Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2023

Aug 22, 2023

2203_rns_2023-08-22_2f507be3-812c-4e54-bd51-d0e859910d7c.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Síminn

  1. ágúst 2023

Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 2F 2023

Áframhaldandi tekjuvöxtur í kjarnaþjónustu

  • Tekjur á öðrum ársfjórðungi (2F) 2023 námu 6.283 m.kr. samanborið við 6.036 m.kr. á sama tímabili 2022 og jukust um 4,1%. Enn er tekjuvöxtur í kjarnaþjónustu Símans, en tekjur af farsíma, gagnaflutningi og sjónvarpsþjónustu aukast um tæp 9% á fjórðungnum. Vörusala búnaðar dregst saman um 17,5%.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.410 m.kr. á 2F 2023 og eykst því um 11 m.kr. eða 0,8%. EBITDA hlutfallið er 22,4% fyrir 2F 2023 en var 23,2% á sama tímabili 2022. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 362 m.kr. á 2F 2023 samanborið við 682 m.kr. á sama tímabili 2022.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 145 m.kr. á 2F 2023 en námu 165 m.kr. á sama tímabili 2022. Fjármagnsgjöld námu 263 m.kr., fjármunatekjur voru 124 m.kr. og gengistap nam 6 m.kr.
  • Hagnaður á 2F 2023 nam 179 m.kr. samanborið við 410 m.kr. hagnað af áframhaldandi starfsemi á sama tímabili 2022.
  • Vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 8,8 ma.kr. í lok 2F 2023, en voru 8,9 ma.kr. í árslok 2022. Handbært fé í lok 2F 2023 nam 0,7 ma.kr., en var 3,7 ma.kr. í árslok 2022. Staða útlána hjá Símanum Pay var 2,2 ma.kr. í lok 2F 2023, en var 1,7 ma.kr. í árslok 2022.
  • Eiginfjárhlutfall Símans var 55,1% í lok 2F 2023 og eigið fé 18,2 ma.kr.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Árið 2023 er fyrsta árið sem Síminn starfar sem hreinræktað þjónustufyrirtæki, eftir að hafa selt Mílu á síðasta ári. Í kjólfar slíkra grundvallarbreytinga er ánægjulegt að sjá tekjur kjarnavara okkar vaxa myndarlega milli ára, þ.e. í interneti, sjónvarpi og farsíma. Auglýsingatekjur sjónvarps eru dæmi um þá aukningu og á sú þjónusta enn talsvert inni vegna nýrra möguleika sem byrjað er að bjóða auglýsendum upp á. Útlán gegnum veltukort okkar njóta einnig heilbrigðs vaxtar og því eru fjármagnstekjur Símans að aukast. Í hávaxtaumhverfi dagsins eru fjármagnsgjöld einnig að aukast, en hófleg skuldsetning félagsins kemur til góða við núverandi aðstæður. Tekjur af talsíma halda áfram sínum fyrirsjáanlega samdrætti og sala búnaðar var auk þess lægri en á sama tíma í fyrra.

Í heild hækkar EBITDA lítillega á fjórðungnum, þar sem kostnaður óx næstum jafn hratt og tekjur. Laun hækkuðu hratt í takt við launaþróun í landinu og birgjasamningar eru margir með beina og óbeina tengingu við almenna verðþróun.


2

Siminn

Vegna átaks í fjárfestingum undanfarið í sjónvarpsefni og tækni, sem hefur stuttan afskriftatíma en mun með ýmsum hætti styrkja reksturinn til lengri tíma litið, eru hraðar afskriftir á þessu ári. Langtímauppbygging 5G kerfa heldur áfram í samstarfi við Mílu og gamla talsímakerfið verður lagt af um áramót, sem mun spara kostnað á móti lækkandi tekjum í talsíma.

Eins og áður hefur verið kynnt hefur staðið til að draga úr fjárfestingum í sjónvarpsefni næstu misserin. Umfangið gæti dregist enn hraðar saman á síðustu mánuðum ársins en gert var ráð fyrir, þar sem stefnir í skort á sjónvarpsefni frá Bandaríkjunum vegna verkfalla leikara og handritshöfunda. Á móti kemur að íslenskt efni verður sterkt í vetur, svo sem leiknar íslenskar þáttaraðir og þættir um hljómsveitina IceGuys. Áhugaverðir íþróttaréttir munu verða boðnir út með haustinu, en fram er komin ný óvissa um virði slíkra rétta ef nýlunda Samkeppniseftirlitsins varandi lagalega meðhöndlun þeirra fær að standa. Undir öllum kringumstæðum er Síminn með áætlanir um að bregðast hratt við til að bjóða kröfuhörðum sjónvarpsáhozferendum á Íslandi upp á gæðafni.

Framundan eru ýmsar spennandi breytingar. Í fjártækni höldum við áfram að auka þjónustuúrval okkar með ferðapunktum Icelandair og sölu sveigjanlegra ferðatrygginga frá VÍS. Við hófum nýlega samstarfsverkefni með HSÍ um nýstárlega dreifingu á handboltaleikjum í sjónvarpi sem allir landsmenn munu geta nálgast. Fleiri innlendar íþróttagreinar munu vonandi fylgja í kjölfarið á þessari áhugaverðu nýbreytni. Við hófum nýlega gert mestu breytingar á vörusamsetningu okkar í átta ár og frekari nýmæli eru í farvatninu. Við hófum einnig hnikað efnahagsreikningi okkar nær stefnu félagsins um fjármagnsskipan, meðal annars með útgáfu vixla, skuldabréfa og kaupum á eigin bréfum. Breytingaárið 2023 verður áfram viðburðaríkt hjá Símanum.

Helstu niðurstöður í rekstri á fyrstu sex mánuðum 2023

Rekstur samstæðu

Rekstrarreikningar 2F 1H
2023 2022 % 2023 2022 %
Rekstrartekjur 6.283 6.036 4,1% 12.581 12.129 3,7%
Kostnaðarverð sölu (4.110) (3.597) 14,3% (8.265) (7.359) 12,3%
Rekstarkostnaður (1.811) (1.757) 3,1% (3.636) (3.514) 3,5%
EBIT 362 682 -46,9% 680 1.256 -45,9%
Hrein fjármagnsgjöld (145) (165) -12,1% (146) (73) 100,0%
Tekjuskattur (38) (107) -64,5% (109) (220) -50,5%
Hagnaður tímabils af áframhaldandi starfsemi 179 410 -56,3% 425 963 -55,9%
Aflögð starfsemi 0 95 -100,0% 0 288 -100,0%
Hagnaður tímabils 179 505 -64,6% 425 1.251 -66,0%
EBITDA 1.410 1.399 0,8% 2.725 2.726 0,0%
Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi 0,06 0,05 20,0% 0,13 0,13 0,0%

3

Siminn

Sala á 1H 2023 nam 12.581 m.kr. samanborið við 12.129 m.kr. árið 2022, sem er 3,7% vöxtur milli tímabila. Sé horft til kjarnavara félagsins (farsíma, gagnaflutnings og sjónvarpsþjónustu) er tekjuvöxtur 8,2%.

Tekjur af farsíma námu 3.105 m.kr. og hækkuðu um 223 m.kr. eða 7,7% á milli tímabila. Tekjur af talsíma námu 548 m.kr. og lækkuðu um 26,4% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 3.955 m.kr. og hækkuðu um 227 m.kr. eða 6,1% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 3.633 m.kr. og hækkuðu um 359 m.kr. eða 11,0% á milli tímabila. Tekjur af vörusölu námu 878 m.kr. og drógust saman um 63 m.kr. eða 6,7% á milli tímabila. Aðrar tekjur námu 462 m.kr. og lækkuðu um 97 m.kr. á milli tímabila. Lækkunin er aðallega vegna sölu á fjarskiptabúnaði til Mílu og endursölu á Spotify á 1F 2022, en sé litið framhjá þessum liðum hækka aðrar tekjur um 2,2% á milli tímabila.

Kostnaðarverð seldrar þjónustu nam 8.265 m.kr. og hækkaði um 906 m.kr. eða 12,3% frá sama tímabili 2022 sem skýrist af auknum afskriftum sýningarrétta og auknum kostnaði frá fjarskiptabírgjum vegna hárrar verðbólgu. Rekstrarkostnaður nam 3.636 m.kr. og hækkaði um 122 m.kr. eða 3,5% frá sama tímabili 2022.

Afskriftir félagsins námu 2.045 m.kr. á 1H 2023 samanborið við 1.470 m.kr. á sama tímabili 2022 og hækka um 575 m.kr. á milli tímabila. Hækkunin er eins og áður hefur komið fram að miklu leyti tengd afskriftum sýningarrétta auk þess sem afskriftir upplýsingakerfa hafa aukist á milli tímabila.

Sjóðstreymi

Rekstrarhreyfingar námu samtals 2.726 m.kr. á 1H 2023 samanborið við 2.722 m.kr. á sama tímabili 2022. Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum á 1H 2023 námu 162 m.kr. til lækkunar.

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var því 2.564 m.kr. á 1H 2023 samanborið við 3.203 m.kr. á sama tímabili 2022. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 2.164 m.kr. á 1H 2023 samanborið við 2.679 m.kr. á sama tímabili 2022.

Fjárfestingahreyfingar voru jákvæðar sem nemur 12.562 m.kr. á 1H 2023 samanborið við 1.147 m.kr. á sama tímabili 2022. Á 1F 2023 seldi Síminn skuldabréf sem hann fékk í tengslum við sölna á Mílu sem skýrir jákvæðar fjárfestingahreyfingar á fjörðungnum.

Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar sem nam 17.681 m.kr. á 1H 2023 sem skýrist helst af því að á 1F 2023 var hlutafé félagsins lækkað með útgreiðslu sem nam tæplega 15,6 ma.kr.

