Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Earnings Release 2023

Nov 8, 2023

2210_rns_2023-11-08_8492b1a5-2e9a-4f81-8eb9-dc1788c58f27.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

  1. nóvember 2023

Fréttatilkynning: Afkoma Sýnar hf. á fyrstu níu mánuðum ársins 2023.

Mikilvægum áföngum lokið

Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2023 var samþykktur á stjórnarfundi þann 8. nóvember 2023.

Rekstrarhagnaður (EBIT) Sýnar hf. nam 1.594 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins 2023 og jókst um 32% á milli ára. Rekstrarhagnaður á þriðja ársfjórðungi (3F) var 592 m.kr., samanborið við 486 m.kr. á fyrra ári.

Hagnaður eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins nam 804 m.kr. samanborið við 454 m.kr. á sama tímabili árið 2022.

Kaup Ljósleiðarans á stofnneti Sýnar voru samþykkt af Samkeppniseftirlitinu og fór afhending fram 4. október. Fyrsta kaupsamningsgreiðslan barst samdægurs. Umsamið kaupverð er 3.000 m.kr. og verður áæltaður söluhagnaður upp á rúmlega 2.400 m.kr. bókfærður að fullu á fjórða ársfjórðungi 2023.

Gengið var frá kaupum á Já.is í byrjun október. Ný rekstrareining verður í kjölfarið sett á laggirnar innan Sýnar, "Vefmiðlar og útvarp". Innan nýju rekstrareiningarinnar verða allar fjölmiðlaeiningar Sýnar utan Stöðvar 2. Pá bælast við Já.is, Bland og tengd vörumerki. Gert er ráð fyrir að árlegar tekjur hinnar nýju rekstrareiningar nemi um 3.000 m.kr. Samþætting Já og tengdra eininga við vefmiðla og útvarpstöðvar Sýnar mun styrkja vöruframboð verulega og auka auglýsingapláss á vefmiðlum. Stöð 2 verður þá sjálfstæð rekstrareining með áherslu á áskriftartekjur og innlenda dagskrárgerð. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar mun starfa þvert á þessar einingar.

Regluleg endurkaup eigin bréfa ákveðin, að hámarki 300 m.kr.

Afkomuspá vegna ársins 2023 er óbreytt, EBIT 2.200 m.kr. til 2.500 m.kr.

Helstu niðurstöður:

  • Heildartekjur á 3F 2023 voru 5.730 m.kr. samanborið við 5.501 m.kr. á 3F 2022. Öflugur tekjuvöxtur var af auglýsingasölu og hjá Endor. Hóflegur vöxtur var í flestum öðrum reglulegum tekjustraumum. Vörusala og aðrar óreglulegar tekjur lækkuðu á milli ársfjórðunga. Tekjur á fyrstu níu mánuðum ársins voru 17.222 m.kr. samanborið við 17.192 m.kr. á sama tímabili í fyrra, en að teknu tilliti til óreglulegra liða nam tekjuaukning 5,6%.
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) á 3F nam 592 m.kr. samanborið við 486 m.kr. á 3F 2022. Hagnaður eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins nam 804 m.kr. og jókst um 77% á milli ára.

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is

C2 restricted - External permitted


A

  • Rekstrarkostnaður hélst stöðugur þrátt fyrir áskoranir í ytra umhverfi s.s. verðbólgu og launahækkanir á almennum vinnumarkaði. Lækkandi kostnaður við erlenda sýningarrétti, auk hagstæðra samninga við lykilbirgja valda umtalsverðu hagræði í afskriftum í rekstrarreikningi.
  • Heildar fjárfestingar á fyrstu níu mánuðum ársins 2023 nám 3.166 m.kr. þar af voru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 1.656 m.kr. og fjárfesting í sýningarrétum 1.510 m.kr.
  • Kaup Ljósleiðarans á stofneti Sýnar voru samþykkt af Samkeppniseftirlitinu og fór afhending fram þann 4. október. Bókun á söluhagnaði vegna viðskiptanna fer fram í fjörða ársfjörðungi 2023. Umsamið kaupverð er 3.000 m.kr. og er gert ráð fyrir að viðskiptin hafi jákvæð áhrif á rekstrarkostnað Sýnar um 100 m.kr. nettó á ári. Þá lækki árleg fjárfestingabörf í kringum 120 m.kr. yfir samningstímann. Áhrif á rekstur og fjárfestingar koma fram að fullu á árinu 2024.
  • Gengið var frá kaupum á Já þann 13. október 2023, eftir samþykki á viðskiptunum frá Samkeppniseftirlitinu. Áætlað er að með kaupunum muni velta Sýnar aukast um rúmlega 500 m.kr. á ári og EBIT aukast um 60 m.kr. án tillits til samlegðaráhrifa.
  • Í framhaldi af kaupunum á Já verður ný rekstrareining sett á laggirnar, „Vefmiðlar og útvarp“. Þar undir falla reksturinn á Vísi og tengdum vefsíðum, reksturinn á Bylgjunni og öðrum útvarpsstöðvum auk hlaðvarpsveitunnar Tal ásamt Já.is, Bland og tengdum vörumerkjum. Stöð 2 verður sjálfstæð rekstrareining með áherslu á áskriftartekjur og innlenda dagskrárgerð. Þessi skipulagsbreyting er hluti af vegferð félagsins að auka hagræði og um leið sjálfstæði, skerpa á sýnileika og skilgreina ábyrgð hverrar rekstrareiningar, sem eftirleiðis verða: Vodafone, Stöð 2, Vefmiðlar og útvarp, Innviðir og Endor.
  • Fyrstu landsleikir framleiddir af Sýn í samstarfi við Viaplay voru sýndir á fjörðungnum í opinni dagskrá. Í ljósi góðrar reynslu verða komandi landsleikir áfram í opinni dagskrá.
  • Afkomuspá vegna ársins 2023 er óbreytt, EBIT 2.200 m.kr. til 2.500 m.kr. Samkvæmt mati stjórnenda má búast við að niðurstaðan verði nær neðri mörkum.

