Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2023

Oct 24, 2023

2203_rns_2023-10-24_d2377870-da6d-453a-b312-508ce4cdda9e.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

img-0.jpeg

Síminn

Samandreginn árshlutareikningur samstæðu

  1. janúar til 30. september 2023

Síminn hf.
Ármúla 25
108 Reykjavík
Kt. 460207-0880


Efnisyfirlit

Bls.

Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra... 2
Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu... 3
Efnahagsreikningur... 4
Eiginfjáryfirlit... 5
Sjóðstreymisyfirlit... 6
Skýringar... 7 - 12
Ársfjórðungsyfirlit... 13

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2023


Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning Símans hf. og dótturfélaga hans. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið samþykktur af Evrópusambandinu. Árshlutareikningurinn er hvorki endurskoðaður né kannaður af endurskoðendum félagsins.

Hagnaður var af rekstri félagsins sem nam 932 m.kr. samanborið við hagnað að fjárhæð 37.597 m.kr. á sama tímabili 2022. Hagnaður af áframhaldandi starfsemi nam 932 m.kr. samanborið við hagnað að fjárhæð 1.681 m.kr. á sama tímabili 2022. Heildartekjur félagsins á tímabilinu 1. janúar til 30. september námu 19.082 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi samanborið við 18.339 m.kr. á sama tímabili árið 2022. Eignir félagsins í lok tímabils námu 34.262 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eigið fé nam 17.953 m.kr. og var eiginfjárhlutfallið 52,4%.

Við sölu á Milu ehf. til Ardian sem tilkynnt var um þann 30. september 2022 var hluti af söluandvirðinu greiddur með skuldabréfi. Gengið var frá sölu á skuldabréfinu til félags á vegum Ardian fyrir 15,7 ma.kr. í lok janúar.

Á aðalfundi Símans hf. þann 9. mars 2023 var samþykkt tillaga stjórnar um lækkun á hlutafé félagsins. Annars vegar með lækkun vegna eigin hluta sem nam 185 m.kr. að nafnverði og hins vegar með lækkun á hlutafé um 1.625 m.kr. með greiðslu til hluthafa sem nam 15,7 ma.kr. sem félagið greiddi þann 31. mars. Samtals lækkaði hlutafé því úr 4.400 m.kr. í 2.775 m.kr. Á sama fundi var samþykkt tillaga um heimild til kaupa á eigin bréfum félagsins að hámarki 277,5 m.kr. að nafnverði og tillaga um greiðslu arðs að fjárhæð 500 m.kr. til hluthafa sem félagið greiddi í lok mars. Í samræmi við heimildir aðalfunda félagsins 2022 og 2023 hafa á tímabilinu janúar til september verið keypt eigin bréf að nafnverði 208 m.kr. fyrir 2.188 m.kr. að markaðsverði. Að öðru leyti vísast til árshlutareiknings um breytingar á eigin fé félagsins.

Á stjórnarfundi 16. maí 2023 tók stjórn Símans hf. ákvörðun um að veita stjórnendum kauprétti að hámarki 75 m.kr. hlutum. Ákvörðunin byggir á samþykkt aðalfundar frá 9. mars 2023. Einnig hefur verið gengið frá kaupréttaráætlun sem nær til allra fastráðinna starfsmanna félagsins og byggir á 10. grein laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Geta kaup starfsmanna orðið allt að 92,6 m.kr. hlutir. Byrjað er að gjaldfæra kostnað vegna þessara kaupréttaráætlana.

Yfirlýsing stjórnar og forstjóra

Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er árshlutareikningur félagsins í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af rekstrarafkomu félagsins á tímabilinu 1. janúar til 30. september 2023, eignum, skuldum og fjárhagsstöðu þess 30. september 2023 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. september 2023. Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra gefi glöggt yfirlit um þrón og árangur í rekstri félagsins og stöðu þess og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem félagið býr við.

Stjórn og forstjóri Símans hf. hafa í dag fjallað um árshlutareikning félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. september 2023 og staðfesta hann með undirritun sinni.

