Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Earnings Release 2018

Feb 27, 2019

2210_rns_2019-02-27_75c02454-35f7-4639-997c-5ad0bda51946.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

A

  1. febrúar 2019

Fréttatilkynning vegna afkomu Sýnar hf. á fjórða ársfjórðungi og árinu 2018:

Fyrsta ár sameinaðs félags að baki á krefjandi markaði

Ársreikningur Sýnar hf. fyrir rekstrarárið 2018 var sambykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 27. febrúar 2019. Endurskoðendur félagsins hafa endurskoðað reikninginn og áritað hann fyrirvaralausri áritun. Ársreikningurinn verður lagður fyrir aðalfund félagsins til staðfestingar þann 22. mars 2019 nk.

Í desember 2017 keypti félagið tilteknar eignir og rekstur 365 miðla hf. og gætir áhrifa af því á samanburð fjárhæða á milli ára.

Sýn og færeyska félagið Tjaldur komust í nóvember 2018 að samkomulagi um helstu skilmála í viðskiptum sem fela munu í sér samruna P/F Hey, dótturfélags Sýnar hf. í Færeyjum og Nema, dótturfélags Tjaldurs. Sýn hf. sem á fyrir viðskiptin allt hlutafé í P/F Hey mun eignast 49,9% hlut í sameinuðu félagi, og Tjaldur eignast 50,1%. Eignir og skuldir P/F Hey hafa verið flokkaðar til sölu í efnahagsreikningi en rekstur félagsins 2018 er ekki settur fram sem aflögð starfsemi í rekstrarreikningi þar sem hann er metinn óverulegur fyrir rekstur samstæðunnar.

  • Tekjur á fjórða ársfjórðungi námu 5.754 m.kr. sem er hækkun um 34% á milli ára.
  • Heildartekjur á árinu námu 21.951 m.kr., sem er 54% hækkun milli ára.
  • EBITDA hagnaður nam 780 m.kr. á ársfjórðungnum sem er lækkun um 23 m.kr. milli ára. Aðlagaður EBITDA hagnaður á 4F að teknu tilliti til einskiptisliða nam 798 m.kr. sem er 17% lækkun milli ára.
  • EBITDA hagnaður á árinu nam 3.248 m.kr., sem er 4% hækkun milli ára. Aðlagaður EBITDA hagnaður á árinu nam 3.417 m.kr. sem er 2% aukning milli ára.
  • Hagnaður á ársfjórðungnum nam 195 m.kr. sem er 45% lækkun á milli ára.
  • Hagnaður ársins nam 473 m.kr., sem er 56% lækkun milli ára. Leiðréttur hagnaður ársins nam 608 m.kr. sem er 52% lækkun frá fyrra ári.
  • Hagnaður á hlut á árinu var 1,6.
  • Rekstrarfjárfestingar samstæðunnar námu 2.407 m.kr. á árinu sem er 45% hækkun á milli ára. Rekstrarfjárfestingar sem hlutfall af tekjum ársins var 11,0% en á árinu 2017 var hlutfallið 11,7%.
  • Stjórn leggur til að ekki verði greiddur út arður vegna rekstrarársins 2018.
  • EBITDA horfur hafa verið endurskoðaðar til lækkunar um 440 m.kr., auk þess sem tekið hefur verið tillit til sölu á meirihluta hlutafjár í P/F Hey, breyttri reikningsskilaaðferð við meðhöndlun sýningarrétta og innleiðingu á reikningsskilastaðlinum IFRS 16 og eru nú 6,0 – 6,5 ma.kr., sjá mynd 5.

