AI assistant
Syn — Earnings Release 2019
Aug 20, 2019
2210_rns_2019-08-20_9f404d96-fa0d-48b3-9c0a-926c6304fe84.html
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
National Storage Mechanism | Additional information
You don't have Javascript enabled. For full functionality this page requires javascript to be enabled.
Uppfærðar horfur fyrir árið 2019 gefa til kynna að EBITDA framlegð ársins verði um 6% undir þeirri spá sem áður hafði verið gefin út, sem var EBITDA á milli 6,0-6,5 ma. á árinu, en er nú um 5,6 ma.
Eftir breytingar á framkvæmdastjórn sem áttu sér stað á fyrri helmingi ársins, er búið að vinna að nýju spáferli. Niðurstaða þeirrar vinnu er að fyrri horfur hafi verið of bjartsýnar. Tekjur í fjölmiðlum og í fjarskiptum voru ofáætlaðar um tæpar 400 milljónir og kostnaður við útsendingar miðla vanáætlaður um 160 milljónir. Fyrri áætlun um frjálst sjóðsflæði er óbreytt en ljóst að félagið er að enda í neðri enda þess bils, 1,6-2,0 ma.
Framkvæmdastjórn er búin að breyta uppgjörum deilda og skerpa á innri ferlum sem mun skila sér í áreiðanlegri spám héðan í frá. Sömuleiðis hafa aðgerðir sem gripið var til í rekstrinum í sumar lækkað kostnaðarstig fyrirtækisins umtalsvert til framtíðar.
Sýn hf. mun birta uppgjör fyrri hluta ársins 28. ágúst og kynning á uppgjöri fer fram í höfuðstöðvum félagsins klukkan 8.30 þann 29. ágúst. Framkvæmdastjórn getur ekki tjáð sig frekar fyrr en eftir birtingu uppgjörs.