Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Sjóvá-Almennar tryggingar Proxy Solicitation & Information Statement 2020

Nov 3, 2020

2204_rns_2020-11-03_1d568332-9f63-4eaa-92de-e29f0d8ff8a4.pdf

Proxy Solicitation & Information Statement

Open in viewer

Opens in your device viewer

Sjóvá

440 2000

Hluthafafundur í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. 25. nóvember 2020

Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. boðar til hluthafafundar í félaginu sem haldinn verður miðvikudaginn 25. nóvember kl. 10:00 í fundarsal á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Heildar- hlutafé félagsins er kr. 1.335.957.552. Á hluthafafundi fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé.

Hluthafafundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. 25. nóvember 2020

Á aðalfundi félagsins sem haldinn var þann 12. mars sl. var samþykkt breytingartillaga stjórnar um að ákvörðun um arðgreiðslu yrði frestað að sinni í ljósi þeirra aðstæðna sem væru uppi í þjóðfélaginu vegna COVID-19 veirunnar. Með því gæfist betri tími til að meta stöðu mála og að taka ákvörðun á traustum grunni. Var tillagan samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.

Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. boðar til hluthafafundar í félaginu sem haldinn verður á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík, miðvikudaginn 25. nóvember 2020 og hefst kl. 10:00.

Á dagskrá fundarins eru eftirfarandi mál:

  1. Ákvörðun um tillögu stjórnar um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á síðastliðnu reikniningsári.

Stjórn leggur til að ekki verði greiddur út arður vegna rekstrarársins 2019 og að hagnaður ársins 2019 komi til hækkunar á eigin fé félagsins.

  1. Önnur mál löglega fram borin.

Hluthafar eiga rétt á að leggja fram mál og/eða ályktunartillögur fyrir fundinn ef gerð hefur verið skrifleg eða rafræn krafa um það eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. eigi síðar en kl. 10:00 sunnudaginn 15. nóvember 2020. Hafí hluthafar krafist þess að tiltekið mál eða ályktun verði tekið fyrir verða endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vef félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir hluthafafundinn. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir fyrir fundinn á veffangið stjó[email protected]. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á vef félagsins.

Hægt verður að fylgjast beint með fundinum í vefstreymi á slóðinni https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/ hluthafafundur/hluthafafundur-2020/

Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum.

Öllum ákvörðunum heilbrigðisráðherra um samkomutakmarkanir á grundvelli sóttvarnalaga verður framfylgt á hluthafafundinum. Í ljósi þessa og þeirra samkomutakmarkana sem kunna að verða fyrir hendi á fundardegi er hluthöfum bent á að veita umboð til umboðsmanns um þátttöku á fundinum með fyrirmælum um hvernig atkvæði skuli greidd um þær tillögur sem til afgreiðslu eru. Hefur Sjóvá fengið Grétar Dór Sigurðsson hrl. hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur til að vera umboðsmann fyrir þá hluthafa sem það vilja. Hægt er að sækja viðeigandi umboðseyðublað á vefsvæði Sjóvá https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/ hluthafafundur/hluthafafundur-2020/ og senda rafrænt á [email protected]. Nánari upplýsingar um umboð og skil þeirra er að finna í fyrrgreindu umboðseyðublaði á vefsvæði Sjóvá.

Hluthafafundur er lögmætur án tillits til fundarsóknar ef löglega er til hans boðað.

Fundarboð þetta, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæða, dagskrá hluthafafundar og fundargögn, þ. á m. tillögur stjórnar, sem lögð verða fyrir hluthafafund, ásamt umboðseyðublaði eru að gengileg á vefsvæði félagsins https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/hluthafafundur/ hluthafafundur-2020/

Hluthafar eða umboðsmaður hluthafa geta skráð sig á hluthafafundinn á fundarstað frá kl. 9:30 á fundardag og fengið fundargögn afhent. Hluthafafundur og fundargögn verða á íslensku.

Reykjavík 3. nóvember 2020.

Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf.

sjova.is

SJÓVÁ