AI assistant
Syn — Board/Management Information 2019
Jan 14, 2019
2210_rns_2019-01-14_297fbe65-49ab-4588-aafb-2e5113b4de48.pdf
Board/Management Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Reykjavík 14. janúar 2019
Skipulagsbreytingar hjá Sýn hf.
Gerðar hafa verið breytingar hjá Sýn hf. sem er ætlað er að efla sölu og þjónustu og styrkja rekstur Sýnar fram á veginn og eru liður í að einfalda rekstur félagsins og stytta boðleiðir.
Einstaklingssvið og fyrirtækjasvið verða rekin sem tvö sjálfstæð svið undir sölu og þjónustu, þar sem Elmar Hallgríms Hallgrímsson hefur verið ráðinn til að leiða sölu og þjónustu einstaklinga, og Trausti Guðmundsson mun leiða fyrirtækjahlutann. Sala og þjónusta mun heyra beint undir forstjóra. Ragnheiður Hauksdóttir sem leitt hefur einstaklingssvið Sýnar hefur gert samkomulag um að láta að störfum í kjölfar skipulagsbreytinga.
Einingar Miðla heyra beint undir forstjóra eftir þessa breytingu en munu að öðru leyti ekki breytast. Björn Víglundsson sem leitt hefur Miðla hefur einnig gert samkomulag um starfslok við þessar breytingar. Birni og Ragnheiði er þakkað fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og mikilvægt framlag í gegnum árin.
Þorvarður Sveinsson sem leitt hefur fyrirtækjasvið tekur við nýju hlutverki rekstrarstjóra. Hann mun bera ábyrgð á rekstrarmálum þvert á fyrirtækið með það markmið að ná fram aukinni skilvirkni og hagkvæmni í rekstri. Þessi breyting endurspeglar rekstraráherslur félagsins og viðbrögð við áskorunum á fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði.
Verkefni félagsins verða eftir breytingar rekin í þremur stoðum (sjá mynd); það er Sölu og þjónustu, Miðlum og svo Tækni, Fjármálum og Rekstri.

sýn
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is
Um Elmar Hallgríms Hallgrímsson nyjan stjórnanda einstaklingssviðs
Elmar Hallgríms Hallgrímsson hefur verið ráðinn stjórnandi einstaklingssviðs, en þar fellur undir sala og þjónusta til einstaklinga sem og markaðsmál. Elmar hefur undanfarið sinnt sérverkefnum fyrir Hagvang en var áður framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs hjá 365 miðlum ehf. Elmar var um árabil lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og annast nú m.a. kennslu við MBA nám og lagadeild skólans. Hann er einnig þjálfari hjá Dale Carnegie.
Elmar er með LL.M gráðu frá University of Pennsylvania og embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur lokið meistaranámi í fjármálum fyrirtækja og í viðskiptasiðfræði frá Háskóla Íslands, auk þess að hafa lokið prófi í verðbréfasviðskiptum og hafa leyfi til að starfa sem héraðsdómslögmaður.
Elmar hefur viðtæka reynslu af stjórnarsetu og var m.a. stjórnarformaður MBA náms og viðskiptafræðistofnunar Háskóla Íslands. Þá hefur Elmar m.a. setið í stjórn Samkeppniseftirlitsins, LÍN og ýmissa lífeyrissjóða.
Nánari upplýsingar og aðstoð veitir:
- Guðfinnur Sigurvinsson, samskiptastjóri Sýnar, í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 669-9330.
syn
Sýn hf. • Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Kt. 4709051740 • syn.is