Páll Ásgrímsson, forstjóri:

„Rekstrarhagnaður heldur áfram að aukast frá fyrra ári og góður taktur er í tekjum af kjarnastarfsemi. Auglýsingatekjur eru í góðum vexti og eins gengur vel hjá dótturfélaginu okkar Endor.

Í byrjun október áttu sér stað mikilvægir áfangar með afhendingu á stofnneti Sýnar til Ljósleiðarans ásamt því að formlega var gengið frá kaupum á Já. Með kaupunum á Já og sölutorginu Bland.is sjáum við mikil tækifæri í auglýsingum og annarri þjónustu til að styrkja stöðu okkar enn frekar á þeim markaði. Við höldum áfram á þeirri vegferð að skerpa á tekjuskapandi rekstrareiningum og skiptum fjölmiðlunum upp í tvær sjálfstæðar rekstrareiningar, Vefmiðla og útvarp annars vegar og Stöð 2 hins vegar. Undir Vefmiðla og útvarp fellur rekstur Vísis og tengdra vefsíða, rekstur Bylgjunnar og annarra útvarpsstöðva, auk hlaðvarpsveitunnar Tal ásamt Já.is, Bland og tengdra vörumerkja. Stöð 2 heldur áfram að sýna gæðaefni með áherslu á innlenda framleiðslu og íþróttaefni. Fréttastofan starfar þvert á þessar einingar.

O vodafone

VÍSIR

SPORT

BYLGJAN

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is

C2 restricted - External permitted


C2 restricted - External permitted

Mun Vilborg Helga Harðardóttir stýra rekstri Vefmiðla og útvarps og Eva Georgs Ásudóttir rekstri Stöðvar 2. Erla Björg Gunnarsdóttir stýrir áfram fréttastofu Vísis, Stöðvar 2, og Bylgjunnar.

Viðtökur við fjölbreyttum fjarskipta- og afbreyingarpökkum sem voru settir í loftið í ágúst hafa verið góðar og sjáum við jákvæða bróun í fjöldatölum. Þá sýna nýjustu kannanir að Vodafone er í auknum mæli fyrsta val viðskiptavina, auk þess sem ánægja með þjónustuna er á uppleið. Til að styrkja enn frekar þjónustu framboð sitt hefur Vodafone kynnt nýja þjónustu, Snjallheimsókn, sem hefur mælst afar vel fyrir.

Á síðasta fjórðungi ársins verður gríðarlega margt spennandi í gangi hjá Stöð 2. Má þar nefna 2. seríu af Idol, sýningu á landsleikjum í opinni dagskrá, ásamt fjölbreyttu efni m.a. í gegnum Viaplay samning okkar."

Efnahagur 30. september 2023:

Eigið fé í lok tímabilsins nam 9.049 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 28%.

Heildarskuldir félagsins voru 23.269 m.kr. í lok þriðja fjórðungs 2023. Vaxtaberandi langtímaskuldir námu 4.542 m.kr. en hreinar vaxtaberandi skuldir að viðbættum leiguskuldbindingum voru 17.940 m.kr. og veltufjárhlutfall 1,37.

Fjárhagsdagatal 2023:

  • Afkoma 4F og ársuppgjör 2023
  • Aðalfundur

  • febrúar 2024

  • mars 2024

Kynningarfundur 9. nóvember 2023:

  • Opinn kynningarfundur vegna uppgjørsins verður haldinn fimmtudaginn 9. nóvember kl. 8.30 í húsnæði félagsins að Suðurlandsbraut 8, Reykjavík. Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í beinu streymi, en vefslóðin verður birt hér: https://syn.is/fjarfestatengsl/arshlutareikningar.
  • Tekið er á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjá[email protected].
  • Nánari upplýsingar má nálgast á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjárfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

vodafone

visir

SPORT

BYLGJAN

689

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is