AI assistant
Syn — AGM Information 2023
Mar 7, 2023
2210_rns_2023-03-07_d56cc20f-83a0-478d-a7ac-ef695a651c6a.pdf
AGM Information
Open in viewerOpens in your device viewer
GILDI
Stjórn Sýnar hf.
Suðurlandsbraut 8
108 Reykjavík
Reykjavík 7. mars 2023
Efni: Breytingartillaga vegna aðalfundar 17. mars 2023
Með vísan til auglýsingar um aðalfund Sýnar hf. óskar Gildi-lífeyrissjóður eftir því að eftirfarandi breytingartillaga varðandi dagskrárlið 5 verði tekin til meðferðar á fundinum.
Dagskrárliður 5: Tillaga um breytingu á samþykktum félagsins – tillaga um breytingu á 13. gr. samþykta félagsins
Lagðar eru til eftirfarandi breytingar (yfirstrikaður texti felldur á brott og undirstrikuðum texta bætt við):
„Til hluthafafundar skal boða með skriflegri eða rafrænni tilkynningu til hvers hluthafa eða með auglýsingu í kauphöll ef félagið er skráð á hlutabréfamarkaði.
Til hluthafafundar skal boða minnst þremur víkum fyrir fund og til aðalfundar minnst þremur víkum fyrir fund og lengst sex víkum fyrir fund.
Stjórn getur ákveðið að hluthafi skuli tilkynna félaginu þátttöku sína á hluthafafundi innan tiltekins frests fyrir fundinn sem skal þó eigi vera lengri en tveir dagarein-vika. Fundarboð skal innihalda upplýsingar um skráningardag. Atkvæðisréttur á fundinum fer eftir fjölda hluta á því tímamarki þegar skráningarfresti lýkur.
Að öðru leyti fer um boðun og fyrirkomulag hluthafafundar og aðalfundar skv. ákvæðum hlutafélagalaga, nr. 2/1995.“
Greinargerð breytingartillögu:
Í félögum þar sem hlutir hafa verið teknir til viðskipta á skipulegum markaði er heimilt á grundvelli nýlegra lagabreytinga að kveða á um það í samþykktum að hluthafi skuli tilkynna félaginu þátttöku sína á hluthafafundi innan tiltekins frests fyrir fundinn. Sá frestur skuli þó eigi vera lengri en ein víka. Fundarboð skal innihalda upplýsingar um skráningardag, sbr. 5. mgr. 80. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög.
Að mati Gildis-lífeyrissjóðs er ekki ástæða til þess að hafa slíkan frest lengri en tveimur dögum fyrir fundinn. Þær tæknilausnir sem skráð félög hafa nýtt til skráningar og utanumhalds rafrænnar atkvæðagreiðslu er hægt að nýta innan slíks frests (og hefur jafnvel verið mögulegt að nýta þær samdægurs).
Lífeyrissjóður
Gildi
517-4700
www.gildi.is
GILDI
Takmörkun af þessu tagi er til þess fallin að hluthafi, sem ekki gætir formskilyrða, missi mögulega af þátttökurétti í slíkum fundi. Að mati sjóðsins ætti að forðast slík formskilyrði eins og frekast er unnt, eingöngu nýta slíkar heimildir sé það óhjákvæmilegt og þá að hámarki með tveggja daga fyrirvara.
Virðingarfyllst,
Gildi-lífeyrissjóður