AI assistant
Syn — Earnings Release 2023
May 10, 2023
2210_rns_2023-05-10_30e5d1f4-c015-48e5-9fc1-44a8cece997b.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
vodafone
- mai 2023
Fréttatilkynning: Afkoma Sýnar hf. á fyrsta fjórðungi ársins 2023.
Áframhaldandi rekstrarbati í krefjandi umhverfi
Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2023 var sambykktur á stjórnarfundi þann 10. mai 2023.
Rekstrarhagnaður (EBIT) Sýnar hf. nam 428 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2023 og eykst um 6,7% á milli ára.
Ágætur tekjuvöxtur á milli ára þrátt fyrir sterkan samanburðarfjórðung árið 2022.
Hagnaður eftir skatta nam kr. 213 m.kr. samanborið við 207 m.kr. á sama tímabili árið 2022.
Afkomuspá fyrir árið er óbreytt þar sem gert er ráð fyrir að rekstrarhagnaður (EBIT) nemi 2.200 til 2.500 m.kr.
Vænta má niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins vegna kaupa Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar í sumar. Umsamið kaupverð er kr. 3.000 m.kr.
Sýn hf. hefur náð samkomulagi um kaup á öllu hlutafé Eignarhaldsfélagsins Njálu, móðurfélagi Já hf., sem rekur vefsíðuna ja.is og eru þau viðskipti til meðhöndlunar hjá Samkeppniseftirlitinu.
Á fjórðungnum var ákveðið að skila samtals 1.211 m.kr. til hluthafa félagsins.
Helstu niðurstöður:
- Tekjur á fyrsta ársfjórðungi (1F) 2023 námu 5.860 m.kr. samanborið við 5.682 m.kr. á sama tímabili árið 2022. Því er um áframhaldandi bata í kjarnarekstri að ræða en fyrsti fjórðungur 2022 einkenndist af óreglulegum tekjum.
- Rekstrarhagnaður (EBIT) á 1F nam 428 m.kr. og eykst um 6,7% miðað við sama tímabil í fyrra. Hagnaður eftir skatta nam 213 m.kr. en var 207 m.kr. í fyrra.
- Handbært fé frá rekstri á fyrsta fjórðungi nam 921 m. kr. samanborið við 1.107 m.kr. á 1F 2022.
- Hærri birgðastaða skýrist af endurflokkun og óvenjulegum magninnkaupum. Birgðastaðan mun lækka þegar líður á árið.
- Heildarfjárfestingar á 1F 2023 námu 1.120 m.kr. þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 559 m.kr. á móti 285 m.kr. á 1F árið 2022 og skýrist hækkun á milli ára að miklu leyti af fjárfestingu í 5G uppbyggingu. Fjárfestingar í sýningarréttum voru 561 m.kr. á 1F 2023 samanborið við 531 m.kr. á sama tímabili árið 2022. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
K
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
sýningarréttum eru frambungar á árinu, en gera má ráð fyrir að um þriðjungi fjárfestinga ársins í varanlegum rekstrarfjármunum sé lokið og að hægist á fjárfestingum er líður á árið.
- Fjármögnunarhreyfingar eru neikvæðar um 1.259 m.kr. á móti 2.402 m.kr. á sama tímabili árið 2022. Inni í fjármögnunarhreyfingum á 1F 2023 eru m.a. kaup á eigin bréfum að fjárhæð 930 m.kr.
- Þann 20. desember 2022 undirrituðu Sýn hf. og Ljósleiðarinn ehf. samning um kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar og langtíma þjónustusamning milli félaganna. Samningsgreiðsla verður innt af hendi í áföngum og fjárhæð að fullu greidd eigi síðar en 12 mánuðum frá afhendingu hinna seldu eigna. Umsamið kaupverð er 3.000 m.kr. og hinar seldu eignir eru bókfærðar á 564 m.kr. Sóluhagnaður er því 2.436 m. kr. og mun bókfærast að fullu við afhendingu. Viðskiptin eru til meðhöndlunar hjá Samkeppniseftirlitinu. Gert er ráð fyrir að viðskiptin hafi jákvæð áhrif á rekstrarkostnað Sýnar um 100 m.kr. nettó á ári. Þá lækki árleg fjárfestingapörf í kringum 120 m.kr. yfir samningstímann.
- Væntingar eru um aukinn ferðamannafjölda til Íslands í sumar sem koma til með að skila félaginu tekjuaukningu vegna reikisamninga er líður á árið.
