AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Proxy Solicitation & Information Statement 2018
Oct 23, 2018
2204_rns_2018-10-23_2052e3dd-b0bb-4352-a1d3-9e02dcaf247e.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
Framboð til setu í tilnefningarnefnd
Hluthafafundur Sjóvá-Almennra trygginga hf.
- október 2018
Neðangreind framboð til setu í tilnefninganefnd Sjóvá-Almennra trygginga hf. hafa borist. Stjórn Sjóvár hefur yfirfarið framboðin og metur þau öll gild:
Jón Birgir Guðmundsson, fæddur 28. mai 1970, til heimilis á Akureyri. Jón Birgir er B.Sc. í viðskiptafræði frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Hann er útibússtjóri í Íslandsbanka á Akureyri en starfaði áður sem forstöðumaður útibúa og umboða hjá Sjóvá og var stjórnarformaður Kælismiðjunnar Frost á árunum 2007-2016.
Jón Birgir er óháður stórum hluthöfum félagsins og verður óháður félaginu og daglegum stjórnendum innan fárra mánaða, en ekki eru liðin full 3 ár frá því Jón Birgir lét af störfum hjá Sjóvá. Jón Birgir á 46.168 hluti í félaginu, eða sem nemur 0,0032% eignarhlut í Sjóvá.
Katrín S. Óladóttir, fædd 20. október 1953, til heimilis í Hafnarfirði. Katrín hefur lokið kvennaskólaprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík. Hún er framkvæmdastjóri Hagvangs og annar tveggja eigenda fyrirtækisins. Sinnir daglegri stjórnun og rekstri fyrirtækisins auk stjórnendaráðninga. Áður starfaði hún sem ráðningarstjóri og sinnti fjölbreyttri ráðgjöf við ráðningar síðan 1983. Katrín situr í tilnefninganefnd Skeljungs hf.
Katrín er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Vilborg Lofts, fædd 12. desember 1956, til heimilis í Reykjavík. Vilborg er Cand.Oecon. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, MBA og MPM gráður. Hún hefur sl. 10 ár verið rekstrarstjóri Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, en starfaði áður sem starfsmannastjóri Íslandsbanka, sem aðstoðarframkvæmdastjóri eignastýringar Íslandsbanka/VÍB og þar áður sem framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi.
Vilborg er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.