Skip to main content

AI assistant

Sign in to chat with this filing

The assistant answers questions, extracts KPIs, and summarises risk factors directly from the filing text.

Síminn Interim / Quarterly Report 2022

Oct 25, 2022

2203_rns_2022-10-25_b4932c32-e7c9-40cf-b49c-a1f1363f2d76.pdf

Interim / Quarterly Report

Open in viewer

Opens in your device viewer

Síminn

  1. október 2022

Fréttatilkynning: Afkoma Símans hf. á 3F 2022

Sögulegur fjórðungur

Gengið var frá sölu Mílu þann 30. september 2022. Salan hefur veruleg áhrif á árshlutareikning félagsins.

  • Tekjur á þriðja ársfjórðungi (3F) 2022 námu 6.210 m.kr. samanborið við 6.124 m.kr. á sama tímabili 2021.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, nam 1.790 m.kr. á 3F 2022 og hækkar því um 163 m.kr. eða 10,0%. EBITDA hlutfallið er 28,8% fyrir 3F 2022 en var 26,6% á sama tímabili 2021. Rekstrarhagnaður EBIT nam 986 m.kr. á 3F 2022 samanborið við 840 m.kr. á sama tímabili 2021.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 84 m.kr. á 3F 2022 en voru jákvæð sem nemur 29 m.kr. á sama tímabili 2021. Fjármagnsgjöld námu 165 m.kr., fjármunatekjur voru 97 m.kr. og gengistap nam 16 m.kr.
  • Hagnaðar á 3F 2022 nam 36.346 m.kr. að teknu tilliti til hagnaðar af sölu Mílu. Hagnaður af áframhaldandi starfsemi á 3F 2022 nam 718 m.kr. samanborið við 707 m.kr. á sama tímabili 2021.
  • Vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 7,3 ma.kr. í lok 3F 2022, en voru 8,3 ma.kr. í árslok 2021. Handbært fé í lok 3F 2022 nam 33,9 ma.kr., en var 3,5 ma.kr. í árslok 2021. Hækkun á handbæru fé er vegna sölu Mílu í lok september 2022.
  • Eiginfjárhlutfall Símans var 80,4% í lok 3F 2022 og eigið fé 65,5 ma.kr.

Orri Hauksson, forstjóri:

„Sölunni á Mílu lauk loksins við lok þriðja fjórðungs ársins. Verulegur söluhagnaður sem Síminn innleysir með viðskiptunum setur sérlega jákvætt mark sitt á uppgjórið, efnahagsreikning félagsins og ávöxtun eigin fjár. Á sama tíma er undirliggjandi rekstur Símans afar sterkur og í öruggum vexti. Þannig aukast tekjur í farsíma, interneti og sjónvarpi umfram kostnað, sem aftur eykur framlegð og hagnað.

Síminn umbreytist nú í lipurt þjónustufélag sem mun byggja á léttum efnahag og minnkaðri fjárfestingabyrði. Félagið hefur valið sérhæfða birgja innan lands og utan til að reiða sig á til framtíðar. Festa og sveigjanleiki í viðskiptasamningi félagsins við Mílu eflir Símann í að huga fyrst og fremst að vöruþróun og viðskiptavinum sínum. Þróun fjarskipta- og sjónvarpsmarkaða á Íslandi hefur einkennst af síaukinni keppni um hylli eftirlitsstofnana fremur en neytenda. Nú


Síminn

Þegar sameiginlegt eignarhald Símans og Mílu hefur verið rofið munu ýmsar íþyngjandi kvaðir fortíðar ekki eiga lengur við Símann og samkeppniskraftar virkjast betur í þágu neytenda.

Við erum afar stolt af því að íslensk framleiðsla í Sjónvarpi Símans hlaut nýlega 20 Edduverðlaun af 27 mögulegum, langmest allra sjónvarpsfyrirtækja. Árangurinn er sérstaklega ánægjulegur í ljósi þess að Sjónvarp Símans er eina stóra sjónvarpsfyrirtækið á Íslandi sem ekki nýtur beins stuðnings hins opinbera. Eins má nefna að í lok árs munum við nýta 80 5G senda á landinu, sem skiptast nokkuð jafnt milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Eftir þrjú ár verða 95 prósent heimila landsins með aðgang að 5G kerfi okkar.

Síminn mun á næstunni kynna nýja fjártæknilausn sem miðar að því að auðvelda viðskiptavinum lífið með stafrænum og sveigjanlegum hætti. Fyrri lánaafurðir Símans hafa verið í markvissum vexti sem byggt verður á til að höfða til stærri hóps en fyrr. Ýmis fleiri spennandi verkefni eru í farvatninu.

Þann 26. október heldur félagið hluthafafund í kjölfar sölu á Mílu. Stjórn félagsins leggur til að hlutafé félagsins verði lækkað verulega með greiðslu til hluthafa, þar sem íslenskir lífeyrissjóðir eru í meirihluta.

Helstu niðurstöður í rekstri á fyrstu níu mánuðum 2022

Rekstur samstæðu

Rekstrarreikningur 3F 5M
2022 2021 % 2022 2021 %
Rekstrartekjur 6.210 6.124 1,4% 18.339 18.079 1,4%
Kostnaðarverð sölu (3.681) (3.766) -2,3% (11.040) (11.241) -1,8%
Rekstarkostnaður (1.543) (1.518) 1,6% (5.057) (4.951) 2,1%
EBIT 986 840 17,4% 2.242 1.887 18,8%
Hrein fjármagnsgjöld (84) 29 -389,7% (157) (101) 55,4%
Tekjuskattur (184) (162) 13,6% (404) (361) 11,9%
Hagnaður tímabils af áframhaldandi starfsemi 718 707 1,6% 1.681 1.425 18,0%
Aflögð starfsemi 35.628 350 35.916 3.134 1.046,0%
Hagnaður tímabils 36.346 1.057 3.338,6% 37.597 4.559 724,7%
EBITDA 1.790 1.627 10,0% 4.516 4.219 7,0%
Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi 0,10 0,09 11,1% 0,23 0,18 27,8%

Sala á 9M 2022 nam 18.339 m.kr. samanborið við 18.079 m.kr. á sama tímabili árið 2021, sem er 1,4% vöxtur milli ára. Sé leiðrétt fyrir vörusölu til Mílu og Spotify sem Síminn hætti að selja í ársbyrjun 2022 aukast tekjur um 2,3%. Tekjur af farsíma námu 4.500 m.kr. og hækkuðu um 354 m.kr. eða 8,5% á milli tímabila. Tekjur af talsíma námu 1.063 m.kr. og lækkuðu um 11,4% á milli tímabila. Tekjur af gagnaflutningi námu 5.651 m.kr. og hækkuðu um 134 m.kr. eða 2,4% á milli tímabila. Tekjur af sjónvarpsbjónustu námu 4.948 m.kr. og hækkuðu um 209 m.kr. eða 4,4% á milli tímabila. Tekjur af vörusölu námu 1.359 m.kr. og lækkuðu um 153 m.kr. eða 10,1% á milli tímabila. Aðrar tekjur námu 818 m.kr. og lækkuðu um 147 m.kr. á milli tímabila.


Síminn

Kostnaðarverð seldrar þjónustu nam 11.040 m.kr. og lækkar um 201 m.kr. eða 1,8% frá sama tímabili 2021. Rekstrarkostnaður nam 5.057 m.kr. og hækkaði um 106 m.kr. eða 2,1% frá sama tímabili 2021.

EBITDA, þ.e. rekstrarhagnaður félagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði, var 4.516 m.kr. á 9M 2022 en var 4.219 m.kr. á sama tímabili 2021 og hækkaði um 297 m.kr. á milli tímabila eða um 7,0%. EBITDA hlutfallið er 24,6% á 9M 2022, en var 23,3% á sama tímabili árið 2021.

Afskriftir félagsins námu 2.274 m.kr. á 9M 2022 samanborið við 2.332 m.kr. á sama tímabili 2021 og lækka um 58 m.kr. á milli tímabila.

Hrein fjármagnsgjöld voru 157 m.kr. á 9M 2022 og hækkuðu um 56 m.kr. á milli ára.

Hagnaður á 9M 2022 af áframhaldandi starfsemi nam 1.681 m.kr. samanborið við 1.425 m.kr. á sama tímabili 2021. Hagnaður á 9M 2022 með aflagðri starfsemi nam 37.597 m.kr.

Sjóðstreymi

Rekstrarhreyfingar nema samtals 4.460 m.kr. á 9M 2022 samanborið við 4.218 m.kr. á sama tímabili 2021. Aukning á rekstrartengdum eignum og skuldum á 9M 2022 eru 1.659 m.kr.

Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta var því 6.119 m.kr. á 9M 2022 samanborið við 5.476 m.kr. á sama tímabili 2021. Eftir vexti og skatta nam handbært fé frá rekstri 5.354 m.kr. á 9M 2022 samanborið við 4.807 m.kr. á sama tímabili 2021.

Fjárfestingahreyfingar námu 29.534 m.kr. á 9M 2022, þar af nam greiðsla vegna sölu Mílu 32.713 m.kr. Á þriðja

Sjóðstreymi 9M 2022 9M 2021
Rekstrarhagnaður tímabils 2.242 1.887
Afskriftir 2.274 2.332
Söluhagnaður varanlegra rekstrarfjármuna (56) (1)
Samtals rekstrarhreyfingar 4.460 4.218
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum 1.659 1.258
Handbært fé frá rekstri án vaxta og skatta 6.119 5.476
Nettó greiddir vextir (208) (83)
Greiddir skattar (557) (586)
Handbært fé frá rekstri 5.354 4.807
Fjárfestingarhreyfingar 29.534 20.498
Fjármögnunarhreyfingar (4.537) (19.096)
Hækkuð (lækkuð) á handbæru fé 30.351 6.209
Áhrif gengisbreytinga á handbært fé (8) 8
Handbært fé í upphafi tímabils 3.509 735
Handbært fé í lok tímabilsins 33.852 6.952

fjörðungi færist stór hluti sýningarréttar ensku úrvalsdeildarinnar úr fyrirframgreiddum kostnaði í fjárfestingu. Fjármögnunarhreyfingar eru neikvæðar sem nemur 4.537 m.kr.


Síminn

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 81.491 m.kr. í lok 3F 2022 en voru 69.727 m.kr. í lok árs 2021.

Vaxtaberandi skuldir að leiguskuldbindingum meðtöldum voru 7.319 m.kr. í lok 3F 2022 samanborið við 8.294 m.kr. í lok árs 2021. Handbært fé í lok 3F 2022 nam 33.852 m.kr. samanborið við 3.509 m.kr. Hækkunin er tilkomin vegna sölu Mílu. Handbært fé og útlán Símans Pay umfram vaxtaberandi skuldir er 28.023 m.kr.

Eigið fé félagsins nam 65.480 m.kr. í lok 3F 2022 og eiginfjárhlutfall félagsins var 80,4%.

Eigið 30.09.2022 31.12.2021
Rekstrarfjármunir 2.312 2.219
Leigueignir 997 753
Óefnislegar eignir 21.870 19.403
Skuldabréfaeign 16.069 0
Aðrar eignir 547 675
Fastafjármunir 41.795 23.050
Eignir flokkaðar til sölu 0 36.929
Handbært fé 33.852 3.509
Aðrir veltufjármunir 5.844 6.239
Veltufjármunir 39.696 46.677
Eignir alls 81.491 69.727
Skuldir og eigið fé 30.09.2022 31.12.2021
--- --- ---
Eigið fé 65.480 31.079
Eigið fé 65.480 31.079
Skuldabréfalán 5.953 5.943
Leiguskuldbinding 786 653
Viðskiptaskuldir 585 0
Tekjuskattsskuldbinding 485 604
Langtimaskuldir 7.809 7.200
Skuldir flokkaðar til sölu 0 25.826
Aðrar skammtímaskuldir 8.202 5.622
Skammtímaskuldir 8.202 31.448
Skuldir og eigið fé alls 81.491 69.727

Um starfsemina

  • Fyrr í mánuðinum felldi Héraðsdómur Reykjavíkur úr gildi ákvörðun Samkeppniseftirlitsins (SE) frá því í maí 2020. Ákvörðun SE fól í sér að Síminn hefði brotið gegn tveimur sáttum sem Síminn gerði við SE og lögð var sekt að fjárhæð 500 m.kr. SE taldi að brotið hefði verið gegn sáttunum með því að Heimilispakkinn hefði innihaldið útsendingar frá leikjum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu frá og með haustinu 2019. Síminn bauð eftir sem áður stakar áskriftir að Síminn Sport og Sjónvarpi Símans Premium sem og fjarskiptabjónustu félagsins. Áskrift að sjónvarpsbjónustu félagsins var umtalsvert lægra en verð Heimilispakkans. Síminn taldi að ákvörðun SE hefði verið röng og leitaði til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem felldi hluta ákvörðunarinnar úr gildi, þ.e. meint brot gegn sátt er varðar aðskilnað Símans og Mílu, og lækkáði sektina niður í 200 mkr. Það var mat Símans að afstaða áfrýjunarnefndar til þess þáttar sem stóð eftir hefði verið efnislega röng og leitaði til dómstóla, sem felldi úr gildi ákvörðun SE. Það er bæði raunhæft og mögulegt fyrir viðskiptavini að kaupa fjarskiptabjónustu af Símanum án þess að kaupa sjónvarpsbjónustu sem innihélt útsendingar frá ensku úrvalsdeildinni. Héraðsdómur féllst á rök Símans og taldi að Samkeppniseftirlitið hefði ekki sannað að Síminn hefði brotið gegn umræddri ákvörðun. Ennfremur tók Héraðsdómur undir afstöðu áfrýjunarnefndar varðandi þann þátt sem nefndin hafði áður fellt úr gildi en SE hafði leitast við að fá úrskurð áfrýjunarnefndar felldan úr gildi. Sekt með öllu fell di niður sem hefur jákvæð áhrif á EBITDA á 4F um 200 m.kr.

