Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2023

Oct 24, 2023

2203_rns_2023-10-24_19dfcecd-4e9c-42b5-95f3-49d17916a1df.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Síminn

  1. október 2023

Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 3F 2023

Fjölbreytt vöruframboð skilar tekjuvexti

  • Tekjur á þriðja ársfjörðungi (3F) 2023 námu 6.501 m.kr. samanborið við 6.210 m.kr. á sama tímabili 2022 og jukust um 4,7%. Tekjur í kjarnabjónustu Símans, farsíma, gagnaflutningi og sjónvarpsbjónustu aukast um rúm 7% á fjörðungnum.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.811 m.kr. á 3F 2023 og eykst því um 21 m.kr. eða 1,2%. EBITDA hlutfallið er 27,9% fyrir 3F 2023 en var 28,8% á sama tímabili 2022. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 765 m.kr. á 3F 2023 samanborið við 986 m.kr. á sama tímabili 2022.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 126 m.kr. á 3F 2023 en námu 84 m.kr. á sama tímabili 2022. Fjármagnsgjöld námu 303 m.kr., fjármunatekjur voru 161 m.kr. og gengishagnaður nam 16 m.kr.
  • Hagnaður á 3F 2023 nam 507 m.kr. samanborið við 718 m.kr. hagnað af áframhaldandi starfsemi á sama tímabili 2022.
  • Vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 10,2 ma.kr. í lok 3F 2023, en voru 8,9 ma.kr. í árslok 2022. Handbært fé í lok 3F 2023 nam 2,0 ma.kr., en var 3,7 ma.kr. í árslok 2022. Staða útlána hjá Símanum Pay var 2,5 ma.kr. í lok 3F 2023, en var 1,7 ma.kr. í árslok 2022.
  • Eiginfjárhlutfall Símans var 52,4% í lok 3F 2023 og eigið fé 18,0 ma.kr.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Frá fyrstu tveimur fjörðungum ársins aukast nú tekjur, EBITDA og EBIT með myndarlegum hætti. Utanaðkomandi kostnaðarhækkanir hafa verið órar undanfarin misseri og við höfum varla náð að láta tekjuvöxt halda í við aukin útgjöld. Þríðji fjörðungur í ár var hagfelldari en hinir fyrri tveir, sem oft er raunin en sú breyting er sérlega áberandi nú, auk þess sem EBITDA vex lítillega milli ára. Við erum enn í miðju afskriftaferli aukinna fjárfestinga okkar frá undanförnum tveimur árum, fyrst og fremst vegna samninga um vinsælt sjónvarpsefni og vegna nýrrar tækni með stuttan afskriftatíma. Til lengri tíma munu þær fjárfestingar nýtast fyrirtækinu vel, en hafa tekið EBIT verulega niður undanfarna ársfjörðunga. Þar hefur botnínum nú verið náð og EBIT hafið vaxtarferil sinn á ný.

Við höfum gert fjölmargar breytingar á vöruframboði okkar á árinu sem virðist hafa mætt þörfum neytenda vel. Íslenskir neytendur velja í auknum mæli að kaupa það heildarvöruframboð frá þjónustuveitendum sínum í fjarskiptum og sjónvarpi sem þeim hentar, í stað þess að handvelja hvern þjónustuþátt. Í tilfelli Símans hefur seldum pökkum fjölgað um 10% á árinu, en stökum vörum eins og internetþjónustu hefur fækkað á móti. Viðskiptavinum


Síminn

í farsíma hefur síðan fjölgað dugllega undanfarið, bæði innan pakka og utan, auk þess sem reikitekjur hafa vaxið nokkuð með fjölgun ferðamanna.

Í heild á sér stað ör og fjölbreytileg tekjuþróun vegna innri og ytri breytinga, sem aftur hefur framkallað fleiri útgáfur en áður af þeim viðskiptum sem heimili eiga við Símann. Sum heimili hafa þannig lækkað reikning sinn en önnur hafa valið stærri pakka og bætt við vörum. Stærsti ávinningur Símans í þessari vöruþróun er að við mætum nú fjölbreyttari þörfum en áður og ekki síst til yngri markhópa en fyrr.

