AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Proxy Solicitation & Information Statement 2015
Mar 24, 2015
2204_rns_2015-03-24_c30b0d00-97ed-427a-9383-eb8f804fb9a0.pdf
Proxy Solicitation & Information Statement
Open in viewerOpens in your device viewer
SJÓVÁ
Framboð til stjórnarsetu
Aðalfundur í Sjóvá-Almennum tryggingum hf.
- mars 2015
Neðangreind framboð til stjórnar og varastjórnar í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. hafa borist:
Framboð til stjórnar:
Erna Gísladóttir, fædd 5. maí 1968, til heimilis á Seltjarnarnesi. Erna var fyrst kjörin í stjórn Sjóvár 20. júní 2009 en tók við formennsku stjórnar í júli 2011. Erna lauk B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands 1991 og MBA frá IESE í Barcelona 2004. Erna starfar sem forstjóri og í stjórn BL ehf. Hún var forstjóri Bífreiða og landbúnaðarvéla hf. 2003-2008, var einn af eigendum þess félags, og framkvæmdastjóri frá 1991. Hún situr auk stjórnar BL ehf. í stjórnum BLIH hf., Egg ehf., Egg fasteigna ehf., Eldhúsvara ehf., Haga hf., Hregg ehf., SF 1 slhf. og SF1 GP ehf.
Erna er einn eigandi og stjórnarmaður í Egg ehf. Egg ehf. á 2,5425% eignarhlut í Sjóvá.
Heimir V. Haraldsson, fæddur 22. apríl 1955, til heimilis í Reykjavík. Heimir hefur setið í stjórn Sjóvár frá 20. júní 2009. Heimir er Cand.Oecon. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1979, og fékk löggildingu sem endurskoðandi 1982. Heimir hefur rekið eigin fjárfestingar- og ráðgjafarfyrirtæki og sinnt ýmsum stjórnar- og nefndarstörfum frá árinu 2002. Hann var framkvæmdastjóri Fjárfestingarfélagsins Gildingar hf. 2000–2002, starfaði 1976–2000 hjá Endurskoðun hf., síðar KPMG Endurskoðun hf. í Reykjavík. Hann var meðeigandi og einnig framkvæmdastjóri félagsins í tíu ár, samhliða störfum við endurskoðun og ráðgjöf. Heimir sat í skilanefnd Glitnis banka hf. frá árinu 2008 til ársloka 2011. Heimir situr í stjórnum Lyfju hf., Nafns hf., Fjármagns ehf., Safns ehf., Safns Ráðgjafar ehf., Forða ehf., og Holtasunds ehf.
Heimir er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Hjörðís E. Harðardóttir, fædd 18. apríl 1964, til heimilis í Reykjavík. Hjörðís hefur setið í stjórn Sjóvár frá 29. apríl 2014. Hjörðís lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 1989 og LL.M. í alþjóðlegum viðskiptarétti frá London School of Economics 1992. Hjörðís starfar sem hæstaréttarlögmaður á Megin lögmannsstofu. Hún var framkvæmdastjóri á upplýsinga- og stjórnunarsviði VÍS 1995-2001, og áður deildarstjóri í atvinnutryggingum hjá sama félagi frá 1995. Hún var formaður skilanefndar Sparisjóðabanka Íslands 2009-2012 og sat í stjórn Okkar líftrygginga 2009-2011 og í stjórn Höfðatorgs ehf. (HTO) frá 2012-2014. Hún situr í stjórnum Megin lögmannsstofu ehf., Lögmannstofa ehf. og Köllunarklettsvegar 8 ehf.
Hjörðís er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Ingi Jóhann Guðmundsson, fæddur 12. janúar 1969, til heimilis í Garðabæ. Ingi Jóhann hefur setið í stjórn Sjóvár frá 28. júli 2011. Ingi Jóhann er Cand.Oecon. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og starfar sem framkvæmdastjóri Gjögurs hf. Hann var framleiðslustjóri Íslenskra sjávarafurða frá 1995-
SJÓVÁ
- Hann er stjórnarformaður SVN eignafélags ehf., og situr í stjórnum Síldarvinnslunnar hf., Gullbergs ehf., Iceland Seafood International ehf., SF 1 slhf., og SF1 GP ehf.
