AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Proxy Solicitation & Information Statement 2018
Mar 12, 2018
2204_rns_2018-03-12_92370e15-803f-4e3a-8554-6831636ede1f.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Framboð til stjórnarsetu
Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf.
- mars 2018
Neðangreind framboð til stjórnar og varastjórnar í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. hafa borist:
Framboð til stjórnar:
Erna Gísladóttir, stjórnarformaður, fædd 5. maí 1968, til heimilis á Seltjarnarnesi. Erna hefur setið í stjórn Sjóvár frá 20. júní 2009. Hún tók við formennsku stjórnar í júlí 2011. Erna lauk B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands 1991 og MBA frá IESE í Barcelona 2004. Erna er forstjóri og í stjórn BL ehf. Hún var forstjóri Bifreiða og landbúnaðarvéla hf. 2003-2008, var einn af eigendum þess félags og framkvæmdastjóri frá 1991. Auk framangreinds situr hún í stjórnum BLIH hf., Egg ehf., Egg fasteigna ehf., Eldhúsvara ehf., Haga hf., Umbreytingar slhf. og Hregg ehf.
Erna er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Erna er ásamt eiginmanni sínum eigandi og stjórnarmaður í Egg ehf. Egg ehf. á 2,7170% eignarhlut í Sjóvá.
Tómas Kristjánsson, varaformaður, fæddur 15. nóvember 1965, til heimilis í Reykjavík. Tómas hefur setið í stjórn Sjóvár frá 28. júli 2011. Tómas er Cand.Oecon. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1989 og með MBA-gráðu frá háskólanum í Edinborg 1997. Hann hefur frá júní 2007 starfað sem annar eigenda og í stjórn hjá fjárfestingafélaginu Siglu ehf. og fasteignafélaginu Klasa ehf. Tómas var framkvæmdastjóri áhættustýringar, fjárstýringar, fjármögnunar og reikningshalds Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. (síðar Íslandsbanka hf. og Glitnis banka hf.) og sat í framkvæmdastjórn bankans frá 1998 til maí 2007. Hann starfaði sem yfirmaður lánaeftirlits Iðnlánasjóðs 1990–1998. Tómas situr auk þess sem að framan er talið í stjórnum Gana ehf., Elliðavogs ehf., Heljarkambs ehf., Klasa fjárfestingar hf., Nesvalla ehf., NV lóða ehf., NVL ehf., Grunns I hf. Smárabyggðar ehf., Regins hf., Klasa ehf. og Húsafell Resort ehf.
Tómas er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Tómas er eigandi og stjórnarmaður í Gana ehf. sem á 1,0413% eignarhlut í Sjóvá.
Heimir V. Haraldsson, fæddur 22. apríl 1955, til heimilis í Reykjavík. Heimir hefur setið í stjórn Sjóvár frá 20. júní 2009. Heimir er Cand.Oecon. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1979, og fékk löggildingu sem endurskoðandi 1982. Heimir hefur reikið eigin fjárfestingar- og ráðgjafarfyrirtæki og sinnt ýmsum stjórnar- og nefndarstörfum frá árinu 2002. Heimir var framkvæmdastjóri Fjárfestingarfélagsins Gildingar hf. 2000–2002. Hann starfaði 1976–2000 hjá Endurskoðun hf., síðar KPMG Endurskoðun hf. í Reykjavík. Hann var meðeigandi og síðar framkvæmdastjóri félagsins í tíu ár, samhliða störfum við endurskoðun og ráðgjöf. Heimir sat í skilanefnd Glitnis banka hf. frá árinu 2008 til ársloka 2011. Heimir situr í stjórnum Nafns hf., Fjármagns ehf., Safns ehf., Safns-Ráðgjafar ehf., Forða ehf. og Holtasunds ehf.
