Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Sjóvá-Almennar tryggingar Proxy Solicitation & Information Statement 2020

Mar 10, 2020

2204_rns_2020-03-10_83892446-c8de-49ca-bd9f-9a7d5d62fe89.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Framboð til stjórnarsetu

Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf.

  1. mars 2020

Framboð til stjórnar:

Björgólfur Jóhannsson, fæddur 28. ágúst 1955, til heimilis á Akureyri. Björgólfur var kjörinn í stjórn Sjóvár 15. mars 2019 en steig til hliðar 19. nóvember 2019 vegna tímabundins starfs sem forstjóri Samherja. Björgólfur er með Cand. Oecon gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og löggildingarpróf í endurskoðun.

Björgólfur starfaði sem endurskoðandi á árunum 1985-1992. Björgólfur var fjármálastjóri Útgerðarfélags Akureyringa hf. 1992-1996, framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar hjá Samherja hf. 1996-1999, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf. 1999-2006, framkvæmdastjóri Icelandic 2006-2007 og forstjóri og framkvæmdastjóri Icelandair Group hf. 2008-2018.

Björgólfur var formaður stjórnar LÍÚ á árunum 2003-2008 og formaður Samtaka atvinnulífsins 2013-2017. Í gegnum árin hefur hann setið í stjórnum margra fyrirtækja í ýmsum greinum atvinnulífsins, s.s. Gjögri hf., Festi hf., Íslandsstofu og í stjórnstöð ferðamála fyrir SAF.

Björgólfur er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.

Guðmundur Örn Gunnarsson, fæddur 6. janúar 1963, til heimilis í Garðabæ. Guðmundur stundaði nám í tryggingastærðfræði og tölvunafræði við háskólann í Kaupmannahöfn (Copenhagen University) í Danmörku.

Guðmundur starfaði í 23 ár hjá Tryggingarmiðstöðinni hf. (TM) m.a. sem deildarstjóri upplýsingadeildar og hafði umsjón með tölvudeild TM, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar. Forstjóri Vátryggingafélags Íslands hf. (VÍS) og Líftryggingafélags Íslands (Lífís) 2008 – 2011. Frá 2011-2013 sinnti Guðmundur ýmsum ráðgjafastörfum og þá aðallega við gerð viðskiptaáætlana og gerð stefnumótunar á sviði nýsköpunar. Frá 2014 hefur hann starfað sem framkvæmdastjóri TRU Flight Training Iceland ehf. sem kom á fót rekstri flughermis í þjálfunarsetri Icelandair.

Guðmundur hefur viðttæka reynslu af stjórnarstörfum bæði sem almennur stjórnarmaður og stjórnarformaður. Hann er í dag stjórnarformaður hjá Vinnslustöðinni hf. og stjórnarmaður hjá Brandenburg ehf. og BL ehf.

Guðmundur er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.

Heimir V. Haraldsson, fæddur 22. apríl 1955, til heimils í Reykjavík. Heimir hefur setið í stjórn Sjóvá frá 20. júní 2009. Heimir er Cand.Oecon. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1979 og fékk löggildingu sem endurskoðandi 1982.

Heimir hefur rekið eigin fjárfestingar- og ráðgjafarfyrirtæki og sinnt ýmsum stjórnar- og nefndarstörfum frá árinu 2002. Heimir var framkvæmdastjóri Fjárfestingarfélagsins Gildingar hf. 2000–2002. Hann starfaði 1976–2000 hjá Endurskoðun hf., síðar KPMG Endurskoðun hf. í


Reykjavík. Hann var meðeigandi og síðar framkvæmdastjóri félagsins í tíu ár, samhliða störfum við endurskoðun og ráðgjöf. Heimir sat í skilanefnd Glitnis banka hf. frá árinu 2008 til ársloka 2011.

Heimir hefur viðtæka og umfangsmikla stjórnarreynslu og setið í stjórn fjölda fyrirtækja frá 1982 s.s. Lyf og heilsu hf., Lyfju hf., Marel hf., Securitas hf., Síldarvinnslunnar hf., skilanefnd Glitnis banka, og Össur hf. Í dag situr Heimir í stjórnum Nafns hf., Fjármagns ehf., Safns ehf., Safns-Ráðgjafar ehf. og Forða ehf., auk stjórnar Sjóvá.

Heimir er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.

Hildur Árnadóttir, fædd 4. ágúst 1966, til heimilis í Reykjavík. Hildur hefur setið í stjórn Sjóvá frá 15. mars 2019. Hildur er með Cand. Oecon gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og löggildingarpróf í endurskoðun.

