AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Proxy Solicitation & Information Statement 2020
Mar 10, 2020
2204_rns_2020-03-10_003288e7-cba1-4cd1-953a-f07e1693eae8.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Framboð til tilnefningarnefndar
Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf.
- mars 2020
Jón Birgir Guðmundsson, fæddur 28. maí 1970. Jón Birgir er B.Sc. í viðskiptafræði frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Hann er útibússtjóri í Íslandsbanka á Akureyri en starfaði áður sem forstöðumaður útibúa og umboða hjá Sjóvá og var stjórnarformaður Kælismiðjunnar Frost á árunum 2007-2016.
Jón Birgir er óháður stórum hluthöfum félagsins og óháður félaginu og daglegum stjórnendum. Jón Birgir á 46.168 hluti í félaginu, eða sem nemur 0,0032% eignarhlut í Sjóvá
Katrín S. Óladóttir, fædd 20. október 1953. Katrín hefur lokið kvennaskólaprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík. Hún er framkvæmdastjóri Hagvangs og ein þriggja eigenda fyrirtækisins. Hún sinnir daglegri stjórnun og rekstri fyrirtækisins auk stjórnendaráðninga. Áður starfaði hún sem ráðningarstjóri og sinnti fjölbreyttri ráðgjöf við ráðningar síðan 1983. Katrín situr í tilnefningarnefnd Skeljungs hf.
Katrín er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Vilborg Lofts, fædd 12. desember 1956. Vilborg er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands með MBA frá Cass University Business School í London og MPM frá verkfræðideild Háskóla Íslands. Hún hefur verið rekstrarstjóri Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands í rúm 11 ár. Áður starfaði hún í 20 ár fyrir Íslandsbanka, 4 ár sem mannauðsstjóri og 16 ár sem aðstoðarframkvæmdastjóri eignastýringar. Hún hefur setið í ýmsum stjórnum m.a. sem stjórnarformaður Kreditkorta, í Framtakssjóðnum, Heilsuborg og Endurmenntun Háskólans.
Vilborg er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins