Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Earnings Release 2019

May 15, 2019

2210_rns_2019-05-15_d1a26538-21c3-4177-94b3-baf6d11d682a.html

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sýn hf.: Hagnaður fyrsta ársfjórðungs 670 milljónir króna

Sýn hf.: Hagnaður fyrsta ársfjórðungs 670 milljónir króna

Árshlutareikningur Sýnar hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2019 var samþykktur af
stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 15. maí 2019.

Samruni P/F Hey, dótturfélags Sýnar hf. í Færeyjum og Nema, dótturfélag
Tjaldurs, gekk í gegn á fjórðungnum og er 49,9% hlutur Sýnar hf. í nýju
sameinuðu félagi færður samkvæmt hlutdeildaraðferð og því ekki hluti af
samstæðureikningsskilum Sýnar hf. frá 1. janúar 2019.  Söluhagnaður nam 817
m.kr.

Í ársbyrjun var breytt framsetningu á sýningarrétti sjónvarpsefnis og er hann nú
færður meðal óefnislegra eigna í stað birgða. Samanburðartölur á  1F 2018 hafa
verið uppfærðar til samræmis við ofangreint. Nýr reikningsskilastaðall IFRS 16
var innleiddur 1. janúar 2019, samanburðartölur 1F 2018 eru ekki uppfærðar.

· Tekjur á fyrsta ársfjórðungi námu 4.975 m.kr. sem er 1% lækkun á milli ára.
· EBITDA hagnaður nam 1.260 m.kr. á ársfjórðungnum og jókst um 5% til
samanburðar við EBITDA hagnað  1F 2018 sem nam 1.201 m.kr., aðlagaður fyrir
breytingu á framsetningu sýningarréttar.  EBITDA hagnaður 1F 2018 aðlagaður
fyrir IFRS 16 nam 1.326 m.kr.
· Einskiptiskostnaður vegna starfsloka stjórnenda námu 137 m.kr. á 1F 2019 til
samanburðar nam einskiptiskostnaður á 1F 2018 115 m.kr.
· Hagnaður á ársfjórðungnum nam 670 m.kr. sem er 619 m.kr. hækkun á milli ára. ·
Hagnaður á hlut á 1F 2019 var 2,26.
· Heildarfjárfestingar félagsins námu 1.034 m.kr. þar af námu
rekstrarfjárfestingar  616 m.kr.
· Fyrirliggjandi EBITDA horfur eru óbreyttar á bilinu 6,0-6,5 ma.kr. og
heildarfjárfestingar á bilinu 3,8-4,2 ma.kr.

Heiðar Guðjónsson, forstjóri:

"Framkvæmdastjórn félagsins hefur gjörbreyst á þessu ári.  Ný framkvæmdastjórn
verður fullmönnuð við lok þessa mánaðar þar sem fjórir framkvæmdastjórar af fimm
eru nýir.  Þeir sem koma núna inn í framkvæmdastjórn hafa unnið áður sem
ráðgjafar fyrir félagið og þekkja það vel sem gerir það að verkum að þeir þurfa
ekki tíma til aðlögunar.  Ég tel félagið einstaklega heppið með samsetningu
hinnar nýju framkvæmdastjórnar og hlakka til að taka slaginn á markaði með
þessum úrvalshópi. Félagið mun klára stefnumótun og skerpa á rekstrinum strax í
júní.  Við ætlum að veita viðskiptavinum okkur úrvals þjónustu og vera í
fararbroddi með nýjungar,  Vegna árstíðarsveiflu í rekstri verða næstu
fjórðungar ársins betri.  Við erum enn vissari um að horfur ársins náist og
horfum björtum augum fram á við" segir Heiðar Guðjónsson forstjóri Sýnar.

[]

Viðhengi: