Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2024

Aug 27, 2024

2203_rns_2024-08-27_2402f299-19aa-47d1-a1d0-39cd8bbd785a.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

  1. ágúst 2024

Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 2F 2024

Afkoma annars ársfjórðungs 2024

  • Tekjur á öðrum ársfjórðungi (2F) 2024 námu 6.871 m.kr. samanborið við 6.283 m.kr. á sama tímabili 2023 og jukust um 9,4%. Tekjur af kjarnabjónustum Símans, farsíma, gagnaflutningi og sjónvarpsbjónustu aukast um rúmlega 5% á milli tímabila. Rekstur yfirtekinná félaga á auglýsingamarkaði er að fullu inni í rekstri samstæðu á 2F og námu tekjur félaganna tæpum 400 m.kr.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.726 m.kr. á 2F 2024 og hækkar um 316 m.kr. eða 22,4%. EBITDA hlutfallið er 25,1% á 2F 2024 en var 22,4% á sama tímabili 2023. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 636 m.kr. á 2F 2024 samanborið við 362 m.kr. á sama tímabili 2023.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 320 m.kr. á 2F 2024 en námu 145 m.kr. á sama tímabili 2023. Fjármagnsgjöld námu 501 m.kr., fjármunatekjur voru 178 m.kr. og gengishagnaður nam 3 m.kr.
  • Hagnaður á 2F 2024 nam 244 m.kr. samanborið við 179 m.kr. hagnað á sama tímabili 2023.
  • Vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 15,7 ma.kr. í lok 2F 2024, en voru 10,5 ma.kr. í árslok 2023. Stærstur hluti aukningarinnar skýrist af kaupum á félögum á auglýsingamarkaði. Handbært fé í lok 2F 2024 nam 1,6 ma.kr., en var 1,8 ma.kr. í árslok 2023. Staða útlána hjá Símanum Pay var 3,0 ma.kr. í lok 2F 2024 og jókst lítilsháttar á fjórðungnum.
  • Eiginfjárhlutfall Símans var 46,3% í lok 2F 2024 og eigið fé 18,3 ma.kr.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Annar ársfjórðungur var viðburðaríkur og gæftasamur hjá Símanum. Tekjur, EBITDA og EBIT af grunnstarfsemi félagsins uxu með ásættanlegum hætti og við bættist einnig ný starfsemi á sviði umhverfisauglýsinga sem styrkti alla þessa þætti enn frekar. Mikil hreyfing var á fjarskiptamarkaði, sérstaklega í upphafi árs. Pannig gekk ný sala vel hjá Símanum en eins var talsvert um brottfall, sem nú hefur aftur dregið úr í kjölfar markvissra gagnaðgerða varandi þjónustu og upplifun. Reiki erlendra ferðamanna var undir væntingum framan af helsta ferðamannatímabilinu en óx þegar leið á sumarið. Vel hefur gengið að stýra kostnaði félagsins í heild, sem er sérlega ánægjulegt þar sem stórir kostnaðarliðir Símans eru verðtryggðir og verðlag hefur almennt hækkáð á árinu eins og þekkt er.

Síminn uppfærði viðmót sitt í sjónvarpi og færði til dæmis sýningar frá ensku úrvalsdeildinni í fótbolta inn í moppuform í Premium streymisvöru félagsins, sem gerir efnið aðgengilegra en fyrr. Á móti eru hefðbundnar sjónvarpsrásir á undanhaldi hjá Símanum eins og annars staðar


2

í heiminum. Innan skamms verður sýnd ný hágæða alþjóðleg þáttaröð í Premium sem gerist á Íslandi. Ber hún nafnið Dimma og byggir á bók Ragnars Jónassonar, en þáttaröðin er unnin í samstarfi Símans við CBS og Paramount. Þá verða fleiri íslenskir þættir sýndir í haust, svo sem önnur þáttaröð um strákabandið IceGuys og barnaefnið Lubbi finnur málbein. Er Síminn þannig áfram það fyrirtæki á Íslandi sem framleiðir og sýnir langmest af nýju íslensku leiknu efni sem höfðar til allra aldurshópa.

Í júní síðastliðnum var tilkynnt að keppinautur Símans hefði tryggt sér sýningarréttinn á ensku úrvalsdeildinni frá og með keppnistímabilinu sem hefst haustið 2025 og nær rétturinn fram til vors 2028. Síminn verður þannig af tekjum að ári, en sparar sér einnig kostnað. Síminn hefur handsalað samkomulag um endursölu og dreifingu á efni sem inniheldur ensku úrvalsdeildina frá og með haustinu 2025. Tekjur munu lækka en áhrif á afkomu verða væntanlega ekki mikil, þó ljóst sé að fjárfestingar félagsins munu lækka verulega næstu árin.

Þann 8. júní sl. undirritaði Síminn samning um kaup á öllu hlutafé í Noona Iceland, sem heldur utan um innlendan rekstur Noona Labs. Í framhaldinu mun dótturfyrirtæki Símans, Síminn Pay, stýra sameiginlegum rekstri fyrirtækjanna á Íslandi ásamt því að þróa nýjar lausnir Símans Pay inni í vistkerfi Noona, viðskiptavinum til hagsbóta. Markmið Símans með kaupunum á Noona, einu öflugasta markaðstorgi Íslands, er að styrkja samstæðu Símans enn frekar sem leiðandi stafrænt þjónustufyrirtæki. Samkeppniseftirlitið hefur kaupin til umfjöllunar og gerum við ráð fyrir að þau klárist fyrir lok árs.

Á næstu dögum mun María Björk Einarsdóttir taka við sem forstjóri Símans en hún hefur starfað sem fjármálastjóri Eimskipafélagsins undanfarin ár. Sjálfur mun ég láta af störfum við komu Maríu, eftir tæplega ellefu ára starf. Ég vil þakka samstarfsfólki, viðskiptavinum, fjárfestum og öðrum samstarfsaðilum Símans fyrir ánægjulega samfylgd."

Helstu niðurstöður í rekstri á fyrstu sex mánuðum 2024

Rekstur samstæðu

Rekstrarreikningur 2F 1H
2024 2023 % 2024 2023 %
Rekstrartekjur 6.871 6.283 9,4% 13.446 12.581 6,9%
Kostnaðarverð sölu (4.527) (4.110) 10,1% (8.707) (8.265) 5,3%
Rekstrarkostnaður (1.708) (1.811) -5,7% (3.672) (3.636) 1,0%
EBIT 636 362 75,7% 1.067 680 56,9%
Hrein fjármagnsgjöld (320) (145) 120,7% (515) (146) 252,7%
Tekjuskattur (72) (38) 89,5% (137) (109) 25,7%
Hagnaður tímabils 244 179 36,3% 415 425 -2,4%
EBITDA 1.726 1.410 22,4% 3.161 2.725 16,0%
Hagnaður á hlut 0,09 0,06 50,0% 0,16 0,13 23,1%

Sala á 1H 2024 nam 13.446 m.kr. samanborið við 12.581 m.kr. á sama tímabili árið 2023, sem er 6,9% vöxtur milli tímabila. Sé horft til kjarnavara félagsins (farsíma, gagnaflutnings og sjónvarpsþjónustu) er tekjuvöxtur 6,3%.

Tekjur af farsíma námu 3.318 m.kr. og hækkuðu um 213 m.kr. eða 6,9% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 4.129 m.kr. og hækkuðu um 174 m.kr. eða 4,4% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 3.916 m.kr. og hækkuðu um 283 m.kr. eða 7,8% á milli tímabila.


3

Tekjur af vörusölu nám 823 m.kr. og drógust saman um 55 m.kr. eða 6,3% á milli tíma. Aðrar tekjur nám 1.260 m.kr. og hækkuðu um 250 m.kr. á milli tímabila. Tekjur keyptra félaga, að fjárhæð tæpar 400 m.kr. flokkast undir aðrar tekjur.

Kostnaðarverð seldrar þjónustu nam 8.707 m.kr. og hækkaði um 442 m.kr. eða 5,3% frá sama tímabili 2023. Rekstrarkostnaður nam 3.672 m.kr. og hækkaði um 36 m.kr. eða 1,0% frá sama tímabili 2023.

