AI assistant
Síminn — Interim / Quarterly Report 2025
Apr 29, 2025
2203_rns_2025-04-29_8feba137-84e4-452b-9abf-fdaf00a35a2f.pdf
Interim / Quarterly Report
Open in viewerOpens in your device viewer

Síminn
Samandreginn árshlutareikningur samstæðu
- janúar til 31. mars 2025
Síminn hf.
Ármúla 25
108 Reykjavík
Kt. 460207-0880
Efnisyfirlit
Bls.
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra... 2
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu... 3
Efnahagsreikningur... 4
Eiginfjáryfirlit... 5
Sjóðstreymisyfirlit... 6
Skýringar... 7-11
Ársfjórðungsyfirlit... 12
Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2025
Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið sambykktur af Evrópusambandinu. Árshlutareikningurinn er hvorki endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.
Tap var af rekstri félagsins sem nam 188 m.kr. samanborið við hagnað að fjárhæð 171 m.kr. á sama tímabili 2024. Heildartekjur félagsins á tímabilinu 1. janúar til 31. mars námu 7.173 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi samanborið við 6.575 m.kr. á sama tímabili árið 2024. Eignir félagsins í lok tímabils námu 42.135 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eigið fé nam 16.916 m.kr. og var eiginfjárhlutfallið 40,1%.
Siminn birti afkomuspá þann 18. febrúar 2025. Birt EBITDA spá Símans fyrir árið 2025 var 7,0 til 7,4 ma.kr. og EBIT spá var 3,6 til 4,0 ma.kr. króna. Þann 26. febrúar birti Hæstiréttur dóm í máli Símans og Samkeppniseftirlitsins þar sem ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 25/2020 var staðfest. Klofinn Hæstiréttur sneri þar með við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem og dómi Landsréttar um að ákvörðunin skyldi fellð úr gildi og sektaði Símann um 400 m.kr. Sektin hefur verið gjaldfærð í reikningi félagsins og greidd. Með tilliti til niðurstöðu Hæstaréttar er uppfærð EBITDA spá Símans 6,6 til 7,0 ma.kr. og EBIT spá 3,2 til 3,6 ma.kr. Einnig eru gjaldfærðar skaðabætur vegna niðurstöðu í þremur dómsmálum fyrir alls 61 m.kr. í fjörðungnum.
Þann 27. ágúst 2024 gerði Síminn Pay samkomulag við Rapyd Europe hf. um að Síminn Pay myndi taka yfir kortalán og greiðsludreifingar VISA og MasterCard korthafa sem sett voru á laggirnar og starfrækt af hálfu Valitor. Í lok febrúar tók Síminn Pay við kortalánum um níu þúsund einstaklinga fyrir 1.500 m.kr.
Á aðalfundi Símans hf. þann 13. mars 2025 var sambykkt tillaga stjórnar um lækkun á hlutafé félagsins vegna eigin hluta sem nam 175 m.kr. að nafnverði. Á sama fundi var sambykkt tillaga um heimild til kaupa á eigin bréfum félagsins að hámarki 247,5 m.kr. að nafnverði og tillaga um greiðslu arðs að fjárhæð 500 m.kr. til hluthafa sem félagið greiddi þann 28. mars s.l. Í samræmi við heimildir aðalfunda félagsins árin 2024 og 2025 hafa á tímabilinu janúar til mars verið keypt eigin bréf að nafnverði 38 m.kr. fyrir 525 m.kr. að markaðsverði. Að öðru leyti vísast til árshlutareiknings um breytingar á eigin fé félagsins.
Yfirlýsing stjórnar og forstjóra
Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er árshlutareikningur félagsins í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu félagsins á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2025, eignum, skuldum og fjárhagstöðu þess 31. mars 2025 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2025. Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra gefi glöggt yfirlit um þrúun og árangur í rekstri félagsins og stöðu þess og lýsi helstu áhættupáttum og óvissu sem félagið býr við.
Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2025 og staðfesta hann með undirritun sinni.
