AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Proxy Solicitation & Information Statement 2020
Nov 20, 2020
2204_rns_2020-11-20_bd383615-93c4-42d9-9096-dfd94ba15012.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
SJÓVÁ
Tillögur stjórnar
Hluthafafundur í Sjóvá-Almennum tryggingum hf.
- nóvember 2020
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. leggur fram eftirfarandi tillögu fyrir hluthafafund:
Dagskrárliður 1. – Ákvörðun um tillögu stjórnar um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á síðastliðnu reikningsári
Tillaga: Stjórn leggur til að ekki verði greiddur út arður vegna rekstrarársins 2019 og að hagnaður ársins 2019 komi til hækkunar á eigin fé félagsins.
Greinargerð stjórnar:
Breytingartillaga stjórnar um að fresta ákvörðun um greiðslu arðs fyrir rekstrarárið 2019 var sambykkt á aðalfundi félagsins 12. mars sl. með öllum greiddum atkvæðum. Stjórn tók þessa ákvörðun í ljósi þeirra aðstæðna sem voru uppi í þjóðfélaginu vegna COVID-19 veirunnar á þeim tíma. Pannig gæfist betri tími til að meta áhrif útbreiðslu veirunnar á íslenskt efnahagslíf og á fjárhagsstöðu félagsins.
Pann 17. mars sl. sendi EIOPA (The European Insurance and Occupational Pensions Authority) frá sér yfirlýsingu vegna COVID-19 faraldursins þar sem mælt er með að aðilar á vátryggingamarkaði gripi til ákveðinna aðgerða, ásamt því að upplýsa til hvaða aðgerða EIOPA og eftirlitsstjórnvöld í hverju ríki geta gripi til. Þar var m.a. tekið fram mikilvægi þess að vátryggingafélög gerðu ráðstafanir til að viðhalda góðri eiginfjárstöðu. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands (FME) tók undir yfirlýsinguna í frétt sem birtist á vef þeirra 18. mars sl. ásamt því að tilkynna um að FME hefði verið í sambandi við aðila á markaðnum vegna þessa.
Í yfirlýsingu frá EIOPA þann 2. apríl sl. voru vátryggingafélög hvött til þess að taka mið af þeirri óvissu sem til staðar væri vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar á fjármálamarkaði og efnahagslíf þegar gjaldbolsþorf og fjárhagsstaða væri metin. Í ljósi þessarar óvissu hvatti EIOPA vátryggingafélög til að fresta öllum valkvæðum (e.discretionary) arðgreiðslum og/eða endurkaupum eigin hluta sem snúa að hluthöfum félaganna. Tilmælin yrðu endurskoðuð þegar fjárhagsleg og efnahagsleg áhrif af Covid-19 faraldrinum fara að skýrast. Enn sem komið er hefur ekki komið til endurskoðunar á þessum tilmælum.
Eins og fram kom í birtu uppgöri félagsins 29. október sl. er fjárhagslegur styrkur og þar með gjaldbol afar sterkt og getur sannanlega staðið undir arðgreiðslum. Þrátt fyrir það og í ljósi þess að ofangreind tilmæli hafa ekki verið endurskoðuð er það mat stjórnar að ekki sé rétt í ljósi aðstæðna að greiða út arð til hluthafa á árinu 2020.