AI assistant
Syn — Earnings Release 2022
May 11, 2022
2210_rns_2022-05-11_80f164fa-ee5f-4cc0-9532-24735bcd9547.pdf
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
vodafone
- mai 2022
Fréttatilkynning: Afkoma Sýnar hf. á fyrsta fjórðungi ársins 2022.
Góður innri tekjuvöxtur á milli ára
Árshlutareikningur samstæðu Sýnar hf. fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2022 var sambykktur á stjórnarfundi þann 11. mai 2022.
Helstu niðurstöður:
- Tekjur á fyrsta ársfjórðungi (1F) 2022 námu 5.682 m.kr. og eru að aukast um 682 m.kr. frá sama tímabili árið 2021.
- EBITDA nam 1.710 m.kr. á 1F 2022 samanborið við 1.388 m.kr. á sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið var 30,1% á 1F 2022 samanborið við 27,8% á 1F 2021. Rekstrarkostnaður hefur ekki hækkað í takt við þróun verðlags vegna kostnaðaraðhalds en framlegð hefur jafnframt aukist á tímabilinu.
- Hagnaður á 1F 2022 nam 207 m.kr. samanborið við 231 m.kr. tap á sama tímabili í fyrra. Á fyrsta ársfjórðungi 2021 var fært tap af sölu færeyska hlutdeildarfélagsins Hey að fjárhæð 189 m.kr.
- Handbært fé frá rekstri á fjórðungnum nam 1.107 m.kr. samanborið við 542 m.kr. á sama tímabili árið áður, sem er hækkun um 104%.
- Heildarfjárfestingar á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022 námu 819 m.kr. þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 285 m.kr. og fjárfesting í sýningarréttum 531 m.kr.
- Fjármögnunarhreyfingar á fyrsta ársfjórðungi voru neikvæðar um 2.402 m.kr. á móti 320 m.kr. á sama tímabili árið 2021 sem er 2.082 m.kr. hækkun sem skýrist að mestu af kaupum á eigin bréfum.
- Eiginfjárhlutfall félagsins var 27,2% í lok fyrsta fjórðungs ársins 2022.
- Í ársbyrjun 2022 ákvað stjórn að setja í gang endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Endurkaupaáætlunin hófst með öfugu útboði þann 7. janúar sem lauk 9. janúar. Til viðbótar voru sett í gang regluleg endurkaup sem stóðu yfir frá 13. janúar til 3. mars. Félagið keypti í heild 28.064.512 hluti eða 9,47% af útgefnu hlutafé fyrir 1.860 m.kr.
- Á aðalfundi félagsins þann 18. mars var sambykkt tillaga stjórnar um að lækka hlutafé í samræmi við fjölda eigin hluta. Lækkunin var framkvæmd þann 12. apríl og eru útgefnir hlutir í félaginu 268.376.962 eftir lækkunina.
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
K
O
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
^{}[]
Helstu niðurstöður í rekstri 1F 2022
| 1F 2022 | 1F 2021 | Br. | % Br. | |
|---|---|---|---|---|
| Seldar vörur og þjónusta | 5.682 | 5.000 | 682 | 13,6% |
| Kostnaðarverð | -3.666 | -3.375 | -291 | 8,6% |
| Framlegð | 2.016 | 1.625 | 391 | 24,1% |
| Rekstrarkostnaður | -1.615 | -1.583 | -32 | 2,0% |
| EBITDA | 1.710 | 1.388 | 322 | 23,2% |
| EBIT | 401 | 42 | 359 | 855% |
| Hrein fjármagnsgjöld | -142 | -93 | -49 | 53% |
| Áhrif hlutdeildarfélaga | 0 | -193 | 193 | -100% |
| Tekjuskattur | -52 | 13 | -65 | -500% |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | 207 | -231 | 438 | - |
| Framlegð | 35,5% | 32,5% | ||
| --- | --- | --- | ||
| EBITDA | 30,1% | 27,8% | ||
| EBIT | 7,1% | 0,8% |
- Fjárhæðir eru í milljónum króna
Heiðar Guðjónsson, forstjóri:
„Það er ánægjulegt að segja frá því að innri tekjuvöxtur er 14% á milli ára. Við höfum haldið aftur af rekstrarkostnaði, sem hækkar minna en verðlag, og því eykst rekstrarhagnaður af reglulegri starfsemi (EBIT) um 359 m.kr. Við skilum ríflega 200 m.kr. hagnaði af reglulegri starfsemi á fyrstu 3 mánuðum ársins.
Vegna árstíðarsveiflu í rekstri fyrirtækisins eykst afkoman jafnan þegar líða tekur á árið. Ofan á það bætist fyrirsjáanlegur vöxtur í starfseminni vegna bættrar þjónustu, nýs vöruframboðs og uppbyggingar 5G og tengdrar tækni. Við erum því á góðri leið með að ná afkomu af reglulegri starfsemi upp í 100 m.kr. á mánuði að meðaltali yfir árið. Frjálst fjárflæði er einnig mjög sterkt og eykst um 603 m.kr. á tímabilinu.
Ýmsir þættir rekstrar sem fóru úr skorðum vegna COVID koma nú jákvæðir inn í rekstur þegar líða tekur á árið. Við sjáum strax aukningu tekna hjá Endor, aukningu í reiki, auk þess sem auglýsingasala er á góðri uppleið.
