AI assistant
Syn — Board/Management Information 2019
Mar 19, 2019
2210_rns_2019-03-19_7db6961f-7d03-4570-8315-dc8165c13dd2.html
Board/Management Information
Open in viewerOpens in your device viewer
Sýn hf. : Breytingar á yfirstjórn
Sýn hf. : Breytingar á yfirstjórn
Hrönn Sveinsdóttir framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Sýnar hefur
ákveðið að láta af störfum sem fjármálastjóri fyrirtækisins frá og með 1. júní
2019. Hrönn hefur starfað hjá Sýn frá árinu 2005 sem framkvæmdastjóri fjármála-
og rekstrarsviðs. Hrönn hefur borið ábyrgð á fjármálum, mannauðsmálum og
miðlægum rekstri félagsins og meðal annars tekið þátt í að leiða félagið í
gegnum miklar breytingar, þ.m.t. skráningu í Kauphöll, nú nýverið samruna við
365 sem og innleiðingu á "BESTA" starfsmannaumhverfi að Suðurlandsbraut 8-10,
hugmyndafræði sem Vodafone Group hefur innleitt víðsvegar um heiminn.
Hrönn er þakkað fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og mikilvægt framlag í
gegnum árin.
[]