Hildur starfaði sem löggiltur endurskoðandi og eigandi hjá KPMG 1990-2004, framkvæmdastjóri fjármála hjá Bakkavör Group hf. og síðar sem ráðgjafi á skrifstofu forstjóra 2004-2014, forstöðumaður fjárstyringar Íslandsbanka 2014-2015 og við ráðgjöf og stjórnarstörf frá 2016. Ráðgjöfin er aðallega á sviði fjármögnunar fyrirtækja, reikningsskila og skattaðstoðar. Frá 2009 – 2019 var hún í endurskoðendaráði skipuð af ráðherra. Í gegnum árin hefur Hildur setið í stjórnum margra fyrirtækja í ýmsum greinum atvinnulífsins, s.s. í stjórn Bakkavarar Group hf., Exista hf., Lýsingar hf., Skipta hf., VÍS og Víðskiptaráðs. Hún hefur jafnframt verið í endurskoðunar- og starfskjaraðefndum. Hildur situr núna í stjórnum Heimavalla hf., Íslandsstofu, Eldey TLH hf., Norðursiglingar hf. og Argyron hf. Hún er auk þess virk í ýmsum félagsstörfum.

Hildur er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.

Ingi Jóhann Guðmundsson, fæddur 12. janúar 1969, til heimilis í Garðabæ. Ingi Jóhann hefur setið í stjórn Sjóvá frá 28. júlí 2011. Ingi Jóhann er Cand. Oecon í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Ingi Jóhann starfar sem framkvæmdastjóri Gjögurs hf. og Kjálkaness ehf. Hann var framleiðslustjóri Íslenskra sjávarafurða frá 1995-2000.

Ingi Jóhann situr í stjórnum Síldarvinnslunnar hf., SVN eignafélags ehf. Ingi Jóhann er stjórnarformaður í SVN eignafélagi ehf. SVN eignafélag ehf. á 13,9678% hlut í Sjóvá, en auk þess á Ingi Jóhann óbeinan hlut í SVN eignafélagi í gegnum Síldarvinnsluna hf. og Kjálkanes ehf. sem á 34,2% hlut í Síldarvinnslunni og Ingi á 22% eignarhlut í Kjálkanesi ehf.

Ingi telst óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háður stórum hluthafa samkvæmt leiðbeiningum um stjórnarhætti.

Ingunn Agnes Kro, fædd 27. mars 1982, til heimilis í Reykjavík. Ingunn er BA og MA í lögfræði frá Háskóla Íslands, með málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi, löggiltur verðbréfamiðlari og stundar nú MBA nám við Háskóla Íslands.

2


Ingunn starfaði hjá Skeljungi hf. á árunum 2009-2019, síðast sem framkvæmdastjóri skrifstofu- og samskiptasviðs þar sem hún bar ábyrgð á samskipta-, samfélagsábyrgðar- lögfræði-, markaðs- og mannaðsmálum, en áður sem yfirlögfræðingur, regluvörður, ritari stjórnar og sat í framkvæmdastjórn. Hún var einnig framkvæmdastjóri Íslenska vetnisfélagsins ehf. (dótturfélag Skeljungs hf.) á árunum 2018-2019. Á árunum 2008-2010 var Ingunn stundakennari og síðar aðjunkt hjá lagadeild Háskóla Íslands þar sem hún kenndi skaðabótarétt.

Ingunn er stjórnarmaður í HS Orku hf. og situr auk þess í endurskoðunar- og starfskjaranefnd félagsins. Hún er í stjórn Íslenskra fjárfesta hf. en mun víkja úr þeirri stjórn ef hún verður kjörin í stjórn Sjóvá. Hún er virkur varamaður í stjórn Iceland Seafood International hf. og situr í endurskoðunarnefnd félagsins. Auk þess sat Ingunn í stjórnum ýmissa dótturfélaga Skeljungs hf. á meðan hún starfaði þar.

Ingunn er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.

Jón Gunnar Borgþórsson, fæddur 1. nóvember 1957, til heimilis í Reykjavík. Jón Gunnar er með meistaragráðu og Cand.Oecon. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Jón Gunnar er sjálfstætt starfandi stjórnenda- og rekstrarráðgjafi, JGB, ráðgjöf og bókhald slf. og hefur verið frá árinu 2014. Jón Gunnar starfaði á árunum 2011-2014 hjá Kine ehf. sem markaðs- og sölustjóri og á árunum 2009-2011 hjá Ferðamálastofu/Íslandsstofu sem forstöðumaður/verkefnastjóri. Auk þess hefur hann kennt hjá Háskólanum í Reykjavík, Háskóla Íslands, starfað hjá Ferðamálaráði, Útflutningsráði og víðar.

