Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Interim / Quarterly Report 2018

Nov 7, 2018

2210_rns_2018-11-07_a5fbfad8-7b70-494b-a20b-6c43838673ee.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

A

  1. november 2018

Fréttatilkynning vegna afkomu Sýnar hf. á þriðja ársfjörðungi 2018:

Samruninn tekur að skila ávinningi með 21% hækkun EBITDA

Árshlutareikningur Sýnar hf. fyrir þriðja ársfjörðung 2018 var sambykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 7. nóvember 2018. Í desember 2017 keypti félagið tilteknar eignir og rekstur 365 miðla hf. og gætir áhrifa af því á samanburð fjárhæða milli ára.

  • Tekjur á þriðja ársfjörðungi 2018 námu 5.449 m.kr. sem er hækkun um 59% á milli ára. Tekjur á fyrstu 9 mánuðum ársins jukust um 6.233 m.kr. eða 63%.
  • EBITDA hagnaður nam 1.032 m.kr. á ársfjörðungnum sem er hækkun um 178 m.kr. milli ára. EBITDA hagnaður á fyrstu níu mánuðum ársins nam 2.468 m.kr., sem er 6% hækkun á milli ára.
  • Aðlagaður EBITDA hagnaður á 3F að teknu tilliti til einskiptisliða nam 1.038 m.kr. sem er 21% hækkun milli ára. Aðlagaður EBITDA hagnaður á fyrstu 9 mánuðum ársins nam 2.619 m.kr. sem er 10% aukning milli ára.
  • Hagnaður tímabilsins nam 226 m.kr. sem er 22% lækkun á milli ára. Hagnaður á fyrstu 9 mánuðum ársins var 278 m. kr., sem er 62% lækkun milli ára.
  • Hagnaður á hlut var 0,76 á 3F en hagnaður á hlut á fyrstu 9 mánuðum ársins var 0,94.
  • Fjárfestingahreyfingar samstæðunnar námu 516 m.kr. á fjörðungnum sem er 40% hækkun á milli ára og má meðal annars rekja til fjárfestinga í húsnæði og kerfum tengt samrunaverkefni og útskiptingu á myndlyklum.
  • Horfur fyrir árið 2018 voru uppfærðar 1. nóvember 2018. Fyrirliggjandi EBITDA horfur fyrir árið 2018 eru um 3.600 m.kr. af reglulegri starfsemi. Einskiptisliðir fyrstu 9 mánuðina eru 151 m.kr. en búist er við överulegum einskiptisliðum í tengslum við kaupin á síðasta fjörðungnum. Fjárfestingarhlutfall er áætlað um 11% af tekjum sem er hærra en búist var við einkum vegna fjárfestinga í tengslum við flutninga myndvera og starfsmanna í lok ársins.

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


Tafla 1: Lykiltöluyfirlit 3F 2018

3F 2018 3F 2017 Breyt. % breyt. 9M 2018 9M 2017 Breyt. % breyt.
Seldar vörur og bjönusta 5.449 3.437 2.012 59% 16.197 9.964 6.233 63%
Kostnadarverð 3.311 1.887 1.424 75% 9.872 5.458 4.414 81%
Framlegð 2.138 1.550 588 38% 6.325 4.506 1.819 40%
Rekstrarkostnadar 1.641 1.092 549 50% 5.423 3.329 2.094 63%
EBITDA 1.032 854 178 21% 2.468 2.334 134 6%
EBIT 497 458 39 9% 902 1.177 -275 -23%
Hrein fjármagnsgjöld 213 96 117 122% 550 265 285 108%
Hagnaður tímabilsins 226 290 -64 -22% 278 730 -452 -62%
Framlegð (%) 39,2% 45,1% 39,1% 45,2%
EBITDA % 18,9% 24,8% 15,2% 23,4%
EBIT % 9,1% 13,3% 5,6% 11,8%

Stefán Sigurðsson, forstjóri:

"Ánægjulegt var að sjá samrunann taka að skila sér í uppgjóri þriðja fjörðungs þar sem EBITDA var 1.032 m.kr. og jökst um 21% frá sama tímabili í fyrra. Þar sem full samlegð er ekki enn komin í reksturinn, og kostnadarstig fyrirtækisins er hærra en búast mátti við, ættu næstu fjörðungar að sýna stöðugt aukinn rekstrarhagnað í samræmi við þriðja fjörðung bæði árið 2019 og 2020. Markmið stjórnenda er að EBITDA fyrir fjörðunga félagsins geti byggst upp í 1,0 til 1,4ma kr. í samræmi við áætlanir samrunans sem gerðu ráð fyrir fullri samlegð að loknum 18 mánuðum.

