AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Proxy Solicitation & Information Statement 2018
Feb 20, 2018
2204_rns_2018-02-20_cc8f327e-d93e-4a95-bb7d-bbc5d5367be3.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Sjóvá
440 2000
Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. verður haldinn 15. mars 2018
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. boðar til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður í Kringlunni 5, 103 Reykjavík, fimmtudaginn 15. mars 2018 og hefst kl. 9:30.
Drög að dagskrá fundarins eru svohljóðandi:
- Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið reikningsár lagðir fram til sambykktar.
- Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar félagsins á síðastliðnu reikningsári.
- Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
- Tillaga um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigir hlutum.
- Tillögur um breytingar á sambykktum félagsins.
a. Tillaga stjórnar félagsins um breytingu á sambykktum þess, sem í meginatriðum lýtur að breytingu á 4. gr. í tengslum við tillögu stjórnar um lækkun hlutafjár.
- Kosning stjórnar félagsins.
- Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
- Ákvörðun um þóknun stjórnar félagsins.
- Tillaga um heimild til kaupa á eigir hlutabréfum.
- Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur mál, sem löglega eru upp borin.
Hluthafar eiga rétt á að leggja fram mál og/eða ályktunartillögur fyrir fundinn ef gerð hefur verið skrifleg eða rafræn krafa um það eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. eigi síðar en kl. 9:30 mánudaginn 5. mars 2018. Hafí hluthafar krafist þess að tiltekið mál eða ályktun verði tekið fyrir verða endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vefsíðu félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfundinn. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir fyrir fundinn á veffangið [email protected].
Hluthafar geta einnig lagt fram spurningar er varða auglýsta dagskrárliði á aðalfundinum sjálfum. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á vefsíðu félagsins, www.sjova.is/fjarfestar/hluthafafundir.
Ekki er gert ráð fyrir að atkvæðagreiðslur á aðalfundinum verði skriflegar nema einhver fundarmanna krefjist þess eða fundarstjóri úskurðar um annað. Stjórnarkjör skal þó vera skriflegt ef fleiri eru í kjörí til stjórnar en kjósa skal. Kveðið er nánar um stjórnarkjör í sambykktum félagsins en kosið
er eftir hlutfallskosningu. Athygli er þó vakin á ákvæðum sambykkta um hlutfall kynja í stjórn félagsins.
Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett. Umboð gildir aldrei lengur en eitt ár frá dagsetningu þess. Rafræn umboð má senda á veffangið [email protected] og skulu þeim fylgja upplýsingar til nægjanlegrar sönnunar um að rafræna umboðið stafi frá hluthafa, svo sem mynd vegabréfs eða ökuskírteinis hluthafa eða fyrirsvarsmanns hluthafa.
Aðalfundur er lögmætur, án tillits til fundarsóknar, ef löglega er til hans boðað.
Frestur til að tilkynna framboð til stjórnar lýkur fimm dögum fyrir upphaf aðalfundar þ.e. laugardaginn 10. mars 2018 kl. 9:30. Sitjandi stjórnarmenn í Sjóvá gefa allir kost á sér til endurkjörs. Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal gefa, auk nafns frambjóðanda, kennitölu og heimilisfang, upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu. Þá skal einnig upplýsa um hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu. Framboðseyðublöð er hægt að nálgast á vefsíðu félagsins. Hægt er að senda framboðstilkynningar á veffangið [email protected]. Upplýsingar um frambjóðendur verða aðgengilegar á vefsíðunni www.sjova.is/fjarfestar/hluthafafundir, að lágmarki tveimur dögum fyrir aðalfund.
Endanleg dagskrá aðalfundar og fundargögn, þ. á m. tillögur stjórnar, sem lögð verða fyrir aðalfund verða birt á vefsíðu félagsins www.sjova.is/fjarfestar/hluthafafundir og liggja frammi á skrifstofu þess í Kringlunni 5, 103 Reykjavík. Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá kl. 9:00 á aðalfundardag. Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Reykjavík, 20. február 2018.
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf.
sjova.is
SJÓVÁ