Jón Gunnar situr í stjórn Stjórnvísi og formaður faghóps félagsins um góða stjórnarhætti.

Jón Gunnar er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.

Már Wolfgang Mixa, fæddur 6. febrúar 1965, til heimilis í Hafnarfirði. Már er með doktorsgráðu (PhD) Business Administration frá Háskólanum í Reykjavík, MSc í fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Íslands, BSBA í fjármálum frá Háskólanum í Arizona auk BA í heimspeki frá Háskólanum í Arizona. Löggiltur verðbréfamiðlari í Bandaríkjunum og Íslandi.

Már starfar sem lektor í fjármálum hjá Háskólanum í Reykjavík og unnið við rannsóknir í fjármálum og gefið út fjölmargar ritrýndar greinar og bókakafla á því sviði. Már hefur meðfram störfum sínum hjá Háskólanum í Reykjavík starfað sem ráðgjafi við fjárfestingar.

Már hefur viðtæka reynslu úr fjármálageiranum sl. rúm 20 ár m.a frá Atlantic Tank Storage, Icebank, Nordvest Securities, JPM Ventures, Verðbréfapjónustu Sparisjóðsins, SPH verðbréfum o.fl.

Már situr í stjórnum Simple Investment ehf. og Simple Time ehf.

Már er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.

Ragnar Karl Gústafsson, fæddur 8. október 1981, til heimilis í Reykjavík. Ragnar er með 4. stig vélstjórnar auk sveinsprófs í vélvirkjun og stúdentsprófs.

3


Ragnar hefur sl. ár sinnt eftirlitsstörfum með nýsmíði frystitogara fyrir Brim hf. Á árunum 2012-2018 var hann yfirvélstjóri hjá Brim seafood/Arctic Prime Fisheries. Auk þess hefur Ragnar sinnt ýmsum störfum til sjós og lands s.s háseti, vélstjóri á jarðborum, og sinnt þjónustu og viðgerðum á Wartsila díselvélum í hinum ýmsu fiskiskipum hérlendis og erlendis.

Ragnar Karl situr í stjórnum Einfalt ehf. og Draupnis ehf.

Ragnar á 100.000 hluti í Sjóvá sem nemur um 0,0072% í félaginu.

Ragnar er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.

Framboð til varamennsku í stjórn:

Erna Gísladóttir, fædd 5. maí 1968, til heimilis í Garðabæ. Erna sat í stjórn Sjóvá frá 20. júní 2009 til 15. mars 2019 sem stjórnarmaður og síðar formaður, en varð varamaður frá þeim tíma til 19. nóvember 2019 þegar hún tók aftur sæti í stjórn þegar Björgólfur steig til hliðar vegna tímabundins starfs. Erna lauk B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands 1991 og MBA frá IESE í Barcelona 2004.

Erna er forstjóri og í stjórn BL ehf. Hún var forstjóri Bifreiða og landbúnaðarvéla hf. 2003-2008, var einn af eigendum þess félags og framkvæmdastjóri frá 1991. Auk framangreinds situr hún í stjórnum Egg ehf., Egg fasteigna ehf., Eldhúsvara ehf., Haga hf., Umbreytingar slhf. og Hregg ehf.

Erna er ásamt eiginmanni sínum eigandi og stjórnarmaður í Egg ehf. Egg ehf. á 2,9147% eignarhlut í Sjóvá.

Erna er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.

Garðar Gíslason, fæddur 19. október 1966, til heimilis í Garðabæ. Hann hefur verið varamaður í stjórn Sjóvá frá 30. september 2011. Garðar er Cand.Jur. frá Háskóla Íslands 1997.

Garðar hefur starfað sem lögmaður frá 2005, lengst af á LEX lögmannsstofu, en frá haustinu 2016 sem lögmaður og eigandi á IUS lögmannsstofu. Hann hefur auk þess verið stundakennari í lögfræði í HR frá 2006. Hann var yfirlögfræðingur og síðar forstöðumaður hjá embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins og staðgengill skattrannsóknarstjóra frá 1997-2005.

Garðar situr í stjórnum eftirfarandi félaga: IUS lögmannsstofa ehf., Landhlíð ehf. (varamaður), Ránarborg ehf. (varamaður), Harðbakur ehf. (varamaður), Hlíðarfótur ehf., Valshjartað hf. og Kná ehf.

Garðar er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.