Reykjavík, 24. október 2023

Stjórn

Jón Sigurðsson, formaður

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, varaformaður

Arnar Þór Másson

Bjarni Þorvarðarson

Björk Viðarsdóttir

Forstjóri

Orri Hauksson

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2023


Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu
1. janúar til 30. september 2023

Skýr. 2023 2022 2023 2022
1.7.-30.9. 1.7.-30.9. 1.1.-30.9. 1.1.-30.9.
Sala 5 6.329 6.016 18.599 17.871
Kostnaðarverð sólú 6 ( 4.113) ( 3.681) ( 12.378) ( 11.040)
Framlegð 2.216 2.335 6.221 6.831
Aðrar rekstrartekjur 172 194 483 468
Rekstrarkostnaður 7 ( 1.623) ( 1.543) ( 5.259) ( 5.057)
Rekstrarhagnaður 765 986 1.445 2.242
Fjármunatekjur 161 97 545 387
Fjármagnsgjöld ( 303) ( 165) ( 815) ( 530)
Gengismunur 16 ( 16) ( 2) ( 14)
Hrein fjármagnsgjöld 8 ( 126) ( 84) ( 272) ( 157)
Hagnaður fyrir tekjuskatt 639 902 1.173 2.085
Reiknaðir skattar ( 132) ( 184) ( 241) ( 404)
Hagnaður og heildarhagnaður af áframhaldandi starfsemi tímabilsins ... 507 718 932 1.681
Hagnaður af aflagðri starfsemi eftir skatta 0 35.628 0 35.916
Hagnaður og heildarhagnaður tímabilsins 507 36.346 932 37.597
EBITDA 1.811 1.790 4.536 4.516
Hagnaður á hlut
Grunnhagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi 0,18 0,10 0,31 0,23
Þynntur hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi 0,17 0,10 0,30 0,23

Skýringar á blaðsiðum 7 - 12 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Efnahagsreikningur 30. september 2023

Skýr. 30.9.2023 31.12.2022
Eignir
Fastafjármunir
Rekstrarfjármunir 2.472 2.466
Leigueignir 787 941
Óefnislegar eignir 21.276 22.122
Aðrar eignir 9 581 580
Fastafjármunir 25.116 26.109
Veltufjármunir
Birgðir 10 1.209 1.212
Viðskiptakrófur 11 2.284 2.045
Útlán 12 2.310 1.359
Aðrar skammtímakrófur 13 1.364 1.048
Verðbréf færð á gangvirði 14 0 15.687
Handbært fé 1.979 3.721
Veltufjármunir 9.146 25.072
Eignir samtals 34.262 51.181
Eigið fé
Hlutafé 2.605 4.242
Yfirverðsreikningur 0 495
Lögbundinn varasjóður 651 1.061
Annað bundið eigið fé 550 576
Óráðstafað eigið fé 14.147 28.887
Eigið fé 17.953 35.261
Skuldir
Langtímaskuldir
Skuldabréfálán 7.466 5.956
Leiguskuldbindingar 566 731
Viðskiptaskuldir 0 639
Tekjuskattsskuldbinding 15 331 89
Langtímaskuldir 8.363 7.415
Skammtímaskuldir
Skammtímálán 1.909 1.929
Viðskiptaskuldir 16 4.671 4.788
Næsta árs afborganir leiguskuldbindinga 269 251
Skattar til greiðslu 0 577
Aðrar skammtímaskuldir 17 1.097 960
Skammtímaskuldir 7.946 8.505
Skuldir samtals 16.309 15.920
Eigið fé og skuldir samtals 34.262 51.181

Skýringar á blaðsiðum 7 - 12 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Eiginfjáryfirlit 30. september 2023

Hlutafé Yfirverðs-reikningur Lögbundinn varasjóður Annað bundið eigið fé Óráðstafað eigið fé Eigið fé samtals
Eigið fé 1.1.2022 7.314 3.278 154 2.020 18.313 31.079
Hagnaður og heildarhagnaður tímabilsins ... 37.597 37.597
Greiddur arður (0,069 á hlut) ( 500) ( 500)
Keypt eigin bréf ( 228) ( 2.468) ( 2.696)
Fært á bundið eigið fé ( 1.427) 1.427 0
Eigið fé 30.9.2022 7.086 810 154 593 56.837 65.480
Eigið fé 1.1.2023 4.242 495 1.061 576 28.887 35.261
Hagnaður og heildarhagnaður tímabilsins ... 932 932
Greiddur arður (0,119 á hlut) ( 499) ( 499)
Hlutafjárlækkun ( 1.429) ( 357) ( 13.794) ( 15.580)
Keypt eigin bréf ( 208) ( 495) ( 53) ( 1.432) ( 2.188)
Fært af bundnu eigin fé ( 26) 26 0
Kostnaður v/ kaupréttarsamninga 27 27
Eigið fé 30.9.2023 2.605 0 651 550 14.147 17.953

