Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Interim / Quarterly Report 2018

Aug 29, 2018

2210_rns_2018-08-29_7c159389-054c-42f2-a01f-500d03fe6264.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

A

  1. ágúst 2018

Fréttatilkynning vegna afkomu Sýnar hf. á öðrum ársfjórðungi 2018:

61% tekjuaukning en hár kostnaður og fjárfestingar í tengslum við sambættingu – aukin samlegð og sterkari rekstur á seinni helmingi ársins

Árshlutareikningur Sýnar hf. fyrir annan ársfjórðung 2018 var sambykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 29. ágúst 2018. Í desember 2017 keypti félagið tilteknar eignir og rekstur 365 miðla hf. og gætir áhrifa af því á samanburð fjárhæða á milli ára.

  • Tekjur á öðrum ársfjórðungi 2018 námu 5.444 m.kr. sem er hækkun um 61% á milli ára. Tekjur á fyrsta árshelmingi jukust um 4.221 m.kr. eða 65%.
  • EBITDA hagnaður nam 718 m.kr. á ársfjórðungnum sem er lækkun um 43 m.kr. milli ára. EBITDA hagnaður á fyrri helmingi ársins nam 1.436 m.kr., sem er 3% lækkun milli ára.
  • Aðlagaður EBITDA hagnaður á 2F að teknu tilliti til einskiptisliða nam 748 m.kr. sem er 3% lækkun milli ára. Aðlagaður EBITDA hagnaður á fyrri helmingi ársins nam 1.581 m.kr. sem er 4% aukning milli ára.
  • Tap tímabilsins nam 4 m.kr. sem er 102% lækkun á milli ára. Hagnaður á fyrri helmingi ársins var 52 m.kr., sem er 88% lækkun milli ára.
  • Tap á hlut var 0,01 á 2F en hagnaður á hlut á fyrri árshelmingi var 0,19
  • Fjárfestingahreyfingar samstæðunnar námu 854 m.kr. á fjórðungnum sem er 59% hækkun á milli ára og má rekja til stórra samlegðarverkefna.
  • Fyrirliggjandi EBITDA horfur fyrir árið 2018 eru á bilinu 4.000-4.400 m.kr. af reglulegri starfsemi. Núverandi áætlanir félagsins eru við neðri mörk þess bils. Einskiptisliðir á fyrri helmingi ársins eru 145 m.kr. en búist er við överulegum einskiptisliðum í tengslum við kaupin á síðari hluta ársins. Markmið um fjárfestingarhlutfall stendur í 8-10% af tekjum. Í ljósi frambungra fjárfestinga á árinu er ljóst að félagið verður við efri mörk fjárfestingahlutfalls vegna samrunaverkefna.

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


Tafla 1: Lykiltöluyfirlit 2F 2018

2F 2018 2F 2017 Breyt. % breyt. 6M 2018 6M 2017 Breyt. % breyt.
Seldar vörur og bjönusta 5.444 3.386 2.058 61% 10.748 6.527 4.221 65%
Kostnaðarverð 3.364 1.865 1.499 80% 6.561 3.572 2.989 84%
Framlegð 2.080 1.521 559 37% 4.187 2.955 1.232 42%
Rekstrarkostnaður 1.886 1.145 741 65% 3.782 2.237 1.545 69%
EBITDA 718 761 -43 -6% 1.436 1.480 -44 -3%
EBIT 194 376 -182 -48% 405 718 -313 -44%
Hrein fjármagnsgjöld 198 78 120 156% 337 169 168 99%
Hagnaður tímabilsins -4 239 -243 -102% 52 440 -388 -88%
Framlegð (%) 38,2% 44,9% 39,0% 45,3%
EBITDA % 13,2% 22,5% 13,4% 22,7%
EBIT % 3,6% 11,1% 3,8% 11,0%

Stefán Sigurðsson, forstjóri:

