AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Proxy Solicitation & Information Statement 2019
Mar 8, 2019
2204_rns_2019-03-08_0808ef20-c9e5-41aa-ac71-ca20b755f6bf.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
- mars 2019
SKÝRSLA
TILNEFNINGARNEFNDAR SJÓVÁR
2019
SKÝRSLA TILNEFNINGARNEFNDAR 2019
Tilgangur og markmið
Tilnefningarnefnd Sjóvár tók til starfa í október 2018.
Hlutverk tilnefningarnefndar er að tilnefna einstaklinga til stjórnarsetu í félaginu. Í störfum sínum skal nefndin vinna að hagsmunum allra hluthafa og gæta þess að einstaklingar sem tilnefndir eru búi sem heild yfir nægilegri þekkingu og reynslu til þess að rækja hlutverk sitt.
Tilnefningarnefnd hefur ráðgefandi hlutverk við val á stjórnarmönnum Sjóvár og leggur tillögur þess efnis fyrir aðalfund. Nánari upplýsingar um hlutverk nefndarinnar má finna í starfsreglum hennar, sem aðgengilegar eru á heimasíðu Sjóvár, sem og í leiðbeiningum Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka Atvinnulífsins og Nasdaq Iceland um góða stjórnarhætti.
Skipan
Nefndarmenn fyrir árin 2018-2020 voru kosin þau Jón Birgir Guðmundsson, útibússtjóri Íslandsbanka á Akureyri, Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs og Vilborg Lofts, rekstrarstjóri Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Katrín var á fyrsta fundi kosin formaður nefndarinnar. Pálín Dögg Helgadóttir, verkefnastjóri hjá Sjóvá var jafnframt kjörin ritari nefndarinnar.
Allir nefndarmenn eru óháðir félaginu og stjórnendum þess. Allir nefndarmenn eru jafnframt óháðir stórum hluthöfum félagsins.
Störf nefndarinnar
Tilefningarnefnd fundaði 11 sinnum á tímabilinu frá 26. október og til 8. mars 2019. Nefndin starfaði í samræmi við starfsreglur sem sjá má í viðauka.
Nefndarmenn funduðu með forstjóra félagsins, Hermanni Björnssyni. Tilgangurinn var að fá skýrari mynd af annars vegar þeirri lykilhæfni og þekkingu sem stjórn félagsins þarf á að halda og fá mynd af störfum stjórnar. Hermann kynnti starfsemi Sjóvár og skýrði rekstur félagsins, stjórnarhætti, þróun félagsins frá stofnun, stjórnarsetu og eignarhald.
Nefndarmenn hittu í framhaldinu alla aðalmenn í núverandi stjórn Sjóvár og lögðu fyrir þá staðlaðar spurningar. Markmið fundanna var að afla upplýsinga um félagið, starf stjórnarinnar og samsetningu hennar. Nefndarmenn fóru yfir hæfni, reynslu og þekkingu viðkomandi. Lagt var mat á hæfni og reynslu stjórnarmanna út frá fyrirfram skilgreindum lykilhæfnisbáttum fyrir stjórn og einnig var lagt mat á stjórnina í heild.
Á fundum nefndarmanna með stjórnarmönnum kom fram að tveir aðalmanna, Erna Gísladóttir, stjórnarformaður og Tómas Kristjánsson, varaformaður stjórnar, höfðu ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn Sjóvár. Jafnframt lá fyrir að Kristín Egilsdóttir, varamaður í stjórn og formaður endurskoðunarnefndar gæfi ekki kost á sér til áframhaldandi setu sem varamaður eða í endurskoðunarnefnd.