  • Settir hafa verið upp 65 5G sendar og eru 35 af þeim á höfuðborgarsvæðinu. Í lok árs er gert ráð fyrir að búið verði að setja upp um 80 5G senda. Áætlanir félagsins gera ráð fyrir að 95% dekkningu (PoP) verði náð í árslok 2025.


Síminn

  • Síminn og Háskólinn í Reykjavík hafa undirritað fimm ára samstarfssamning um stuðning Símans við konur með framúrskarandi námsárangur til náms í tæknigreinum í HR. Markmið samstarfsins er að fá ungar konur til að íhuga tæknigreinar sem valkost í námi og fjölga konum sem útskrifast úr tæknigreinum. Síminn greiðir þannig skólagjöld styrkþeganna og möguleiki er á áframhaldandi styrk út námið.
  • Íslensk framleiðsla í Sjónvarpi Símans hlaut 20 verðlaun á nýafstaðinni Edduverðlaunahátið, mest allra íslenskra sjónvarpsstöðva. Alls hlaut efni Símans 41 tilnefningu. Verðlaunin eru hvatning fyrir Símann að halda áfram á sömu braut.
  • Útlán Símans Pay halda áfram að aukast og eru í dag um 1,5 ma.kr. Félagið kynnti nýlega rafræna beiðnabók sem leysir af hólmi gamaldags beiðnabækur fyrirtækja og stofnanna. Rafrænt veltukort verður kynnt á næstunni sem mun bjóða upp á meiri fjölbreytni og sveigjanleika. Stöðug vöruþróun er hjá fyrirtækinu og munu fleiri nýjungar líta dagsins ljós á næstunni.
  • Síminn hefur undanfarið leitast við að auka vægi markaðsfjármögnunar. Fyrstu skrefin í því hafa verið víxlaútgáfa. Þann 11. október sl. lauk víxlaútboði þar sem tilboð bárust fyrir 3 ma.kr. á bilinu 7,10 – 7,39%. Tilboðum var tekið fyrir 1,1 ma.kr. á 7,20% flötum vöxtum. Um er að ræða 64 punkta álag á 6M REIBOR sem er besta niðurstaða Símans til þessa.
  • Félagið hefur boðað til hluthafafundar þann 26. október þar sem tekin verður fyrir tillaga um lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafa. Tillagan gengur út á að lækka hlutafé félagsins um 2.900 m.kr., úr 7.300 m.kr. í 4.400 m.kr. með greiðslu að fjárhæð 31,5 ma.kr. Eiginfjárhlutfall félagsins er nú rúmlega 80% sem er fjarri markmiðum félagsins um fjármagnsskipan. Það er stefna félagsins að liggja ekki með verulegt handbært fé sem nýtist ekki í daglegum rekstri eða í fjárfestingar.

Horfur fyrir árið 2022

EBITDA spá fyrir árið 2022 hefur verið uppfærð í tvígang undanfarinn mánuð. Upphaflég EBITDA spá var á bilinu 5,3 – 5,6 ma.kr. Í lok september var spáin hækkuð í 5,8 – 6,1 ma.kr þar sem óvissu um meðferð sölukostnaðar við sölu Mílu hafði verið eytt og þann 11. október var hún hækkuð í 6,0 – 6,3 ma.kr. í kjólfar dóms Héraðsdóms Reykjavíkur vegna 200 m.kr. endurgreiðslu frá Samkeppniseftirlitinu.

Áætlað er að fjárfestingar verði á bilinu 4,3 til 4,6 ma.kr.


Síminn

Kynningarfundur 26. október 2022

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 26. október 2022 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Hluthafar, fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu Orri Hauksson forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans https://www.siminn.is/umsimann/uppgjor.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vefslóðinni:

https://www.siminn.is/fjarfestakynning.

Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á fjá[email protected] og verður þeim svarað í lok fundarins.

Fjárhagsdagatal 2022

Hluthafafundur 26. október 2022
Ársuppgjör 2022 14. febrúar 2023
Aðalfundur 2023 9. mars 2023

Nánari upplýsingar um uppgjórið veita:

Orri Hauksson, forstjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])
Óskar Hauksson, fjármálastjóri Símans, s. 550 6003 ([email protected])