Reykjavik, 29. apríl 2025
Stjórn
Jón Sigurðsson, formaður
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, varaformaður
Bjarni Þorvarðarson
Arnar Þór Måsson
Valgerður Halldórsdóttir
Forstjóri
María Björk Einarsdóttir
Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2025
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu
- janúar til 31. mars 2025
| Skýr. | 2025 | 2024 | |
|---|---|---|---|
| 1.1.-31.3. | 1.1.-31.3. | ||
| Sala | 5 | 7.003 | 6.417 |
| Kostnaðarverð sólú | 6 | ( 4.526) | ( 4.180) |
| Framlegð | 2.477 | 2.237 | |
| Aðrar rekstrartekjur | 170 | 158 | |
| Rekstrarkostnaður | 7 | ( 1.997) | ( 1.964) |
| Stjórnvaldssekt og skaðabætur | ( 461) | 0 | |
| Rekstrarhagnaður | 189 | 431 | |
| Fjármunatekjur | 192 | 183 | |
| Fjármagnsgjöld | ( 517) | ( 375) | |
| Gengismunur | 4 | ( 3) | |
| Hrein fjármagnsgjöld | 8 | ( 321) | ( 195) |
| (Tap) hagnaður fyrir tekjuskatt | ( 132) | 236 | |
| Tekjuskattur | ( 56) | ( 65) | |
| (Tap) hagnaður tímabilsins | ( 188) | 171 | |
| EBITDA | 1.272 | 1.435 | |
| Hagnaður á hlut | |||
| (Tap) hagnaður á hlut | ( 0,08) | 0,07 | |
| Þynntur (tap) hagnaður á hlut | ( 0,08) | 0,07 |
Skýringar á blaðsiðum 7 - 11 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.
Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2025
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Efnahagsreikningur 31. mars 2025
| Skýr. | 31.3.2025 | 31.12.2024 | |
|---|---|---|---|
| Eignir | |||
| Fastafjármunir | |||
| Rekstrarfjármunir | 3.638 | 3.543 | |
| Leigueignir | 1.750 | 1.844 | |
| Óefnislegar eignir | 25.713 | 26.243 | |
| Aðrar eignir | 9 | 980 | 638 |
| Fastafjármunir | 32.081 | 32.268 | |
| Veltufjármunir | |||
| Birgðir | 10 | 1.329 | 1.339 |
| Viðskiptakröfur | 11 | 2.403 | 2.503 |
| Útlán | 12 | 4.278 | 3.204 |
| Aðrar skammtímakröfur | 13 | 1.651 | 1.033 |
| Handbært fé | 393 | 835 | |
| Veltufjármunir | 10.054 | 8.914 | |
| Eignir samtals | 42.135 | 41.182 | |
| Eigið fé | |||
| Hlutafé | 2.445 | 2.483 | |
| Lögbundinn varasjóður | 612 | 621 | |
| Annað bundið eigið fé | 919 | 828 | |
| Óráðstafað eigið fé | 12.940 | 14.184 | |
| Eigið fé | 16.916 | 18.116 | |
| Skuldir | |||
| Langtímaskuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 14.129 | 12.733 | |
| Leiguskuldbindingar | 1.484 | 1.571 | |
| Tekjuskattsskuldbinding | 14 | 578 | 686 |
| Langtímaskuldir | 16.191 | 14.990 | |
| Skammtímaskuldir | |||
| Vaxtaberandi skuldir | 2.484 | 2.084 | |
| Viðskiptaskuldir | 15 | 3.787 | 3.760 |
| Næsta árs afborganir langtímaskulda | 429 | 429 | |
| Næsta árs afborganir leiguskuldbindinga | 358 | 351 | |
| Skattar til greiðslu | 367 | 255 | |
| Aðrar skammtímaskuldir | 16 | 1.603 | 1.197 |
| Skammtímaskuldir | 9.028 | 8.076 | |
| Skuldir samtals | 25.219 | 23.066 | |
| Eigið fé og skuldir samtals | 42.135 | 41.182 |
Skýringar á blaðsiðum 7 - 11 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.
Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2025
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Eiginfjáryfirlit 31. mars 2025
| Hlutafé | Yfirverðs-reikningur | Lögbundinn varasjóður | Annað bundið eigið fé | Óráðstafað eigið fé | Eigið fé samtals | |
|---|---|---|---|---|---|---|
| Eigið fé 1.1.2024 | 2.517 | 629 | 570 | 13.884 | 17.600 | |
| Hagnaður tímabilsins | 171 | 171 | ||||
| Greiddur arður (0,2 á hlut) | ( 500) | ( 500) | ||||
| Keypt eigin bréf | ( 19) | ( 5) | ( 167) | ( 191) | ||
| Seld eigin bréf | 101 | 899 | 1.000 | |||
| Fært af bundnu eigin fé | ( 33) | 33 | 0 | |||
| Kostnaður v/ kaupréttarsamninga | 21 | 21 | ||||
| Eigið fé 31.3.2024 | 2.599 | 899 | 624 | 537 | 13.442 | 18.101 |
| Eigið fé 1.1.2025 | 2.483 | 0 | 621 | 828 | 14.184 | 18.116 |
| Tap tímabilsins | ( 188) | ( 188) | ||||
| Greiddur arður (0,2 á hlut) | ( 498) | ( 498) | ||||
| Keypt eigin bréf | ( 38) | ( 9) | ( 478) | ( 525) | ||
| Fært á bundið eigið fé | 91 | ( 91) | 0 | |||
| Kostnaður v/ kaupréttarsamninga | 11 | 11 | ||||
| Eigið fé 31.3.2025 | 2.445 | 0 | 612 | 919 | 12.940 | 16.916 |
Skýringar á blaðsíðum 7 - 11 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.
Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2025
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Sjóðstreymisyflrit 1. janúar til 31. mars 2025
| Skýr. | 2025 | 2024 | |
|---|---|---|---|
| 1.1.-31.3. | 1.1.-31.3. | ||
| Rekstrarhreyfingar | |||
| Rekstrarhagnaður samkvæmt rekstrarreikningi | 189 | 431 | |
| Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi: | |||
| Afskriftir | 1.083 | 1.004 | |
| Aðrir liðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi | 11 | 21 | |
| 1.283 | 1.456 | ||
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum: | |||
| Birgðir, læk kun | 10 | 3 | |
| Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, hæk kun | (509) | (498) | |
| Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, hæk kun | 377 | 318 | |
| Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum | (122) | (177) | |
| Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta | 1.161 | 1.279 | |
| Innborgaðir vextir | 184 | 175 | |
| Greiddir vextir | (420) | (243) | |
| Greiddir skattar | (53) | (90) | |
| Handbært fé frá rekstri | 872 | 1.121 | |
| Fjárfestingarhreyfingar | |||
| Fjárfesting í rekstrarfjármunum | (363) | (281) | |
| Fjárfesting í óefnislegum eignum | (184) | (1.020) | |
| Söluverð rekstrarfjármuna | 0 | 9 | |
| Útlán, breyting | (1.446) | (119) | |
| Kaup á dótturfélögum að frádregnu handbæru fé | 0 | (3.732) | |
| Fjárfestingarhreyfingar | (1.993) | (5.143) | |
| Fjármögnunarhreyfingar | |||
| Greiddur arður | (498) | 0 | |
| Kaup eigin bréfa | (525) | (191) | |
| Tekin ný langtímalán | 1.500 | 4.500 | |
| Afborganir langtímalána | (107) | 0 | |
| Afborganir leiguskuldbindinga | (87) | (69) | |
| Skammtímalán, breyting | 400 | 0 | |
| Fjármögnunarhreyfingar | 683 | 4.240 | |
| Breyting á handbær fé | (438) | 218 | |
| Áhrif gengisbreytinga á handbært fé | (4) | (2) | |
| Handbært fé í byrjun tímabilsins | 835 | 1.810 | |
| Handbært fé í lok tímabilsins | 393 | 2.026 |
Skýringar á blaðsíðum 7 - 11 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.
Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2025
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
1. Starfsemi
Síminn hf. er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög á Íslandi. Höfuðstöðvar félagsins eru að Ármúla 25 í Reykjavík. Samstæðuárshlutareikningur fyrir tímabilið janúar til mars 2025 hefur að geyma árshlutareikning félagsins og dótturfélaga þess sem vísað er til í heild sem „félagsins“ og til einstakra félaga sem „dótturfélaga“. Dótturfélög Símans hf. eru Síminn Pay ehf., Radíómiðun ehf., Billboard ehf., BBI ehf. og Noona Iceland ehf.
Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta, fjártækni og miðlunar.
2. Grundvöllur reikningsskilanna
2.1. Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt
Árshlutareikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastöðal um árshlutareikninga, IAS 34. Samandreginn árshlutareikningur Símans hf. inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2024. Valdar skýringar eru með árshlutareikningnum til að skýra og upplýsa um rekstur félagsins á tímabilinu og breytingar á fjárhagslegri stöðu frá síðasta ársreikningi.
Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www. siminn.is og á vef Kauphallar Íslands: www.nasdaqomxnordic.com.
Stjórn og forstjóri félagsins samþykktu árshlutareikninginn og heimiluðu birtingu hans á stjórnarfundi þann 29. apríl 2025.
2.2. Grundvöllur matsaðferða
Samstæðuársreikningurinn er gerður samkvæmt kostnaðarverðsaðferð.
2.3. Starfrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill
Ársreikningurinn er gerður í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.
2.4. Mat og ákvarðanir
Gerð samstæðuárshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastöðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.
Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtiðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.
3. Breytingar á reikningsskilaaðferðum
Við gerð árshlutareikningsins er beitt sömu reikningsskilaaðferðum og við gerð ársreiknings félagsins fyrir árið 2024.
Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2025
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
4. Starfsþáttayfirlit
Yfirlit um starfsþætti veitir upplýsingar um einstaka þætti í rekstri félagsins og er sett fram með sama hætti og regluleg skýrslugjöf til stjórnar félagsins.
Starfsemi félagsins skiptist í sex starfsþætti sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsþættirnir eru:
| Starfsþáttur | Lýsing |
|---|---|
| Farsímaþjónusta: | Farsímaþjónusta innanlands og erlendis, hvort sem er hefðbundin GSM þjónusta, gervihnattapjónusta eða önnur farsímaþjónusta. |
| Gagnaflutningur: | Gagnaflutningsþjónusta, þ.m.t. xDSL þjónusta, GPON, Internet, IP net, heimtaugar og |
| Sjónvarpsþjónusta: | Dreifing á sjónvarpsefni, áskriftir og notkun á miðlum félagsins. |
| Auglýsingamiðlun | Auglýsingatekjur í umhverfismiðlun og sjónvarpi. |
| Vörusala: | Sala á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum. |
| Annað: | Tekjur tengdar öðrum fjarskiptum og fjármálum. |
| Starfsþættir 1.1.-31.3.2025 | Farsíma-þjónusta |
| --- | --- |
| Rekstrartekjur | 1.685 |
| Óskipt rekstrargjöld | |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) | |
| Afskriftir | |
| Hrein fjármagnsgjöld | |
| Tekjuskattur | |
| Tap tímabilsins | |
| Fjárfestingar | |
| Óskiptar eignir 31.3.2025 | |
| Óskiptar skuldir 31.3.2025 | |
| Starfsþættir 1.1.-31.3.2024 | Farsíma-þjónusta |
| --- | --- |
| Rekstrartekjur | 1.628 |
| Óskipt rekstrargjöld | |
| Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) | |
| Afskriftir | |
| Hrein fjármagnsgjöld | |
| Tekjuskattur | |
| Hagnaður tímabilsins | |
| Fjárfestingar | |
| Óskiptar eignir 31.3.2024 | |
| Óskiptar skuldir 31.3.2024 |
- Breyting hefur verið gerð á starfsþáttayfirliti félagsins. Auglýsingamiðlun er sýnd sem starfsþáttur en var áður undir starfsþættinum Sjónvarpsþjónusta. Samanburðartölum hefur verið breytt til samræmis.
Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2025
Fjárhæðir eru í miðjónum króna
Skýringar
5. Sala
| Seld bjónusta og vörur greinast bannig: | 2025 | 2024 |
|---|---|---|
| 1.1.-31.3. | 1.1.-31.3. | |
| Sala á bjónustu | 6.012 | 5.786 |
| Auglýsingasala | 551 | 173 |
| Vörusala | 440 | 458 |
| 7.003 | 6.417 |
Enginn einstakur viðskiptavinur er með meira en 10% af sölu félagsins.