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


A

Tafla 1: Lykiltoluyfirlit 2018

4F 2018 4F 2017 Breyt. % breyt. 2018 2017 Breyt. % breyt.
Seldar vörur og bjónusta 5.754 4.304 1.450 34% 21.951 14.268 7.683 54%
Kostnadarverð 3.684 2.370 1.314 55% 13.556 7.829 5.727 73%
Framlegð 2.070 1.934 136 7% 8.395 6.439 1.956 30%
Rekstrarkostnadar 1.769 1.560 209 13% 7.192 4.889 2.303 47%
EBITDA 780 803 -23 -3% 3.248 3.137 111 4%
EBIT 301 374 -73 -20% 1.203 1.550 -347 -22%
Hrein fjármagnsgjöld 178 109 69 63% 728 374 354 95%
Hagnaður tímabilsins 195 356 -161 -45% 473 1.086 -613 -56%
Framlegð (%) 36,0% 44,9% 38,2% 45,1%
EBITDA % 13,6% 18,7% 14,8% 22,0%
EBIT % 5,2% 8,7% 5,5% 10,9%

Stefán Sigurðsson, forstjóri:

„Uppgjör fjorða fjorðungs markar þau tímamót að sameinað fyrirtæki hefur lokið heilu rekstrarári. Rekstraráætlanir sem lágu til grundvallar hafa ekki gengið eftir af ýmsum orsökum eins og endurspeglast í lækku á útgefnum horfum. Samspil margra þátta leiðir til veikari reksturs en búist var við: Í fyrsta lagi hafa krefjandi ytri aðstæður með óvissu í efnahagslífinu haft áhrif á sjónvarpsáskriftir og auglýsingasölu. Í öðru lagi hefur kostnaður við nýja starfsemi verið nokkuð hærri en búist var við auk þess sem kostnaðarhækkanir voru umtalsverðar vegna veikingar íslensku krónunnar á fjorða fjorðungi ársins. Í þriðja lagi ollu hnökrar í tengslum við yfirfærslu viðskiptavina um mitt ár álagi á þjónustuver á sama tíma og samkeppnin á markaðnum var mikil. Þetta samspil skapaði brottfall, aukinn sólukostnað og lækku meðaltekna á viðskiptavini á fjorða fjorðungi. Þegar hefur verið brugðist við ofangreindum áskorunum með ýmsum aðgerðum. Þjónusta fyrirtækisins er komin í eðlilegt horf, salan hefur aukist þó samkeppni sé áfram hörð. Undanfarið hefur verið unnið hörðum höndum að því að draga áfram úr kostnaði sem mun halda áfram að skila sér inn á árið og um leið verður unnið að því að bæta og einfalda rekstur félagsins til næstu missera.

Tæknilegum samrunaverkefnum er að mestu leyti lokið og búið að flytja alla starfsemi Sýnar í höfuðstöðvar félagsins að Suðurlandsbraut 8-10. Sala á meirihluta P/F Hey í Færeyjum þjónar sem liður í að einfalda reksturinn. Af öðrum verkefnum er það helst að frétta að bygging fyrsta gagnavers Reykjavíkur, sem Sýn á hlutdeild í, er hafin á Korputorgi og við greinum mikinn áhuga á verkefninu enda verður gagnaverið eitt það öflugasta á landinu. Búast má við nýjum tekjum af því verkefni á árinu 2020. Nú þegar stærri samrunaverkefnum er að mestu lokið er samþætt fyrirtæki fjárhagslega sterkt og býr að miklum eignum og fjölbreyttum tekjustöðum. Fyrirtækið hefur því fjölmörg tækifæri til framtíðar og er vel í stakk búið til að takast á við óvissu í tengslum við samkeppni og ytri aðstæður“ segir Stefán Sigurðsson forstjóri Sýnar.“

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


Mynd 1: EBITDA hagnaður eftir fjórðungum frá árinu 2014 :

img-0.jpeg

Mynd 2: EBITDA hagnaður eftir fjórðungum frá árinu 2014 – aðlagað fyrir einskiptisliðum 2016 – 2018:

img-1.jpeg

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


A

Rekstrarafkoma á 4. ársfjórðungi 2018:

Tekjur samstæðunnar á fjórða ársfjórðungi 2018 námu 5.754 m.kr. sem er hækkun um 34% frá sama tímabili í fyrra. Tekjur fjórðungsins samanstanda af nýrri sameinaðri starfsemi eftir kaupin á tilteknum eignum og rekstri 365 Miðla hf. og hefur því áhrif á samanburð á milli tímabila. Á árinu 2017 samanstóðu tekjur fjórða fjórðungsins af tveimur mánuðum af starfsemi Sýnar hf. fyrir samruna en einum mánuði af sameinaðri starfsemi.

