Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Earnings Release 2023

Feb 27, 2024

2210_rns_2024-02-27_591fc428-d658-48bf-9601-be6bde75c9f7.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

  1. febrúar 2024

Fréttatilkynning: Afkoma Sýnar hf. á fjórða ársfjórðungi og árinu 2023.

Afkoma fjórða ársfjórðungs og ársins 2023

Ársreikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir árið 2023 var sambykktur á stjórnarfundi þann 27. febrúar 2024.

Rekstrarhagnaður (EBIT) samstæðunnar nam 3.544 m.kr. árið 2023.

Kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar voru sambykkt í lok september og fór afhending fram þann 4. október sl. Umsamið kaupverð var 3.000 m.kr. og söluhagnaður bókfærður í 4F 2023 að fjárhæð 2.436 m.kr.

Þann 13. febrúar var tilkynnt um áhrif tiltekinna einskiptisliða og afskrifta tengdum rekstrarhagræðingu á afkomu ársins 2023, og eru áhrif þeirra liða 837 m.kr. á afkomu 4F og ársins 2023.

Rekstrarhagnaður ársins 2023 að teknu tilliti til fyrrgreindra einskiptisliða og sölu stofnetsins nemur því 1.945 m.kr. Rekstrarhagnaður fjórða ársfjórðungs nemur 351 m.kr. að teknu tilliti til fyrrgreindra liða.

Hagnaður eftir skatta árið 2023 nam 2.109 m.kr. samanborið við 888 m.kr. fyrir árið 2022.

Rekstur Já var tekinn inn í samstæðuna á 4F og ný rekstrareining, Vefmiðlar og útvarp, stofnuð. Þann 14. desember var tilkynnt að framtiðareignarhald rekstrareiningarinnar Vefmiðla og útvarps hefði verið tekið til skoðunar. Sú skoðun stendur nú yfir og er tíðinda að vænta á vormánuðum.

Áframhaldandi góður gangur í auglýsingasölu, hýsingar- og rekstrarlausnum og reikitekjum. Auglýsingatekjur jukust um 13% á árinu. Áherslur ársins 2024 verða að ná kostnaði niður ásamt því að viðhalda kjarnatekjum félagsins.

Helstu niðurstöður:

  • Seldar vörur og þjónusta árið 2023 voru 23.475 m.kr. samanborið við 22.983 m.kr. á sama tímabili í fyrra. Tekjur vegna fjölmiðlunar hækka á 4F um 5,9% frá fyrra ári sem skýrist einkum af hækkun í auglýsingatekjum. Tekjur af hýsingar- og rekstrarlausnum (Endor) hækka um 42% frá fyrra ári á 4F.
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) á 4F nam 351 m.kr. (að teknu tilliti til stofnnetssölu og fyrrgreindra einskiptisliða) samanborið við 383 m.kr. á 4F 2022 en fyrnnefndir einskiptisliðir hafa veruleg áhrif á afkomu ársfjórðungsins eins og áður er getið.
  • Rekstrarkostnaður hélst stöðugur á árinu, þegar tekið er tillit til einskiptisliða í 4F, þrátt fyrir áskoranir í ytra umhverfi s.s. verðbólgu og launahækkanir á almennum vinnumarkaði.

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is

C2 restricted - External permitted


C2 restricted - External permitted

  • Fjárfestingar árið 2023 námu 5.678 m.kr., þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 2.726 m.kr. og fjárfesting í sýningarrétum 2.434 m.kr.
  • Þann 13. febrúar sl. var tilkynnt um áhrif tiltekinna einskiptisliða á rekstur og afkomu fjórða ársfjórðungs auk þess sem frávik frá horfum ársins voru útskýrð. Einskiptisliðir upp á 837 m.kr. hafa veruleg áhrif á afkomu 4F og ársins 2023. Þar vega byngst afskriftir sýningarrétta, afskrift tiltekinna eigna hjá innviðum og kostnaður vegna starfsloka fráfarandi forstjóra auk annarra hagræðingaraðgerða. Afskrift sýningarrétta er til komin vegna breyttra afskriftarreglna hjá félaginu þar sem tilteknir sýningarréttr verða nú afskrifaðir á tveimur árum í stað briggja áður.
  • Kaup Ljósleiðarans á stofneti Sýnar voru heimiluð þann 28. september og fór afhending fram þann 4. október. Umsamið kaupverð upp á 3.000 m.kr. er greitt í áföngum eftir kaupsamkomulagi og hafa 1.000 m.kr. verið greiddar á árinu. Kaupverð mun greiðast að fullu á árinu 2024. Gert er ráð fyrir að viðskiptin hafi jákvæð áhrif á rekstrarkostnað Sýnar um 100 m.kr. nettó á ári. Þá lækki árleg fjárfestingabörf í kringum 120 m.kr. yfir samningstímann.
  • Á fyrri hluta ársins voru framkvæmd kaup á eigin bréfum fyrir 930 m.kr. í öfugu útboði og samkvæmt reglulegri endurkaupaáætlun. Arðgreiðsla til hluthafa var innt af hendi í apríl að fjárhæð 281 m.kr. Á 4F var sett af stað endurkaupaáætlun sem lauk í takt við áætlun þann 16. febrúar. Heildar endurkaup á árinu voru upp á 1.007 m.kr.
  • Rekstur Já var tekinn inn í samstæðuna á 4F og ný rekstrareining, Vefmiðlar og útvarp, stofnuð utan um vefmiðla, útvarp og Já. Fjárhagslegur aðskilnaður er í vinnslu. Framtíðareignarhald þessarar rekstrareiningar er í endurskoðun.
  • Rekstur dótturfélagsins Endor gekk mjög vel á árinu. Heilt yfir var árið 2023 besta rekstrarár félagsins. Tekjur af kjarnastarfsemi Endor aukast um 44% frá fyrra ári.

Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri:

„Það er ánægjulegt að taka við Sýn, þar sem starfar öflugt starfsfólk og samfélagslega mikilvæg starfsemi á sér stað. Margir stórir áfangar hafa náðst á síðastliðnu ári en ég kom sjálf til starfa um miðjan janúar á þessu ári. Afhending á stofnneti fór fram á fjórða ársfjórðungi og þá kom starfsfólk Já í hús sem er afar ánægjulegt. Vel hefur gengið að innleiða starfsemi Já inn í rekstrareininguna, Vefmiðla og útvarp.“

Rekstrarumherfið er krefjandi og má hér nefna m.a. baráttuna við háa verðbólgu sem hefur óneitanlega áhrif á rekstur Sýnar. Við munum á rekstrarárinu 2024 leggja ríka áherslu á að létta á skuldum, aðhald í kostnaði ásamt því að viðhalda kjarnatekjum félagsins.

Í kjólfar eignasölu er eðlilegt að fara yfir innviðaeignir félagsins og munu afskriftir á þeim létta á rekstrinum fram á við. Sú breyting á afskriftarreglum erlendra sýningarrétta sem tilkynnt var um þann 13. febrúar sl. hefur í fór með sér að afskriftum verður hraðað frá því sem verið hefur. Við leggjum áherslu á áframhaldandi öflugan en jafnframt skýrari og skilvirkari rekstur og er þessi breyting á afskriftum liður í því.

Vodafone efldi vöruframboð og þjónustu við viðskiptavini til muna á árinu 2023 m.a. með nýjum vörupökkum og umbreytingu á þjónustu á einstaklingsmarkaði sem hefur skilað sér í aukinni sölu og ánægju viðskiptavina.

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

008

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


C2 restricted - External permitted

Hjá Miðlum einkenndist árið af góðum vexti í auglýsingatekjum og leitum við sífellt að fleiri tækifærum á þeim vettvangi. Dótturfélagið Endor átti einnig mjög gott ár og litur starfsemi Endor mjög vel út fyrir núverandi rekstrarár.

Skuldbinding okkar við ábyrgð er í forgrunni í nýrri stefnu félagsins. Félagið hefur unnið að stefnumörkun á sviði sjálfbærni til að varða veginn framundan. Á síðastliðnum tveimur árum hefur átt sér stað innleiðing á sjálfbærnistaðli sem mun styrkja við innviði félagsins í þá átt.

Í ljósi þess að við erum í stefnumótun með Stöð 2 og framtíðareignarhald á Vefmiðlum og útvarpi er til skoðunar sem og að áhersla verður á kostnaðaraðhald og hagræðingu til skamms tíma verða ekki gefnar út horfur á árinu.

Efnahagur 31. desember 2023:

Eigið fé í lok tímabilsins nam 10.288 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 29,4%.

Heildarskuldir félagsins voru 24.646 m.kr. í lok ársins. Vaxtaberandi langtímaskuldir námu 4.461 m.kr. en hreinar vaxtaberandi skuldir að viðbættum leiguskuldbindingum voru 18.596 m.kr. og veltufjárhlutfall 1,7.

Fjárhagsdagatal 2024:

  • Afkoma 4F og ársuppgjör 2023 27. febrúar 2024
  • Aðalfundur 11. apríl 2024
  • Afkoma 1F 2024 8. maí 2024
  • Afkoma 2F 2024 28. ágúst 2024
  • Afkoma 3F 2024 6. nóvember 2024
  • Afkoma 4F og ársuppgjör 2024 19. febrúar 2025
  • Aðalfundur 14. mars 2025

Kynningarfundur 28. febrúar 2024:

  • Opinn kynningarfundur vegna uppgjørsins verður haldinn á miðvikudaginn 28. febrúar kl. 8.30 í húsnæði félagsins að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í beinu streymi, en vefslóðin verður birt hér: https://syn.is/fjarfestatengsl/arshlutareikningar.
  • Tekið er á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjá[email protected].
  • Nánari upplýsingar má nálgast á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjárfestatengsl og í frétakerfi Nasdaq Iceland.

vodafone

visir

SPORT

BYLGJAN

2023

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is