AI assistant
Syn — Earnings Release 2024
Nov 13, 2024
2210_rns_2024-11-13_00a87aa9-ac85-44d7-b66e-e6605605252f.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
- nóvember 2024
Fréttatilkynning: Afkoma Sýnar hf. á fyrstu níu mánuðum ársins 2024.
Skýr fókus á kjarnastarfsemi og rekstrarbata
Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2024 var samþykktur á stjórnarfundi þann 13. nóvember 2024.
Rekstrarhagnaður (EBIT) á þriðja ársfjórðungi (3F) var 363 m.kr., samanborið við 590 m.kr. á fyrra ári. Hagnaður eftir skatta á 3F nam 17 m.kr. samanborið við 321 m.kr. hagnað á sama tímabili árið 2023. Skýrist þessi munur helst af minni tekjum af IoT þjónustu, hærra kostnaðarverði og hærri afskriftum sýningarrétta sem voru lægri á sama tíma í fyrra vegna endursamninga við birgja.
Þann 1. október var undirritaður kaupsamningur við Hexatronic um hluta af starfsemi Endor ehf., dótturfyritæki Sýnar hf. Viðmiðunardagur viðskiptanna var 20. september en hluti kaupverðsins var greiddur í byrjun október.
Skipurit Sýnar tók breytingum 1. nóvember. Tveir nýir stjórnendur taka sæti í framkvæmdastjórn en unnið er að ráðningu í stöðu framkvæmdastjóra Miðla og efnisveitna. Breytingarnar koma í kjólfar stefnumótunar félagsins og er ætlað að efla samvinnu, auka skilvirkni og styðja við velgengni og vóxt félagsins til framtíðar.
Árangur félagsins á þriðja ársfjórðungi ársins er í samræmi við forsendur afkomuspár fyrir árið 2024 sem félagið birti 2. júlí síðastliðinn og gerir ráð fyrir að rekstrarhagnaður (EBIT), án nokkurra leiðréttinga vegna einskiptisliða, verði á bilinu 900-1.100 m.kr.
Félagið er á réttri leið með að ná skilvirknimarkmiðum sínum um að skila 6-800 m.kr. í rekstrarbata á ársgrundvelli á síðari hluta ársins 2024. Rekstrarbatinn ætti að skila félaginu 1.500-1.700 m.kr. í rekstrarhagnað (EBIT) á árinu 2025 án tillits til annara verkefna sem koma inn á því ári. Nánar verður farið yfir horfur í rekstri félagsins á markaðsdegi Sýnar sem haldinn verður fimmtudaginn 14. nóvember kl. 12:00.
Helstu niðurstöður:
-
Heildartekjur á 3F 2024 voru 5.265 m.kr. samanborið við sama tímabil 2023 þar sem tekjur voru 5.382 m.kr. a.t.t.t. aflagðrar starfsemi Endor. Góð tekjuaukning hefur verið á kjarnastarfsemi félagsins þar sem tekjur af heimatengingum jukust um 12% og tekjur af farsímaáskriftum jukust um 13%. Vóxtur í auglýsingasölu á fjórðungnum var undir væntingum stjórnenda en auglýsingasala sjónvarps jókst þó um 51% á þriðja ársfjórðungi samanborið við sama tímabil í fyrra. Lækkun tekna milli samanburðartímabila skýrist að mestu vegna lækkunar í IoT tekjum og í hýsingar- og rekstrarlausnum (Endor). Á fyrstu níu mánuðum ársins voru tekjur félagsins 15.915 m.kr. samanborið við 15.873 m.kr. á sama tímabili í fyrra.
-
Rekstrarhagnaður (EBIT) á 3F var 363 m.kr. samanborið við 590 m.kr. í árið áður. Hagnaður eftir skatta var 17 m.kr. samanborið við 321 m.kr. hagnað á 3F 2023. Helstu ástæður lækkunar á rekstrarhagnaði eru samdráttur í IoT tekjum, hærra kostnaðarverð seldra vara og þjónustu og hærri afskriftir sýningarrétta.
vodafone
visir
SPORT
BYLGJAN
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
C2 restricted - External permitted
A
- Kostnadarverð seldrar þjónustu á 3F nam 3.539 m.kr. og jókst um 8,4% milli ára (3F 2023: 3.264 m.kr.) sem skýrist að mestu af hærri afskriftum sýningarrétta en afskriftir á þriðja ársfjórðungi 2023 voru lægri vegna endursamninga við erlendan birgja. Á ársfjórðungnum var lager af eldri símtækjum seldur með 67 m.kr. neikvæðri framlegð.
- Rekstrarkostnaður nam 1.527 m.kr. á 3F samanborið við 1.538 m.kr. á sama tímabili í fyrra en eignfærður launakostnaður undir rekstrarkostnaði lækkáði einnig um 51 m.kr. milli tímabila.
- Heildar fjárfestingar á 3F námu 1.062 m.kr. (3F 2023: 945 m.kr.) þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum 89 m.kr., fjárfestingar í óefnislegum eignum 194 m.kr. og að lokum fjárfestingar í sýningarréttum 778 m.kr. sem innihalda uppgjör við erlenda efnishafa vegna eldri viðskiptakrafna.