Tekjur af fjölmiðlun námu 2.294 m.kr. á fjórða fjórðungi og jukust um 85% á milli ára, hækkunin stafar að mestu leyti af keyptri starfsemi. Tekjur af interneti námu 1.330 m.kr. á fjórða ársfjórðungi, sem er hækkun um 237 m.kr. milli ára eða 22%. Tekjur af farsíma námu 1.100 m.kr. og jukust um 3% á milli ára. Tekjur af fastlínu námu 260 m.kr. á fjórðungnum og lækkuðu um 17% á milli ára, tekjur af vörusölu námu 547 m.kr. á tímabilinu sem er 36% hækkun miðað við sama ársfjórðung 2017, aðrar tekjur námu 223 m.kr. á ársfjórðungnum og jukust um 15% milli ára.

Kostnaðarverð nam 3.684 m.kr. og jókst um 55% á milli ára, einkum vegna áhrifa af efnis- og fjarskiptakostnaði nýrrar starfsemi, en rekstrarkostnaður nam 1.769 m.kr. EBITDA hagnaður tímabilsins nam 780 m.kr. og lækkar um 23 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2017. EBITDA hlutfall var 13,6% og EBIT hlutfall 5,2%. Ef tekið er tillit til einskiptiskostnaðar hefði EBITDA numið 798 m.kr., EBITDA hlutfall tímabilsins 13,9% og EBIT hlutfall 5,6%.

Hrein fjármagnsgjöld námu 178 m.kr. á fjórða ársfjórðungi sem er hækkun um 63% á milli ára. Aukningin liggur fyrst og fremst í hærri vaxtagjöldum vegna fjármögnunar á kaupum á tilteknum eignum og rekstri 365 miðla hf.

Hagnaður á fjórða ársfjórðungi 2018 nam 195 m.kr. sem er 161 m.kr. lækkun frá sama tímabili 2017.

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


Sjóðstreymi 4. ársfjórðungs 2018:

Handbært fé frá rekstri á fjórða fjórðungi ársins 2018 nam 778 m.kr. sem er 13% hækkun frá fyrra ári. Fjárfestingarhreyfingar námu 557 m.kr.

Fjármögnunarhreyfingar félagsins námu 97 m.kr. á fjórða ársfjórðungi 2018. Í nóvember sl. var gengið frá endurfjármögnun á félaginu. Samið var við Landsbankann um langtímalán til 5,5 ára að fjárhæð 8.999 m.kr. og greidd upp lán að fjárhæð 8.014 m.kr.

Handbært fé í lok fjórða ársfjórðungs nam 356 m.kr. Frjálst fjárflæði á fjórðungnum nam 402 m.kr. sem er 68% hækkun frá sama tímabili í fyrra.

img-2.jpeg
Mynd 3: Sjóðstreymi 4F 2018

Rekstrarafkoma ársins 2018:

Tekjur ársins 2018 námu 21.951 m.kr. og jukust um 7.683 m.kr. eða 54% á milli ára. Tekjur ársins samanstanda af nýrri sameinaðri starfsemi eftir kaupin á tilteknum eignum og rekstri 365 Miðla hf. og hefur því áhrif á samanburð á milli tímabila. Tekjur af fjölmiðlun námu 8.812 m.kr. á árinu og eykst um 212% á milli ára, hækkunin stafar að mestu leyti af keyptri starfsemi. Tekjur af interneti námu 5.008 m.kr. á árinu, sem er hækkun um 1.033 m.kr. milli ára eða 26%. Tekjur af farsima námu 4.515 m.kr. og jukust um 8% á milli ára. Tekjur af fastlínu námu 1.131 m.kr. á árinu og lækkuðu um 7% á milli ára, tekjur af vörusölu námu 1.485 m.kr. á árinu sem er 12% hækkun milli ára, aðrar tekjur námu 1.000 m.kr. á árinu og jukust um 32% milli ára.