Afskriftir félagsins nám 2.094 m.kr. á 1H 2024 samanborið við 2.045 m.kr. á sama tímabili árið 2023 og hækka um 49 m.kr. á milli tímabila.

Sjóðstreymi

Rekstrarhreyfingar nám samtals 3.198 m.kr. á 1H 2024 samanborið við 2.726 m.kr. á 1H 2023. Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum á 1H 2024 nám 180 m.kr. til hækkunar.

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var því 3.378 m.kr. á 1H 2024 samanborið við 2.564 m.kr. á 1H 2023. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 2.738 m.kr. á 1H 2024 samanborið við 2.164 m.kr. á 1H 2023.

Í lok 1F 2024 greiddi Síminn rúma 3,7 ma.kr. vegna kaupa á þremur félögum á auglýsingamarkaði sem hefur áhrif á fjárfestingahreyfingar á fyrri helmingi ársins. Á 1F 2023 seldi Síminn skuldabréf sem félagjó fékk í tengslum við sóluna á Mílu sem skýrir jákvæðar fjárfestingahreyfingar á því tímabili.

Á 1F 2024 voru tekin ný langtímalán, m.a. vegna kaupa á félögum, að fjárhæð 4,5 ma.kr. Á sama tímabili árið 2023 voru fjármögnunarhreyfingar neikvæðar sem nam 17.681 m.kr. sem skýrist helst af því að hlutafé félagsins var lækkað með útgreiðslu til hluthafa sem nam tæplega 15,6 ma.kr. að teknu tilliti til eigin bréfa.

Sjóðstreymi 1H 2024 1H 2023
Rekstrarhangnaður tímabila 1.067 680
Afskriftir 2.094 2.045
Liðir sem hafa ekki áhrif á sjóðstreymi 37 1
Samtals rekstrarhreyfingar 3.198 2.726
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum 180 (162)
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 3.378 2.564
Nettó greiddir vextir (407) (6)
Greiddir skattar (233) (394)
Handbært fé frá rekstri 2.738 2.164
Fjárfestingahreyfingar (6.002) 12.562
Fjármögnunarhreyfingar 3.091 (17.681)
Breytingar á handbæru fé (173) (2.955)
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé (3) (39)
Handbært fé í upphafi tímabila 1.810 3.721
Handbært fé í lok tímablisins 1.634 727

4

Efnahagur

Kaup Símans á félögum á auglýsingamarkaði sem komu til framkvæmda í lok 1F 2024 hafa talsverð áhrif á efnahag samstæðunnar. Helstu breytingarnar eru að viðskiptavild eykst um 4,4 ma.kr.

Heildareignir félagsins námu 39.544 m.kr. í lok 2F 2024 en voru 33.789 m.kr. í lok árs 2023.

Vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 15.686 m.kr. í lok 2F 2024 samanborið við 10.530 m.kr. í lok árs 2023. Handbært fé í lok 2F 2024 nam 1.634 m.kr. samanborið við 1.810 m.kr. í árslok 2023. Hreinar vaxtaberandi skuldir með leiguskuldbindingum og útlánum Símans Pay voru 11.055 m.kr. í lok 2F 2024 samanborið við 5.822 m.kr. í árslok 2023.

Eigið fé félagsins nam 18.318 m.kr. í lok 2F 2024 og eiginfjárhlutfall félagsins var 46,3%.

Eignir 30.06.2024 31.12.2023
Rekstrarfjármunir 3.495 2.552
Leigueignir 1.534 732
Õefnislegar eignir 24.918 21.047
Aðrar eignir 450 431
Fastafjármunir 30.397 24.762
Birgðir 1.115 1.257
Víðskiptakrófur 2.280 2.279
Útlán 2.874 2.715
Aðrar skammtimakrófur 1.244 966
Handbært fé 1.634 1.810
Veltufjármunir 9.147 9.027
Eignir samtals 39.544 33.789
Skuldir og eigið fé 30.06.2024 31.12.2023
--- --- ---
Eigið fé 18.318 17.600
Eigið fé 18.318 17.600
Vaxtaberandi skuldir 11.441 7.470
Leiguskuldbinding 1.134 503
Tekjuskattsskuldbinding 276 232
Langtimaskuldir 12.851 8.205
Aðrar skammtimaskuldir 8.375 7.984
Skammtimaskuldir 8.375 7.984
Eigið fé og skuldir samtals 39.544 33.789

Um starfsemina

  • Þann 21. júní sl. var tilkynnt um forstjóraskípti hjá Símanum, en Orri Hauksson sem verið hefur forstjóri Símans frá árinu 2013 lætur af störfum um næstu mánaðarmót. Við starfi Orra tekur María Björk Einarsdóttir, en hún starfaði áður sem fjármálastjóri Eimskips og þar áður sem framkvæmdastjóri Ölmu íbúðarfélags. María Björk er með B.Sc. í rekstrarverkfræði með áherslu á fjármál frá Háskólánum í Reykjavík og próf í verðbréfaviðskiptum og hefur störf í byrjun september.

  • Stórar uppfærslur hafa verið gerðar á sjónvarpsbjónustu Símans á liðnum mánuðum. Nýlega fór nýtt og nútímanlegra viðmót í myndlyklum og appi í loftið, en breytingarnar voru að miklu leyti unnar út frá ábendingum frá viðskiptavinum Símans. Samhliða voru framkvæmdar breytingar á bakendakerfum appsins sem mun bæta upplifun notenda til muna. Síminn Sport hefur verið færður alfarið inn í Premium áskriftina og samhliða því er verið að gera heildsölusamninga við Nova og Sýn um sölu á áskriftum að Sjónvarpi Símans Premium sem er nýjung.

  • Síminn frumsýnir þrjár nýjar leiknar þáttaraðir í haust. Dimma er ný þáttaröð sem byggir á bók Ragnars Jónassonar og er unnin í samstarfi við CBS og Paramount. Um er að ræða risavaxið alþjóðlegt verkefni sem gerist á Íslandi í leikstjórn Lasse Hallström og sænska leikkonan Lena Olin fer með aðalhlutverkið. Fjöldi íslenskra leikara taka þátt ásamt því að fjöldi íslensks fagfólks kom að gerð þáttanna. Útilega er létt og skemmitleg gamanþáttaröð sem dregur upp einlæga og skemmitlega mynd af Íslendingum nútímans. Þættirnir eru í leikstjórn Fannars Sveinssonar og einvalalið leikara kemur við sögu. Önnur þáttaröð IceGuys verður frumsýnd í Sjónvarpi Símans Premium. Fyrsta þáttaröðin sló áhorfsmet í Sjónvarpi Símans og mikil eftirvænting er fyrir framhaldinu.


5

  • Lubbi finnur målbein, þättarð fyrir börn verður frumsýnd 29. ágúst. Þättarðin er mikilvægt framlag til að efla íslenska tungu meðal yngstu áhorfenda sem þekkja Lubba flest enda bókin til á meirihluta leikskóla landsins.

  • Undanfarin 5 ár hefur Síminn verið með sýningarréttinn að ensku úrvalsdeildinni. Það tímabil sem hófst fyrr í þessum mánuði er það síðasta í bili því í júní sl. tryggði samkeppnisaðili Símans sér sýningarréttinn að efninu í þrjú tímabil sem hefst haustið 2025. Síminn hefur haft beinar tekjur af réttinum í sölu stakra áskrifta til viðskiptavina Símans, heildsölu til annarra fjarskiptafélaga og af sölu auglýsinga. Auk þess hefur enski boltinn verið hluti af því fjölbreytta efnisframboði sem er í boði í Premium þjónustu Símans. Síminn gerir ráð fyrir að fá heildsölúaðgang að enska boltanum eins og öðru íþróttaefni hjá samkeppnisaðila og þannig munu viðskiptavinir Símans því áfram geta fylgst með enska boltanum þrátt fyrir þessa breytingu sem tekur gildi eftir ár. Þó er ljóst að tekjur munu lækka en áhrif á afkomu mun skýrast síðar en verða væntanlega ekki mikil. Jafnframt liggur fyrir að fjárfestingar félagsins munu lækka verulega næstu árin.

