AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Proxy Solicitation & Information Statement 2022
Feb 17, 2022
2204_rns_2022-02-17_f5e0a6fb-494d-42d2-bdf1-8fbbe474b6bb.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Sjóva
440 2000
Aðalfundur
Sjóvá-Almennra trygginga hf.
11. mars 2022
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. boðar til aðalfundar sem haldinn verður í fundar-sölum H og I á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, föstudaginn 11. mars 2022 kl. 15:00. Jafnframt verður gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum.
Drög að dagskrá fundarins eru svohljóðandi:
- Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á líðnu starfsári.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið reikningsár lagðir fram til sambykktar.
- Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á síðast-líðnu reikningsári.
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
- Tillaga um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum.
- Tillögur um breytingar á sambykktum félagsins.
- Tillögur um breytingar á starfsreglum tilnefningarnefndar.
- Formaður tilnefningarnefndar gerir grein fyrir störfum nefndarinnar.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
- Kosning nefndarmanna í tilnefningarnefnd.
- Ákvörðun um þóknun stjórnar félagsins og tilnefningarnefndar.
- Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum.
- Önnur mál löglega upp borin.
Stjórn Sjóvá hefur ákveðið að aðalfundurinn verði einnig rafrænn, þ.e. hluthafar geti tekið þátt í fundinum með rafrænum hætti í gegnum aðalfundakerfi Lumi AGM. Rafræn þátttaka mun því jafn-gilda mætingu á fundinn og veita þátttöku í honum að öðru leyti.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á að sækja fundinn, hvort sem þeir ætla að mæta á fundarstað eða fylgjast með fundinum í vefstreymi, þurfa að skrá sig til að nálgast aðgangsupplýsingar á vefsvæðinu http://www.lumiconnect.com/meeting/sjova. Hluthafar eru beðnir um að skrá sig tímanlega á fundinn og helst eigi síðar en kl. 15:00 þann 10. mars, eða degi fyrir fundardag, þar sem ekki er hægt að tryggja aðgang að fundinum berist skráning eftir þann tíma.
Þeir sem skrá sig til fundar með rafrænum hætti fá aðgang að streymi af fundinum, geta kosið rafrænt og borið upp skriflegar spurningar. Atkvæðagreiðsla á fundinum mun eingöngu fara fram í gegnum aðalfundakerfi Lumi AGM. Allir hluthafar, hvort sem þeir mæta til fundarins á fundarstað eða taka þátt í honum með rafrænum hætti, eru hvattir til að hlaða niður småforriti Lumi AGM í eigin snjalltæki, en jafnframt geta þeir greitt atkvæði í gegnum vefslóð Lumi AGM á tölvu eða spjaldtölvu. Nánari upplýsingar um skráningu á fundinn og framkvæmd kosninga verða birtar á vefsvæði félagsins, https://www.sjova.is/adalfundur2022/.
Hluthafar eiga rétt á að leggja fram mál eða ályktunartillögur fyrir fundinn ef gerð hefur verið skrifleg eða rafræn krafa um það eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. eigi síðar en kl. 15:00, þriðjudaginn 1. mars 2022. Hafni hluthafar krafist þess að tiltekið mál eða ályktun verði tekin fyrir verða endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vef félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfundinn. Hægt er að senda tillögur, ályktanir eða spurningar fyrir fundinn á netfangið stjó[email protected]. Hluthafar geta einnig lagt fram spurningar er varða auglýsta dagskrárliði á aðalfundinum sjálfum.
Tillögur stjórnar um breytingar á sambykktum lúta, í stuttu mál, að lækkun hlutafjár, orðalagsbreytingu vegna rafrænna skjalasamskipta við hluthafa og orðalagsbreytingu vegna fundar- boðs aðalfundar varðandi ályktunartillögur og athugasemdir stjórnar og nefnda félagsins.
Tilnefningarnefnd er að störfum í samræmi við sambykktir félagsins. Hluthafar og aðrir sem óska eftir tilnefningu nefndarinnar til framboðs til stjórnar á aðalfundi hafa átt þess kost að koma áhuga sínum, og eftir atvikum framboði, á framfæri við nefndina. Samkvæmt fyrirliggjandi tillögu tilnefningarnefndar gerir hún tillögu um að þau Björgólfur Jóhannsson, Guðmundur Örn Gunnarson, Hildur Árnadóttir, Ingi Jóhann Guðmundsson og Ingunn Agnes Kro verði kjörin til setu sem aðalmenn í stjórn og þau Erna Gísladóttir og Garðar Gíslason verði kosin sem varamenn.
Frestur til að tilkynna framboð til stjórnar lýkur fimm sólar- hringum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. sunnudaginn 6. mars 2022 kl. 15:00, en vegna eðlis og umfangs starfa tilnefningarnefndar er ekki tryggt að nefndin geti lagt mat á framboð sem berast eftir að 10 dagar eru til fundarins, þ.e. eftir kl. 15:00 þriðjudaginn 1. mars 2022. Framboð skulu berast á netfangið [email protected]. Framboðseyðublöð er hægt að nálgast á vefsvæði félagsins. Breytist tillaga nefndarinnar frá því er fram kemur í fundarboði þess verður endurskoðuð tillaga birt eigi síðar en 9. mars 2022. Upplýsingar um alla frambjóðendur verða birtar á vefsvæðinu https://www.sjova.is/adalfundur2022/ að lágmarki tveimur dögum fyrir aðalfund.
Endanleg dagskrá aðalfundar og fundargögn, þ. á m. tillögur stjórnar, sem lögð verða fyrir aðalfund, auk annarra upplýsinga og eyðublaða í tengslum við aðalfundinn, verða birt á vefsvæði félagsins, https://www.sjova.is/adalfundur2022/.
Aðalfundur er lögmætur, án tillits til fundarsóknar, ef löglega er til hans boðað. Aðalfundur og fundargögn verða á íslensku.
Reykjavík, 17. febrúar 2022.
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf.
sjova.is
SJÓVÁ