Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Earnings Release 2019

Nov 6, 2019

2210_rns_2019-11-06_dd463baf-0693-40d6-a2e5-7b257ce574d3.pdf

Earnings Release

Open in viewer

Opens in your device viewer

vodafone

  1. nóvember 2019

Fréttatilkynning vegna afkomu Sýnar hf. á þriðja fjórðungi 2019:

Rekstrarhagnaður fjórðungsins sá besti það sem af er ári

Í ársbyrjun var meðferð á sýningarrétti sjónvarpsefnis breytt, samanburðartölur 2018 hafa verið uppfærðar í samræmi við breytta meðhöndlun.

Helstu niðurstöður:

  • Tekjur á þriðja ársfjórðungi 2019 námu 4.878 m.kr. sem er 5,2% lækku frá sama tímabili 2018. Tekjur á fyrstu 9 mánuðum ársins lækkuðu um 454 m.kr. milli ára, eða um 3%.
    EBITDA nam 1.623 m.kr. á ársfjórðungnum í samanburði við 1.785 m.kr. á sama tímabili í fyrra. EBITDA hlutfallið er 33,3% á 3F 2019 samanborið við 34,7% á 3F 2018. EBITDA á fyrstu 9 mánuðum ársins 2019 nam 4.100 m.kr og lækkaði um 153 m.kr miðað við sama tímabil 2018. EBITDA hlutfall á 3F 2019 leiðrétt fyrir breytingum á IFRS 16 nam 30%.
  • Tap á þriðja ársfjórðungi 2019 nam 71 m.kr. samanborið við 207 m.kr. hagnað á sama tímabili í fyrra. Tapið á fjórðungnum skýrist að mestu vegna einskiptiskostnaðar að fjárhæð 150 m.kr. sem samanstendur af uppgjóri á vaxtaskiptasamningi félagsins og starfslokagreiðslum. Hagnaður á fyrstu 9 mánuðum ársins nam 384 m.kr. sem er 135 m.kr. hækku frá sama tímabili 2018. Einskiptiskostnaður á fyrstu 9 mánuðum ársins nemur 358 m.kr.
  • Handbært fé frá rekstri á fjórðungnum nam 1.235 m.kr. samanborið við 1.185 m.kr. á sama tímabili árið áður, sem er aukning um 4,22%.
  • Heildarfjárfestingar félagsins á tímabilinu námu 1.119 m.kr. þar af eru fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum (án sýningarrétta) 303 m.kr. og fjárfesting í sýningarréttum 806 m.kr.
  • Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar á tímabilinu um 367 m.kr á móti 45 m.kr á sama tímabili á fyrra ári sem er aukning um 322 m.kr.
  • Horfur vegna ársins 2019 haldast óbreyttar.

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

Lykiltöluyfirlit 3F 2019

3F 2019 3F 2018 Breyt. % breyt. 9M 2019 9M 2018 Breyt. % breyt.
Seldar vörur og bjönusta 4.878 5.143 -265 -5% 14.876 15.330 -454 -3%
Kostnadarverð -3.133 -3.112 -21 1% -9.491 -9.275 -216 2%
Framlegð 1.745 2.031 -286 -14% 5.385 6.055 -670 -11%
Rekstrarkostnadar -1.559 -1.557 -2 0% -5.150 -5.188 38 -1%
EBITDA 1.623 1.785 -162 -9% 4.100 4.253 -153 -4%
EBIT 186 474 -288 -61% 235 867 -632 -73%
Hrein fjármagnsgjöld -295 -210 -85 40% -810 -535 -275 51%
Áhrif hlutdeildarfélaga 16 -2 18 - 844 -14 858 -
Tekjuskattur 22 -55 77 - 115 -69 184 -
Hagnaður tímabilsins -71 207 -278 -134% 384 249 135 54%
Framlegð (%) 35,8% 39,5% 36,2% 39,5%
EBITDA % 33,3% 34,7% 27,6% 27,7%
EBIT % 3,8% 9,2% 1,6% 5,7%

Heiðar Guðjónsson, forstjóri:

„Uppgjórið er vitnisburður um að við höfum náð tökum á rekstrinum. Nýtt spáferli sem unnið er eftir gefur okkur mun betri mynd af undirliggjandi þáttum og við teljum að það muni leiða til frekari bata í rekstri á næstu fjörðungum. Sjöðstreymi 3. ársfjörðungs batnar á milli ára og reksturinn batnar umtalsvert frá öðrum ársfjörðungi. Aðgerðir sem gripið var til í sumar, með endursamningum við birgja og fækkun stöðugilda mun koma fram í rekstri við lok ársins og að fullu á nýju ári.

Stjórn fyrirtækisins sambykkti kaup á Endor sem verður dótturfélag fyrirtækisins. Við sjáum fjöldamörg tækifæri til samþættingar og aukinnar tekjuöflunar við kaupin. Kaupverðið fer eftir afkomu fyrirtækisins en er á bilinu 1,5 - 5 sinnum EBITDA, eftir því hvernig málum fram vindur.

Celtic Norse er nýtt verkefni um lagningu sæstrengs sem við kynntum í London ásamt samstarfsaðilum í síðustu viku. Það sem hefur hamlað uppbyggingu gagnavera á Íslandi er hár kostnaður sæstrengja sem hingað liggja. Þetta verkefni getur lagað þá stöðu umtalsvert.

Uppbyggingu Reykjavik Data Center á Korputorgi miðar samkvæmt áætlun og sala inn í verið hefur gengið framar vonum.“

vodafone

visir

SPORT

BYLGJAN

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

Rekstrarafkoma á 3. ársfjórðungi 2019:

Tekjur félagsins á þriðja ársfjórðungi 2019 námu 4.878 m.kr. sem er lækkun um 5% frá sama tímabili í fyrra.

Tekjur af fjölmiðlun námu 1.946 m.kr. á þriðja ársfjórðungi og lækkuuðum um 7% á milli ára. Tekjur af interneti námu 1.216 m.kr. á þriðja ársfjórðungi, sem er lækkun um 70 m.kr. milli ára eða 5%. Tekjur af farsíma námu 1.041 m.kr. og lækkuuðum um 1% á milli ára. Tekjur af fastlínu námu 217 m.kr. á fjórðungnum og lækkuuðum um 18% á milli ára. Tekjur af vörusölu námu 255 m.kr. á tímabilinu sem 1% lækkun miðað við sama ársfjórðung 2018, aðrar tekjur námu 203 m.kr. á ársfjórðungnum og hækkuuðum um 6% á milli ára.

Kostnaðarverð nam 3.133 m.kr. og jókst um 1% á milli ára. Rekstrarkostnaður nam 1.559 m.kr. og er á pari við sama tímabil 2018. EBITDA tímabilsins nam 1.623 m.kr. og lækkar um 162 m.kr. miðað við sama tímabil árið 2018. EBITDA hlutfall var 33,3%.

Hrein fjármagnsgjöld námu 295 m.kr. á þriðja ársfjórðungi 2019 sem er hækkun um 85 m.kr. á milli ára. Aukningin stafar fyrst og fremst af áhrifum af innleiðingu á IFRS 16, uppgjöri á vaxtaskiptasamningi félagsins sem er síðan vegið upp með gengishagnaði á fjórðungnum. Tap á þriðja ársfjórðungi 2019 nam 71 m.kr. samanborið við 207 m.kr. hagnað á sama tímabili í fyrra.

Sjóðstreymi 3. ársfjórðungs 2019:

Handbært fé frá rekstri á þriðja ársfjórðungi ársins 2019 nam 1.235 m.kr. sem er 4% hækkun frá fyrra ári.

Fjárfestingahreyfingar námu 1.119 m.kr., þar af eru fjárfestingar í rekstrarfjármunum og öefnislegum eignum (að undanskildum sýningarrétti) 303 m.kr. og fjárfesting í sýningarréttum 806 m.kr.

Fjármögnunarhreyfingar félagsins námu 367 m.kr. á þriðja ársfjórðungi 2019. Handbært fé í lok þriðja ársfjórðungs nam 127 m.kr.

img-0.jpeg
Sjóðstreymi 3F 2019

O vodafone

VÍSIR

SPORT

BYLGJAN

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

Efnahagur 30. september 2019:

Eigið fé í lok tímabilsins var 10.911 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 36,3%. Útgefið hlutafé í lok tímabilsins nam 2.964 m.kr.

Heildarskuldir félagsins voru 19.151 m.kr. Hreinar vaxtaberandi skuldir námu 14.760 m.kr. Veltufjárhlutfall var 1,0.

Kaup á Endor

Sýn hf. hefur undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í upplýsingatæknifyrirtækinu Endor. Kaupin eru gerð með fyrirvara um sambykki Samkeppniseftirlitsins. Endor starfar aðallega á alþjóðlegum markaði í rekstri gagnavera. Félagið mun reka Endor í öbreyttri mynd sem dótturfélag og nýta stuðning og innviði Sýnar hf. og alþjóðlegar tengingar Endor til að styðja enn frekar við tekjustrauma félagsins.

Tekjur Endor á árinu 2018 voru 1,5 ma.kr. og áætlað er að heildarvelta fyrir árið 2019 verði allt að fjórum milljörðum. Unnið er að því að meta áhrif Endor á reikningsskil Sýnar sem gerð eru samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.

Helstu tíðindi og mikilvæ gir áfangar á tímabilinu:

  • Haustið fór af stað með miklum krafti á Stöð 2 en við frumsýndum 30 íslenska þætti í september og erum gríðarlega stolt af fjölbreyttu úrvali og gæðum íslensku þáttanna okkar. Við vígðum einnig nýtt stúdió í Ármúla þegar Föstudagskvöld með Gumma Ben fór í loftið, en þar fara Gummi og Sóli Hólm á kostum í beinni útsendingu við frábærar viðtökur.
  • Efnisúrvalið í Stöð 2 Marabon hefur stóraukist undanfarna mánuði en efnisveitan er sú stærsta á landinu með íslenskt efni. Þar hafa áskrifendur aðgang að vönduðu íslensku sjónvarpsefni, nýjustu þáttaröðunum, barnaefni með íslensku tali og hátt í þúsund kvikmynda. Nýir þættir koma nú fyrr inn og jafnvel samhliða línulegum sýningum.
  • Sýn hlaut formlega jafnlaunavottun á allt félagið í ágúst en úttektin var framkvæmd í maí síðastliðnum af BSI á Íslandi. Með vottuninni staðfestist að hjá Sýn er starfrækt jafnlaunakerfi sem stenst kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. Með innleiðingu jafnlaunastaðalsins hefur Sýn komið sér upp stjórnkerfi sem styður við faglegar launaákvarðanir, byggðar á málfñalegum sjónarmiðum sem fela ekki í sér kynbundna mismunun.
  • Tæknimenn Vodafone hafa síðustu misseri verið að fjölga 4G sendum og auka afkastagetuna um allt land, m.a. í þéttbýli, á sumarhúsasvæðum og þar sem fjölmennir viðburðir eru haldnir. Þjóðvega dekkun á 4G hefur því stóraukist á mörgum svæðum eftir verkefni sumarsins og bjóðum við nú 4G dekkun að miklu leyti frá Reykjavík til Akureyrar, sem þýðir mun betri upplífun á streymisveitum fyrir þá sem eru á ferðinni.

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is


vodafone

Kynningarfundur 7. nóvember 2019:

  • Opinn kynningarfundur vegna uppgjørsins verður haldinn fimmtudaginn 7. nóvember 2019. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum Sýnar, 6. hæð, Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík og hefst klukkan 8:30.
  • Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á síðu fjárfestatengsla Sýnar á https://syn.is/fjarfestatengsl og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
  • Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á vefslóðinni https://syn.is/fjarfestatengsl.

Fjárhagsdagatal 2019:

✓ Ársuppgjör 2019
26. febrúar 2020
✓ Aðalfundur 2020
20. mars 2020

Frekari upplýsingar:

✓ Valdís Guðlaugsdóttir forstöðumaður samskiptasviðs Sýnar tekur á móti fyrirspurnum í gegnum netfangið fjá[email protected] eða í síma 669-9319.

vodafone

vísir

SPORT

BYLGJAN

X

Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is