Einnig hafði nefndin til hliðsjónar árangurs- og sjálfmat stjórnar sem síðast var lagt fyrir Fjármálaeftirlitið. Í árangursmatinu sem lagt var fyrir alla stjórnarmenn kom fram mikil ánægja stjórnarmanna um form og skipulag stjórnarfunda. Stjórnarmenn voru sammála um að samskipti innan stjórnar væru heiðarleg og opin, stjórn væri vel samsett. Góð eining, mikill metnaður og samstarfsvilji ríkir í stjórninni. Jafnframt töldu stjórnarmenn að framkvæmdastjórn fyrirtækisins sem og forstjóri væru öflugt stjórnendateymi sem m.a. endurspeglaðist í þeim viðurkenningum sem fyrirtækið hefði hlotið fyrir góðan árangur í starfi.
Nefndin hafði einnig samband við 20 stærstu hluthafa félagsins sem samtals eiga 86,9% hluta í félaginu og þeim boðið að eiga fund með nefndinni. Skiptu nefndarmenn með sér verkum. Markmiðið var að gefa stærstu hluthöfum færi á að koma sjónarmiðum sínum um starf stjórnarinnar á framfæri. Afar gagnlegt var fyrir nefndina að heyra viðhorf og væntingar þeirra til starfa hennar. Flestir hluthafar lögðu áherslu á góða breidd þekkingar og reynslu í stjórninni. Allir hluthafarnir fengu sömu spurningar og var ítrekað í samtólum að hafa samband ef menn vildu koma einhverju á framfæri eða ef eitthvað væri óljóst.
Einnig var rætt um tilgang og hlutverk tilnefningarnefnda og skiptust menn á skoðunum þar um. Lítil reynsla er enn komin á störf nefndanna og flestir voru jákvæðir í garð tilnefningarnefnda.
Í auglýsingu aðalfundar sem haldinn verður 15. mars n.k. kl. 15 sem birt var í fréttakerfi kauphallar þann 21. febrúar 2019 var óskað eftir tilnefningum og framboðum til stjórnar. Senda skyldi framboðstilkynningu til nefndarinnar eigi síðar en 1. mars 2019. Fram kom að vegna eðlis og umfangs hæfnismats nefndarinnar væri mælst til þess að framboð til stjórnar bærust fyrir það tímamark. Almennur framboðsfrestur er eftir sem áður fimm sólarhringum fyrir aðalfund í samræmi við 63 gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995 eða fyrir kl. 15. þann 10. mars.
Mat tilnefningarnefndar
Tilnefningarnefnd greindi lykilhæfni og þekkingu fyrir stjórn Sjóvá. Í kjölfarið lagði hún mat á þekkingu og hæfni núverandi stjórnar út frá lykilhæfnirammanum.
Lykilhæfni og þekking fyrir stjórn Sjóvár
- Stjórnunarreynsla í stórum fyrirtækjum
- Reynsla af tryggingamarkaði
- Reynsla af fjármálamarkaði
- Reynsla af áhættustjórnun
- Sérþekking á lögum
- Reynsla og skilningur á markaðsmálum
- Reynsla af langtíma stefnumótun
- Reynsla af stjórnarsetu
Grunnhæfni
- Rekstrarþekking
- Fjármálaþekking
- Lögfræðiþekking
- Stjórnunarþekking
- Tækniþekking
- Endurskoðun
4
Persönuhæfni
- Gott siðferði
- Framsýni
- Geta til að taka erfiðar ákvarðanir
- Ákveðni
- Góður liðsmaður
- Samstarfshæfni
- Setur fyrirtækið í forgang
- Hæfni til að spyrja réttu spurninganna
- Áhersla á langtíma ávinning hluthafa
- Áhersla á jafnrétti og fjölbreytileika
Við mat á tilnefningum til stjórnar horfir tilnefningarnefnd til þess að stjórnir myndi sterka og faglega heild í þágu félagsins og hluthafa þess. Æskilegt er að einstakir stjórnarmenn búi að þekkingu og hæfni á sem flestum ofangreindra sviða og að sem flestir þættir endurspeglist í sitjandi stjórn. Aðrir þættir s.s. þekking á starfsemi félagsins, samfella í stjórnun, aðstaða frambjóðenda til að sinna þeim krefjandi verkefnum sem stjórnarseta felur í sér, kynjahlutföll og fleiri þættir koma einnig til skoðunar við gerð endanlegrar tillögu tilnefningarnefndar.
Framboð
Til setu í aðalstjórn Sjóvár bárust sjö framboð og tvö framboð til setu í varastjórn. Þrír núverandi stjórnarmenn gáfu kost á sér áfram, þ.e. Heimir Haraldsson, Hjörðis E. Harðardóttir og Ingi Jóhann Guðmundsson. Auk þeirra buðu sig fram Björgólfur Jóhannsson, Helga Sigríður Böðvarsdóttir, Hildur Árnadóttir og Jón Bjarni Gunnarsson. Í varastjórn buðu sig fram Erna Gísladóttir núverandi formaður stjórnar og Garðar Gíslason sem er núverandi varamaður. Allir frambjóðendur voru metnir hæfir.
Tilnefningarnefnd hitti alla frambjóðendur til stjórnar félagsins. Útbjó nefndin sérstakan spurningalista fyrir viðtölín til að kanna styrkleika, þekkingu og reynslu viðkomandi til að gegna stjórnarstarfi í skráðu félagi.
Allar persónugreinanlegar upplýsingar sem fram komu í viðtölum eru trúnaðarmál sem nefndarmenn geyma hjá sér.
Það er mat tilnefningarnefndar að helstu lykilhæfniþætti, reynslu og þekkingu sé að finna í hópi frambjóðenda. Einnig uppfylla framboðin kröfur um kynjahlutföll.
Niðurstaða – Tillaga um stjórn
Tilnefningarnefnd leggur til að eftirtaldir frambjóðendur verði kjörnir í aðalstjórn og varastjórn Sjóvár:
- Björgólfur Jóhannsson
- Heimir V. Haraldsson
- Hildur Árnadóttir
- Hjörðis E. Harðardóttir
- Ingi Jóhann Guðmundsson
Varastjórn
- Erna Gísladóttir
- Garðar Gíslason
Sjá nánari upplýsingar um frambjóðendur í viðauka.
Aðrir frambjóðendur hafa vissulega hæfni, þekkingu og reynslu sem gæti nýst til stjórnarstarfa í Sjóvá. Til lengri tíma litið er ljóst að tryggja þarf eðlilega endurnýjun í stjórn. Með tveimur nýjum stjórnarmönnum er sú endurnýjun fyrir hendi að þessu sinni.
Reykjavík, 8. mars 2019
Katrín S. Óladóttir
Jón Birgir Guðmundsson
Vilborg Lofts
5
6
Viðauki I
Starfsreglur tilnefningarnefndar Sjóvá-Almennra trygginga hf.
Tilnefningarnefnd starfar á grundvelli heimildar í 22. gr. samþykkta félagsins.
Hluthafafundur setur nefndinni eftirfarandi reglur:
1. Tilgangur og markmið
1.1. Hlutverk tilnefningarnefndar er að tilnefna einstaklinga til stjórnarsetu í félaginu. Í störfum sínum skal nefndin vinna að hagsmunum allra hluthafa og gæta þess að einstaklingar sem tilnefndir eru búi sem heild yfir nægilegri þekkingu og reynslu til þess að rækja hlutverk sitt.
2. Skipun og samsetning
2.1. Tilnefningarnefnd skal skipuð þremur mönnum og skulu þeir kosnir á aðalfundi til tveggja ára.
2.2. Stjórnarmenn félagsins, stjórnendur þess og starfsmenn skulu ekki eiga sæti í nefndinni.
2.3. Meirihluti nefndarmanna skal vera óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess. A.m.k. einn nefndarmanna skal vera óháður hluthöfum sem eiga 10% hlut í félaginu eða meira. Stjórn Sjóvár skal meta óhæði nefndarmanna skv. 2. mgr. 18. gr. samþykkta félagsins að breyttu breytanda.