„Annar fjörðungur var mjög stór samþættingafjörðungur þar sem mikilvægum áföngum var náð eins og til dæmis tilfærsla allra farsímaviðskiptavina 365 yfir á kerfi Sýnar með útskiptingu sim korta án áfalla, sameiningu fjölmargra deilda og þjónustukerfa og flutningi útvarps og dagskrárgerðar úr Skaftahlíð svo fått eitt sé nefnt. 70% af starfsmönnum keyptra eininga starfa nú á Suðurlandsbraut. Detta þýðir að mikilvæg samrunaverkefni eru í höfn og því er búist við að kostnaður taki frá þriðja fjörðungi að lækka hratt. Við búumst þar af leiðandi við mun sterkari fjörðungum seinni hluta árs þar sem bæði kostnaður lækkar auk þess sem tekjur fjörðunga seinni hluta árs eru sterkar vegna árstíðasveiflu, fjarskiptin sterk á þriðja fjörðungi og fjölmiðlunin á fjörða fjörðungi.

EBITDA fjörðungsins er undir því sem við höfðum vænst einkum vegna kostnaðarsamra samrunaverkefna. Rekstrarkostnaður á öðrum fjörðungi er því hærri en, ekki einungis vegna einskiptisliða, heldur einnig vegna kostnaðar sem tengist umfangsmiðlum samrunaverkefnum sem endurspeglast í mikilli yfirvinnu, tvöfaldra kerfa í rekstri, tvöfaldri húsaleigu, auk takmarkaðs möguleika fyrirtækisins að bregðast við háum almennum launahækkunum í miðju samrunaferli. Vanmat á kostnaði við samrunann er aðalástæða lægri EBITDA en vonast var eftir á öðrum fjörðungi. Framkvæmd samlegðarverkefna er hinsvegar á áætlun og mun skila sér í mun betri rekstri frá þriðja fjörðungi. Meiri kostnaður á fyrri hluta árs en búist var við gerir að verkum að félagið verður við neðri mörk áður útgefinna horfa fyrir árið 2018. Útgefnar horfur fyrir EBITDA árin 2019 og 2020 standa óbreyttar.

Tekjur og viðskiptavinafjöldi eru í samræmi við upprunalegar áætlanir sem er mjög mikilvægur áfangi samrunans í ljósi flókinna tilfærslna milli kerfa í tengslum við samþættingu. Félagið hefur auk þess aðlagað vörur sínar eftir sameiningu og til dæmis styrkt

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


A

samkeppnishæfni sjónvarpspakka með læk kun verðs auk þess að tryggja sér mikilvæga efnisrétti eins og UEFA og ítalska boltann nú nýverið.

Við gleðjumst yfir því að stærsti og áhættusamasti kafli samrunans sé að baki og horfum fram á þjarta tíma með læk kun kostnaðar og jákvæðri EBITDA þróun á næstu fjórðungum í samræmi við markmið samrunans. Starfsfólk fyrirtækisins hefur staðið sig frábærlega og á þakkir skilið fyrir fórnfúst starf við að byggja grunninn að leiðandi sameinuðu fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtæki" segir Stefán Sigurðsson forstjóri Sýnar.

img-0.jpeg
Mynd 1: EBITDA hagnaður eftir fjórðungum frá árinu 2014 :

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


A

Mynd 2: EBITDA hagnaður eftir fjórðungum frá árinu 2014 – aðlagað fyrir einskiptisliðum 2016 – 2018:

img-1.jpeg

Rekstrarafkoma á 2. ársfjórðungi 2018:

Tekjur samstæðunnar á öðrum ársfjórðungi 2018 námu 5.444 m.kr. sem er hækkun um 61% frá sama tímabili í fyrra. Tekjur fjórðungsins samanstanda af nýrri sameinaðri starfsemi eftir kaupin á tilteknum eignum og rekstri 365 Miðla hf. og hefur því áhrif á samanburð á milli tímabila. Tekjur af fjölmiðlun námu 2.229 m.kr. á öðrum fjórðungi og eykst um 316% á milli ára, hækkunin stafar að mestu leyti af keyptri starfsemi. Tekjur af interneti námu 1.226 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi, sem er hækkun um 249 m.kr. milli ára eða 25%. Tekjur af farsíma námu 1.121 m.kr. og jukust um 7% á milli ára. Enn gætir áhrifa af „roam like at home“ reglugerðinni á farsímatekjur af Íslendingum erlendis, en reglugerðin tók gildi 15. júní 2017. Tekjur af fastlínu námu 274 m.kr. á fjórðungnum og lækkuðu um 7% á milli ára, tekjur af vörusölu námu 322 m.kr. á tímabilinu sem er 2% lækkun miðað við sama ársfjórðung 2017, aðrar tekjur námu 272 m.kr. á ársfjórðungnum og jukust um 31% milli ára.