- Miklar breytingar urðu á auglýsingamarkaði á ársfjörðungnum með brotthvarfi Fréttablaðsins. Ráðist hefur verið í aðgerðir á miðlum Sýnar sem miða að því að auka hlutdeild félagsins á auglýsingamarkaði.
- Góður árangur ráðist í endursamningum við erlenda birgja. Samningar leiða til lægri afskrifta á árinu. Viðskiptaskuldir lækka af sömu ástæðu.
- Góður gangur var í starfsemi Endor á fjörðungnum og hefur félagið aukið hlutdeild sína á innlendum upplýsingatæknimarkaði á undanförnum misserum.
- Á fjörðungnum var ákveðið að skila samtals 1.211 m.kr. til hluthafa félagsins. Regluleg endurkaup voru í gangi í upphafi árs og til viðbótar var framkvæmt öfugt útboð 17. – 19. febrúar þar sem félagið keypti hluti fyrir 800 m.kr. Á aðalfundi 17. mars var samþykkt tillaga stjórnar um að lækka hlutafé í samræmi við fjölda eigin hluta. Lækkunin var framkvæmd 19. apríl. Á aðalfundi var einnig samþykkt arðgreiðsla að fjárhæð 300 m.kr. Að teknu tilliti til eigin bréfa var greiðsla að fjárhæð 281 m.kr. innt af hendi þann 5. apríl.
Yngvi Halldórsson, forstjóri:
„Rekstrarhagnaður (EBIT) hækkar um 7% á milli ára þrátt fyrir krefjandi samkeppnisaðstæður á öllum okkar mörkuðum. Við sjáum heilbrigðan tekjuvöxt en samanburðarfjörðungurinn var mjög sterkur vegna óreglulegra farsímatekna á síðasta ári. Áhersla okkar á aðhald í rekstri sem birtist m.a. í hagræðingaraðgerðum sem ráðist var í síðastliðið haust hafa gert okkur kleift að halda rekstrarkostnaði stöðugum þrátt fyrir margvíslegar áskoranir í umhverfinu. Þá náðum við góðum árangri í samningum við lykilbrigja sem hefur jákvæð áhrif á rekstur okkar á árinu. Niðurstaða fjörðungsins er því samkvæmt áætlun.
Við höldum áfram ótrauð á þeirri umbreytingavegferð sem mörkuð hefur verið. Mjög góður og stöðugur árangur er á fyrirtækjamarkaði og nýjar áherslur í markaðsmálum eru farnar að líta dagsins ljós. Við væntum mikils af markaðssökn félagsins. Þar er stóra verkefnið að auka markaðshlutdeild Vodafone á fjárskiptamarkaði heimila.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
K
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
Við erum með tvö mál í meðferð hjá Samkeppniseftirlitinu. Vænta má niðurstöðu vegna sölu á stofnneti okkar til Ljósleiðarans og Já í sumar. Já er spennandi viðbót í starfsemi og þjónustuframboði Sýnar. Miklir möguleikar fylgja öflugum lausnum og starfsfólki Já. Ekki síst nú þegar tækifæri eru til að nýta sér breytingar á auglýsingamarkaði.
Afkomuspá ársins er óbreytt en áfram eru mikil tækifæri í öllum rekstrareiningum Sýnar og munum við kynna ýmsar nýjungar í vöruframboði og lausnum á næstu mánuðum."
Efnahagur 31. mars 2023:
Eigið fé í lok tímabilsins nam 8.454 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 26,1%.
Heildarskuldir félagsins voru 23.994 m.kr. í lok fyrsta fjórðungs 2023. Vaxtaberandi langtímaskuldir námu 4.704 m.kr. en hreinar vaxtaberandi skuldir að viðbættum leiguskuldbindingum voru 17.546 m.kr. og veltufjárhlutfall 1,2.
Fjárhagsdagatal 2023:
- Afkoma 2F 2023 30. ágúst 2023
- Afkoma 3F 2023 8. nóvember 2023
- Afkoma 4F og ársuppgjör 2023 21. febrúar 2024
- Aðalfundur 15. mars 2024
Frekari upplýsingar
- Eftir breytingar á lögum um upplýsingaskyldu skráðra félaga verður ekki fjárfestafundur til að kynna uppgjör 1F 2023. Næsti fjárfestafundur verður haldinn 30. ágúst 2023 en fjárfestar geta sent fyrirspurn á fjá[email protected] eða óskað eftir fundi.
- Nánari upplýsingar má nálgast á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjárfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
KÝT
X
O
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is