2.4. Framboð til tilnefningarnefndar skal hafa borist skriflega til stjórnar félagsins eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund. Um tilkynningu um framboð til nefndarinnar fer að öðru leyti skv. 1. mgr. 18. gr. samþykkta félagsins að breyttu breytanda.
2.5. Kosning í tilnefningarnefnd skal fara fram sem hlutfallskosning milli þeirra einstaklinga sem tilkynnt hafa um framboð sitt sbr. 4. mgr. 18. gr. samþykkta félagsins að breyttu breytanda.
2.6. Tilkynna skal um skipun nefndarmanna á vefsíðu félagsins ekki síðar en 6 mánuðum fyrir aðalfund.
7
3. Fundir
3.1. Tilnefningarnefnd kÿs sér formann úr hópi nefndarmanna á fyrsta fundi sem nefndin kemur saman. Nefndin skiptir að öðru leyti með sér verkum og skal sjá um að fundargerð sé færð.
3.2. Nefndin skal funda að lágmarki tvisvar á starfsári og oftar ef þurfa þykir.
3.3. Nefndin er ákvörðunarbær þegar meirihluti nefndarmanna sækir fund. Einfaldur meirihluti atkvæða ræður úrslitum í öllum málum sem koma til kasta nefndarinnar. Falli atkvæði jöfn ræður atkvæði formanns. Mikilvæga ákvörðun má þó ekki taka án þess að allir nefndarmenn hafi haft tök á því að fjalla um málið, sé þess kostur.
4. Hlutverk og ábyrgðarsvið
4.1. Tilnefningarnefnd hefur það hlutverk að tilnefna frambjóðendur til stjórnarsetu í félaginu þegar kosning til stjórnar er á dagskrá hluthafafundar.
4.2. Helstu verkefni tilnefningarnefndar eru að:
a) óska eftir tillögum um framboð til stjórnar frá hluthöfum tímanlega fyrir aðalfund félagsins,
b) upplýsa um hvernig hluthafar geti lagt fram tillögur fyrir tilnefningarnefndina og hvernig aðrir geta komið framboðum sínum á framfæri,
c) útbúa framboðseyðublað og sjá til þess að það sé aðgengilegt á vefsíðu félagsins,
d) sjá til þess að skil framboðstilkynninga séu í samræmi við lög og samþykktir félagsins,
e) meta frambjóðendur út frá hæfni, reynslu og þekkingu þeirra,
2
f) meta óhæði frambjóðenda,
g) gæta að kynjahlutföllum í stjórn félagsins,
h) undirbúa og leggja fram tillögu að tilnefningu frambjóðenda til stjórnarsetu,
i) greina frá því á aðalfundi hvernig nefndin hafi hagað störfum og rökstyðja tilnefningar sínar,
j) yfirfara starfsreglur þessar og gera tillögu að breytingum til að leggja fyrir hluthafafund sé þörf á.
4.3. Við undirbúning og gerð tillögu að tilnefningu frambjóðenda til stjórnarsetu skal nefndin m.a. líta til þess að samsetning stjórnar sé sem best í samræmi við starfsemi og stefnu félagsins og hún beri með sér fjölbreytni og breidd í hæfni, reynslu og þekkingu. Skal nefndin m.a. notast við niðurstöður árangursmats stjórnar er varðar samsetningu stjórnar og hæfni stjórnarmanna.
8
5. Heimildir
5.1. Tilnefningarnefnd skal í störfum sínum hafa aðgang að þeim gögnum sem nefndin telur nauðsynleg til að gegna hlutverki sínu. Aðgangur að gögnum og starfsmonnum félagsins skal þó vera bundinn þeim hömlum sem gilda um aðgengi stjórnarmanna í vátryggingafélögum samkvæmt gildandi löggjöf og starfsreglum stjórnar.