Kostnaðarverð seldra vara nam 13.556 m.kr. og jökst um 5.727 m.kr. eða um 73%. Framlegð nam 8.395 m.kr. og var framlegðarhlutfallið 38,2% samanborið við 45,1% árið 2017. Rekstrarkostnaður nam 7.192 m.kr. og þar af nam einskiptiskostnaður vegna kaupa á tilteknum eignum og rekstri 365 miðla hf. 169 m.kr.

EBITDA hagnaður félagsins nam 3.248 m.kr., sem er hækkun um 111 m.kr. eða 4% á milli ára. EBITDA hlutfall félagsins var 14,8% til samanburðar við 22,0% árið 2017 og EBIT 5,5%. Ef tekið er tillit til einskiptiskostnaðar hefði EBITDA numið 3.417 m.kr., EBITDA hlutfall tímabilsins 15,5% og EBIT hlutfall 6,2%. Hagnaður ársins 2018 nam 473 m.kr. og lækkar um 56% frá fyrra ári, að teknu tilliti til einskiptiskostnaðar hefði hagnaður ársins 2018 numið 608 m.kr.

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is

Efnahagur 31. desember 2018:

Eigið fé í lok tímabilsins var 10.707 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 39,6%. Útistandandi hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 m.kr.

Heildarskuldir samstæðunnar voru 16.304 m.kr. Hreinar vaxtaberandi skuldir námu 11.205 m.kr. og var hlutfall beirra á móti EBITDA hagnaði sl. 12 mánaða 3,4. Veltufjárhlutfall var jafnframt 1,3. Veltufjárhlutfall af áframhaldandi starfsemi var 1,4.

Sjóðstrey mi ársins 2018:

Handbært fé frá rekstri á árinu 2018
nam 2.081 m.kr.
Fjárfestingarhreyfingar námu
2.449 m.kr. þar af námu
rekstrarafjárfestingar 2.407 m.kr.

Fjármögnunarhreyfingar félagsins námu 444 m.kr. á árinu 2018. Handbært fé í lok ársins 2018 nam 356 m.kr.

img-3.jpeg
Mynd 4: Sjóðstrey mi 2018


A

Horfur fyrir afkomu á næstu misserum:

Í ljósi krefjandi samkeppnisaðstæðna hafa fyrirliggjandi EBITDA horfur fyrir árið 2019 verið lækkaðar um 440 m.kr.

Uppfærðar EBITDA horfur taka mið af breyttri samstæðu í kjólfar sólunnar á meirihluta hlutafjár í P/F Hey. Áhrif þess á horfur félagsins er um 250 m.kr. til lækkunar á EBITDA.

Nýr reiknisskilastaðall IFRS 16 er innleiddur frá 1. janúar 2019. Miðað við tiltækar upplýsingar er gert ráð fyrir að innleiðing á staðlinum hafi þau áhrif að leiguskuld í efnahagsreikning muni aukast um 3,4-3,6 ma.kr. og eign vegna nýtingaréttar á bilinu 3,0-3,6 ma.kr. Áhrif þessa á rekstur félagsins er aukning á EBITDA hagnaði í kringum 550 m.kr, en lægri afkoma um 60 m.kr tilkomið vegna þess leigugreiðslur verða ekki lengur gjaldfærðar sem hluti af rekstrarkostnaði heldur skiptist sú gjaldfærsla á milli afskrifta af nýtingarrétti og fjármagnskostnaðar af leiguskuld.

Framsetning á sýningarétti sjónvarpsefnis verður breytt frá 1. janúar 2019 og verður sýningaréttur færður á óefnislegar eignir, áhrif þess á EBITDA horfur eru um 2,2 ma.kr. til hækkunar og samsvarandi áhrif á fjárfestingar.

