AI assistant
Sjóvá-Almennar tryggingar — Earnings Release 2016
Apr 28, 2016
2204_rns_2016-04-28_fc66a234-058a-4da2-b42e-ef574dacaef4.html
Earnings Release
Open in viewerOpens in your device viewer
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. - Árshlutauppgjör
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. - Árshlutauppgjör
Afkoma á fyrsta ársfjórðungi 2016
-- Hagnaður var 423 m.kr.
-- Afkoma af vátryggingastarfsemi var neikvæð um 48 m.kr.
-- Afkoma af fjárfestingarstarfsemi nam 444 m.kr.
Hermann Björnsson, forstjóri:
„Afkoma Sjóvár á fyrsta ársfjórðungi var viðunandi. Eins og undanfarna
fjórðunga helgast það af góðri arðsemi fjárfestingareigna.
Skaðatryggingarekstur er hins vegar þungur þar sem iðgjöld og
fjárfestingartekjur af vátryggingaskuld duga ekki til að greiða fyrir tjón og
rekstrarkostnað. Í sögulegu tilliti er slíkt ekki óalgengt þegar vel árar í
efnahagslífinu þar sem aukin tjón fylgja auknum vexti og hraða samfélagsins.
Samsett hlutfall var 106,9% á fjórðungnum en skv. lengri tíma markmiðum er
stefnt á 95%. Í birtum horfum fyrir afkomu ársins 2016 er gert ráð fyrir að
samsett hlutfall verði 98-100% og að hagnaður verði á bilinu 2 til 2,4
milljarðar króna. Niðurstaða fyrsta ársfjórðungs gefur ekki tilefni til að
breyta þeim viðmiðum nú“ segir Hermann.
Fjárfestingar
Ávöxtun eignasafns félagsins nam 2,1% á ársfjórðungnum. Hlutabréf skiluðu
mestri ávöxtun eða 3,5%. Helsta breyting á fjárfestingarsafni félagsins á
fjórðungnum var að félagið jók laust fé en minnkaði eign sína í
ríkisskuldabréfum og hlutabréfum.
Helstu niðurstöður og lykiltölur 1F 2016 1F 2015 %
Iðgjöld tímabilsins 3.584 3.459 3,6%
Eigin iðgjöld 3.403 3.291 3,4%
Heildar fjárfestingartekjur 709 1.040 - 31,8%
Þar af fjárfestingartekjur af vátryggingaskuld 199 205 -2,7%
Heildartekjur 4.123 4.341 - 5,0%
Tjón tímabilsins -2.692 -2.615 2,9%
Eigin tjón -2.735 -2.620 4,4%
Rekstrarkostnaður -992 -897 10,6%
Afskrift óefnislegra eigna 0 -115
Heildargjöld -3.727 -3.632 2,6%
Afkoma fyrir skatta 396 708
Afkoma eftir skatta 423 624
-------------------------------------------------------------------------
Tjónahlutfall 75,1% 75,6%
Endurtryggingahlutfall 6,0% 4,7%
Kostnaðarhlutfall 25,8% 24,0%
Samsett hlutfall 106,9% 104,3%
-------------------------------------------------------------------------
Ávöxtun eigin fjár 10,5% 15,5%
Hagnaður á hlut 0,27 0,39
Eignir 2016 2015
Fjárfestingar 33.400 33.785
Viðskiptakröfur 5.940 4.078
Handbært fé 1.554 1.385
Heildareignir 43.185 41.435
Eigið fé samtals 15.940 16.291
Eiginfjárhlutfall 36,9% 39,3%
Gjaldþolshlutfall SII 1,83 1,86
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Kynningarfundur 29. apríl kl. 08:30
Sjóvá býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi
2016 föstudaginn 29. apríl kl. 08:30 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6.
hæð. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum. Hægt
er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á vefslóðinni
www.sjova.is/afkomukynningar
Nánari upplýsingar
Allar nánari upplýsingar veitir Þórður Pálsson í síma 440-2000 eða
[email protected]
Viðhengi: