| Seldar vörur og bjónusta samtals | 5.444 | 3.386 | 10.748 | 6.527 |
- Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu
| Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu greinist pannig: | 2018 | 2017 | 2018 | 2017 |
|---|---|---|---|---|
| 2F* | 2F* | 6M | 6M | |
| Kostnaðarverð seldrar vöru og bjónustu | 2.538 | 1.434 | 4.970 | 2.710 |
| Laun og launatengd gjöld | 560 | 184 | 1.065 | 364 |
| Afskriftir | 266 | 247 | 526 | 498 |
| Kostnaðarverð seldra vara og bjónustu samtals | 3.364 | 1.865 | 6.561 | 3.572 |
- Rekstrarkostnaður
| Rekstrarkostnaður greinist pannig: | 2018 | 2017 | 2018 | 2017 |
|---|---|---|---|---|
| 2F* | 2F* | 6M | 6M | |
| Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður | 445 | 277 | 887 | 533 |
| Sölu- og markaðskostnaður | 150 | 98 | 291 | 181 |
| Laun og launatengd gjöld | 1.033 | 632 | 2.099 | 1.260 |
| Afskriftir | 258 | 138 | 505 | 263 |
| Rekstrarkostnaður samtals | 1.886 | 1.145 | 3.782 | 2.237 |
- Birgðir
| Birgðir greinast pannig: | 30.6.2018 | 31.12.2017 |
|---|---|---|
| Fjarskiptabúnaður til endursölu | 292 | 197 |
| Õuppsettur sendabúnaður (rekstrarvörubirgðir) | 50 | 14 |
| Dagskrárbirgðir | 1.587 | 1.299 |
| Birgðir samtals | 1.928 | 1.510 |
- Ársfjörðungslegar upplýsingar hafa ekki verið kannaðar af endurskoðendum
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2018
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2018
Skýringar, frh.:
11. Önnur mál
Sýn hf. („félagið“) á í málarekstri við einstaklinga, önnur félög og eftirlitsstofnanir á íslenskum fjarskiptamarkaði. Félagið færir skuldbindingar og/eða kröfur vegna málareksturs þegar hægt er að meta framtiðar greiðslur og ávinning með áreiðanlegum hætti. Vegna óvissu um framtiðarþróun málarekstrar, niðurstöður dómsmála, úrskurði, áfrýjanir og sættir í málum geta niðurstöður mála leitt til viðbótar skuldbindinga og kostnaðar fyrir félagið.
Kaup Sýnar hf. á hluta af rekstri 365 ehf.
Í desember 2017 keypti félagið rekstrareiningar úr rekstri 365 ehf. Kaupverðsútdeilingu er ekki að fullu lokið, en félagið hefur tólf mánuði frá kaupdegi til að ljúka við kaupverðsútdeildingu samkvæmt IFRS 3.
Sýn hf. gegn Símanum hf.
Félagið hefur stefnt Símanum hf. vegna ólögmæts verðþrýstings og nemur stefnufjárhæð í málinu ríflega 900 millj. kr. Síminn hf. gagnstefndi félaginu og nemur stefnufjárhæð Símans hf. tæplega 2.500. millj. kr. Dómkvaddir matsmenn hafa skilað matsgerðum. EFTA dómstóllinn hefur skilað ráðgefandi áliti, sem Héraðsdómur Reykjavíkur óskaði eftir og var liður í meðferð þess. Aðalmeðferð málsins mun fara fram 8. október 2018.
Síminn gegn Póst- og fjarskiptastofnun, Sýn hf. og NOVA ehf.
Síminn hf. stefndi Póst- og fjarskiptastofnun, Sýn hf. og Nova ehf. til ógildingar á ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 14/2014. Fól ákvörðunin í sér að Sýn hf. og Nova ehf. er heimilt að samnýta tíðniheimildar sínar í nýju rekstarfélagi. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur 11. desember 2014. Síminn óskað eftir matsgerð sem lögð var fram 30. janúar 2018. Liggur ekki fyrir hvenær aðalmeðferð málsins fer fram.
