Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Sjóvá-Almennar tryggingar Proxy Solicitation & Information Statement 2023

Feb 16, 2023

2204_rns_2023-02-16_951a8eea-33f2-4efe-97a5-6fe3b5ed69fc.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sjóvá

440 2000

Aðalfundur

Sjóvá-Almennra trygginga hf.
10. mars 2023

Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. boðar til aðalfundar sem haldinn verður í fundarsölum H og I á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, föstudaginn 10. mars 2023 kl. 15:00.

Drög að dagskrá fundarins eru svohljóðandi:

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
  2. Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið reikningsár lagðir fram til sambykktar.
  3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á síðastliðnu reikningsári.
  4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
  5. Tillaga um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigir hlutum.
  6. Tillögur um breytingar á sambykktum félagsins.
  7. Formaður tilnefningarnefndar gerir greir fyrir störfum nefndarinnar.
  8. Kosning stjórnar félagsins.
  9. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
  10. Ákvörðun um þóknun stjórnar félagsins og tilnefningarnefndar.
  11. Tillaga um heimild til kaupa á eigir hlutabréfum.
  12. Önnur mál löglega upp borin.

Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett. Umboðum skal skila við skráningu á fundinn. Óskað er eftir að umboð berist tímanlega fyrir dagsetningu aðalfundar á [email protected] og skal það vera undirritað af hluthafa eða prókúruhafa.

Hluthafar eiga rétt á að leggja fram mál eða ályktunartillögur fyrir fundinn ef gerð hefur verið skrifleg eða rafræn krafa um það eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. eigi síðar en kl. 15:00 þriðjudaginn 28. febrnar 2023. Hafni hluthafar krafist þess að tiltekið mál eða ályktun verði tekið fyrir verða endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vef félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfundinn. Hægt er að senda tillögur, ályktanir eða spurningar fyrir fundinn á netfangið stjó[email protected].

Hluthafar geta einnig lagt fram spurningar er varða auglýsta dagskrárliði á aðalfundinum sjálfum.

Tillögur stjórnar um breytingar á sambykktum lúta að lækkun hlutafjár.

Tilnefningarnefnd er að störfum í samræmi við sambykktir félagsins. Hluthafar og aðrir sem óska eftir tilnefningu nefndarinnar til framboðs til stjórnar á aðalfundi hafa átt þess kost að koma áhuga sínum, og eftir atvikum framboði, á framfæri við nefndina. Samkvæmt fyrirliggjandi skýrslu tilnefningarnefndar gerir hún tillögu um að bau Björgólfur Jóhannsson, Guðmundur Örn Gunnarsson, Hildur Árnadóttir, Ingi Jóhann Guðmundsson og Ingunn Agnes Kro verði kjörin til setu sem aðalmenn í stjórn og bau Erna Gísladóttir og Garðar Gíslason verði kosin sem varamenn.

Frestur til að tilkynna framboð til stjórnar lýkur fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. sunnudaginn 5. mars 2023 kl. 15:00. Framboð skulu berast á netfangið [email protected].

Framboðseyðublöð er hægt að nálgast á vefsvæði félagsins. Breytist tillaga nefndarinnar frá því er fram kemur í fundarboði þessu verður endurskoðuð tillaga birt eigi síðar en 8. mars 2023. Upplýsingar um alla frambjóðendur verða birtar á vefsvæðinu www.sjova.is/adalfundur2023 að lágmarki tveimur dögum fyrir aðalfund.

Endanleg dagskrá aðalfundar og fundargögn, þ.á m. tillögur stjórnar, sem lögð verða fyrir aðalfund, auk annarra upplýsinga og eyðublaða í tengslum við aðalfundinn, verða birt á vefsvæði félagsins www.sjova.is/adalfundur2023.

Aðalfundur er lögmætur, án tillits til fundarsóknar, ef löglega er til hans boðað. Aðalfundur og fundargögn verða á íslensku.

Reykjavík 15. febrnar 2023.

Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf.

sjova.is

SJÓVÁ