Sjóðstreymi 1H 2023 1H 2022
Rekstrarhangnaður tímabila 680 1.256
Afskriftir 2.045 1.470
Sölunghagnaður varanlegra rekstrarfjármuna 1 (4)
Samtals rekstrarhreyfingar 2.726 2.722
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum (162) 481
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 2.564 3.203
Nettó greiddir vextir (6) (176)
Greiddir skattar (394) (348)
Handbært fé frá rekstri 2.164 2.679
Fjárfestingahreyfingar 12.562 (1.147)
Fjármögnunarhreyfingar (17.681) (3.670)
Breytingar á handbæru fé (2.955) (2.138)
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé (39) (6)
Handbært fé í upphafi tímabila 3.721 3.509
Handbært fé í lok tímabilains 727 1.365

4

Siminn

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 32.975 m.kr. í lok 2F 2023 en voru 51.181 m.kr. í lok árs 2022.

Vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 8.764 m.kr. í lok 2F 2023 samanborið við 8.867 m.kr. í lok árs 2022. Handbært fé í lok 2F 2023 nam 727 m.kr. samanborið við 3.721 m.kr. í árslok 2022. Hreinar vaxtaberandi skuldir með leiguskuldbindingum og útlánum Símans Pay voru 5.848 m.kr. í lok 2F 2023 samanborið við 3.449 m.kr. í árslok 2022.

Eigið fé félagsins nam 18.161 m.kr. í lok 2F 2023 og eiginfjárhlutfall félagsins var 55,1%.

Eignir 30.06.2023 31.12.2022
Rekstrarfjármunir 2.534 2.466
Leigueignir 847 941
Òefnislegar eignir 21.839 22.122
Aðrar eignir 576 580
Fastafjármunir 25.796 26.109
Verðbréf færð á gangvírði 0 15.687
Handbært fé 727 3.721
Aðrir veltufjármunir 6.452 5.664
Veltufjármunir 7.179 25.072
Eignir alls 32.975 51.181
Skuldir og eigið fé 30.06.2023 31.12.2022
--- --- ---
Eigið fé 18.161 35.261
Eigið fé 18.161 35.261
Skuldabréfalán 5.963 5.956
Leiguskuldbinding 627 731
Viðskiptaskuldir 0 639
Tekjuskattsskuldbinding 200 89
Langtimaskuldir 6.790 7.415
Aðrar skammtímaskuldir 8.024 8.505
Skammtímaskuldir 8.024 8.505
Skuldir og eigið fé alls 32.975 51.181

Um starfsemina

  • Síminn hefur gengið til samstarfs við Handknattleikssamband Íslands (HSÍ) um dreifingu á íslenskum handbolta til áhorfenda um land allt. HSÍ ríður þar með á vaðið og er fyrsta íslenska íþróttasambandið sem selur sjónvarpsútsendingar beint til viðskiptavina sinna en þetta fyrirkomulag hefur tíðkast í nokkur ár í Bandaríkjunum og kannast t.d. margir við NBA League Pass. HSÍ mun setja upp sjálfvirkan upptökubúnað í öllum keppnissölum og geta þá streymt beint frá öllum viðburðum sem þar fara fram. Viðburðirnir verða síðan aðgengilegir, bæði línulega og ólínulega í Sjónvarpi Símans sem annast allan tæknirekstur, reikningagerð og innheimtu. Pessu til viðbótar verður valinn einn leikur vikulega sem sýndur verður í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. Síminn væntir mikils af þessu samstarfi enda þróunarverkefni sem mögulega nýtist fleiri íþróttagreinum á komandi árum.

  • Skráður skuldabréfamarkaður er ekki mikil nýttur til fjármögnunar hjá íslenskum fyrirtækjum þó að vissulega sé þetta vaxandi markaður. Síminn hefur að markmiði að vera með blandaða fjármögnun þ.e. annars vegar bankafjármögnun og hins vegar markaðsfjármögnun. Eftir nokkurra ára hlé frá útgáfu á markaði byrjaði Síminn að gefa út vixla árið 2021 og var útgáfurammi fyrir vixla 2 ma.kr. Viðtökur fjárfesta hafa verið góðar og hefur álag farið stiglækkandi með hverri útgáfu. Næsta skref í markaðsfjármögnun var tekið í lok annars ársfjörðungs þar sem seld voru skuldabréf í lokuðu útboði til 3ja ára að fjárhæð 1,5 ma.kr. með 1,3% álag ofan á 1M REIBOR. Ef aðstæður eru hagfelldar mun Síminn skoða frekari útgáfu á haustmánuðum.


5

Siminn

Horfur fyrir árið 2023

Spá fyrir árið 2023 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA samstæðunnar verði á bilinu 5,9 til 6,3 ma.kr. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 3,6 til 3,9 ma.kr. án fjárfestinga í tíðnileyfum.

Kynningarfundur 23. ágúst 2023

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 23. ágúst 2023 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Hluthafar, fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/fjarfestar/uppgjor-og-arsskyrslur.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni: https://www.siminn.is/fjarfestakynning.

Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á [email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.

Fjárhagsdagatal 2023

Uppgjör 3F 2023 24. október 2023
Ársuppgjör 2023 20. február 2024
Aðalfundur 2024 14. mars 2024

Nánari upplýsingar um uppgjörð veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans ([email protected])