Sjónvarp Símans er dæmi um vöru sem höfðar sífellt betur til yngri áhorfendahópa, en einnig hins trausta kjarna sem lengi hefur verið í viðskiptum. Áhorf hefur aukist hratt á ný, en fyrst eftir að heimsfaraldrinum lauk dró merkjanlega úr þeim tíma sem fólk varði fyrir framan sjónvarpið. Falla nú ný áhorfsmet viku eftir viku, en fremst fer þáttaröðin um IceGuys hljómsveitina, sem hefur fengið að meðaltali um tíu þúsund spilanir á dag frá því fyrsti þátturinn fór í loftið 6. október síðastliðinn. Erlendar þáttaraðir, barnaefni og fótbolti eiga einnig sína tryggu áhorfendur.

Framundan er meira af öllu framangreindu, sér í lagi hágæða íslenskum þáttaröðum fram að jólum. Einnig er Síminn í spennandi þróunarverkefni með HSÍ sem fyrst íslenskra íþróttasambanda freistar þess að selja aðgengi að íþróttinni milliliðalaust til áhorfenda um kerfi Símans. Í þessu verkefni spilar gervigreind stórt hlutverk og því afar spennandi fyrir Símann sem tæknifyrirtæki. Eftir áramót verður á hinn bóginn áhugavert að sjá hvernig framleiðsla á sjónvarpsefni þróast í heiminum í heild, en vinnudeilur í Hollywood gætu dregið tímabundið úr framboði nýrri þátta frá þessu höfuðvíg afþreyingariðnaðarins.

Fjártækni og notkun léttkorts Símans vaxa hraðast af öllum vöruflokkum félagsins. Munu útlán í lok október nema tæpum þremur milljörðum króna á einstaklingsmarkaði. Fyrirtæki sem eru í viðskiptum við Símann hafa rétt eins og heimili fjölgað þeim þjónustuþáttum sem þau afla sér frá Símanum. Beiðnakerfi Símans fyrir kaupheimildir starfsmanna fyrirtækja í reikningsviðskiptum er sá hluti af fjártækni Símans á fyrirtækjamarkaði sem örast vex í augnablikinu. Kerfið skapar eitt og sér ekki risavaxnar tekjur fyrir Símann enn sem komið er, en er góður grunnur að frekara vöruframboði til fyrirtækja.

Auglýsingar eru einnig ört vaxandi afurð sem fyrirtæki sækja til Símans, enda byggja þær í okkar tilfelli á áhorfstölum í rauntíma frá þeim markhópum sem auglýsandinn hefur sjálfur einsett sér að ná til. Samfélagsmiðlar hafa um langa hríð boðið upp á slíka nákvæmni á netinu, á meðan sjónvarp hefur verið mun ómarkvissari miðill, þar til nú.

Framundan eru frekari fréttir um breytta og eflda tekjuöflun hjá Símanum. Helst verða slíkar breytingar til fjölgunar þjónustuþátta sem Síminn býður upp á, en einnig verða eldri vörur lagðar af. Má þar nefna hliðræna talsímakerfið, sem nýst hefur landsmönnum vel um áratuga skeið. Frá næstu áramótum munu þráðbundin simtöl á Íslandi byggjast eingöngu á internet einingunni IP. Auk innri verkefna af þeim toga verður mikilvægt næstu mánuði fyrir Símann – jafnt sem önnur íslensk fyrirtæki – að efnahagskerfi okkar endi órólegt ferðalag sitt á hagfelldri braut á ný."


