Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Syn Board/Management Information 2022

Nov 29, 2022

2210_rns_2022-11-29_92115fd2-8e6e-4c8f-a3c9-f7be2d787722.pdf

Board/Management Information

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sýn hf: Einföldun í rekstri og skipulagsbreytingar sem munu hafa jákvæð áhrif á afkomu félagsins

Stjórn Sýnar hf. hefur sambykkt nýtt skipulag félagsins. Skipulagsbreytingar miða að því að bæta arðsemi félagsins, einfalda starfsemina, auka sýnileika einstakra eininga og búa félagið undir frekari vöxt. Starfsemi móðurfélagsins verður skipt í tvær kjarnaeiningar: Vodafone - Fjarskipti og Fjölmiðlar. Stoðsvið verða fjögur: Nýsköpun og rekstur, fjármál og stefnumótun, lögfræði og mannauður. Aðrar rekstrareiningar eru dótturfélagið Endor og sérstök rekstrareining utan um innviði, Sýn - Innviðir.

Endor verður gefið aukið vægi í starfseminni og mun taka yfir kerfisþjónustu Sýnar. Gerður verður þjónustusamningur á milli félaganna sem mun hafa jákvæð áhrif á tekjur og afkomu Endor. Skýja- og rekstrarlausnir til innlendra viðskiptavina hafa verið vaxandi í rekstri Endor og með þessu getur félagið sótt enn frekar á þann markað.

Sýn - Innviðir mun halda utan um allar þjónustur, samninga og innviðaeignir samstæðunnar.

Vegna aukinnar áherslu á skilvirkni í rekstri mun stöðugildum samstæðunnar fækka í dag. Áætlað er að breytingar á skipulagi, ásamt öðrum rekstraraðgerðum, muni skila sér í bættri afkomu Sýnar sem nemur um 650 milljónum króna á ársgrundvelli. Jákvæðra áhrifa mun fyrst gæta í afkomu fyrsta ársfjörðungs 2023.

Kostnaður vegna starfsloka verður gjaldfærður að fullu á fjórða ársfjörðungi 2022 og nemur um 150 milljónum króna.

Til að undirbúa félagið undir frekari sókn verða ráðnir nýir framkvæmdastjórar. Á næstunni verður ráðið í nýtt starf, framkvæmdastjóra Vodafone - Fjarskipta, þar sem áherslan verður m.a. á markaðsmál og framúrskarandi þjónustuupplifun. Hulda Hallgrímsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri nýsköpunar og rekstrar, með áherslu á vöruþróun, rekstur og stafrænar umbreytingar. Þá verður Alda Sigurðardóttir framkvæmdastjóri mannauðs, með sérstaka áherslu á fyrirtækjamenningu til vaxtar, en hún hefur gegnt stöðu mannauðsstjóra Sýnar.

Yngvi Halldórsson, forstjóri Sýnar:

"Við höfum náð góðum tökum á rekstrinum undanfarin misseri og höfum einblínt á að einfalda ferla, kerfi og skipulag með það að markmiði að bæta þjónustu við viðskiptavini. Við viljum lækka rekstarkostnað og þessar aðgerðir eru til þess fallnar að bæta arðsemi félagsins. Við erum nú vel undir það búin að sækja til vaxtar.

Kjarnaeiningar félagsins eru nú tvær: Vodafone - Fjarskipti og Fjölmiðlar, auk rekstrareininganna tveggja Endor og Sýn - Innviða. Við höfum áður lýst því yfir að við viljum kynna Sýn betur fyrir markaðnum og sýnum það nú í verki með breyttu stjórnskipulagi þar sem hverri rekstrareiningu er gefið meira vægi og sjálfstæði. Við munum halda áfram á þeirri vegferð með aukinni upplýsingagjöf fyrir hverja einingu.

Það fylgja blendnar tilfinningar deginum í dag. Á sama tíma og við fögnum því sérstaklega að fá tvær öflugar konur í framkvæmdastjórn félagsins, þá verður þetta erfiður dagur þar sem við kveðjum kært samstarfsfólk. Ég efa þó ekki að það muni láta að sér kveða á nýjum vettvangi.

Þær breytingar sem við kynnum núna byggja á grunni undanfarinna ára, þar sem kerfi hafa verið einfölduð og sjálfvirknivæðing aukist. Tækniþróun er ör í okkar geira og verður áfram. Með þessum breytingum á skipulagi verðum við í enn sterkari stöðu til að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu, styðja starfsfólkið okkar áfram í að ná árangri og skila hluthöfum ávinningi."

C2 restricted - External permitted


C2 restricted - External permitted

Rekstrareiningar:

Vodafone - Fjarskipti: Sala og bjónusta fjarskipta og áskriftarbjónustu á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði ásamt markaðsmálum Vodafone.

Fjölmiðlar: Miðlar í eigu Sýnar eru Stöð 2, Stöð 2+, Stöð 2 Sport, Vísir, Bylgjan, Gullbylgjan, FM957, X-ið ásamt Innherja og hlaðvarpsbjónustunni Tal.

Sýn - Innviðir: Uppbygging og rekstur á fjarskipta- og dreifikerfum, internet, fastlína, farsími, útvarps- og sjónvarpsdreifing í lofti, reiki og samtengingar, NOC bjónusta ásamt heildsölu á innviðum á sviði fjarskipta og dreifingar.

Endor: Ráðgjöf og bjónusta í rekstri upplýsingakerfa, allt frá vali, afhendingu og rekstri innviða til sveigjanlegra hýsinga- og skýjalausna.

Meðfylgjandi er nýtt skipurit Sýnar:

img-0.jpeg


Nánari upplýsingar um nýja framkvæmdastjóra:

Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri nýsköpunar- og rekstrar

Hulda hefur alþjóðlega reynslu af rekstri, stórum umbreytingaverkefnum, gæðamálum, kerfisinnleiðingum og fleira frá Össuri þar sem hún hefur starfað síðastliðin 11 ár. Í starfi sínu sem forstöðumaður á rekstrarsviði hefur áhersla hennar verið m.a. á gæðamál, innleiðingu regluverks lækningatækja, öryggismál og sjálfbærni þvert yfir fyrirtækið á alþjóðavísu. Þar áður starfaði hún sem verkefnastjóri í alþjóðlegum umbreytingaverkefnum þar sem áhersla var á að umbylta ferlum og innleiða nýtt vinnulag og tækni. Áður en hún kom til Össurar starfaði hún á upplýsingatæknisviði og þróunarsviði Landsbankans við að innleiða nýja ferla og tæknilausnir sem starfsmaður verkefnastofu. Hún er með B.Sc. og M.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði með áherslu á hermun og bestun frá Háskóla Íslands.

Alda Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri mannaðs

Alda hefur starfað sem mannaðsstjóri Sýnar síðan í mars, en þar áður starfaði hún sem stjórnendabjálfari í eigin fyrirtæki Vendum í 11 ár. Hún hefur þjálfað og aðstoðað fjölda stjórnenda við farsæla innleiðingu og uppbýggingu á fyrirtækjamenningu í mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins en einnig viða erlendis. Áður starfaði hún sem aðstoðarmaður rektors Háskólans í Reykjavík og þar á undan sem kynningar- og samskiptastjóri skólans. Alda starfaði sem viðskiptastjóri hjá fyrirtækinu SJÁ, fræðslustjóri VR og stundakennari við viðskiptadeild Háskóla Íslands. Hún kenndi einnig við MBA námið í HR og hefur haldið fjölda stjórnunartengdra námskeiða við Opna háskólann. Alda er stjórnmála- og atvinnulífsfræðingur frá Háskóla Íslands, lauk námi í stjórnendamarkbjálfun frá Opna Háskólannum í HR og Corporate Coach University ásamt því að vera með MBA gráðu frá HR.

C2 restricted - External permitted