Félagið burfti því miður að lækka afkomuhorfur fyrir árið 2018 einkum vegna þess að samrunaverkefnin hafa haft meiri áhrif á starfsemi og lengur en spáð var. Þetta hefur haft þau áhrif að kostnadarstig fyrirtækisins hefur verið hærra en búist var við þar sem rekstrarverkefni hafa skilað sér hægar auk þess sem ytri kostnadar og launakostnadar hefur verið hærri í tengslum við álag og yfirvinnu við yfirfærslu kerfa og flutninga, fækkun stöðugilda er þó í takt við markmið samrunans. Því til viðbótar hefur gengisveiking krónunnar haft neikvæð áhrif sérstaklega á horfur fjörða fjörðungs. Göðu fréttirnar eru að álag vegna samrunans mun ekki vara að eilífu og að samrunaverkefnið er langt komið. Með hverjum deginum verður reksturinn eðlilegri og eftir að búið er að færa alla starfsemi og starfsmenn að Suðurlandsbraut með tilfærslu myndvera við áramót séu umfangsmestu verkefnin að baki.

Stjórnendur vinna hörðum höndum að skilgreindum aðgerðum sem hafa áhrif á horfur fyrirtækisins og telja ekki forsendur á þessu stigi til að breyta útleti fyrir rekstur ársins 2019 um 4.600 til 5.000 m.kr. þrátt fyrir lækkun afkomuhorfa fyrir 2018. Unnið er á mörgum vígstöðvum við að ná markmiðum samrunans. Nú þegar hefur verið gripið til aðgerða sem munu meðal annars hækka tekjur á nýju ári í tengslum við viðbrögð við gengisbreytingum, samlegð í tengslum við birgjasamninga hafa áhrif til lækkunar kostnadar alls næsta árs, rekstrarverkefni munu halda áfram að skila bættum rekstri. Stöðugildi verða á öðrum árshelmingi þegar orðin 5% færri en við yfirtöku og áætlanir gera ráð fyrir að með minna álagi verði þau orðin 10% færri frá yfirtöku á síðari hluta ársins 2019 í tengslum við eðlilega starfsamannaveltu. Við gerum því ráð fyrir að skila stigvaxandi rekstrarniðurstöðu fjörðunga vel inn á árið 2020."

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


Mynd 1: EBITDA hagnaður eftir fjórðungum frá árinu 2014 :

img-0.jpeg

Mynd 2: EBITDA hagnaður eftir fjórðungum frá árinu 2014 – aðlagað fyrir einskiptisliðum :

img-1.jpeg

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


A

Rekstrarafkoma á 3. ársfjórðungi 2018:

Tekjur samstæðunnar á þriðja ársfjórðungi 2018 námu 5.449 m.kr. sem er hækkun um 59% frá sama tímabili í fyrra. Tekjur fjórðungsins samanstanda af nýrri sameinaðri starfsemi eftir kaupin á tilteknum eignum og rekstri 365 Miðla hf. og hefur því áhrif á samanburð á milli tímabila. Tekjur af fjölmiðlun námu 2.090 m.kr. á þriðja fjórðungi og eykst um 293% á milli ára, hækkunin stafar að mestu leyti af keyptri starfsemi. Tekjur af interneti námu 1.288 m.kr. á þriðja ársfjórðungi, sem er hækkun um 256 m.kr. milli ára eða 25%. Tekjur af farsíma námu 1.228 m.kr. og jukust um 12% á milli ára. Tekjur af fastlínu námu 270 m.kr. á fjórðungnum og lækkuðu um 11% á milli ára, tekjur af vörusölu námu 310 m.kr. á tímabilinu sem er 1% hækkun miðað við sama ársfjórðung 2017, aðrar tekjur námu 262 m.kr. á ársfjórðungnum og jukust um 51% milli ára.

Kostnaðarverð nam 3.311 m.kr. og jókst um 75% á milli ára, einkum vegna áhrifa af efnis- og fjarskiptakostnaði nýrrar starfsemi, en rekstrarkostnaður nam 1.641 m.kr. EBITDA hagnaður tímabilsins nam 1.032 m.kr. og hækkar um 178 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2017. EBITDA hlutfall var 18,9% og EBIT hlutfall 9,1%.

Hrein fjármagnsgjöld námu 213 m.kr. á þriðja ársfjórðungi sem er hækkun um 122% á milli ára. Aukningin liggur fyrst og fremst í hærri vaxtagjöldum vegna fjármögnunar á kaupum á tilteknum eignum og rekstri 365 miðla hf.

Hagnaður á þriðja ársfjórðungi 2018 nam 226 m.kr. sem er 64 m.kr. lækkun frá sama tímabili 2017.

Sjóðstreymi 3. ársfjórðungs 2018:

Handbært fé frá rekstri á þriðja fjórðungi ársins 2018 nam 519 m.kr. Fjárfestingarhreýfingar námu 516 m.kr. sem er hækkun um 40% á milli tímabila.

Fjármögnunarhreyfingar félagsins námu 50 m.kr. á þriðja ársfjórðungi 2018. Afborganir af langtímalánum námu 145 m.kr. Handbært fé í lok annars ársfjórðungs nam 271 m.kr.

img-2.jpeg

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is

Efnahagur 30. september 2018:

Eigið fé í lok tímabilsins var 10.457 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 39,5%. Útistandandi hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 m.kr.

Heildarskuldir samstæðunnar voru 16.049 m.kr. Hreinar vaxtaberandi skuldir námu 11.574 m.kr. og var hlutfall þeirra á móti EBITDA hagnaði sl. 12 mánaða 3,5. Veltufjárhlutfall var jafnframt 1,2.

Horfur:

Horfur fyrir árið 2018 voru uppfærðar 1. nóvember 2018. Fyrirliggjandi EBITDA horfur fyrir árið 2018 eru um 3.600 m.kr. af reglulegri starfsemi. Einskiptisliðir á fyrstu níu mánuðum ársins eru 151 m.kr. en búist er við óverulegum einskiptisliðum í tengslum við kaupin á fjörða fjörðungi ársins. Fjárfestingarhlutfall er áætlað um 11% af tekjum sem er hærra en búist var við einkum vegna fjárfestinga í tengslum við flutninga myndvera og starfsmanna í lok ársins.

Stjórnendur telja ekki forsendur til að breyta áður útgefnum horfum áranna 2019 og 2020 enda margar aðgerðir í gangi sem munu hafa áhrif á niðurstöðuna auk ytri óvissubátta eins og komandi kjarasamninga og gengisþróun.

Ofangreindar horfur eru miðað við núverandi samstæðu með Hey í Færeyjum. Tilkynnt hefur verið að samkomulag hafi náðst um helstu skilmála sameiningar Hey í Færeyjum og Nema sem myndi færa eignarhlut Sýnar í félaginu í 49,9% en þar af leiðandi yrðu Færeyjar ekki lengur hluti af samstæðu Sýnar heldur yrðu færð með hlutdeildaraðferð. Viðskiptin eru háð hefðbundnum fyrirvörum en verði af þeim verður til samræmis breyting á samstæðu Sýnar. EBITDA Hey í útgefnum 2019 horfum nema um um DKK 14m eða um ISK 258m.kr. miðað við núverandi gengi. Áhrif á horfur um CAPEX hlutfall yrðu hins vegar engin og áhrif á frjálst fjárflæði samstæðu óveruleg.

Helstu tíðindi og mikilvægir áfangar á tímabilinu:

  • Tæknifólk Vodafone fór í haust eins og stormsveipur um Vestfirði til að 4G tengja landsfjörðunginn. Var uppsetning 4G senda kláruð m.a. á Suðureyri, Súðavík, Flateyri, Tálknafirði og Þingeyri. Einnig voru gangsettir 4G sendar á ströndum fyrir Hólmavík og Drangsnes. Í september var þá sendastaðurinn á Vegamótum á Snæfellsnesi færður yfir í nýtt 25 metra mastur frá Neyðarlínunni. Um leið var staðurinn færður af örbylgusambandi yfir á ljósleiðara.
  • Þjónustuver Sýnar var óvenju vel mannað í lok september þegar ráðherrar, forstjórar, leikarar, tónlistarmenn, starfsfólk Sýnar og björgunarsveitarfólk sat við símana fyrir Landsbjörg og tóku við stuðningi frá almenningi. Skemmtileg stemning myndáðist í höfuðstöðvum Sýnar þetta kvöld og var nýtt myndver. Stöðvar 2 prufukeyrt við þetta tækifæri en herlegheitin voru að sjálfsögðu sýnd í beinni útsendingu.
  • Tónskáldasjóður Bylgjunnar og Stöðvar 2 úthlutaði í samvinnu við STEF 9.950.000 kr. úr sjóðnum nú í haust. Alls sóttu 87 um styrk úr sjóðnum en 55 hlutu styrk að þessu sinni. Hæstu styrkina hlutu Gyða Valtýsdóttir og Agent Fresco, eða 500.000 krónur hvor.

A

Markmið sjóðsins er að styrkja tónskáld og textahöfunda til nýsköpunar á sviði íslenskrar tónlistar.

  • Sýn tók fullan þátt í Bleiku slaufunni, árveknis- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameini hjá konum í október. Höfuðstöðvar Sýnar voru lýstar bleikar og föstudaginn 12. október var Bleiki dagurinn haldinn hátíðlegur á vinnustaðnum.
  • Sýn styrkir margvíslega nýsköpun og verkefni af samfélagslegum toga. Dæmi um slíkan stuðning er uppsetning leiksýningarinnar „Ég heiti Guðrún“ sem fjallar um afleiðingar Alzheimer-sjúkðomsins. Verkið hefur farið sigurför um Norðurlöndin frá því það var fyrst frumsýnt árið 2014.

Kynningarfundur 8. nóvember 2018:

  • Opinn kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn fimmtudaginn 8. nóvember 2018. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Sýnar 6. hæð, Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík og hefst klukkan 8:30.
  • Kynningarfni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á síðu fjárfestatengsla Vodafone á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
  • Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni https://syn.is/fjarfestatengsl

Fjárhagsdagatal 2018:

✓ Uppgjör 4F og ársuppgjör 2018 27. febrúar 2019
✓ Aðalfundur 2019 21. mars 2019

Frekari upplýsingar:

✓ Guðfinnur Sigurvinsson samskiptastjóri Sýnar tekur á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjá[email protected] eða í síma 669-9330.

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is