5.2. Tilnefningarnefnd er heimilt að leita til utanaðkomandi ráðgjafa í störfum sínum og skulu þeir þá vera óháðir félaginu, daglegum stjórnendum og þeim stjórnarmönnum sem ekki eru óháðir. Nefndin skal ganga úr skugga um óhæði ráðgjafa en við það mat skal nefndin notast við sömu sjónarmið og þegar óhæði stjórnarmanna er metið.
6. Trúnarðarskylda
6.1. Á nefndarmönnum hvílir þagnar- og trúnaðarskylda um málefni félagsins og önnur atriði sem þeir öðlast vitneskju um í störfum sínum og leynt skulu fara, nema um sé að ræða málefni sem nefndinni ber að gera opinber vegna starfsskyldna. Þagnar- og trúnarðarskylda helst þótt látið sé af störfum.
7. Gildistaka
7.1. Starfsreglur þessar eru samþykktar á hluthafafundi Sjóvá-Almennra trygginga hf. 26. október 2018 og öðlast þegar gildi. Starfsreglurnar skulu birtar á vefsíðu félagsins.
Ákvæði til bráðabirgða
Vegna starfa tilnefningarnefndar í tengslum við kosningu til stjórnar félagsins á aðalfundi árið 2019 skal þrátt fyrir ákvæði í 1., 4., og 6. mgr. 2. gr. haga kjörí og skipun í tilnefningarnefnd í samræmi við ákvæði til bráðabirgða við samþykktir félagsins vegna þess stjórnarkjörs og einnig vegna stjórnarkjörs á aðalfundi árið 2020. Auk þess skal framboð til tilnefningarnefndar hafa borist skriflega til stjórnar félagsins eigi síðar en fimm dögum fyrir hluthafafundinn 26. október 2018. Tilkynnt skal um skipun nefndarmanna á vefsíðu félagsins samdægurs eftir hluthafafundinn.
Samþykktar á hluthafafundi 26. október 2018
9
Viðauki II
Framboð til stjórnar Sjóvár.
Tillaga tilnefningarnefndar.
Björgólfur Jóhannsson
Björgólfur Jóhannsson, fæddur 28. ágúst 1964, til heimilis á Akureyri. Björgólfur er með Cand. Oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla íslands og löggildingarpróf í endurskoðun. Björgólfur starfaði sem endurskoðandi á árunum 1980-1992. Hann var fjármálastjóri Háskólans á Akureyri 1992-1996, framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar hjá Samherja 1996-1999, famkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar 1999-2006, framkvæmdastjóri Icelandic 2006-2007 og forstjóri og framkvæmdastjóri Icelandair Group 2008-2018. Björgólfur var formaður stjórnar LÍÚ á árunum 2003-2008 og formaður Samtaka atvinnulífsins 2013-2016. Í gegnum árin hefur hann setið í stjórnum margra fyrirtækja í ýmsum greinum atvinnulífsins. Björgólfur situr í stjórnum eftirfarandi félaga: Gjögri hf, Festi hf., Íslandsstofu og í stjórnstöð ferðamála fyrir SAF.
Björgólfur er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Heimir V. Haraldsson
Heimir V. Haraldsson, fæddur 22. apríl 1955, til heimilis í Reykjavík. Heimir hefur setið í stjórn Sjóvár frá 20. júní 2009. Heimir er Cand.Oecon. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1979, og fékk löggildingu sem endurskoðandi 1982. Heimir hefur rekið eigin fjárfestingar- og ráðgjafar-fyrirtæki og sinnt ýmsum stjórnar- og nefndarstörfum frá árinu 2002. Heimir var framkvæmdastjóri Fjárfestingarfélagsins Gildingar hf. 2000–2002. Hann starfaði 1976–2000 hjá Endurskoðun hf., síðar KPMG Endurskoðun hf. í Reykjavík. Hann var meðeigandi og síðar framkvæmdastjóri félagsins í tíu ár, samhliða störfum við endurskoðun og ráðgjöf. Heimir sat í skilanefnd Glitnis banka hf. frá árinu 2008 til ársloka 2011. Heimir situr í stjórnum Nafns hf., Fjármagns ehf., Safns ehf., Safns-Ráðgjafar ehf., Forða ehf. og Holtasunds ehf.
Heimir er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Hildur Árnadóttir
Hildur Árnadóttir, fædd 4. ágúst 1966, til heimilis í Reykjavík. Hildur er með Cand. Oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og löggildingarpróf í endurskoðun. Hildur starfaði sem löggiltur endurskoðandi og eigandi hjá KPMG 1990-2004, framkvæmdastjóri fjármála hjá Bakkavör Group hf og síðar sem ráðgjafi á skrifstofu forstjóra 2004-2014, forstöðumaður fjárstýringar Íslandsbanka 2014-2015 og við ráðgjöf og stjórnarstörf frá 2016. Í gegnum árin hefur Hildur setið í stjórnum margra fyrirtækja í ýmsum greinum atvinnulífsins, s.s. í stjórn Bakkavarar Group hf., Exista hf., Lýsingar hf., Skipta hf., VÍS og Viðskiptaráðs. Hún hefur jafnframt verið í endurskoðunar- og starfskjarañefndum. Hildur situr í stjórnum Heimavalla hf., Kortaþjónustunnar hf., Íslandsstofu, Eldey TLH hf., Norðursiglingar hf., auk dótturélaga þess
Gamla Bauks ehf. og Húsavíkurslipps ehf., Sportköfunarskóla Íslands ehf., Argyron hf. og MyPulse ehf.
Hildur er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Hjördis E. Harðardóttir
Hjördis E. Harðardóttir, fædd 18. apríl 1964, til heimilis í Reykjavík. Hjördis hefur setið í stjórn Sjóvár frá 29. apríl 2014. Hjördis lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1989 og LL.M. í alþjóðlegum viðskiptarétti frá London School of Economics 1992. Hjördis starfar sem hæstaréttarlögmaður á Megin lögmannsstofu. Hún var framkvæmdastjóri á upplýsinga- og stjórnunarsviði VÍS 1996-2001, deildarstjóri í atvinnutryggingum hjá sama félagi frá 1995 og áður við störf hjá sama félagi frá 1989. Hún var formaður skilanefndar Sparisjóðabanka Íslands 2009-2012 og sat í stjórn Okkar líftrygginga 2009-2011 og í stjórn Höfðatorgs ehf. frá 2012-2014.
Hjördis er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Ingi Jóhann Guðmundsson
Ingi Jóhann Guðmundsson, fæddur 12. janúar 1969, til heimilis í Garðabæ. Ingi Jóhann hefur setið í stjórn Sjóvár frá 28. júlí 2011. Ingi Jóhann er Cand.Oecon. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og starfar sem framkvæmdastjóri Gjögurs hf. Hann var framleiðslustjóri Íslenskra sjávarafurða frá 1995-2000. Hann situr í stjórnum Síldarvinnslunnar hf. og SVN eignafélags ehf., Ingi Jóhann er stjórnarformaður í SVN eignafélagi ehf. SVN eignafélag ehf. á 13,0207% hlut í Sjóvá, en auk þess á Ingi óbeinan hlut í SVN eignafélagi í gegin um Síldarvinnsluna hf. og Kjálkanes ehf. sem á 34,2% hlut í Síldarvinnslunni og Ingi á 22% eignarhlut í Kjálkanesi ehf.
Ingi telst óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háður stórum hluthafa samkvæmt leiðbeiningum um stjórnarhætti.