6. Kostnaðarverð sölu
Kostnaðarverð sölu greinist bannig:
| Laun og launatengd gjöld | 421 | 247 |
|---|---|---|
| Kostnaðarverð seldrar bjónustu | 2.831 | 2.670 |
| Samtengijöld | 137 | 145 |
| Kostnaðarverð seldra vara | 395 | 402 |
| Eignfærð vinna | ( 46) | ( 40) |
| Afskriftir | 788 | 756 |
| 4.526 | 4.180 |
Kostnaðarverð seldrar bjónustu samanstendur af: efnis kostnaði, bjónustusamningum, leyfisgjöldum, aðkeyptri bjónustu og fjarskiptakostnaði.
7. Rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður greinist bannig:
| Laun og launatengd gjöld | 959 | 1.024 |
|---|---|---|
| Markaðs- og sölukostnaður | 174 | 136 |
| Húsnæðis- og bifreiðakostnaður | 74 | 69 |
| Tölvu- og hugbúnaðarkostnaður | 257 | 257 |
| Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður | 239 | 229 |
| Afskriftir | 294 | 249 |
| 1.997 | 1.964 |
8. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld
Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast bannig:
| Fjármunatekjur | ||
|---|---|---|
| Vaxtatekjur af bankainnistæðum og kröfum | 52 | 68 |
| Vaxtatekjur af útlánum | 140 | 113 |
| Fenginn arður | 0 | 2 |
| 192 | 183 | |
| Fjármagnsgjöld | ||
| Vaxtagjöld | ( 397) | ( 281) |
| Vaxtagjöld vegna leiguskuldbindinga | ( 42) | ( 10) |
| Niðurfærsla útlána | ( 30) | ( 67) |
| Önnur fjármagnsgjöld | ( 48) | ( 17) |
| ( 517) | ( 375) | |
| Gengismunur | 4 | ( 3) |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 321) | ( 195) |
Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2025
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
9. Aðrar eignir
Aðrar eignir greinast þannig: 31.3.2025 31.12.2024
Fjárfesting í öðrum félögum ... 8 8
Sjónvarpsefni til sýningar ... 522 522
Útlán til meira en 12 mánaða ... 450 108
Aðrar eignir samtals ... 980 638
10. Birgðir
Birgðir greinast þannig:
Vörur til endursölu og rekstrarvörubirgðir ... 665 710
Sjónvarpsefni til sýningar ... 664 629
Birgðir samtals ... 1.329 1.339
11. Viðskiptakröfur
Viðskiptakröfur greinast þannig:
Viðskiptakröfur ... 2.535 2.617
Niðurfærsla viðskiptakrafna ... ( 132) ( 114)
Viðskiptakröfur samtals ... 2.403 2.503
12. Útlán
Útlán félagsins samanstanda af útlánum dótturfélags Símans hf., Símans Pay ehf. Eingöngu er um að ræða útlán til einstaklinga á bilinu 1-36 mánuðir.
| Útlán 31.3.2025: | Brúttó bókfært virði | Fært meðal langtímakrafna | Vænt útlánatap | Skamm-tímahluti útlána |
|---|---|---|---|---|
| Útlán fastar greiðslur 1-36 mán | 2.032 | ( 450) | ( 36) | 1.546 |
| Kreditkort, sveigjanlegar greiðslur | 2.872 | 0 | ( 140) | 2.732 |
| 4.904 | ( 450) | ( 176) | 4.278 |
Útlán 31.12.2024:
| Útlán fastar greiðslur 1-36 mán | 678 | ( 108) | ( 40) | 530 |
|---|---|---|---|---|
| Kreditkort, sveigjanlegar greiðslur | 2.807 | 0 | ( 133) | 2.674 |
| 3.485 | ( 108) | ( 173) | 3.204 |
13. Aðrar skammtímakröfur
Aðrar skammtímakröfur greinast þannig: 31.3.2025 31.12.2024
Fyrirframgreiddur kostnaður ... 1.006 701
Aðrar skammtímakröfur ... 645 332
Aðrar skammtímakröfur samtals ... 1.651 1.033
Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2025
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Skýringar
14. Tekjuskattsskuldbinding
| Hreyfingar á tekjuskattsskuldbindingu greinast á eftirfarandi hátt: | 31.3.2025 | 31.12.2024 |
|---|---|---|
| Tekjuskattsskuldbinding í ársbyrjun | 686 | 232 |
| Kaup á dóttufélagi | 0 | 336 |
| Tekjuskattur tímabilsins | 56 | 381 |
| Skattar til greiðslu | ( 164) | ( 255) |
| Leiðrétting frá fyrra ári | 0 | ( 8) |
| Tekjuskattsskuldbinding samtals | 578 | 686 |
15. Viðskiptaskuldir
Viðskiptaskuldir greinast þannig:
| Viðskiptaskuldir | 3.082 | 2.980 |
|---|---|---|
| Áfallinn kostnaður | 705 | 1.281 |
| Viðskiptaskuldir samtals | 3.787 | 4.261 |
16. Aðrar skammtímaskuldir
Aðrar skammtímaskuldir greinast þannig:
| Áfallinn kostnaður | 718 | 587 |
|---|---|---|
| Ógreidd laun og launatengd gjöld | 425 | 217 |
| Ógreiddur virðisaukaskattur | 460 | 393 |
| Aðrar skammtímaskuldir samtals | 1.603 | 1.197 |
17. Málarekstur
Staða eftirfarandi máls er óbreytt frá útgáfu ársreiknings 2024.
Fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabanka Íslands komst að þeirri niðurstöðu að sekta Símann um 76,5 m.kr. á grundvelli þess að stofnunin taldi að Síminn hefði ekki birt ætlaðar innherjauppýsingar eða tekið ákvörðun um frestun á birtingu á ætluðum innherjauppýsingum þann 31. ágúst 2021 í tengslum við sölu á dóttufélaginu Mílu ehf. Síminn áfrýjaði málinu til Héraðsdóms Reykjavíkur til að fá ákvörðuninni hnekkt en Héraðsdómur sýknaði Seðlabankann. Síminn áfrýjaði dóminum til Landsréttar. Félagið hefur greitt fjárhæðina en ekki gjaldfært í rekstri.
18. Atburðir eftir reikningsskiladag
Engir atburðir hafa átt sér stað eftir lok reikningsskiladags sem höfðu áhrif á árshlutareikninginn.
Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2025
Fjárhæðir eru í milljónum króna
Ársfjórðungsyfirlit
Rekstur samstæðunnar greinist þannig á ársfjórðunga:
| | 1 F
2024 | 2 F
2024 | 3 F
2024 | 4 F
2024 | 1 F
2025 |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Sala | 6.417 | 6.708 | 6.773 | 7.291 | 7.003 |
| Kostnaðarverð sól | ( 4.180) | ( 4.527) | ( 4.166) | ( 4.455) | ( 4.526) |
| Framlegð | 2.237 | 2.181 | 2.607 | 2.836 | 2.477 |
| Aðrar rekstrartekjur | 158 | 163 | 182 | 140 | 170 |
| Rekstrarkostnaður | ( 1.964) | ( 1.708) | ( 1.925) | ( 2.032) | ( 1.997) |
| Stjórnvaldssekt og skaðabætur | 0 | 0 | 0 | 0 | ( 461) |
| Rekstrarhagnaður | 431 | 636 | 864 | 944 | 189 |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 195) | ( 320) | ( 292) | ( 306) | ( 321) |
| Hagnaður (tap) fyrir tekjuskatt | 236 | 316 | 572 | 638 | ( 132) |
| Tekjuskattur | ( 65) | ( 72) | ( 123) | ( 121) | ( 56) |
| Hagnaður (tap) tímabilsins | 171 | 244 | 449 | 517 | ( 188) |
| EBITDA | 1.435 | 1.726 | 1.915 | 2.071 | 1.272 |
Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 31. mars 2025
Fjórhæðir eru í milljónum króna