AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Proxy Solicitation & Information Statement 2018
Oct 18, 2018
2204_rns_2018-10-18_d2fc2627-488e-4342-b92d-6205d33e4c74.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Sjóvá
440 2000
Hluthafundur í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. 26. október 2018
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. boðar til hluthafundar í félaginu sem haldinn verður í fundarsal félagsins, Kringlunni 5, 103 Reykjavík, föstudaginn 26. október 2018 og hefst kl. 8:30.
Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
- Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins.
- Tillaga um starfsreglur tilnefningarnefndar.
- Tillaga um þóknun nefndarmanna í tilnefningarnefnd.
- Kosning nefndarmanna í tilnefningarnefnd.
- Önnur mál löglega upp borin.
Dagskrárliðir 2, 3 og 4 eru háðir því að breytingar á samþykktum félagsins samkvæmt dagskrárlið 1 hafi áður verið samþykktar.
Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins lýtur að því að tilnefningarnefnd verði komið á í félaginu. Lagðar eru til breytingar á 16. og 18. gr. samþykktanna, auk þess sem lagt er til að ný grein komi inn í samþykktir á eftir 21. gr. og verði 22. gr. Einnig er gerð tillaga um ákvæði til bráðabirgða þannig að hægt sé að ganga frá skipan nefndarinnar svo hún geti strax hafið störf til undirbúnings aðalfundar árið 2019. Nánari upplýsingar um tillögu til breytingar á samþykktum félagsins er að finna á vefsvæði félagsins www.sjova.is/fjarfestar/ hluthafundir.
Framboð til setu í tilnefningarnefnd samkvæmt dagskrárlið 4 skulu hafa borist skriflega til stjórnar félagsins á þar til gerðu eyðublaði skemmst fimm dögum fyrir hluthafundinn, þ.e. fyrir kl. 8:30 sunnudaginn 21. október 2018. Framboðs- eyðublöð er hægt að nálgast á vefsvæði félagsins. Hægt er að senda framboðstilkynningar á veffangið [email protected]. Upplýsingar um frambjóðendur verða að gengilegar á vefsvæði félagsins a.m.k. tveimur dögum fyrir fundinn.
Hluthafar eiga rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á hluthafundur og skal kröfu þar um fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun til stjórnar, sem berast skal skriflega eða rafrænt á netfangið [email protected] í síðasta lagi kl. 8:30 þriðjudaginn 16. október 2018. Hafi hluthafar krafist þess að tiltekið mál eða ályktun verði tekin fyrir verða endanleg
dagskrá og tillögur uppfærðar á vefsvæði félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir hluthafundinn. Hluthafar geta einnig lagt fram spurningar er varða auglýsta dagskrárliði á hluthafundinum sjálfum.
Ekki er gert ráð fyrir að atkvæðagreiðslur á hluthafundinum verði skriflegar nema einhver fundarmanna krefjist þess eða fundarstjóri úrskurðar um annað. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum.
Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafund fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal það dagsett. Umboð gildir aldrei lengur en eitt ár frá dagsetningu þess. Rafræn umboð má senda á veffangið [email protected] og skulu þeim fylgja upplýsingar til nægjanlegrar sönnunar um að rafræna umboðið stafi frá hluthafa, svo sem mynd vegabréfs eða ökuskírteinis hluthafa eða fyrirvarsmanns hluthafa.
Dagskrá hluthafundarins og tillögur sem lagðar verða fyrir fundinn, auk nánari upplýsinga um réttindi hluthafa og annað sem varðar hluthafundinn, eru birtar á vefsvæði félagsins www.sjova.is/fjarfestar/hluthafundir.
Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á hluthafundinn á fundarstað hálfri klukkustund áður en fundurinn hefst. Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Reykjavík, 2. október 2018.
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf.
sjova.is
SJÓVÁ