Hvað varðar fjölmiðlarekstur þá eru auglýsingar í fyrsta skipti uppseldar á Vísi á tímabili fyrsta ársfjörðungs. Útvarpsrekstur gengur vel og einnig er vöxtur í kringum sjónvarpsrekstur en erlendis hafa minni samkomutakmarkanir haft neikvæð áhrif á rekstur tengdum sjónvarpi.
Við skiluðum um 2 milljörðum til hluthafa á fyrsta fjörðungi ársins í gegnum endurkaup á eigin hlutabréfum og stefnum á að gera meira af því á þessu ári.
vodafone
^{}[]
vísir
^{}[]
SPORT
BYLGJAN
^{}[]
X
^{}[]
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
Eftir breytingar á lögum um upplýsingaskyldu skráðra félaga þá höldum við ekki sérstakan fund í kringum þetta uppgjör. Við verðum með ítarlegar kynningar í kringum hálfsárs- og ársuppgjör. Eins og áður er hægt að senda okkur spurningar eða óska eftir fundi."
Rekstrarafkoma á 1. ársfjörðungi 2022:
Tekjur félagsins á 1F 2022 námu 5.682 m.kr. samanborið við 5.000 m.kr. árið 2021.
Tekjur af fjölmiðlun námu 2.107 m.kr. á 1F 2022 og hækkuðu um 151 m.kr. miðað við fyrsta fjörðung ársins 2021. Tekjur af interneti námu 1.122 m.kr. á 1F 2022, sem er 2% lækkun á milli ára. Tekjur af farsíma námu 1.401 m.kr. og hækkuðu um 462 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2021. Tekjur af fastlínu námu 129 m.kr. á 1F 2022 og lækkuðu um 8% á milli ára. Tekjur vegna hýsingar- og rekstrarlausna sem er kjarnastarfsemi Endor ehf. námu 465 m.kr. á 1F 2022 samanborið við 313 m.kr. á sama tímabili árið 2021, en það er hækkun um 49%. Tekjur af vörusölu námu 274 m.kr. á tímabilinu sem er 6% lækkun miðað við sama ársfjörðung 2021. Aðrar tekjur námu 184 m.kr. á 1F 2022 sem er lækkun um 14% á milli ára.
Kostnaðarverð nam 3.666 m.kr. og hækkaði um 9% á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 1.615 m.kr. og er 2% hærri en á sama tímabili árið 2021. EBITDA tímabilsins nam 1.710 m.kr. og hækkar um 322 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2021. EBITDA hlutfall fyrsta ársfjörðungs var 30,1% samanborið við 27,8% á 1F 2021.
Hrein fjármagnsgjöld námu 142 m.kr. á 1F 2022 sem er hækkun um 49 m.kr. á milli tímabila. Gengismunur var jákvæður um 58 m.kr. á 1F 2022 samanborið við 46 m.kr. á 1F 2021. Hækkun vaxtagjalda kemur til vegna hærri leiguskuldbindinga í kjölfarið af innviðasölu. Hækkun stýrivata vegur á móti lækkun vaxtagjalda vegna lægri skuldsetningar.
Á fyrsta ársfjörðungi 2021 var fært tap af sölu færeyska hlutdeildarfélagsins Hey að fjárhæð 189 m.kr.
Hagnaður á 1F 2022 nam 207 m.kr. samanborið við 231 m.kr. tap á sama tímabili í fyrra.
Sjóðstreymi 1. ársfjörðungs 2022:
Handbært fé frá rekstri á 1F ársins 2022 var 1.107 m.kr. sem er 104% hækkun frá fyrra ári.
Fjárfestingahreyfingar námu 819 m.kr. á 1F 2022.
Fjármögnunarhreyfingar félagsins námu 2.402 m.kr. á 1F 2022.
Handbært fé í lok 1F 2022 nam 2.093 m.kr. sem er hækkun um 1.853 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2021.

Sjóðstreymi 1F 2022
O
vodafone
VÍSIR
SPORT
BYLGJAN
K
O
X
O
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
vodafone
Efnahagur 31. mars 2022:
Eigið fé í lok tímabilsins nam 8.856 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 27,2%. Útgefið hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 m.kr., þar af námu eigin hlutir 280,6 m.kr. Á aðalfundi félagsins þann 18. mars var samþykkt tillaga stjórnar um að lækka hlutafé í samræmi við fjölda eigin hluta. Lækkunin var framkvæmd þann 12. apríl og eru útgefnir hlutir í félaginu 268.376.962 eftir lækkunina.
Heildarskuldir félagsins voru 23.662 m.kr. í lok fyrsta fjórðungs 2022. Hreinar vaxtaberandi skuldir voru 15.813 m.kr. í lok fjórðungsins. Veltufjárhlutfall var 1,46.
Frekari upplýsingar:
☑ Eftir breytingar á lögum um upplýsingaskyldu skráðra félaga verður ekki fjárfestafundur til að kynna uppgjör 1F 2022. Næsti fjárfestafundur verður haldinn 31. ágúst 2022 en fjárfestar geta sent fyrirspurn á fjá[email protected] eða óskað eftir fundi.
☑ Nánari upplýsingar má nálgast á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjárfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Fjárhagsdagatal 2022:
☑ Afkoma 2F 2022 31. ágúst 2022
☑ Afkoma 3F 2022 2. nóvember 2022
☑ Afkoma 4F og ársuppgjör 2022 15. febrúar 2023
☑ Aðalfundur 2022 17. mars 2023
vodafone
vísir
SPORT
BYLGJAN
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is