Uppfærðar horfur fyrir rekstrarárið 2019 eru nú á bilinu 6,0 - 6,5 ma.kr. og fjárfestingar á bilinu 3,8 - 4,2 ma.kr.

img-4.jpeg
Mynd 5: EBITDA horfur 2019 og áhrif breytinga:

Helstu tíðindi og mikilvægir áfangar á tímabilinu:

  • Sýn hf. hlaut nafnbótina „Framúrskarandi fyrirtæki 2018“ í nóvmber en það er greiningarfyrirtækið Creditinfo sem verðlaunar með þessum hætti fyrirtæki sem standa sig vel og stuðla að bættu viðskiptaumhverfi. Aðeins um 2% íslenskra fyrirtækja koma til greina sem Framúrskarandi fyrirtæki.
  • Sýn hf. var eitt sjó fyrirtækja sem fékk sérstaka viðurkenningu á Degi íslenskrar tungu og komst í úrslit um Hvatningarverðlaun viðskiptalífsins fyrir eftirtektarverða notkun á íslensku máli. Viðurkenninguna fékk Sýn fyrir nýyrðasmiði í þáttaröðinni „Ég er risaeðla“ sem sýnd er á Hopster og fjallar um mismunandi risaeðlutegundir.

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is

  • Fulltrúar Sýnar og Háskólans í Reykjavík undirrituðu í nóvember samstarfssamning um ýmis bróunarverkefni í léttbandstækni IoT (e. Internet of Things). Samningurinn er til tveggja ára og veitir nemendum HR aðgang að léttbandskerfi Vodafone á Íslandi til prófunar og bróunar á léttbandslausnum.

  • Sýn hf. lauk í lok nóvember vottunarferli félagsins samkvæmt vinnuverndarstaðlinum ISO 45001 og er fyrst íslenskra fyrirtækja til að fá vottunina samkvæmt nýrri útgáfu staðalsins. Erlendir úttektaraðilar voru við störf í haust í fimm daga í höfuðstöðvum Sýnar og fór fram viðamikil gagnasöfnun um verklag og virkni innan félagsins.

  • Sýn og færeyska félagið Tjaldur komust að samkomulagi undir lok árs um helstu skilmála í viðskiptum sem fela munu í sér samruna Hey, dótturfélags Sýnar í Færeyjum, og Nema, dótturfélags Tjaldurs. Hið sameinaða félag verður leiðandi fyrirtæki í Færeyjum í upplýsingatækni og fjarskiptum. Sýn eignast 49,9% hlut og Tjaldur 50,1% hlut í sameinuðu félagi.

  • Langbráðum áfanga var náð í desember þegar fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar flutti á Suðurlandsbraut, þar sem höfuðstöðvar og önnur starfsemi Sýnar hf. eru til húsa. Nýju bráðabírgðamyndveri fréttastofu Stöðvar 2 var slegið upp á framtíðarkaffistofu fréttastofunnar og gekk fyrsta útsendingin eins og í sögu.

Kynningarfundur 28. febrúar 2019:

  • Opinn kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn fimmtudaginn 28. febrúar 2019. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Sýnar, 6. hæð, Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík og hefst klukkan 8:30.
  • Kynningarfni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
  • Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni https://syn.is/fjarfestatengsl

Fjárhagsdagatal 2019:

✓ Aðalfundur 2019 22. mars 2019
✓ Uppgjör 1F 2019 8. maí 2019
✓ Uppgjör 2F 2019 21. ágúst 2019
✓ Uppgjör 3F 2019 30. október 2019
✓ Ársuppgjör 2019 19. febrúar 2020
✓ Aðalfundur 2020 13. mars 2020

Frekari upplýsingar:

✓ Guðfinnur Sigurvinsson samskiptastjóri Sýnar tekur á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjá[email protected] eða í síma 669-9330.