Heimir er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Hjörðís E. Harðardóttir, fædd 18. apríl 1964, til heimilis í Reykjavík. Hjörðís hefur setið í stjórn Sjóvár frá 29. apríl 2014. Hjörðís lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1989 og LL.M. í alþjóðlegum viðskiptarétti frá London School of Economics 1992. Hjörðís starfar sem hæstaréttarlögmaður á Megin lögmannsstofu. Hún var framkvæmdastjóri á upplýsinga- og stjórnunarsviði VÍS 1996-2001, deildarstjóri í atvinnutryggingum hjá sama félagi frá 1995 og áður við störf hjá sama félagi frá 1989. Hún var formaður skilanefndar Sparisjóðabanka Íslands 2009-2012 og sat í stjórn Okkar líftrygginga 2009-2011 og í stjórn Höfðatorgs ehf. frá 2012-2014.
Hjörðís er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Ingi Jóhann Guðmundsson, fæddur 12. janúar 1969, til heimilis í Garðabæ. Ingi Jóhann hefur setið í stjórn Sjóvár frá 28. júlí 2011. Ingi Jóhann er Cand.Oecon. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og starfar sem framkvæmdastjóri Gjögurs hf. og Kjálkaness ehf. Hann var framleiðslustjóri Íslenskra sjávarafurða frá 1995-2000. Hann situr í stjórnum Síldarvinnslunnar hf., SVN eignafélags ehf. og Iceland Seafood International ehf. Ingi Jóhann er stjórnarformaður í SVN eignafélagi ehf. SVN eignafélag ehf. á 13,0207% hlut í Sjóvá, en auk þess á Ingi óbeinan hlut í SVN eignafélagi í gegn um Síldarvinnsluna hf. og Kjálkanes ehf. sem á 34,2% hlut í Síldarvinnslunni og Ingi á 22% eignarhlut í Kjálkanesi ehf.
Ingi telst óháður félaginu og daglegum stjórnendum þess en telst háður stórum hluthafa samkvæmt leiðbeiningum um stjórnarhætti.
Framboð til varamennsku í stjórn:
Garðar Gíslason, fæddur 19. október 1966, til heimilis í Garðabæ. Hann hefur verið varamaður í stjórn Sjóvár frá 30. september 2011. Garðar er Cand.Jur. frá Háskóla Íslands 1997. Hann hefur starfað sem lögmaður frá 2005, lengst af á LEX lögmannsstofu, en frá haustinu 2016 á IUS lögmannsstofu. Hann var yfirlögfræðingur og síðar forstöðumaður hjá embætti skattrannsóknastjóra ríkisins og staðgengill skattrannsóknarstjóra frá 1997-2005. Garðar situr í stjórnum eftirfarandi félaga: IUS lögmannsstofa ehf., Salvus ehf. (varamaður), Hvatning hf., Landhlíð ehf. (varamaður), Kólfur ehf., Ránarborg ehf. (varamaður), Harðbakur ehf. (varamaður), PB 1 ehf., Hlíðarfótur ehf., Valshjartað hf. og Kná ehf.
Garðar er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Kristín Egilsdóttir, fædd 3. február 1968, til heimilis í Kópavogi. Kristín hefur verið varamaður í stjórn Sjóvár frá 11. mars 2016. Kristín er Cand.Oecon. í viðskiptafræði frá HÍ og með MA í stjórnun frá Thierry Graduate School of Leadership í Brussel. Kristín er fjármálastjóri hjá Nóa-Siríusi hf. Hún starfaði hjá Reykjavíkurborg 2007-2013, sem fjármálastjóri Leikskólasviðs og síðan Skóla- og frístundasviðs. Frá 2004-2006 var hún fjármálasérfræðingur hjá EFTA. Þar áður starfaði Kristín hjá Hf. Eimskipafélagi Íslands. Kristín hefur setið í endurskoðunarnefnd Sjóvár frá því í janúar 2016.
Kristín er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Samkvæmt samþykktum félagsins skipa fimm aðilar stjórn þess og tveir eru varamenn í stjórn.