  • Þann 8. júní sl. undirritaði Síminn kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í Noona Iceland ehf., sem heldur utan um innlendan rekstur Noona Labs ehf. Í framhaldinu mun dótturfyrirtæki Símans, Síminn Pay, stýra sameiginlegum rekstri fyrirtækjanna ásamt því að þróa nýjar lausnir Símans Pay inni í vistkerfi Noona, viðskiptavinum til hagsbóta. Markmið Símans með kaupunum er að styrkja Símasamstæðuna enn frekar sem eitt öflugasta þjónustufyrirtæki landsins.

  • Noona var valin vinsælasta vefþjónsta landsins í árlegri mælingu Maskínu og valið app ársins 2023. Lausnir Noona og SalesCloud voru nýlega samþættar og bjóða nú upp á bókunarkerfi fyrir þjónustuaðila og veitingastaði, sölukerfi, gjafabréfalausnir, sjálfsafgreiðslulausnir, netsölulausnir, vefsíður, lagerkerfi, viðskiptamannakerfi, stimpilklukku, markaðssetningarkerfi og fleira.

  • Noona Iceland veitir um 1.300 fyrirtækjum á Íslandi þjónustu í dag og fjölgar þeim ört. Viðskiptavinir SalesCloud voru um 300 talsins við sameiningu félagsins við Noona fyrr á árinu. Yfir 120.000 Íslendingar hafa sótt Noona appið og yfir 200.000 bókanir eiga sér stað á hverjum mánuði í gegnum kerfi Noona á Íslandi. Samanlagt voru Noona og SalesCloud með ríflega 300 milljónir króna í árstekjur árið 2023 á Íslandi. Samkeppniseftirlitið hefur kaupin til umfjöllunar og gert er ráð fyrir að þau klárist fyrir lok árs.

  • Síminn Pay hefur skrifað undir samkomulag við Rapyd Europe hf. um að Síminn Pay muni taka yfir kortalán og greiðsludreifingar VISA og MasterCard korthafa sem sett voru á laggirnar og starfrækt af hálfu Valitor. Með þessum viðskiptum munu um ellefu þúsund kortalán fyrir um 1,8 milljarð króna færast áfram yfir til Símans Pay, dótturfélags Símans. Í kjölfarið mun Síminn Pay einbeita sér að því að þjónusta sölúaðila, kynna nýjungar og einfalda viðskiptavinum að dreifa greiðslum að vild. Með viðskiptunum verður Síminn Pay betur í stakk búið að auka lán enn frekar og þróa nýjungar á markaði. Gert er ráð fyrir jákvæðum áhrifum á rekstur Símans Pay strax á fyrsta heila árinu eftir að viðskiptin ganga í gegn. Viðskiptin eru háð hefðbundnum fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.


6

Horfur fyrir árið 2024

Afkomuspa fyrir samstæðuna er óbreytt frá því sem birt var í kjólfar uppgjörs á 1F 2024.

Tekjuþróun ársins er að mestu í takti við áætlun og sala gengur vel í upphafi hausts sem er mikilvægr tími fyrir sölustarf félagsins. Innleiðing nýrra fyrirtækja hefur gengið vel og afkoma þeirra samkvæmt væntingum. Verðbólga er talsverð en vel hefur gengið að stýra kostnaði.

Ekki er gert ráð fyrir að Noona Iceland og kaup lánasafns verði hluti af rekstri á þessu ári.

Spá fyrir árið 2024 gerir ráð fyrir eftirtöldu:

  • EBITDA verði á bilinu 7,0 til 7,3 ma.kr.
  • EBIT verði á bilinu 2,7 til 3,0 ma.kr.
  • Fjárfestingar án tíðnileyfa verði á bilinu 3,3 til 3,6 ma.kr.

Kynningarfundur 28. ágúst 2024

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 28. ágúst 2024 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Hluthafar, fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/fjarfestar/uppgjor-og-arsskyrslur.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: https://www.siminn.is/fjarfestar/fjarfestakynning.

Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á [email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.

Fjárhagsdagatal 2024

Uppgjör 3F 2024 22. október 2024
Ársuppgjör 2024 18. február 2025
Aðalfundur 2025 13. mars 2025

Nánari upplýsingar um uppgjöríð veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans ([email protected])