Ingi Jóhann er stjórnarformaður í SVN eignafélagi ehf. SVN eignafélag ehf. á 11,6822% eignarhlut í Sjóvá.
Tómas Kristjánsson, fæddur 15. nóvember 1965, til heimilis í Reykjavík. Tómas hefur setið í stjórn Sjóvár frá 28. júlí 2011. Tómas er Cand.Oecon. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1989 og með MBA-gráðu frá háskólanum í Edinborg 1997. Hann hefur frá júní 2007 starfað sem annar eigenda og í stjórn hjá fjárfestingafélaginu Siglu ehf. og fasteignafélaginu Klasa ehf. Tómas var framkvæmdastjóri áhættustýringar, fjárstýringar, fjármögnunar og reikningshalds Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. (síðar Íslandsbanka hf. og Glitnis banka hf.) og sat í framkvæmdastjórn bankans frá 1998 til maí 2007. Hann starfaði sem yfirmaður lánaeftirlits Iðnlánasjóðs 1990–1998. Tómas situr auk þess sem að framan er talið í stjórnum Draupnis-Siglu ehf., Gana ehf., Elliðavogs ehf., Heljarkambs ehf., Klasa fjárfestingar hf., Nesvalla ehf., NV lóða ehf., NVL lóða ehf., SF 1 slhf., SF1 GP ehf., Senu ehf., Grunns I slhf., og Regins hf.
Tómas er einn eigenda og stjórnarmaður í Draupni-Siglu ehf. sem á 2,4977% eignarhlut í Sjóvá.
Framboð til varamennsku í stjórn:
Anna Guðmundsdóttir, fædd 13. mars 1967, til heimilis í Reykjavík. Anna hefur setið í varastjórn frá 29. apríl 2014 og í endurskoðunarnefnd Sjóvár frá 20. ágúst 2013. Anna er Cand.Oecon. frá Háskóla Íslands 1990. Hún hefur verið fjármálastjóri Gjögurs frá 2008. Anna var framkvæmdastjóri fjármálasviðs Íslandspósts hf. frá 1998–2007, og starfaði hjá Gjögri hf. og Pósti og síma frá 1990 til ársloka 1997. Anna situr í stjórnum Gjögurs hf., Síldarvinnslunnar hf., Gullbergs ehf. og Þingstaða ehf.
Gjögur hf. á eignarhlut í SVN hf. sem á í SVN eignafélagi ehf. sem á 11,6822% eignarhlut í Sjóvá.
Garðar Gíslason, fæddur 19. október 1966, til heimils í Garðabæ. Hann var fyrst kjörinn varamaður í stjórn Sjóvár 30. september 2011. Garðar er Cand.Jur. frá Háskóla Íslands 1997. Hann hefur starfað sem lögmaður og einn eigenda á Lex lögmannsstofu frá 2005 og sem stundakennari í lögfræði í HR frá 2006. Hann var yfirlögfræðingur og síðar forstöðumaður hjá embætti skattrannsóknastjóra ríkisins og staðgengill skattrannsóknastjóra frá 1997–2005. Garðar situr í stjórnum eftirfarandi félaga: LEX ehf., Bótaréttur ehf., Hvatning slhf., Kólfur ehf., LBF I GP ehf., PB 1 ehf., SF IV GP ehf., SF1 GP ehf. (varamaður), Salvus ehf. (varamaður), Ránarborg ehf. (varamaður), Harðbakur ehf. (varamaður).
Garðar er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins.
Samkvæmt samþykktum félagsins skipa fimm aðilar stjórn þess. Fyrir aðalfundi 26. mars 2015 liggur breytingartillaga við samþykktir félagsins þannig að tveir sitji sem varamenn í stjórn.