Kostnaðarverð nam 3.364 m.kr. og jókst um 80% á milli ára, einkum vegna áhrifa af efnis- og fjarskiptakostnaði nýrrar starfsemi, en rekstrarkostnaður nam 1.886 m.kr. EBITDA hagnaður tímabilsins nam 718 m.kr. og lækkar um 43 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2017. EBITDA hlutfall var 13,2% og EBIT hlutfall 3,6%. Ef tekið er tillit til einskiptiskostnaðar hefði EBITDA numið 748 m.kr., EBITDA hlutfall tímabilsins 13,8% og EBIT hlutfall 4,1%.

Hrein fjármagnsgjöld námu 198 m.kr. á öðrum ársfjórðungi sem er hækkun um 156% á milli ára. Aukningin liggur fyrst og fremst í hærri vaxtagjöldum vegna fjármögnunar á kaupungum á tilteknum eignum og rekstri 365 miðla hf.

Tap á öðrum ársfjórðungi 2018 nam 4 m.kr. sem er 243 m.kr. lækkun frá sama tímabili 2017.

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


Sjóðstreymi 2. ársfjórðungs 2018:

Handbært fé frá rekstri á öðrum fjórðungi ársins 2018 nam 365 m.kr. Fjárfestingarhreýfingar námu 877 m.kr. sem er hækkun um 64% á milli tímabila.

Fjármögnunarhreýfingar félagsins námu 564 m.kr. á öðrum ársfjórðungi 2018. Afborganir af langtímálánum námu 155 m.kr. Handbært fé í lok annars ársfjórðungs nam 317 m.kr.

img-2.jpeg

Efnahagur 30. júní 2018:

Eigið fé í lok tímabilsins var 10.204 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 38,4%. Útistandandi hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 m.kr.

Heildarskuldir samstæðunnar voru 16.361 m.kr. Hreinar vaxtaberandi skuldir námu 11.585 m.kr. og var hlutfall þeirra á móti EBITDA hagnaði sl. 12 mánaða 3,7. Veltufjárhlutfall var jafnframt 1,2.

Horfur fyrir afkomu á næstu misserum:

Fyrirliggjandi EBITDA horfur fyrir árið 2018 eru á bilinu 4.000-4.400 m.kr. af reglulegri starfsemi. Núverandi áætlanir félagsins eru við neðri mörk þess bils. Einskiptisliðir á fyrri helmingi ársins eru 145 m.kr. en búist er við överulegum einskiptisliðum í tengslum við kaupin á síðari hluta ársins. Markmið um fjárfestingarhlutfall stendur í 8-10% af tekjum. Í ljósi frambungra fjárfestinga á árinu er ljóst að félagið verður við efri mörk fjárfestingahlutfalls vegna samrunaverkefna.

Helstu tíðindi og mikilvæ gir áfangar á tímabilinu:

  • Nú í ágúst hleyptum við af stokkunum nýjung í farsímaáskrift Vodafone þar sem viðskiptavinir sem eru í Heima fá tífalt meira innifallð gagnamagn í farsímaáskrift sinni. Heima er heildarbjónusta Vodafone og Stöðvar 2 sem býður upp á allar megin fjarskiptalausnir heimilisins ásamt fjölbreyttri afbreyingu fyrir alla fjölskylduna að eigin vali.

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


Syn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is

  • Í júlí gangsetti Vodafone á Íslandi, fyrstu sendana sem byggja á fimmtu kynslóð farsímakerfa, það er 5G. Um er að ræða svokallaða léttbandstækni eða Narrowband IoT sem er hönnuð sérstaklega með samskipti tækja í huga.

  • Breska fagtímaritið BUILD hefur verðlaunað íslenska arktitekta hjá Yrki arkitektum ehf. fyrir vinnu þeirra við höfuðstöðvar Sýnar að Suðurlandsbraut 8 sem tímaritið útnefnir bestu innanhússhönnun skrifstofuhúsnæðis ársins 2018. Yrki arkitektar ehf. eru jafnframt útnefndir sem framsæknasta arkitektastofa árins. Höfuðstöðvar Sýnar að Suðurlandsbraut 8 hafa vakið verðskuldaða athygli fyrir smekklega hönnun sem unnin var með þarfir starfsfólks í fyrirrúmi en mikil vinna var lögð í þarfagreiningu. Í lýsingu Yrkis arkitekta á verkefninu segir að sú greining hafi hjálpað til við skipulag og hönnun innan nýju höfuðstöðvanna. Höfuðáhersla er á sveigjanlegt vinnuumhverfi með mörgum mismunandi starfsstöðvum en markmiðið er að stytta leiðir milli þeirra sem vinna saman og auka skilvirkni í starfi og stjórnun.

  • Í júní hlaut Sýn hf. gullvottun frá Microsoft á sviði fyrirtækjamarkaðar og skýjalausna (e. "Small and Midmarket cloud solutions"). Gullvottunina hljóta fyrirtæki sem ná góðum árangri í sölu og eru með hæft starfsfólk í að veita þjónustu og ráðgjöf í tengslum við lausnir Microsoft. Gullvottunin þýðir að starfsmenn Sýnar hf. standast ítrustu kröfur Microsoft og eru í hópi þeirra sem hafa mestu þekkingu á lausnum Microsoft til fyrirtækja. Vottunin er jafnframt alþjóðlegur mælikvarði sem Microsoft notar til að meta samstarfsaðila sína.

  • Í byrjun maí stækkuðu valdir sjónvarpspakkar Stöðvar 2 og verð á öðrum lækkaði. Stök áskrift að Stöð 2 Sport er nú í boði á 9.990 kr. og Sportpakkinn á 11.990 kr. Áður var einungis hægt að fá aðgengi að íþróttaefni Stöðvar 2 í gegnum Sportpakkann á 14.990 kr. Efnisveitan Stöð 2 Marabón stækkaði og verð lækkaði í 1.990 kr. úr 2.990 kr. sem er orðið samkeppnishæft við erlendar efnisveitur. Skemmtipakkinn stækkaði með miklu magni af ólínulegu efni fyrir alla fjölskylduna án þess að verð breyttist. Einnig lækkaði stök áskrift að Stöð 2 í 6.990 kr. í stað 8.990 kr. áður. Fimm mánuðum eftir sameiningu Vodafone og 365 miðla njóta því neytendur og viðskiptavinir fyrirtækjanna ávaxta samrunans með skýrum hætti. Með þessu hyggst fyrirtækið gefa enn fleirum kost á að gerast áskrifendur að hágæða íslensku og erlendu sjónvarpsefni og íþróttum.

  • Dreifing hófst á Samsung ofurháskerpumyndlykli Sýnar, en myndlykillinn er af allra nýjustu gerð ofurháskerpumyndlykla og gerir okkur kleift að bjóða allt að fjórum sinnum meiri myndaupplausn en áður. Þar að auki er hann umtalsvert hraðvirkari og snarpari í öllum aðgerðum.

  • Vodafone og Startup Iceland héldu Stökkpallinn viðskiptaþróunarkeppni í þriðja sinn. Markmið keppnninnar er að styðja frumkvöðla í að þróa vörur og koma þeim á markað, en í ár var áhersla á „IoT-smart city“ lausnir. Samstarfið er liður í stuðningi Vodafone sem bakhjarls Startup Iceland og endurspeglar áherslu Sýnar á nýsköpun og samfélagsábyrgð.

Kynningarfundur 30. ágúst 2018:


A

  • Opinn kynningarfundur vegna uppgjørsins verður haldinn fimmtudaginn 30. ágúst 2018. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Sýn 6. hæð, Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík og hefst klukkan 8:30.
  • Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á síðu fjárfestatengsla Vodafone á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
  • Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni https://syn.is/fjarfestatengsl

Fjárhagsdagatal 2018:

  • Uppgjör 3F 2018 7. nóvember 2018
  • Uppgjör 4F og ársuppgjör 2018 27. febrúar 2019
  • Aðalfundur 2019 21. mars 2019

Frekari upplýsingar:

  • Hannes Finnsson tekur á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjá[email protected] eða í síma 669-9329.

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is