Síminn

Helstu niðurstöður í rekstri á fyrstu níu mánuðum 2023

Rekstur samstæðu

Rekstrarreikningur 3F 9M
2023 2022 % 2023 2022 %
Rekstrartekjur 6.501 6.210 4,7% 19.082 18.339 4,1%
Kostnaðarverð sölu (4.113) (3.681) 11,7% (12.378) (11.040) 12,1%
Rekstrarkostnaður (1.623) (1.543) 5,2% (5.259) (5.057) 4,0%
EBIT 765 986 -22,4% 1.445 2.242 -35,5%
Hrein fjármagnsgjöld (126) (84) 50,0% (272) (157) 73,2%
Tekjuskattur (132) (184) -28,3% (241) (404) -40,3%
Hagnaður tímabils af áframhaldandi starfsemi 507 718 -29,4% 932 1.681 -44,6%
Aflögð starfsemi 0 35.628 -100,0% 0 35.916 -100,0%
Hagnaður tímabils 507 36.346 -98,6% 932 37.597 -97,5%
EBITDA 1.811 1.790 1,2% 4.536 4.516 0,4%
Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi 0,18 0,10 80,0% 0,31 0,23 34,8%

Sala á 9M 2023 nam 19.082 m.kr. samanborið við 18.339 m.kr. árið 2022, sem er 4,1% vöxtur milli tímabila. Sé horft til kjarnavara félagsins (farsíma, gagnaflutnings og sjónvarpsþjónustu) er tekjuvöxtur 7,8%.

Tekjur af farsíma námu 4.854 m.kr. og hækkuðu um 354 m.kr. eða 7,9% á milli tímabila. Tekjur af talsíma námu 835 m.kr. og lækkuðu um 21,4% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 5.963 m.kr. og hækkuðu um 312 m.kr. eða 5,5% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsþjónustu námu 5.466 m.kr. og hækkuðu um 518 m.kr. eða 10,5% á milli tímabila. Tekjur af vörusölu námu 1.261 m.kr. og drógust saman um 98 m.kr. eða 7,2% á milli tímabila. Aðrar tekjur námu 703 m.kr. og lækkuðu um 115 m.kr. á milli tímabila. Lækkunin er aðallega vegna sölu á fjarskiptabúnaði og þjónustu til Mílu og endursölu á Spotify á 1F 2022.

Kostnaðarverð seldrar þjónustu nam 12.378 m.kr. og hækkaði um 1.338 m.kr. eða 12,1% frá sama tímabili 2022 sem skýrist af auknum afskriftum sýningarrétta og auknum kostnaði frá fjarskiptabírgjum vegna hárrar verðbölgu. Rekstrarkostnaður nam 5.259 m.kr. og hækkaði um 202 m.kr. eða 4,0% frá sama tímabili 2022.

Afskriftir félagsins námu 3.091 m.kr. á 9M 2023 samanborið við 2.274 m.kr. á sama tímabili 2022 og hækkað um 817 m.kr. á milli tímabila. Hækkunin er eins og áður hefur komið fram að miklu leyti tengd afskriftum sýningarrétta auk þess sem afskriftir upplýsingakerfa hafa aukist á milli tímabila.


4

Siminn

Sjóðstreymi

Rekstrarhreyfingar námu samtals 4.548 m.kr. á 9M 2023 samanborið við 4.460 m.kr. á sama tímabili 2022. Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum á 9M 2023 námu 405 m.kr. til lækkunar.

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var því 4.143 m.kr. á 9M 2023 samanborið við 6.119 m.kr. á sama tímabili 2022. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 3.413 m.kr. á 9M 2023 samanborið við 5.354 m.kr. á sama tímabili 2022.

Á 1F 2023 seldi Síminn skuldabréf sem félagið fékk í tengslum við sóluna á Mílu sem skýrir jákvæðar fjárfestingahreyfingar á tímabilinu.

Sjóðstreymi 9M 2023 9M 2022
Rekstrarhagnaður tímabils 1.445 2.242
Afskriftir 3.091 2.274
Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi 12 (56)
Samtals rekstrarhreyfingar 4.548 4.460
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum (405) 1.659
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 4.143 6.119
Nettó greiddir vextir (100) (208)
Greiddir skattar (630) (557)
Handbært fé frá rekstri 3.413 5.354
Fjárfestingahreyfingar 11.869 29.534
Fjármögnunarhreyfingar (16.985) (4.537)
Breytingar á handbærú fé (1.703) 30.351
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé (39) (8)
Handbært fé í upphafi tímabils 3.721 3.509
Handbært fé í lok tímabilsins 1.979 33.852

Fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar sem nam 16.985 m.kr. á 9M 2023 sem skýrist helst af því að á 1F 2023 var hlutafé félagsins lækkað með útgreiðslu sem nam tæplega 15,6 ma.kr.