Önnur mál
Að síðustu má geta þess að félagið á í margháttar ágreiningi við Símans hf. fyrir stjórnvöldum og dómstólum vegna sjónvarpsmála. Í fyrsta lagi fékk Síminn lagt á lögbann við því að félagið taki upp og miðli sjónvarpsefni Skjás eins (nú Sjónvarp Símans) með línulegum og ólínulegum hætti. Hefur Hérðasdómur Reykjavíkur staðfest lögbannið og Sýn hf. áfrýjað þeim dómi til Hæstaréttar. Málflutningur í Hæstarétti mun fara fram að loknu réttarhléi.
Í öðru lagi hefur Póst- og fjarskiptastofnun tekið stjórnvaldsákvörðun þess efnis að Símin hafi brotið gegn bannákvæði fjölmiðlalaga með því að beina viðskiptum viðskiptamanna fjölmiðlaveitu sinnar (Sjónvarpi Símans) að tengdu fjarskiptafyrirtæki (Símanum/Mílu). Var Símanum gerð 9 millj. kr. stjórnvaldssekt vegna þessa. Í kjölfarið sendi Sýn hf. Símanum hf. bréf og krafðist skaðabóta að fjárhæð röstklega 1.900 millj. kr. Í ljósi viðbragða Símans við því bréfi er málshöfðun til innheimtu bótanna nú í undirbúningi.
Á þessum tímapunkti getur félagið ekki metið framtiðar skuldbindingar eða kröfur sem leiða af niðurstöðum ofangreinds málareksturs meðal annars vegna þess að það getur tekið langan tíma að fá niðurstöður í mál ásamt því að mál geta tekið breytingum og þróast í ólíkar áttir. Vegna þessa hefur engin skuldbinding né krafa verið færð í árshlutareikning félagsins.
15
Ársfjörðungsyfirlit - óendurskoðað
- janúar til 30. júní 2018
| | 2017
1F | 2017
2F | 2017
3F | 2017
4F | 2018
1F | 2018
2F |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Seldar võrur og þjónusta | 3.141 | 3.386 | 3.437 | 4.304 | 5.304 | 5.444 |
| Kostnaðarverð seldra vara og þjónustu | (1.707) | (1.865) | (1.887) | (2.370) | (3.197) | (3.364) |
| Framlegð | 1.434 | 1.521 | 1.550 | 1.934 | 2.107 | 2.080 |
| Rekstrarkostnaður | (1.092) | (1.145) | (1.092) | (1.560) | (1.896) | (1.886) |
| Rekstrarhagnaður | 342 | 376 | 458 | 374 | 211 | 194 |
| Fjármunatekjur | 11 | 18 | 12 | 7 | 12 | 18 |
| Fjármagnsgjöld | (102) | (96) | (108) | (116) | (151) | (216) |
| Hrein fjármagnsgjöld | (91) | (78) | (96) | (109) | (139) | (198) |
| Hagnaður (tap) fyrir tekjuskatt | 251 | 298 | 362 | 265 | 72 | (4) |
| Tekjuskattur | (50) | (59) | (72) | 91 | (16) | 0 |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | 201 | 239 | 290 | 356 | 56 | (4) |
| Þýðingarmunur vegna starfsemi erlands dótturf. | 8 | (15) | 35 | 3 | (21) | 13 |
| Áhættuvarnir | 7 | (32) | 17 | (77) | 37 | (8) |
| Heildarafkoma tímabilsins | 216 | 192 | 342 | 282 | 72 | 1 |
| EBITDA | 719 | 761 | 854 | 803 | 718 | 718 |
| EBITDA % | 22,9% | 22,5% | 24,8% | 18,7% | 13,5% | 13,2% |
| Handbært fé frá rekstri | 191 | 514 | 858 | 692 | 414 | 365 |
| Fjárfestingarhreyfingar | (325) | (536) | (368) | (6.629) | (518) | (853) |
| Fjármögnunarhreyfingar | 41 | 75 | (430) | 5.870 | 28 | 564 |
Samandreginn árshlutareikningur Sýnar hf. 30. júní 2018