AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Proxy Solicitation & Information Statement 2019
Mar 13, 2019
2204_rns_2019-03-13_294c6d22-a8a1-422e-9904-ff4b05624a1c.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Framboð til stjórnarsetu
Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf.
- mars 2019
Framboð til stjórnar:
Björgólfur Jóhannsson, fæddur 28. ágúst 1955, til heimilis á Akureyri. Björgólfur er með Cand. Oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og löggildingarpróf í endurskoðun. Björgólfur starfaði sem endurskoðandi á árunum 1980-1992. Hann var fjármálastjóri Háskólans á Akureyri 1992-1996, framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar hjá Samherja 1996-1999, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar 1999-2006, framkvæmdastjóri Icelandic 2006-2007 og forstjóri og framkvæmdastjóri Icelandair Group 2008-2018. Björgólfur var formaður stjórnar LÍÚ á árunum 2003-2008 og formaður Samtaka atvinnulífsins 2013-2016. Í gegnum árin hefur hann setið í stjórnum margra fyrirtækja í ýmsum greinum atvinnulífsins. Björgólfur situr í stjórnum eftirfarandi félaga: Gjögri hf., Festi hf., Íslandsstofu og stjórnstöðvar ferðamála fyrir SAF.
Björgólfur er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Heimir V. Haraldsson, fæddur 22. apríl 1955, til heimilis í Reykjavík. Heimir hefur setið í stjórn Sjóvár frá 20. júní 2009. Heimir er Cand.Oecon. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1979, og fékk löggildingu sem endurskoðandi 1982. Heimir hefur rekið eigin fjárfestingar- og ráðgjafarfyrirtæki og sinnt ýmsum stjórnar- og nefndarstörfum frá árinu 2002. Heimir var framkvæmdastjóri Fjárfestingarfélagsins Gildingar hf. 2000–2002. Hann starfaði 1976–2000 hjá Endurskoðun hf., síðar KPMG Endurskoðun hf. í Reykjavík. Hann var meðeigandi og síðar framkvæmdastjóri félagsins í túu ár, samhliða störfum við endurskoðun og ráðgjöf. Heimir sat í skilanefnd Glitnis banka hf. frá árinu 2008 til ársloka 2011. Heimir situr í stjórnum Nafns hf., Fjármagns ehf., Safns ehf., Safns-Ráðgjafar ehf., Forða ehf. og Holtasunds ehf.
Heimir er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Helga Sigríður Böðvarsdóttir, fædd 4. maí 1968, til heimilis í Garðabæ. Hún er með Cand. Oecon. gráðu í viðskiptafræði af fjármálasviði frá Háskóla Íslands og löggiltur endurskoðandi. Helga er framkvæmdastjóri fjármálasviðs Íslandspósts frá 2007. Hún starfaði hjá KPMG frá 1996-2006 og sem löggiltur endurskoðandi frá 2003, aðalbókari hjá Ferðamiðstöð Austurlands 1995-1996 og hjá Skattrannsóknastjóra 1993-1995. Helga situr í stjórnum félaga tengdum Íslandspósti; Trönum ehf., Frakt, flutningsmiðlun ehf., og Gagnageymslunnar ehf. Hún er varamaður í eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga.
Helga er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Hildur Árnadóttir, fædd 4. ágúst 1966, til heimilis í Reykjavík. Hildur er með Cand. Oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og löggildingarpróf í endurskoðun. Hildur starfaði sem löggiltur endurskoðandi og eigandi hjá KPMG 1990-2004, framkvæmdastjóri fjármála hjá Bakkavör Group hf og síðar sem ráðgjafi á skrifstofu forstjóra 2004-2014, forstöðumaður fjárstýringar Íslandsbanka 2014-2015 og við ráðgjöf og stjórnarstörf frá 2016. Í gegnum árin hefur Hildur setið í stjórnum margra fyrirtækja í ýmsum greinum atvinnulífsins, s.s. í stjórn Bakkavarar Group hf., Exista hf., Lýsingar hf., Skipta hf., VÍS og Víðskiptaráðs. Hún hefur jafnframt verið í endurskoðunar- og starfskjara nefndum. Hildur situr í stjórnum Heimavalla
hf., Kortabjónustunnar hf., Íslandsstofu, Eldey TLH hf., Norðursiglingar hf., auk dótturélaga þess Gamla Bauks ehf. og Húsavíkurslipps ehf., Sportköfunarskóla Íslands ehf., Argyron hf. og MyPulse ehf.
Hildur er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Hjördis E. Harðardóttir, fædd 18. apríl 1964, til heimilis í Reykjavík. Hjördis hefur setið í stjórn Sjóvár frá 29. apríl 2014. Hjördis lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1989 og LL.M. í alþjóðlegum viðskiptarétti frá London School of Economics 1992. Hjördis starfar sem hæstaréttarlögmaður á Megin lögmannsstofu. Hún var framkvæmdastjóri á upplýsinga- og stjórnunarsviði VÍS 1996-2001, deildarstjóri í atvinnutryggingum hjá sama félagi frá 1995 og áður við störf hjá sama félagi frá 1989. Hún var formaður skilanefndar Sparisjóðabanka Íslands 2009-2012 og sat í stjórn Okkar líftrygginga 2009-2011 og í stjórn Höfðatorgs ehf. frá 2012-2014.
Hjördis er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Ingi Jóhann Guðmundsson, fæddur 12. janúar 1969, til heimilis í Garðabæ. Ingi Jóhann hefur setið í stjórn Sjóvár frá 28. júlí 2011. Ingi Jóhann er Cand.Oecon. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og starfar sem framkvæmdastjóri Gjögurs hf. og Kjálkaness ehf. Hann var framleiðslustjóri Íslenskra sjávarafurða frá 1995-2000. Hann situr í stjórnum Síldarvinnslunnar hf. og SVN eignafélags ehf. Ingi Jóhann er stjórnarformaður í SVN eignafélagi ehf. SVN eignafélag ehf. á 13,6186% hlut í Sjóvá, en auk þess á Ingi óbeinan hlut í SVN eignafélagi í gegn um Síldarvinnsluna hf. og Kjálkanes ehf. sem á 34,2% hlut í Síldarvinnslunni og Ingi á 22% eignarhlut í Kjálkanesi ehf.
Ingi telst óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háður stórum hluthafa samkvæmt leiðbeiningum um stjórnarhætti.
Framboð til varamennsku í stjórn:
Erna Gísladóttir, fædd 5. maí 1968, til heimilis á Seltjarnarnesi. Erna hefur setið í stjórn Sjóvár frá 20. júní 2009 og var formaður stjórnar frá 2011. Erna lauk B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands 1991 og MBA frá IESE í Barcelona 2004. Erna er forstjóri og í stjórn BL ehf. Hún var forstjóri Bifreiða og landbúnaðarvéla hf. 2003-2008, var einn af eigendum þess félags og framkvæmdastjóri frá 1991. Auk framangreinds situr hún í stjórnum BLIH hf., Egg ehf., Egg fasteigna ehf., Eldhúsvara ehf., Haga hf., Umbreytingar slhf. og Hregg ehf. Erna er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Erna er ásamt eiginmanni sínum eigandi og stjórnarmaður í Egg ehf. Egg ehf. á 2,8418% eignarhlut í Sjóvá.
Garðar Gíslason, fæddur 19. október 1966, til heimilis í Garðabæ. Hann hefur verið varamaður í stjórn Sjóvár frá 30. september 2011. Garðar er Cand.Jur. frá Háskóla Íslands 1997. Hann hefur starfað sem lögmaður frá 2005, lengst af á LEX lögmannsstofu, en frá haustinu 2016 á IUS lögmannsstofu. Hann var yfirlögfræðingur og síðar forstöðumaður hjá embætti skattrannsóknastjóra ríkisins og staðgengill skattrannsóknarstjóra frá 1997-2005. Garðar situr í stjórnum eftirfarandi félaga: IUS lögmannsstofa ehf., Salvus ehf. (varamaður), Hvatning hf., Landhlíð ehf. (varamaður), Kólfur ehf., Ránarborg ehf. (varamaður), Harðbakur ehf. (varamaður), PB 1 ehf., Hlíðarfótur ehf., Valshjartað hf. og Kná ehf.
2
Garðar er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Samkvæmt samþykktum félagsins skipa fimm aðilar stjórn þess og tveir eru varamenn í stjórn.
3