Varamenn í stjórn
Erna Gísladóttir - stjórnarformaður
Erna Gísladóttir, stjórnarformaður, fædd 5. maí 1968, til heimilis á Seltjarnarnesi. Erna hefur setið í stjórn Sjóvár frá 20. júní 2009. Hún tók við formennsku stjórnar í júlí 2011. Erna lauk B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands 1991 og MBA frá IESE í Barcelona 2004. Erna er forstjóri og í stjórn BL ehf. Hún var forstjóri Bifreiða og landbúnaðarvéla hf. 2003-2008, var einn af eigendum þess félags og framkvæmdastjóri frá 1991. Auk framangreinds situr hún í stjórnum BLIH hf., Egg ehf., Egg fasteigna ehf., Eldhúsvara ehf., Haga hf., Umbreytingar slhf. og Hregg ehf.
10
Erna er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Erna er ásamt eiginmanni sínum eigandi og stjórnarmaður í Egg ehf. Egg ehf. á 2,7170% eignarhlut í Sjóvá.
Garðar Gíslason, fæddur 19. október 1966, til heimilis í Garðabæ. Hann hefur verið varamaður í stjórn Sjóvár frá 30. september 2011. Garðar er Cand.Jur. frá Háskóla Íslands 1997. Hann hefur starfað sem lögmaður frá 2005, lengst af á LEX lögmannsstofu, en frá haustinu 2016 á IUS lögmannsstofu. Hann var yfirlögfræðingur og síðar forstöðumaður hjá embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins og staðgengill skattrannsóknarstjóra frá 1997-2005. Garðar situr í stjórnum eftirfarandi félaga: IUS lögmannsstofa ehf., Salvus ehf. (varamaður), Hvatning hf., Landhlíð ehf. (varamaður), Kólfur ehf., Ránarborg ehf. (varamaður), Harðbakur ehf. (varamaður), PB 1 ehf., Hlíðarfótur ehf., Valshjartað hf. og Kná ehf.
Garðar er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Auk framangreindra eru í framboði
Helga Sigríður Böðvarsdóttir
Helga Sigríður Böðvarsdóttir, fædd 4. mái 1968, til heimilis í Garðabæ. Hún er með Cand. Oecon. gráðu í viðskiptafræði af fjármálasviði frá Háskóla Íslands og löggiltur endurskoðandi. Helga er framkvæmdastjóri fjármálasviðs Íslandspósts frá 2007. Hún starfaði hjá KPMG frá 1996-2006 og sem löggiltur endurskoðandi frá 2003, aðalbókari hjá Ferðamiðstöð Austurlands 1995-1996 og hjá Skattrannsóknastjóra 1993-1995.
Helga situr í stjórnum félaga tengdum Íslandspósti; Trönum ehf., Frakt, flutningsmiðlun ehf., og Gagnageymslunnar ehf. Hún er varamaður í eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga.
Helga er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Jón Bjarni Gunnarsson
Jón Bjarni Gunnarsson, fæddur 28. júní 1962, til heimilis á Selfossi. Hann er með Cand. Oecon. gráðu í viðskiptafræði af endurskoðunarsviði frá Háskóla Íslands. Jón Bjarni er sjálfstætt starfandi í ferðabjónustu. Hann var aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins frá 2008-2017, framkvæmdastjóri Ofnasmiðunnar 2007, fjármálastjóri Flugger ehf. 1989-2006, sérfræðingur á lánasviði Iðnaðarbanka Íslands 1988-1989, vann við bókhald o.fl. hjá endurskoðunarþjónustunni (nú Grant Thornton) frá 1986-1988. Jón Bjarni hefur setið í ýmsum stjórnum og ráðum, s.s. Sameinaða lífeyrissjóðnum, síðar Birtu lífeyrissjóðs, fjárfestingarráði Kjölfestu og vinnudeilusjóði. Jón Bjarni situr í stjórnum Tréhauss ehf. og Hitaveitu Bergstaða efh.
Jón Bjarni er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
11