Efnahagur 30. september 2024:
Eigið fé í lok tímabilsins nam 9.891 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 29,7%.
Heildarskuldir félagsins voru 23.374 m.kr. í lok þriðja fjórðungs 2024. Vaxtaberandi langtímaskuldir námu 4.210 m.kr. en hreinar vaxtaberandi skuldir að viðbættum leiguskuldbindingum voru 19.073 m.kr. og veltufjárhlutfall 1,96.
Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri:
„Árangur félagsins á fyrstu 9 mánuðum ársins er í samræmi við útgefna afkomuspá fyrir árið 2024 sem við birtum 2. júli síðastliðinn en afkomuspá fyrir árið 2024 gerði ráð fyrir að rekstrarhagnaður (EBIT) yrði á bilinu 900–1.100 m.kr. án leiðréttinga vegna einskiptisliða. Við reiknum með að ná þessu markmiði en að niðurstaðan verði nær neðri mörkum sem gefin voru upp í afkomuspánni. Ástæður þess eru einna helst ákvarðanir sem teknar voru á fjórðungnum hvað varðar minnkandi eignfærslu launa og upphreinsun á eldri farsimalager í eigu félagsins. Félagið er einnig á réttri leið með að ná markmiðum sínum í skilvirkni en markmiðið er að skila 6–800 m.kr. í rekstrarbata á ársgrundvelli á síðari hluta ársins 2024 sem ætti að skila félaginu 1.500–1.700 m.kr. í rekstrarhagnað (EBIT) á árinu 2025 án annara verkefna sem koma inn á því ári. Við erum fullviss um að ná því markmiði einnig.
Eins og áður hefur komið fram hefur rekstrarniðurstaða félagsins verið lituð af of mikilli yfirbyggingu þar sem sameiningar fyrri ára hafa ekki verið að fullu innleiddar inn í rekstur félagsins. Nýir stjórnendur komu inn á þessu ári og höfum við notað tímann vel í að kynnast félaginu en ekki síður tekið metnaðarfullar ákvarðanir til framtiðar.
Gengið var frá sölu á hluta af starfsemi Endor í byrjun október og eftirstandandi starfsemi Endor verður nú sameinuð inn í Sýn hf. Einnig var hlutur félagsins í Parka Lausnum seldur á tímabilinu. Þetta eru liðir í stefnu félagsins þar sem lögð er áhersla á að styrkja kjarnastarfsemi til framtiðar og skerpa á stefnu.
Í byrjun nóvember tilkynntum við um breytingu á skipuriti félagsins þar sem tveir nýir stjórnendur taka sæti í framkvæmdastjórn, þeir Guðmundur H. Björnsson sem mun leiða nýtt svið Upplifunar viðskiptavina og Gunnar Sigurjónsson sem mun taka við Upplýsingatæknisviðinu af Gunnari Guðjónssyni. Gunnar Guðjónsson hefur stigið inn í nýtt hlutverk sem framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu. Auk þess hefur Sigurbjörn Eiriksson tekið sæti í framkvæmdastjórn en hann hefur veitt Innviðum Sýnar forstöðu síðustu ár. Unnið er að ráðningu framkvæmdastjóra Miðla og efnisveitna og stefnt að því að ljúka því ferli í nóvember. Skipuritið endurspeglar
O vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
2020
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
C2 restricted - External permitted
A
aherslur félagsins í þeim verkefnum sem framundan eru og mun hjálpa okkur að ná enn betri árangri í þjónustu við viðskiptavini og styrkja rekstrargrundvöll félagsins til framtiðar.
Ég er þess fullviss um að ný áhersla okkar og átak í djúpri samþættingu og einföldun innan Sýnar muni leggja grunninn að sjálfðærum langtima hagnaði og vexti. Við höfum unnið markvisst að mótun nýrrar stefnu Sýnar síðustu mánuði þar sem helstu drifkraftar eru skilvirkni, växtur og samvinna og litum björtum augum til framtiðar.
Við munum fara yfir fyrsta áfangann í umbreytingarferlinu sem felst í að leggja fram framtiðarsýn sem sameinað fyrirtæki á Markaðsdegi Sýnar fimmtudaginn 14. nóvember."
Fjárhagsdagatal 2024:
- Afkoma 4F og ársuppgjör 2024
- febrúar 2025
- Aðalfundur 2025
- mars 2025
Markaðsdagur Sýnar 14. september 2024:
- Markaðsdagur Sýnar verður haldinn fimmtudaginn 14. nóvember í myndveri félagsins að Suðurlandsbraut 10, Reykjavík. Viðburðurinn stendur frá 12:00 til kl. 16:00. Við bjóðum gesti velkomna í sal en skráning fer fram á vef Sýnar. Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í beinu streymi, en vefslóðin verður birt hér: https://syn.is/fjarfestatengsl/arshlutareikningar.
- Tekið er á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið [email protected].
- Nánari upplýsingar má nálgast á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
O vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
C2 restricted - External permitted