AI assistant
Syn — Earnings Release 2024
Jul 2, 2024
2210_rns_2024-07-02_d12b8f71-41f9-4eab-8f01-c9f67bb712e4.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Kauphallartilkynning
- júli 2024
sýn
Sýn hf.: Birting afkomuspár fyrir árið 2024 og áætlaðar rekstrarhorfur
Stjórn Sýnar hefur ákveðið að gefa út afkomuspá fyrir árið 2024
Samhliða birtingu ársuppgjörs Sýnar í febrúar var ákveðið að gefa ekki út afkomuspá fyrir yfirstandandi rekstrarár, meðal annars vegna ákveðinnar óvissu um framtíðareignarhald vefmiðla og útvarpsstöðva. Nú þegar þeirri óvissu hefur verið eytt, og mikilvægum áföngum hefur verið náð í rekstri, telur stjórn félagsins rétt að birta afkomuspá fyrir árið 2024.
Vegferð skilvirkni, vaxtar og samvinnu
Herdís Dröfn Fjeldsted var ráðin í stöðu forstjóra í janúar og hefur boðað vegferð umbreytinga undir merkjum skilvirkni, vaxtar og samvinnu.
Á fyrstu mánuðum ársins hefur skilvirkni innan samstæðu Sýnar aukist með samhentu átaki starfsmanna félagsins. Áður hefur verið tilkynnt um ýmis skilvirkniverkefni sem munu bæta reksturinn um 380 m.kr. á ársgrundvelli þegar þau verða að fullu komin fram. Jafnframt, í samræmi við yfirlýst markmið stjórnenda um að auka arðsemi samstæðunnar enn frekar, er útlit fyrir að heildarumfang fyrrgreindra og yfirstandandi skilvirkniverkefna, skili félaginu á ársgrundvelli 6-800 m.kr. og rekstrarhagnaði (EBIT) á bilinu 1.500-1.700 m.kr. Áhrifanna mun að mestu leyti gæta í afkomu ársins 2025. Þá er ljóst að nýlegur samningur félagsins um sýningarrétt á enska boltanum mun skila félaginu enn frekari ávinningi auk fyrirhugaðrar sölu á tilteknum viðskiptalausnum út úr Endor. Áfram verður leitað leiða til að auka skilvirkni innan félagsins enn frekar.
Afkomuspá og rekstrarmarkmið 2024
Stígandi verður í rekstrarhagnaði samstæðunnar á síðari hluta ársins eftir því sem ávinningur skilvirkniverkefna verður sýnilegri. Afkomuspá fyrir árið 2024 gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður (EBIT), án nokkurra leiðréttinga vegna einskiptiskostnaðarliða, verði 900-1.100 m.kr.
Það er þrennt sem þarf að hafa í huga þegar fyrri helmingur ársins 2024 er borinn saman við fyrra ár:
1) Farsímatekjur voru lægri á 1F 2024 og þá aðallega vegna svokallaðra IoT tekna líkt og fram kom í síðustu afkomutilkynningu, 2) afskriftir sýningarétta eru hraðari árið 2024 og 3) í rekstrarhagnaði (EBIT) ársins 2023 voru jákvæð áhrif tengd uppgjöri á samningsskuldbindingum við erlendan birgja að fjárhæð 529 m.kr., auk þess sem sjóðstreymi 2023 var lakara um 1.213 m.kr. vegna fyrrgreinds uppgjørs.
Félagið hefur áður upplýst um áhrif hraðari afskrifta sem eru jákvæð breyting til lengri tíma, en vert er að benda sérstaklega á það þegar afkoma og rekstrarmarkmið eru borin saman við fyrra ár.
Sjóðstreymi 2024
Lokagreiðsla vegna sölu Ljósleiðarans verður greidd í október næstkomandi auk þess sem boðaðar skilvirkniaðgerðir skila sér að fullu á í lok ársins. Skuldbindingar vegna erlendra efniskaupa annarra en íþróttaefnis hafa lækkað umtalsvert frá fyrra ári, auk þess sem ný forgangsröðun verkefna hefur verið samþykkt í framkvæmdastjórn félagsins. Sjóðsstreymi samstæðunnar mun þar af leiðandi taka töluvert jákvæðum breytingum í lok árs.
Fjárfestadagur fyrir markaðsaðila verður haldinn í nóvember þar sem lykilstjórnendur veita nánari innsýn inn í rekstur samstæðunnar.
Vinsamlegast beinið fyrirspurnum til fjárfestatengsla Sýnar á netfangið fjá[email protected]