Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Earnings Release 2018

Feb 27, 2019

2210_rns_2019-02-27_b9d725f4-a51f-44e0-b907-180ac29ab672.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sýn hf. : Fyrsta ár sameinaðs félags að baki á krefjandi markaði

Sýn hf. : Fyrsta ár sameinaðs félags að baki á krefjandi markaði

Ársreikningur Sýnar hf. fyrir rekstrarárið 2018 var samþykktur af stjórn og
forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 27. febrúar 2019. Endurskoðendur
félagsins hafa endurskoðað reikninginn og áritað hann fyrirvaralausri áritun.
Ársreikningurinn verður lagður fyrir aðalfund félagsins til staðfestingar þann
22. mars 2019 nk.

Í desember 2017 keypti félagið tilteknar eignir og rekstur 365 miðla hf. og
gætir áhrifa af því á samanburð fjárhæða á milli ára.

Sýn og færeyska félagið Tjaldur komust í nóvember 2018 að samkomulagi um helstu
skilmála í viðskiptum sem fela munu í sér samruna P/F Hey, dótturfélags Sýnar
hf. í Færeyjum og Nema, dótturfélags Tjaldurs. Sýn hf. sem á fyrir viðskiptin
allt hlutafé í P/F Hey mun eignast 49,9% hlut í sameinuðu félagi, og Tjaldur
eignast 50,1%. Eignir og skuldir P/F Hey hafa verið flokkaðar til sölu í
efnahagsreikningi en rekstur félagsins 2018 er ekki settur fram sem aflögð
starfsemi í rekstrarreikningi þar sem hann er metinn óverulegur fyrir rekstur
samstæðunnar.

* Tekjur á fjórða ársfjórðungi námu 5.754 m.kr. sem er hækkun um 34% á milli
ára.
* Heildartekjur á árinu námu 21.951 m.kr., sem er 54% hækkun milli ára.
* EBITDA hagnaður nam 780 m.kr. á ársfjórðungnum sem er lækkun um 23 m.kr.
milli ára. Aðlagaður EBITDA hagnaður á 4F að teknu tilliti til
einskiptisliða nam 798 m.kr. sem er 17% lækkun milli ára.
* EBITDA hagnaður á árinu nam 3.248 m.kr., sem er 4% hækkun milli ára.
Aðlagaður EBITDA hagnaður á árinu nam 3.417 m.kr. sem er 2% aukning milli
ára.
* Hagnaður á ársfjórðungnum nam 195 m.kr. sem er 45% lækkun á milli ára.
* Hagnaður ársins nam 473 m.kr., sem er 56% lækkun milli ára. Leiðréttur
hagnaður ársins nam 608 m.kr. sem er 52% lækkun frá fyrra ári.
* Hagnaður á hlut á árinu var 1,6.
* Rekstrarfjárfestingar samstæðunnar námu 2.407 m.kr. á árinu sem er 45%
hækkun á milli ára. Rekstrarfjárfestingar sem hlutfall af tekjum ársins var
11,0% en á árinu 2017 var hlutfallið 11,7%.
* Stjórn leggur til að ekki verði greiddur út arður vegna rekstrarársins 2018.
* EBITDA horfur hafa verið endurskoðaðar til lækkunar um 440 m.kr., auk þess
sem tekið hefur verið tillit til sölu á meirihluta hlutafjár í P/F Hey,
breyttri reikningsskilaaðferð við meðhöndlun sýningarrétta og innleiðingu á
reikningsskilastaðlinum IFRS 16 og eru nú 6,0 - 6,5 ma.kr., sjá mynd 5 í
fréttatilkynningu.

Stefán Sigurðsson, forstjóri:

"Uppgjör fjórða fjórðungs markar þau tímamót að sameinað fyrirtæki hefur lokið
heilu rekstrarári. Rekstraráætlanir sem lágu til grundvallar hafa ekki gengið
eftir af ýmsum orsökum eins og endurspeglast í lækkun á útgefnum horfum. Samspil
margra þátta leiðir til veikari reksturs en búist var við: Í fyrsta lagi hafa
krefjandi ytri aðstæður með óvissu  í efnahagslífinu haft áhrif á
sjónvarpsáskriftir og auglýsingasölu. Í öðru lagi hefur kostnaður við nýja
starfsemi verið nokkuð hærri en búist var við auk þess sem kostnaðarhækkanir
voru umtalsverðar vegna veikingar íslensku krónunnar á fjórða fjórðungi ársins.
Í þriðja lagi ollu hnökrar í tengslum við yfirfærslu viðskiptavina um mitt ár
álagi á þjónustuver á sama tíma og samkeppnin á markaðnum var mikil. Þetta
samspil skapaði brottfall, aukinn sölukostnað og lækkun meðaltekna á
viðskiptavini á fjórða fjórðungi. Þegar hefur verið brugðist við ofangreindum
áskorunum með ýmsum aðgerðum. Þjónusta fyrirtækisins er komin í eðlilegt horf,
salan hefur aukist þó samkeppni sé áfram hörð. Undanfarið hefur verið unnið
hörðum höndum að því að draga áfram úr kostnaði sem mun halda áfram að skila sér
inn á árið og um leið verður unnið að því að bæta og einfalda rekstur félagsins
til næstu missera.

Tæknilegum samrunaverkefnum er að mestu leyti lokið og búið að flytja alla
starfsemi Sýnar í höfuðstöðvar félagsins að Suðurlandsbraut 8-10. Sala á
meirihluta P/F Hey í Færeyjum þjónar sem liður í að einfalda reksturinn. Af
öðrum verkefnum er það helst að frétta að bygging fyrsta gagnavers Reykjavíkur,
sem Sýn á hlutdeild í, er hafin á Korputorgi og við greinum mikinn áhuga á
verkefninu enda verður gagnaverið eitt það öflugasta á landinu. Búast má við
nýjum tekjum af því verkefni á  árinu 2020. Nú þegar stærri samrunaverkefnum er
að mestu lokið er  samþætt fyrirtæki fjárhagslega sterkt og býr að miklum eignum
og fjölbreyttum tekjustoðum. Fyrirtækið hefur því fjölmörg tækifæri til
framtíðar og er vel í stakk búið til að takast á við óvissu í tengslum við
samkeppni og ytri aðstæður" segir Stefán Sigurðsson forstjóri Sýnar."

[]

Viðhengi: