AI assistant
Syn — Earnings Release 2023
Aug 29, 2023
2210_rns_2023-08-29_dc40ac82-006d-46e6-81ec-7fec5043f555.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
- ágúst 2023
Fréttatilkynning: Afkoma Sýnar hf. á fyrri helmingi ársins 2023.
Rekstrarhagnaður Sýnar nam 1.002 m.kr. á fyrri helmingi árs
Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2023 var sambykktur á stjórnarfundi þann 29. ágúst 2023.
Rekstrarhagnaður (EBIT) Sýnar hf. nam 1.002 m.kr. á fyrstu sex mánuðum ársins 2023 og eykst um 39% á milli ára. Rekstrarhagnaður á öðrum ársfjörðungi var 574 m.kr., samanborið við 322 m.kr. á fyrra ári.
Hagnaður eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins nam 483 m.kr. samanborið við 273 m.kr. á sama tímabili árið 2022.
Vænta má niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins vegna kaupa Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar ekki síðar en 28. september. Umsamið kaupverð er kr. 3.000 m.kr.
Sölutorgið Bland.is var nýverið keypt. Í október má búast við niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins vegna kaupa á öllu hlutafé Eignarhaldsfélagsins Njálu, móðurfélagi Já hf., sem rekur vefsíðuna ja.is. Með kaupunum á Já og Bland verður til ný tekjustoð í rekstri Sýnar, verslun og vöruleit, auk þess sem auglýsingaplássum á vefmiðlum Sýnar fjölgar til muna.
Afkomuspá vegna ársins 2023 er óbreytt, EBIT 2.200 m.kr. til 2.500 m.kr. án einskiptishagnaðar vegna sölu stofnnets.
Helstu niðurstöður:
- Tekjur á fyrstu sex mánuðum ársins voru 11.493 m.kr. samanborið við 11.691 m.kr. á sama tímabili í fyrra. Tekjur af reglulegri starfsemi jukust um 6,5% á milli tímabila. Góður vöxtur var í auglýsingasölu, einkum hjá vef- og útvarpsmiðlum, og einnig í reiki. Fyrri helmingur 2022 einkenndist af óreglulegum tekjum í fjarskiptum og búnaðarsölu hjá Endor.
- Rekstrarhagnaður (EBIT) á 2F nam 574 m.kr. samanborið við 322 m.kr. á 2F 2022. Hagnaður eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins nam 483 m.kr. og eykst um 77% á milli ára.
- Rekstrarkostnaður hélst stöðugur þrátt fyrir áskoranir í ytra umhverfi s.s. verðbólga og launahækkanir á almennum vinnumarkaði. Lækkandi kostnaður við erlenda sýningarrétti, auk samninga við lykilbirgja valda umtalsverðu hagræði í afskriftum á rekstrarreikningi.
- Heildar fjárfestingar á fyrstu sex mánuðum ársins 2023 námu 2.220 m.kr. þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 1.245 m.kr. og fjárfesting í sýningarréttum 975 m.kr.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
C2 restricted - External permitted
C2 restricted - External permitted
- Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins vegna kaupa Ljósleiðarans á stofneti Sýnar er væntanleg ekki síðar en 28. september. Umsamið kaupverð er 3.000 m.kr. og gert er ráð fyrir að viðskiptin hafi jákvæð áhrif á rekstarkostnað Sýnar um 100 m.kr. nettó á ári. Þá lækki árleg fjárfestingabörf í kringum 120 m.kr. yfir samningstímann. Áhrif á rekstur og fjárfestingar koma fram að fullu á árinu 2024.
- Á fyrri hluta ársins voru framkvæmd kaup á eigin bréfum fyrir 930 m.kr. í öfugu útboði og samkvæmt reglulegri endurkaupaáætlun. Arðgreiðsla til hluthafa var innt af hendi í apríl að fjárhæð 281 m.kr.
- Skrifað var undir kaupsamning á rekstri Já í febrúar á þessu ári. Áætlað að með kaupunum muni velta félagsins aukast um rúmlega 500 m.kr. á ári og EBITDA aukast um kringum 70 m.kr. án tillits til samlegðaráhrifa.
- Víðtækur samstarfssamningur var undirritaður við Viaplay sem felur í sér einkarétt á vondli Viaplay við vörur Vodafone og Stöðvar 2.
- Rekstur Endor hefur verið sterkur á árinu og í takt við væntingar. Lækkun í tekjum á öðrum ársfjörðungi skýrist af gegnumstreymis tekjum vegna erlendra verkefna á sama tíma í fyrra. EBIT félagsins á fyrri helmingi ársins hefur hækkað um rúm 50% frá fyrra ári. Væntingar eru um áframhaldandi stíganda í þjónustutekjum á síðari helmingi árs, auk umtalsverðrar vörusölu.
Yngvi Halldórsson, forstjóri:
„Rekstrarhagnaður heldur áfram að vaxa í takt við áætlanir. Við sjáum líka ágætan takt í tekjum í kjarnastarfsemi þótt beinn samanburður sé erfiður við fyrra ár vegna óreglulegra tekna. Einkar ánægjulegt er að sjá sterkan tekjuvöxt og framlegðaraukningu í auglýsingatekjum og reiki, auk þess að áfram er góður gangur í fjarskiptum fyrirtækja.
Við höfum undanfarið gert mjög góða samninga sem munu styrkja félagið þegar fram líða stundir. Í fyrirtækjakaupum þá keyptum við Já en sá samruni er í meðhöndlun hjá SKE. Einnig keyptum við sölutorgið Bland.is sem við höfum nú þegar fengið afhent. Við sjáum mikil tækifæri í auglýsingum og annarri þjónustu á vefmiðlum og eru þessi kaup liður í því.
Við gerðum tímamótasamning við Viaplay og með þeim samningi er Vodafone með einkarétt á sölu á Viaplay vörunum í vondli við aðrar vörur. Með þessu erum við meðal annars að einfalda líf sport áhugamanna með lækkun á heildarkostnaði heimila.
Nú í ágúst setti Vodafone í loftið fjölbreytta fjarskipta- og afþreyingarpakka sem henta öllum gerðum af heimilum. Viðtökur viðskiptavina hafa verið mjög góðar og er stefnan sett á aukningu í markaðshlutdeild í kjarnastarfsemi á næstu mánuðum.“
Efnahagur 30. júní 2023:
Eigið fé í lok tímabilsins nam 8.724 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 27%.
Heildarskuldir félagsins voru 23.667 m.kr. í lok annars fjörðungs 2023. Vaxtaberandi langtímaskuldir námu 4.623 m.kr. en hreinar vaxtaberandi skuldir að viðbættum leiguskuldbindingum voru 17.899 m.kr. og veltufjárhlutfall 1,31.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
669
X
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
Fjárhagsdagatal 2023:
✓ Afkoma 3F 2023
8. nóvember 2023
✓ Afkoma 4F og årsuppgjør 2023
21. februar 2024
✓ Adalfundur
15. mars 2024
Kynningarfundur 30. ágúst 2023 á Hilton Reykjavík Nordica:
- Opinn kynningarfundur vegna uppgjørsins verður haldinn miðvikudaginn 30. ágúst kl. 8.30 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í beinu streymi, en vefslóðin verður birt hér: https://syn.is/fjarfestatengsl/arshlutareikningar.
- Tekið er á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjä[email protected].
- Nánari upplýsingar má nálgast á síðu fjärfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
vodafone
visir
SPORT
BYLGJAN
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
C2 restricted - External permitted