Skýringar á blaðsíðum 7 - 12 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Sjóðstreymisyflrit 1. janúar til 30. september 2023

Skýr. 2023 2022 2023 2022
1.7.-30.9. 1.7.-30.9. 1.1.-30.9. 1.1.-30.9.
Rekstrarhreyfingar
Rekstrarhagnaður samkvæmt rekstrarreikningi 765 986 1.445 2.242
Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi:
Afskriftir 1.046 804 3.091 2.274
Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna ( 10) ( 52) ( 15) ( 56)
Aðrir liðir sem ekki hafa áhrif á fjárstreymi 21 0 27 0
1.822 1.738 4.548 4.460
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum:
Birgðir, læk kun (hæk kun) 84 62 ( 157) ( 231)
Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, (hæk kun) læk kun ( 388) 946 ( 477) 952
Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir, hæk kun 61 170 229 938
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum ( 243) 1.178 ( 405) 1.659
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 1.579 2.916 4.143 6.119
Innborgaðir vextir 125 95 517 274
Greiddir vextir ( 219) ( 127) ( 617) ( 482)
Greiddir skattar ( 236) ( 209) ( 630) ( 557)
Handbært fé frá rekstri 1.249 2.675 3.413 5.354
Fjárfestingarhreyfingar
Fjárfesting í rekstrarfjármunum ( 153) ( 196) ( 642) ( 573)
Fjárfesting í óefnislegum eignum ( 216) ( 1.758) ( 2.306) ( 2.515)
Söluverð rekstrarfjármuna 27 1 37 5
Útlán, breyting ( 351) ( 79) ( 905) ( 248)
Sala á verðbréfi 0 0 15.685 0
Söluverð eignarhluta í dótturfélögum 0 32.713 0 32.713
Söluverð félags 0 0 0 152
Fjárfestingarhreyfingar ( 693) 30.681 11.869 29.534
Fjármögnunarhreyfingar
Greiddur arður 0 0 ( 499) ( 500)
Kaup eigin bréfa ( 735) ( 805) ( 2.187) ( 2.696)
Útgreitt hlutafé 0 0 ( 15.580) 0
Tekin ný langtimalán 1.500 0 1.500 0
Afborganir leiguskuldbindinga ( 69) ( 62) ( 198) ( 155)
Skammtímalán, breyting 0 0 ( 21) ( 1.186)
Fjármögnunarhreyfingar 696 ( 867) ( 16.985) ( 4.537)
Hæk kun (læk kun) á handbæru fé 1.252 32.489 ( 1.703) 30.351
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé 0 ( 2) ( 39) ( 8)
Handbært fé í byrjun tímabilsins 727 1.365 3.721 3.509
Handbært fé í lok tímabilsins 1.979 33.852 1.979 33.852

Skýringar á blaðsíðum 7 - 12 eru óaðskiljanlegur hluti af árshlutareikningnum.

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

1. Starfsemi

Síminn hf. er hlutafélag og starfar á grundvelli laga nr. 2/1995 um hlutafélög á Íslandi. Höfuðstöðvar félagsins eru að Ármúla 25 í Reykjavík. Samstæðuárs hlutareikningur fyrir tímabilið janúar til september 2023 hefur að geyma árs hlutareikning félagsins og dótturfélaga þess sem vísað er til í heild sem „félagsins“ og til einstakra félaga sem „dótturfélaga“. Dótturfélög Símans hf. eru Síminn Pay ehf. og Radíómiðun ehf.

Meginstarfsemi félagsins er á sviði fjarskipta og afþreyingar.

2. Grundvöllur reikningsskilanna

2.1. Yfirlýsing um að alþjóðlegum reikningsskilastöðlum sé fylgt

Árs hlutareikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastöðal um árs hlutareikninga, IAS 34. Samandreginn árs hlutareikningur Símans hf. inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning félagsins fyrir árið 2022. Valdar skýringar eru með árs hlutareikningnum til að skýra og upplýsa um rekstur félagsins á tímabilinu og breytingar á fjárhagslegri stöðu frá síðasta ársreikningi.

