AI assistant
Síminn — Share Issue/Capital Change 2023
May 22, 2023
2203_rns_2023-05-22_a2388f76-8d80-44d2-8857-418a279b45cf.pdf
Share Issue/Capital Change
Open in viewerOpens in your device viewer
KAUPrÉTTARÁŐTÁZ
Kaupréttaráætlun
Símans hf.
NORSKATTSFOND 373
Stjórn Símans hf., kt. 460207-0880, Ármúla 25, 108 Reykjavík („félagið”), gerir svofellida áætlun um kauprétt starfsmanna félagsins á hlutum í félaginu:
1 MARKMID
1.1 Markmið kaupréttaráætlunar þessarar er að tengja hagsmuni starfsmanna félagsins við afkomu og langtímamarkmið félagsins og hluthafa þess.
1.2 Með samningum gerðum á grundvelli kaupréttaráætlunarinnar gefst starfsmönnum félagsins kostur á að kaupa árlega á næstu þremur árum hluti í félaginu á fyrirfram skilgreindu verði.
2 KAUPRÉTTARHAFAR
2.1 Allir fastir starfsmenn félagsins og félaga í sömu samstæðu, sbr. lög um ársreikninga, eiga rétt á að gera samning um kauprétt á hlutum í félaginu samkvæmt áætlun þessari. Þeir starfsmenn sem eru með ótímabundinn ráðningarsamning við félagið og hafa skuldbundið sig til starfa fyrir það gegn launum úr hendi þess teljast fastir starfsmenn félagsins í skilningi þessarar áætlunar.
2.2 Réttur starfsmanns samkvæmt kaupréttarsamningi, sem fellur undir kaupréttaráætlunina, skal vera sá sami fyrir alla starfsmenn, óháð starfsaldri þeirra, starfsábyrgð eða hvaða launaf lokki þeir tilheyra.
2.3 Starfsmenn sem ráðast til félagsins eftir gerð þessarar kaupréttaráætlunar skulu öðlast kauprétt frá þeim tíma sem þeir teljast fastir starfsmenn. Slik ávinnsla hefst frá og með upphafi næsta rekstrarárs eftir að ráðningarsamband hófst, þar til áætlun þessi rennur skeið sitt á enda.
2.4 Kaupréttaráætlun þessi nær ekki til verktaka sem starfa fyrir félagið, starfsfólks sem er lausráðið til skamms tíma eða stjórnarmanna félagsins.
2.5 Kaupréttaráætlun þessi verður kynnt mögulegum kaupréttarhöfum á fundi. Þeirri kynningu verður síðan fylgt eftir með boði um gerð kaupréttarsamnings.
3 RÉTTINDI OG SKYLDUR
3.1 Hlutum keyptum á grundvelli kaupréttaráætlunarinnar fylgja öll sömu réttindi og öðrum hlutum í félaginu.
3.2 Í kaupréttarsamningum, gerðum á grundvelli kaupréttaráætlunar þessarar, verður kveðið á um að hið skemmsta tólf mánuðir skuli líða frá gerð kaupréttarsamnings og þar til kaupréttur er fyrst nýttur.
3.3 Í kaupréttarsamningum, gerðum á grundvelli kaupréttaráætlunar þessarar, verður kveðið á um að kaupréttarhafi verði að eiga keypta hluti í tvö ár hið skemmsta, til þess að kaupréttarhafi geti nýtt skattalegar ívilnanir sem felast í áætlun þessari, sbr. 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt.
3.4 Í kaupréttarsamningum gerðum á grundvelli þessarar kaupréttaráætlunar verður kveðið á um að kaupréttur sé ekki framseljanlegur og ekki er heimilt að veðsetja hann.
NORGESKATTSFØDENING 1973
4 ÁVINNSLA KAUPrÉTTA
4.1 Kaupréttur hvers kaupréttarhafa ávinnst í þremur áföngum á þremur árum frá gerð kaupréttarsamnings á grundvelli áætlunar þessarar.
4.2 Á tímabilinu frá gerð kaupréttarsamnings og næstu 12 mánuði þaðan í frá ávinna starfsmenn sér rétt til kaupa á hlutafé í félaginu fyrir allt að kr. 1.500.000 og verður miðað við kauprétt fyrir þá fjárhæð á næstu 12 mánuðum frá gerð kaupréttarsamnings (tímabil 1).
4.3 Á næsta 12 mánaða tímabili frá lokum fyrsta tímabils (tímabil 2) ávinnur starfsmaður sér rétt til kaupa á hlutafé í félaginu fyrir allt að kr. 1.500.000 og á næsta 12 mánaða tímabili frá lokum annars tímabils (tímabil 3) ávinnur starfsmaður sér rétt til kaupa á hlutafé í félaginu fyrir allt að kr. 1.500.000.
4.4 Ávinnsla kaupréttar er bundin því skilyrði að kaupréttarhafi starfi fyrir félagið. Láti kaupréttarhafi af störfum hjá félaginu fyrir lok kaupréttartímabils, öðlast hann ekki frekari kauprétt og áunninn en ónýttur kaupréttur hans fellur niður. Áunninn kaupréttur fellur þó ekki niður ef kaupréttarhafa er sagt upp störfum án þess að uppsögnina megi rekja til vanefnda hans á ráðningarsamningi eða öðrum starfskyldum hans, starfslok bera að vegna aldurs, andláts kaupréttarhafa eða vegna þess að kaupréttarhafi verður óvinnufær sökum heilsubrests. Komi til starfsloka vegna heilsubrests eða aldurs hefur kaupréttarhafi rétt í 60 daga frá starfslokum til að innleysa áunninn kauprétt. Dánarbú kaupréttarhafa hefur rétt í 60 daga frá andláti til að innleysa áunninn kauprétt.
4.5 Hver starfsmaður getur að hámarki keypt hluti á grundvelli áætlunar þessarar fyrir kr. 1.500.000 á ári, miðað við skilgreint kaupverð, sbr. 7. tölulið 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt.
4.6 Kaupréttur skal myndast hlutfallslega fyrir hvern mánuð sem kaupréttarhafi er í föstu starfi á ávinnslutímabilinu.
5 KAUPVERD
5.1 Hlutabréf í félaginu hafa verið tekin til viðskipta í kauphöll. Kaupverð hluta samkvæmt kaupréttaráætlun þessari skal ekki vera lægra en vegið meðalverð í viðskiptum með hlutabréf félagsins tíu heila viðskiptadaga fyrir gerð hvers kaupréttarsamnings. Endanlegt kaupverð hluta, reiknað út í samræmi við framangreint, skal tilgreint í hverjum kaupréttarsamningi.
5.2 Greiði félagið arð (eða aðra samsvarandi úthlutun) til hluthafa eða verði hlutafé félagsins breytt vegna samruna eða með útgáfu jöfnunarhluta eða samsvarandi útgáfu hluta, þ.m.t. skiptingu hluta (e. stock split) áður en kaupréttur er nýttur, að hluta eða öllu leyti, skal útistandandi kaupréttur breytast og kaupgengi aðlagað í samræmi við breytingar á hlutafé.
5.3 Nýti starfsmaður kauprétt sinn, skal hlutafé staðgreitt með reiðufé.
6 NÝTING OG AFHENDING HLUTA
6.1 Kaupréttarhafar skulu tilkynna um nýtingu kaupréttar hvers árs á tímabilinu sem afmarkast af 10 viðskiptadögum frá birtingu ársfjörðungsuppgjørs vegna þess ársfjörðungs sem lok hvers kaupréttartímabils á sér stað, ár hvert. Skal stjórn þá í framhaldi tilkynningar afhenda hlutafé,
NORSK AKKATISTIKKERI FORBUND
gegn greiðslu kaupverðsins. Ónýttur hluti kaupréttarins fellur niður í lok hvers nýtingartímabils.
6.2 Sé rétthafi innherji í skilningi laga nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum og þeirra reglugerða og tilskipana sem innleiddar eru á grundvelli laganna, þ.m.t. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014, er regluverði félagsins heimilt að hafna tilkynningu um nýtingu kaupréttar ef rétthafi hefur undir höndum innherjaupplýsingar, í skilningi framangreindra regina, á því nýtingartímabili sem rétthafi óskar eftir að nýta kauprétt sinn. Ef rétthafi getur ekki nýtt kauprétt sinn á síðasta mögulega nýtingartímabili vegna innherjaupplýsinga innan félagsins getur stjórn félagsins framlengt heimild rétthafa til nýtingar samkvæmt samningi þessum.
7 HEIMILD TIL NÐURFELLINGAR ÁÆTLUNAR
7.1 Stjórn félagsins skal, ef ríkar ástæður mæla með því, vera heimilt að fella niður áætlun þessa í heild og gildir þá sama um öll réttindi og skyldur sem af henni má leiða. Heimild stjórnar skal virkjast í eftirtöldum tilvikum:
(a) Vegna slita félagsins.
(b) Komi til fjárhagslegrar endurskipulagningar.
(c) Óski félagið eftir heimild til greiðslustöðvunar eða leiti nauðasamninga.
(d) Í öðrum tilfellum, mæli ríkar ástæður með því.
8 FYRIRVARI VEGNA AFHENDINGAR HLUTABRÉFA
8.1 Áætlun þessi, kaupréttarsamningar og skuldbindingar félagsins gagnvart kaupréttarhöfum skulu ávallt vera bundnar því skilyrði að félagið geti afhent hlutabréf til að efna samninga.
9 STADFESTING SKATTSINS
9.1 Kaupréttaráætlun þessi verður borin undir Skattinn til staðfestingar, sbr. 8. tölulið 1. mgr. 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, áður en henni verður hrundið í framkvæmd.
10 SAMÞYKKT ÁÆTLUNAR
10.1 Hluthafafundur félagsins samþykkt gerð þessarar kaupréttaráætlunar á hluthafafundi þann 10. mars 2022 og stjórn félagsins samþykkti kaupréttaráætlun þessa á stjórnarfundi sem haldinn var þann 25. apríl 2023, því til staðfestu undirritar stjórnarformaður kaupréttaráætlunina, fyrir hönd stjórnar.
Reykjavík, 10. maí 2023
Jón Sigurðsson,
stjórnarformaður
Fungiskirúkvar undiríðir
JÓN SIGURÐSSON
Verýnská 18029-2019
2021-05-10 18:09:54 GMT
Áðlæsta: Unabrávni