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 34.262 m.kr. í lok 3F 2023 en voru 51.181 m.kr. í lok árs 2022.

Vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 10.210 m.kr. í lok 3F 2023 samanborið við 8.867 m.kr. í lok árs 2022. Handbært fé í lok 3F 2023 nam 1.979 m.kr. samanborið við 3.721 m.kr. í árslok 2022. Hreinar vaxtaberandi skuldir með leiguskuldbindingum og útlánum Símans Pay voru 5.713 m.kr. í lok 3F 2023 samanborið við 3.449 m.kr. í árslok 2022.

Eigið fé félagsins nam 17.953 m.kr. í lok 3F 2023 og eiginfjárhlutfall félagsins var 52,4%.

Eignir 30.09.2023 31.12.2022
Rekstrarfjármunir 2.472 2.466
Leigueignir 787 941
Òefnislegar eignir 21.276 22.122
Aðrar eignir 581 580
Fastafjármunir 25.116 26.109
Verðbréf færð á gangvirði 0 15.687
Handbært fé 1.979 3.721
Aðrir veltufjármunir 7.167 5.664
Veltufjármunir 9.146 25.072
Eignir alls 34.262 51.181
Skuldir og eigið fé 30.09.2023 31.12.2022
--- --- ---
Eigið fé 17.953 35.261
Eigið fé 17.953 35.261
Skuldabréfalán 7.466 5.956
Leiguskuldbinding 566 731
Viðskiptaskuldir 0 639
Tekjuskattsskuldbinding 331 89
Langtimaskuldir 8.363 7.415
Aðrar skammtímaskuldir 7.946 8.505
Skammtímaskuldir 7.946 8.505
Skuldir og eigið fé alls 34.262 51.181

Síminn

Um starfsemina

  • Þættirnir um IceGuys hafa slegið áhorfsmet í Sjónvarpi Símans, prisvar sinnum. Fleiri leiknar íslenskar þáttaraðir verða frumsýndar í Sjónvarpi Símans í vetur en nokkru sinni fyrr.
  • Uppfært vöruframboð hefur mælst vel fyrir hjá viðskiptavinum. Fjölbreyttari áskriftarpakkar hafa verið settir í sölu sem innhalda aukið virði, t.d. með inniföldum práðlausum magnara og úræði fyrir Apple Watch og Samsung snjallúr.
  • Síminn var fyrsta fjarskiptafyrirtækið á Íslandi til að tengja heimili við 10 Gbit/s nettengingu.
  • Samstarf Símans við HSÍ vegna útsendinga frá handboltaleikjum karla og kvenna hefur gengið vel og mun halda áfram að slípast til og próast.
  • Samfélagssjóður Símans styrkir fimm ungar konur til náms við tæknigreinar við Háskólann í Reykjavík. Um er að ræða hluta af átaki til að auka fjölbreyttileika í tæknigreinum. Stuðningur við Vertonet, samtök kvenna í upplýsingatækni var endurnýjaður ásamt því að Síminn tók á móti yfir 200 grunnskólastelpum og stálpum á Stelpur og tæknideginum.

Horfur fyrir árið 2023

Spá fyrir árið 2023 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA samstæðunnar verði á bilinu 5,9 til 6,3 ma.kr. Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 3,6 til 3,9 ma.kr. án fjárfestinga í tíðnileyfum.

Kynningarfundur 25. október 2023

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 25. október 2023 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Hluthafar, fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/fjarfestar/uppgjor-og-arsskyrslur.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstrey mi á vefslóðinni: https://www.siminn.is/fjarfestakynning.

Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á [email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.

Fjárhagsdagatal 2023

Ársuppgjör 2023 20. febrúar 2024

Aðalfundur 2024 14. mars 2024

Nánari upplýsingar um uppgjörði veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans ([email protected])

Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans ([email protected])