Hægt er að nálgast ársreikninginn á vef félagsins, www. siminn.is og á vef Kauphallar Íslands: www.nasdaqomxnordic.com.

Stjórn og forstjóri félagsins samþykktu árs hlutareikninginn og heimiluðu birtingu hans á stjórnarfundi þann 24. október 2023.

2.2. Grundvöllur matsaðferða

Samstæðuárs hlutareikningurinn er gerður samkvæmt kostnaðarverðsaðferð.

2.3. Starfrækslugjaldmiðill og framsetningargjaldmiðill

Árs hlutareikningurinn er gerður í íslenskum krónum sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna nema annað sé tekið fram.

2.4. Mat og ákvarðanir

Gerð samstæðuárs hlutareikningus í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastöðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati.

Mat og forsendur þess eru í stöðugri endurskoðun. Breytingar á reikningshaldslegu mati eru færðar á því tímabili sem breytingin á sér stað og þeim framtiðartímabilum sem breytingarnar hafa áhrif á.

3. Breytingar á reikningsskilaaðferðum

Við gerð árs hlutareikningins er beitt sömu reikningsskilaaðferðum og við gerð ársreiknings félagsins fyrir árið 2022.

Siminn hf. - Samandreginn árs hlutareikningur samstæðu 30. september 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

4. Starfsþáttayfirlit

Yfirlit um starfsþætti veitir upplýsingar um einstaka þætti í rekstri félagsins og er sett fram með sama hætti og regluleg skýrslugjóf til stjórnar félagsins.

Starfsemi félagsins skiptist í sex starfsþætti sem selja vörur og þjónustu á mismunandi mörkuðum. Starfsþættirnir eru:

Starfsþáttur Lýsing
Farsímapjónusta: Farsímapjónusta innanlands og erlendis, hvort sem heldur er hefðbundin GSM þjónusta, gervihnattapjónusta eða önnur farsímapjónusta.
Talsímapjónusta: Talsímapjónusta fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Gagnaflutningur: Gagnaflutningsþjónusta, þ.m.t. xDSL þjónusta, GPON, Internet, IP net, heimtaugar og aðgangsnet.
Sjónvarpsþjónusta: Dreifing á sjónvarpsefni, áskrift, notkun og auglýsingar á miðlum félagsins.
Vörusala búnáðar: Sala á fjarskiptabúnaði og fylgihlutum.
Annað: Tekjur tengdar fjarskiptum, upplýsingatækni og fjármálum.
Starfsþættir 1.1.-30.9.2023 Farsíma-þjónusta Talsíma-þjónusta Gagna-flutningur Sjónvarps-þjónusta Vörusala búnáðar Annað Samtals
Rekstrartekjur 4.854 835 5.963 5.466 1.261 703 19.082
Óskipt rekstrargjöld ( 14.546)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 4.536
Afskriftir ( 3.091)
Hrein fjármagnsgjöld ( 272)
Reiknaðir skattar ( 241)
Hagnaður af áframhaldandi starfsemi 932
Hagnaður tímabilsins 932
Fjárfestingar ( 2.911)
Óskiptar eignir 30.9.2023 34.262
Óskiptar skuldir 30.9.2023 16.309
Starfsþættir 1.1.-30.9.2022 Farsíma-þjónusta Talsíma-þjónusta Gagna-flutningur Sjónvarps-þjónusta Vörusala búnáðar Annað Samtals
Rekstrartekjur 4.500 1.063 5.651 4.948 1.359 818 18.339
Óskipt rekstrargjöld ( 13.823)
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 4.516
Afskriftir ( 2.274)
Hreinar fjármunatekjur ( 157)
Reiknaðir skattar ( 404)
Hagnaður af áframhaldandi starfsemi 1.681
Aflögð starfsemi 35.916
Hagnaður tímabilsins 37.597
Fjárfestingar ( 3.083)
Óskiptar eignir 30.9.2022 81.491
Óskiptar skuldir 30.9.2022 16.011

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

5. Sala

Seld bjónusta og vörur greinast bannig: 1.1.-30.9. 1.1.-30.9.
Sala á bjónustu 17.242 16.331
Vörusala 1.357 1.540
18.599 17.871

Enginn einstakur viðskiptavinur er með meira en 10% af sölu félagsins.

6. Kostnaðarverð sölu

Kostnaðarverð sölu greinist bannig:

Laun og launatengd gjöld 710 614
Kostnaðarverð seldrar bjónustu 7.629 6.881
Samtengigjöld 520 557
Kostnaðarverð seldra vara 1.238 1.419
Eignfærð vinna ( 122) ( 142)
Afskriftir 2.403 1.711
12.378 11.040

Kostnaðarverð seldrar bjónustu samanstendur af: efniskostnaði, bjónustusamningum, leyfisgjöldum, aðkeyptri bjónustu og fjarskiptakostnaði.

7. Rekstrarkostnaður

Rekstrarkostnaður greinist bannig:

Laun og launatengd gjöld 2.494 2.360
Markaðs- og sölukostnaður 433 407
Húsnæðis- og bifreiðakostnaður 266 343
Tölvu- og hugbúnaðarkostnaður 807 822
Skrifstofu- og stjórnunarkostnaður 571 562
Afskriftir 688 563
5.259 5.057

8. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast bannig:

Fjármunatekjur
Vaxtatekjur af bankainnistæðum og kröfum 543 272
Söluhagnaður af eignarhlutum 0 113
Fenginn arður 2 2
545 387
Fjármagnsgjöld
Vaxtagjöld ( 622) ( 282)
Vaxtagjöld vegna leiguskuldbindinga ( 36) ( 33)
Niðurfærsla útlána ( 86) ( 42)
Önnur fjármagnsgjöld ( 71) ( 173)
( 815) ( 530)
Gengismunur ( 2) ( 14)
Hrein fjármagnsgjöld ( 272) ( 157)

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

9. Aðrar eignir 30.9.2023 31.12.2022
Aðrar eignir greinast þannig:
Fjárfesting í öðrum félögum 8 38
Sjónvarpsefni til sýningar 365 204
Útlán til meira en 12 mánaða 208 338
Aðrar eignir samtals 581 580
10. Birgðir
--- --- ---
Birgðir greinast þannig:
Vörur til endursölu og rekstrarvörubirgðir 734 601
Sjónvarpsefni til sýningar 475 611
Birgðir samtals 1.209 1.212
11. Víðskiptakröfur
--- --- ---
Víðskiptakröfur greinast þannig:
Víðskiptakröfur 2.361 2.129
Niðurfærsla víðskiptakrafna ( 77) ( 84)
Víðskiptakröfur samtals 2.284 2.045
12. Útlán
--- --- ---
Útlán félagsins samanstanda af útlánum dótturfélags Símans hf., Símans Pay ehf. Eingöngu er um að ræða útlán til einstaklinga á bilinu 1-18 mánuðir.
Útlán 2.663 1.795
Niðurfærsla útlána ( 145) ( 98)
Fært meðal langtímakrafna ( 208) ( 338)
Útlán samtals 2.310 1.359
13. Aðrar skammtímakröfur
--- --- ---
Aðrar skammtímakröfur greinast þannig:
Fyrirframgreiddur kostnaður 1.048 705
Aðrar skammtímakröfur 316 343
Aðrar skammtímakröfur samtals 1.364 1.048

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

14. Verðbréf færð á gangvirði 30.9.2023 31.12.2022
Fjáreignir á gangvirði gegnum rekstur greinast þannig:
Staða 1.1. 15.687 0
Keypt 0 17.500
Matsbreyting við viðtöku 0 ( 1.431)
Matsbreyting í árslok 2022 0 ( 382)
Söluverð verðbréfs ( 15.685) 0
Sölutap ( 2) 0
Fjáreignir á gangvirði gegnum rekstur 0 15.687

Verðbréf er óskráð skuldabréf á Sunstone II hf. og var selt í janúar 2023.

15. Tekjuskattsskuldbinding

Hreyfingar á tekjuskattsskuldbindingu greinast á eftirfarandi hátt:

Tekjuskattsskuldbinding í ársbyrjun 89 604
Tekjuskattur af aflagðri starfsemi 0 ( 286)
Tekjuskattur tímabilsins 247 345
Skattar til greiðslu á næsta ári ( 5) ( 562)
Leiðrétting frá fyrra ári 0 ( 12)
Tekjuskattsskuldbinding samtals 331 89

16. Viðskiptaskuldir

Viðskiptaskuldir greinast þannig:

Viðskiptaskuldir 3.271 3.281
Áfallinn kostnaður 1.400 1.507
Viðskiptaskuldir samtals 4.671 4.788

17. Aðrar skammtímaskuldir

Aðrar skammtímaskuldir greinast þannig:

Áfallinn kostnaður 462 508
Ógreidd laun og launatengd gjöld 181 242
Ógreiddur virðisaukaskattur 454 210
Aðrar skammtímaskuldir samtals 1.097 960

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Skýringar

18. Málarekstur

Félagið stendur í málarekstri vegna mála sem snúa að tülkunum á fjarskipta-, fjölmiðla- og samkeppnislögum.

Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu í bráðabirgðaákvörðun nr. 30/2023 að Símanum væri skylt að endurnýja heildsölusamning við Nova hf. um Símann Sport til Nova sem rann út í maí 2023. Síminn telur að ákvörðun Samkeppniseftirlitsins skorti lagalegan grundvöll og kærði niðurstöðuna til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Kærunni var vísað frá þar sem ekki var heimild í lögum að kærra bráðabirgðaákvörðunina og biður málíð þar af leiðandi efnislegrar meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu.

Staða eftirfarandi mála er óbreytt frá útgáfu ársreiknings 2022.

Síminn og Sýn hafa átt í ágreiningi í tengslum við dreifingu á sjónvarpsefni. Póst- og fjarskiptastofnun (nú Fjarskiptastofa) komst að þeirri niðurstöðu að Síminn hefði farið gegn fjölmiðlalögum sbr. ákvörðun PFS nr. 10/2018. Lagði stofnunin á sekt að fjárhæð 9 m.kr. sem félagið hefur þegar greitt. Síminn telur að háttsemi félagsins sé í fullu samræmi við ákvæði fjölmiðlalaga og höfðaði mál til ógildingar ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu og ógilti ákvörðun PFS að hluta og lækkaði sektina niður í 7 m.kr. Síminn áfrýjaði málinu til Landsréttar sem staðfesti niðurstöðu Póst- og fjarskiptastofnunar og hækkaði sektina aftur í 9 m.kr. Síminn áfrýjaði málinu til Hæstaréttar en rétturinn ómerkti niðurstöðu Landsréttar og héraðsdóms og vísaðí málinu aftur heim í hérað til löglegar meðferðar. Í kjölfarið á ákvörðun PFS sendi Sýn kröfu til Símans um greiðslu skaðabóta að fjárhæð 1,9 ma.kr. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti hvorki ráða af erindi Sýnar að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi né heldur væri gerð tilraun til að færa sönnur á ætlað tjón Sýnar. Að mati Símans var um tilhæfulausa kröfu að ræða og vísaðí Héraðsdómur Reykjavíkur kröfu Sýnar frá dómi vegna vanreifunar. Í framhaldinu lagði Sýn fram beiðni um dómkvaðningu matsmanna og stefndi Símanum fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð 125 m.kr. Síminn hafnaði málatilbúnaði Sýnar og skilaði greinargerð vegna málsins. Sýn stefndi Símanum einnig til greiðslu fjárhæðar 270 m.kr. og Síminn skilaði greinargerð þar sem málatilbúnaði Sýnar var hafnað.

Þá hefur Gagnaveita Reykjavíkur (nú Ljósleiðarinn) sent Símanum kröfu um greiðslu að fjárhæð 1,3 ma.kr. Síminn hafnaði kröfunni og benti á að það mætti ekki ráða af erindi Ljósleiðarans að skilyrði skaðabótaskyldu væri fyrir hendi. Að mati Símans er um tilhæfulausa kröfu að ræða.

PFS og Sýn hafa ennfremlar höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og gert kröfu um að úrskurður úrskurðarnefndar póst- og fjarskiptamála nr. 7/2019 verði fellður úr gildi, en úrskurður nefndarinnar fól í sér ógildingu á ákvörðun PFS nr. 27/2019 þar sem stofnunin lagði sekt að fjárhæð 9 m.kr. á Símann. Síminn mun gera kröfu um að úrskurður nefndarinnar standi óhaggaður.

Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu á árinu 2020 að Síminn hefði brotið gegn ákvörðunum Samkeppniseftirlitsins nr. 6/2015 og 20/2015 og lagði á sekt að fjárhæð 500 m.kr. sem Síminn greiddi. Síminn kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og gerði kröfu um ógildingu ákvörðunarinnar. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála skilaði úrskurði í byrjun árs 2021 þar sem nefndin feldi úr gildi þann hluta ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins sem laut að meintu broti gegn 6/2015 og lækkaði sektina niður í 200 m.kr. Síminn og Samkeppniseftirlitið höfðuðu mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur frá 11. október 2022 var að fella ákvörðun Samkeppniseftirlitsins úr gildi og gerði Samkeppniseftirlitinu að endurgreiða Símanum 200 m.kr. auk dráttarvaxta. Samkeppniseftirlitið hefur áfrýjað dóminum til Landsréttar. Félagið er sem fyr þeirrar skoðunar að fyrirkomulag um sölu á þjónustu félagsins sé fyllilega í samræmi við samkeppnislög og þær ákvarðanir sem félagið hefur gengist undir á grundvelli samkeppnislaga, líkt og staðfest var með dómi héraðsdóms.

Þrátt fyrir að óvissa sé um niðurstöður þessara mála er það mat stjórnenda að ekki komi til verulegra fjárútláta vegna þeirra. Félagið hefur ekki fært neinn kostnað í reikningsskil sín vegna mögulegra bóta í framangreindum málum enda mat félagsins að þau séu tilhæfulaus.

19. Atburðir eftir reikningsskiladag

Engir atburðir hafa átt sér stað eftir lok reikningsskiladags sem höfðu áhrif á árshlutareikninginn eða veita þarf upplýsingar um.

Síminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2023

Fjárhæðir eru í milljónum króna


Ársfjórðungsyfirlit

Rekstur samstæðunnar greinist þannig á ársfjórðunga:

| | 1 F
2023 | 2 F
2023 | 3 F
2023 | Samtals |
| --- | --- | --- | --- | --- |
| Sala | 6.153 | 6.117 | 6.329 | 18.599 |
| Kostnaðarverð sólú | ( 4.155) | ( 4.110) | ( 4.113) | ( 12.378) |
| Framlegð | 1.998 | 2.007 | 2.216 | 6.221 |
| Aðrar rekstrartekjur | 145 | 166 | 172 | 483 |
| Rekstrarkostnaður | ( 1.825) | ( 1.811) | ( 1.623) | ( 5.259) |
| Rekstrarhagnaður | 318 | 362 | 765 | 1.445 |
| Hrein fjármagnsgjöld | ( 1) | ( 145) | ( 126) | ( 272) |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 317 | 217 | 639 | 1.173 |
| Reiknaðir skattar | ( 71) | ( 38) | ( 132) | ( 241) |
| Hagnaður tímabilsins | 246 | 179 | 507 | 932 |
| EBITDA | 1.315 | 1.410 | 1.811 | 4.536 |
| | 1 F
2022 | 2 F
2022 | 3 F
2022 | 4 F
2022 | Samtals |
| --- | --- | --- | --- | --- | --- |
| Sala | 5.957 | 5.898 | 6.016 | 6.068 | 23.939 |
| Kostnaðarverð sólú | ( 3.762) | ( 3.597) | ( 3.681) | ( 3.874) | ( 14.914) |
| Framlegð | 2.195 | 2.301 | 2.335 | 2.194 | 9.025 |
| Aðrar rekstrartekjur | 136 | 138 | 194 | 165 | 633 |
| Rekstrarkostnaður | ( 1.757) | ( 1.757) | ( 1.543) | ( 1.656) | ( 6.713) |
| Rekstrarhagnaður | 574 | 682 | 986 | 703 | 2.945 |
| Hrein fjármagnsgjöld | 92 | ( 165) | ( 84) | ( 389) | ( 546) |
| Aflögð starfsemi | 193 | 95 | 35.628 | 289 | 36.205 |
| Hagnaður fyrir tekjuskatt | 859 | 612 | 36.530 | 603 | 38.604 |
| Reiknaðir skattar | ( 113) | ( 107) | ( 184) | 67 | ( 337) |
| Hagnaður tímabilsins | 746 | 505 | 36.346 | 670 | 38.267 |
| EBITDA | 1.327 | 1.399 | 1.790 | 1.633 | 6.149 |

Siminn hf. - Samandreginn árshlutareikningur samstæðu 30. september 2023
13
Fjórhæðir eru í milljónum króna